Morgunblaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987
fclk í
fréttum
Tennisstjörnurnar Björn Borg og Maríana Simionescu á meðan
allt lék í lyndi.
og bömum sínum farborða eftir
að hann hljópst á brott með leik-
konunni Sondru Locke.
Norðurlandametið í þessum
málum á líklega tennisstjaman
Bjöm Borg, þó að hann komist
ekki með tæmar þar sem kvik-
myndastjömur og olíufurstar hafa
hælana. Mariana Simionescu fékk
nærri 500 milljónir í sinn hlut
fyrir að skilja við kappann eftir
að hann var orðinn ástfanginn upp
fyrir haus af hinni 17 ára Jannike
Björling. Sambúð Bjöms og Jann-
iku fór síðan í hundana eins og
allir vita, en öðlingurinn Bjöm
hefur látið hafa það eftir sér að
hann ætli að gera vel við Janniku
og soninn Robin, en enn hafa
okkur ekki borist neinar tölur í
því sambandi.
Clint Eastwood og draumadisin hans, leikkonan Sondra Locke.
Það kostaði leikarann 1,5 milljarð að losna úr fyrra hjónabandinu.
Brigitte Nielsen reyndist Sylvester Stallone ansi dýrkeypt.
Dýrustu skilnaðir sögunnar
Umtalaðasti og safaríkasti
skilnaður ársins er án efa
skilnaður þeirra Sylvesters Stallo-
nes og Brigitte Nielsens, og hefur
mikið verið rætt um hvað Gitta
hin danska hafi grætt á öllu sam-
an. Haft er fyrir satt að Sylvester
hafi boðið henni jafnvirði 250
miiljóna íslenskra króna í eitt
skipti fyrir öll, og aðrar 120 millj-
ónir ef hún lofar að segja ekki
opinberlega frá einkalífi þeirra
hjóna. Þetta mun svara til þess
að Gitta hafi haft 600.000 krónur
í „dagvinnulaun" fyrir að vera
eiginkona Stallones.
Þessi skilnaður er þó langt frá
þvf að vera sá dýrasti í sögunni,
og hann er ekki einu sinni dýr-
asti skilnaður Sylvesters Stallo-
nes. Hann þurfti nefnilega að
punga út litlum 1300 milljónum
til að losna við fyrri konuna sína,
hana Söshu, en hún hafði líka
alið leikaranum tvö böm, og þolað
með honum sætt og súrt í tíu ár.
Það hefur því kostað Sylvester
hveijum degi, og að þurfa að
keppa um athygli Mohammeds við
nokkrar hjákonur hans. Því gafst
hún upp á öllu saman eftir þijú
ár, og fékk í gegn skilnað, og litla
4,5 milljarða króna, auk flöl-
margra eigna olíukóngsins.
Einhver dýrasti skilnaður í
manna minnum í Hollywood er
skilnaður Clints Eastwoods við
konu sína, hana Maggie, en hún
fékk þá 1500 milljónir í sinn hlut.
Það er þó haft fyrir satt að Clint
hafi fundist Maggie vera vel að
aurunum komin, því það var hún
sem dró hann hálfiiauðugan í
prufuupptökur fyrir „Rawhide"
sjónvarpsþættina, sem gerðu Clint
frægan, en annars væri Clint
kannski enn að vinna við sína
fyrri iðju, að grafa fyrir sundlaug-
um í Los Angeles. Clint er líka
einn ríkasti kvikmyndaleikarinn í
heiminum í dag, og er auður hans
talinn nema um 6 milljörðum
króna, þannig að honum er engin
vorkunn að þurfa að sjá Maggie
nærri 1700 milljónir allt í allt að
láta glepjast af Gittu.
Fé það sem þær Brigitte og
Sasha fengu er þó bara skipti-
mynt miðað við það sem Dena
Al-Fassi fékk í sinn hlut er hún
skildi við arabíska oiíufurstann
sinn, en sá skilnaður er af fróðum
mönnum talinn eiga heimsmetið
í Qárútlátum. Dena er belgísk að
uppruna, en vann sem sölustúlka
f hátfskubúð í London þegar hún
kynntist Mohammed Al-Fassi.
Mohammed ætlaði upprunalega
að kaupa sér föt, en fór ekki út
úr búðinni fyrr en Dena var búin
að taka bónorði hans. Fyrst í stað
naut Dena lífsins í 38 herbergja
lúxusvillu þeirra hjóna f Beverly
Hills, þar sem hún hafði hálfa
milljón króna í vasapeninga upp
á hvem dag, auk flölda þjóna til
að stjana við hana á alla hugsan-
lega lund. En henni fór brátt að
leiðast ýmislegt í sambúðinni, svo
sem það að þurfa að kyssa hend-
ur og fætur eiginmannsins á
Reuter
Stórsijörnur:
Hellulögn í Hollywood
Fólk í fréttum heldur áfram
uppteknum hætti við að fræða
lesendur sína um gatnamál í
Hollywood-hverfi í Los Angeles-
Patty Andrews (með munninn
opinn) og systir hennar, Maxine,
fagna langþráðum áfanga á
frægustu gangstétt heims.
borg, en nú á fímmtudaginn var
enn ein hellan lögð í gangstéttina
þar sem stórstjömur skemmtana-
iðnaðarins fá nöfn sín rituð. Það
var ekki ómerkara fólk en Andr-
ews-systur, sem voru heiðraðar
með þessum hætti, og þykir
kannski einhveijum vera kominn
tími til, því þær systur voru flestum
vinsælli á fjórða og fímmta tug
aldarinnar. Þær Maxine og Patty
Andrews vom að vonum ánægðar
þegar þeim vom afhentar inn-
rammaðar gullstjömur til minning-
ar um stjömuna á hellunni, en
þriðja systirin, Laveme, gat því
miður ekki mætt, því hún dó árið
1967.
Eins og menn vita, þá vom mik-
il jarteikn f Los Angeles á fímmtu-
daginn, og þar nötraði jörðin og
skalf, en ekki vitum við hvort nokk-
uð samband var á milli þess og
hellulagnarinnar.