Morgunblaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLABIS, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987
15
Listaverk
eftir Helgu
Láru afhjúp-
að í Grimsby
LISTAVERK eftir Helgu Láru
Haraldsdóttur var afhjúpað við
hátíðlega athöfn hjá Icelandic
Freezing Plants Ltd í Grimsby í
lok september mánaðar. Annað
verk eftir hana var sett þar upp
fyrir tveimur árum. Fyrra verkið
sýnir fiskveiðar, en það síðara
fiskverkun fyrr á öldinni. Bæði
verkin eru steinsteypuafsteypur
úr leir.
í lok septembermánaðar var tek-
in í notkun ný frystigeymsla hjá
fyrirtækinu að viðstöddum Ólafí
Egilssyni, sendiherra íslands í Bret-
landi og borgaryfirvöldum Grimsby
auk fleiri gesta. Við það tækifæri
var listaverk Helgu Láru afhjúpaö.
Ólafur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að sér
fyndist við hæfí að skreyta bygg-
ingar fyrirtækisins með listaverk-
um, sem sýndu athafíiir úr
sjávarútvegi. A sama hátt væri það
við hæfi að ungir íslenzkir lista-
menn nytu góðs af því. „Þetta er
eiginlega framlag okkar til listar á
íslandi," sagði ölafur Guðmunds-
son.
Helga Lára Haraldsdóttir er
fædd 1957 og hóf listferil sinn, sem
listmálari, en fljótlega hneigðist hún
til höggmyndalistar. 1982 hélt hún
til London til frekara náms og vinn-
ur aðallega í brons, aðra mála,
stein, keramik og fíbergler. „Ég
leitast við að gera höggmyndina
varanlegri hluta umhverfísins en
nú er,“ segir Helga Lára. „Ég reyni
að koma höggmyndinni sem minnis-
merki aftur í tízku. Ég er mjög
áfram um að höggmyndin verði
aftur stór þáttur í umhverfinu og
tengist meira byggingarlist í stað
þess að hún hefíir verið flutt inn á
listasöfn og falin þar.“
Helga Lára helgar list sína iðn-
aði og samfélaginu. 1986 var verk
eftir hana valið til að prýða inngang
nýs sjúkrahúss í London.
Norræn kvik-
myndahátíð
næsta sumar
Fyrirhugað er, að halda norræna
kvikmyndahátíð í Kaupmanna-
höfn sumarið 1988. Á hátíðinni
verða sýndar norrænar kvik-
myndir er frumsýndar hafa verið
á undanfömum árum. Kvik-
myndaleikstjórar, rithöfundar
og leikarar frá Norðurlöndum
hafa verið fengnir í stuðnings-
nefnd hátíðarinnar, en fulltrúar
íslands í henni era þeir Hrafn
Gunnlaugsson og Halldór Lax-
ness.
Morgunblaðið ræddi við Hrafn
Gunnlaugsson, sem sagði að grun-
dvöllur fyrir norrænni kvikmynda-
hátíð væri greinilega fyrir hendi
samanber nöfn þeirra manna er
sitja í stuðningsnefndinni. Það eru
kvikmyndaleikstjórinn Ingmar
Bergmann, Anker Jorgensen fyrrv.
forsætisráðherra Dana, leikarinn
Max von Sydow og fleiri.
Helga Lára Haraldsdóttir við verk sitt
rGEGN SIAÐGREIÐSUJi
EIMSKIP
Kaupum og seljum hlutabréf Eimskips gegn
staðgreiðslu. Kaupverð nú er kr. 2.710,- fyrir hverjar
1.000,- kr. nafnverðs.
sími Hlutabréfamarkaðurinn hf.
21677 Skólavörðustíg 12, 3.h., 101 Reykjavík.
Heitavatnið
greiðir þú
Hitaveitunni sjálfri
ftá og með 5, okt.
Mánudaginn 5. október tekur Hitaveita Reykjavíkur við
innheimtu og gerð hitavatnsreikninga af Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sem annast hefur hvort tveggja fram að
þessu.
Þér, ágæti viðskiptavinur, er vinsamlega bent á að ekki
er unnt að greiða orkureikninga Hitaveitunnar hjá
Rafmagnsveitunni eftir 2. október. Þeir óskast greiddir
í bönkum, sparisjóðum, pósthúsum eða á skrifstofu
Hitaveitunnar, Grensásvegi 1 (opið mánudaga -
föstudaga frá 8.20 - 16.15).
Þessi breyting felur jafnframt í sér að nú þarf að tilkynna
Hitaveitunni um aðsetursskipti.
Allar nánari upplýsingar veitir Hitaveita Reykjavíkur í
síma 82400
Ætlunin er að sýna mest af norr-
ænum leiknum kvikmyndum á
hátíðinni, sem frumsýndar hafa
verið á allra síðustu árum. Einnig
verða sýndar stuttar norrænar kvik-
myndir og heimildarmyndir, auk
úrvals af norrænum bamamyndum,
sem ætlunin er að kynna.
HITAVEITA REYKJAVÍKUR
Grensásvegi 1, Sími 82400
RAFMAGNSVEITA
REYKiAVÍKUR
SUDURLANDS8RAUT 34 SÍM1686222
■isa.nms«lnite ttáij ousij tssása aosarssamiO oaishno<l .tcú
ARGUS/SlA