Morgunblaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987 Minning: FriðþjófurB. Guð mundsson, Rifi Fæddur 27. október 1904 Dáinn 3. september 1987 Mig langar til að minnast Frið- þjófs bróður míns með nokkrum orðum. Hans hefur verið minnst fyrir margvfsleg störf, er horfðu til heilla fyrir byggðarlag hans og er það vel. Mig langar því að minnast hans á öðrum vettvangi. Ég er yngst 9 systkina og mínar fyrstu minningar eru samtvinnaðar þeim. Ég horfði á eftir þeim fara í burtu, til náms eða starfa. Friðþjófur var sá, er lengst var heima, eða í kallfæri, þannig að ég kynntist honum best af bræðrum mínum. Það var alla tíð mjög kært með honum og pabba og oft hafði ég gaman af að hlusta á þá ræða lands- ins gagn og nauðsynjar, en aldrei heyrði ég þeim verða sundurorða. Þessi bróðir minn var föður okkar mikil stoð og stytta, sem tekin var að lýjast. Ég er ekki að kasta rýrð á hina bræður mína, þá Steingrím og Pét- ur, því mér þótti mjög vænt um þá og dáði þá alla þijá. Mér er minnisstætt hve Fiddi, en svo var Friðþjófur iðulega nefndur, var léttur í lund, hláturmildur með stríðnisglampa í augum. Hann hafði mjög næmt eyra fyrir tónlist, spil- aði á orgel og hafði góða söngrödd. Einnig átti þetta við Steingrím bróður minn, er spilaði á harm- óníku. Þann 3. desember árið 1932 kvæntist Friðþjófur eftirlifandi konu sinni, Halldóru Kristleifsdótt- ur. Þau giftu sig í stofunni heima í Rifí og fannst mér þetta ákaflega hátíðleg athöfn, sem stendur mér skýrt fyrir hugskotssjónum. Þau byijuðu að búa á Sandi. Vinnan var mikil og erfíð, en þau voru samhent og dugleg og báru gæfu til að sjá alltaf björtu hliðam- ar á hlutunum. Friðþjófur og Steingrímur gerðu út bát í Krossavík, það vita allir sem til þekkja, hversu ákaflega erfitt þetta var fyrir sjómennina, að sækja sjó- inn við þessar aðstæður og fyrir konur þeirra að koma til þeirra mat út í Krossavík. Veturinn áður en ég fermdist, átti ég að fara í Bamaskólann á Sandi. Ég var svo heppinn að Dóra og Fiddi voru enn á Sandi og ég fékk að vera hjá þeim meðan ég var í skólanum. Þar var gott að vera, Dóra var létt og glaðlynd og reyndist mér eins og besta systir. Mér líkaði mjög vel í skólanum, reyndar ágætlega, og á ég góðar minningar frá þeim vetri. Ég fermd- ist um vorið, Friðþjófur gaf mér hest í fermingargjöf, það fannst mér mjög rausnarlegt af honum og gladdi mig mikið. Þar eð ég er farin að tala um skepnur, verð ég að minnast á hana Búbót, en það var kýr, sem Dóra og Fiddi höfðu með sér út á Sandi, en hún undi sér engan veginn þar, og var alltaf að stijúka inn í Rif og hafði ýmis brögð í frammi og kom það sér mjög illa sem von var. Þó að ég væri ekki alltaf heima, var mitt eiginlega heimili í Rifí. Arið 1951 fór ég vestur að vetri til. Sjálf var ég ekki búin að stofna mitt eigið heimili og í Rifi, á heim- ili Dóru og Fidda, eignaðist ég mitt fyrsta barn. Það verður aldrei hægt að lýsa því, hvað þau Fiddi og Dóra gerðu fyrir mig. Lögðu þau á sig ómælt erfíði og ábyrgð, mín vegna, með því hugarfari að þetta væri sjálf- sagt. Slíkan greiða sem þennan, er aldrei hægt að endurgjalda. Þetta sama vor var byijað á hafn- argerðinni í Rifí. Byijunarörðug- leikamir voru gífurlegir, en Fiddi tók þátt í tilurð þessa mannvirkis af lífí og sál og það gladdi mig mjög, þar eð ég vissi að þetta var hugsjón hans, sú að sjá byggðinni borgið um ókomna framtíð, með tilkomu hafnar. Fjögur bama minna hafa verið í Rifi lengri og skemmri tíma og er ég þakklát þeim hjónum í Rifí, að heimili þeirra hefír alltaf staðið okkur opið, fullt af ástúð og hlýju og alltaf stutt í brosið, sem var þessum hjónum svo eiginlegt. Mér fínnst, að þrátt fyrir ýmsa erfiðleika og mikla vinnu, hafí þau Friðþjófur og Halldóra verið mjög farsæl. Þau áttu miklu bamaláni að fagna, ekki einvörðungu með eigin böm, heldur einnig með þá drengi er þau tóku í fóstur og ólu upp. Nú eiga þau stóran hóp bama- bama, fríðan og mannvænlegan, og ég óska þeim gæfu og gengis í framtíðinni. Þó kapítula bróður míns sé lokið, heidur lífið áfram og minningamar lifa. Ég og Ijölskylda mín þökkum honum allt sem hann gerði fyrir okkur og ætíð með ljúfu geði. Halldóra hefír misst mest, en hún stóð sig eins og hetja í erfíðum veikindum eiginmanns síns. Við þökkum henni og biðjum Guð um að gefa henni bjart og fagurt ævikvöld. Ásta Lára Guðmundsdóttir Friðþjófur var fæddur á Selhól í Keflavík við Heilissand. Foreldrar hans voru Jófriður Jónsdóttir og Guðmundur Guðmundsson, útvegs- bóndi á Rifí á Snæfellsnesi. Fyrstu ár Friðþjófs voru á Selhól, þar sem foreldrar hans reistu sér hús og hófu sinn búskap. Frá Selhól er tilkomumikið út- sýni, á aðra hönd er hafíð sem Friðþjófur stundaði í svo mörg ár, en á hina gnæfír Snæfellsjökull sem segja má að hafí aldrei farið úr augsýn á hans löngu ævi. Þegar Friðþjófur var ungur drengur voru hans fyrstu skref útá Bæjarklett- ana, en þeir liggja fyrir neðan Selhól og fara verður um þegar leiðin ligg- ur að sjónum í Keflavíkinni. Þaðan gáði hann að báti föður sfns þegar hann var á sjó. Þegar hann kom að landi var lent í Vörinni. Fyrstu minningar Friðþjófs snerust um fískveiðar, fyrst í leik og síðan í starfí. Maðurinn mótast oft af umhverfi sínu og þeim aðstæðum sem hann elst upp við. Friðþjófur var ekki t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, LÁRA ANTONSDÓTTIR, Bræðraborgarstig 53, lést í Landspítalanum aðfaranótt 30. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. t INGIBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR, pfanókennari, andaðist 2. október á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Þjóökirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 8. október kl. 13.30. Vandamenn. Valur Guðmundsson, Stefanfa Rósa Sigurjónsdóttir, Helmir Ingimarsson, Sigrún Valsdóttir, Guðmundur M. Jónsson, Björk Valsdóttir, Magnús Leópoldsson, Ema Valsdóttir, Sveinn Skúlason, barnabörn og barnabarnabörn. t Bróðir okkar, ÓLAFUR BJARNASON frá Þorkelsgeröi f Selvogi, er látinn. 1 t Systkinin. Móðursystir mín. frá Æðey, andaðist laugardaginn 3. október á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Jarðarförin auglýst síðar. Helena G. Zoéga. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóöir og amma, BORGHILDUR VILMUNDARDÓTTIR, Grýtubakka 26, sem andaðist í Landspítalanum aðfaranótt 29. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. október kl. 10.30. t Systir okkar, ÞÓRDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR SLOVACEK, Los Angeles, andaöist 29. fyrra mánaðar. Kjartan Guðjónsson, Benóný Guðjónsson. Ingi S. Bjarnason, Björg Ingadóttir, Jón Steindór Ingason, Anna Þ. Eirfksdóttir, Birna G. Ingadóttir, Rúnar S. Svavarsson, Ingi Gunnar Ingason, Kristjana Kristjánsdóttir, Ragna St. Ingadóttir, Gunnhildur Anna Ingadóttir, Bjarni V. Ingason, Jóhanna S. Ingadóttir, Siguröur Karlsson, Ráðhildur S. Ingadóttir, Tumi Magnússon og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, ÁSBJÖRN GUÐJÓNSSON, Kleppsvegi 36, Reykjavfk, lést á Hrafnistu sunnudaginn 4. október. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar, föður og bróður, AXELS HARALDAR ÓLAFSSONAR. Sérstakar þakkir til lækna og starfsliös deildar 11-A Landspítal- ans fyrir frábæra umönnum. Fyrir hönd barna, systkina, móður- systur og annarra vandamanna, Hlfn Nielsen, Ólafur M. Ólafsson. nema '10 ára þegar hann byijaði að róa með föður sfnum. í þá daga voru það ekki stór skip sem róið var á til físlqjar. Bátur föður hans var opinn árábátur. Þetta líf reynd- ist honum sem unglingi oft erfítt, að horfa uppá himinháar öldumar þegar þær komu æðandi að bátskel- inni, þá var ekki annað en að duga eða drepast í orðsins fyllstu merk- ingu. En kjarkurinn var fyrir hendi og alltaf náði Friðþjófur landi. Ekki var kvartað þegar komið var að landi eftir erfíða sjóferð, aðspurður var mikið að hann sagði: „Já, við fengum nú hálf slæmt." En oft blés byrlega og báturinn brunaði áfram gegnum öldudalina, inn að lendingu þar sem fjöllin spegluðust í hafflet- inum. Þegar hann var 10 ára gamall fluttu foreldrar hans inn í Rif og þar átti hann eftir að búa alla sína tíð. Rif var þá að mestu óbyggt og verkefnin óþijótandi. Friðþjófur var næst elstur 9 systkina, og þar sem hann var elst- ur bræðranna lenti það mest á honum að hjálpa föður sfnum að byggja allt upp á Rifí og rækta jörðina. Stundum gafst hlé frá strit- inu. Þannig háttaði til að þegar Friðþjófur var að alast upp var búið á öllum bæjum í hreppnum utan Ennis. Vom margir jafnaldrar hans á hinum bæjunum og var allt- af mikil vinátta þar á milli sem hélst alla tíð. Oft kom þetta fólk saman sér til skemmtunar og þurfti Friðþjófur aldrei vín né tóbak til að geta tekið þátt í gleðskapnum. Hann var þeim skapsmunum gædd- ur að vera ætíð léttur og kátur. Hann var lfka fjarska söngelskur og tók lagið í góðra vina hópi. En nú em þessir jafnaldrar hans og vinafólk löngu horfíð og sveitabæimir í hreppnum komnir í eyði. Á Rifí var hins vegar búið áfram og þar bjó Friðþjófur svo lengi sem aldur og heilsa leyfðu. Árið 1932 kvæntist hann Hall- dóm Kristleifsdóttur, ættaðri frá Hrísum í Fróðárhreppi. Stóðu þau ætíð saman í blíðu og stríðu og vom samhent við búskapinn. Þegar þau hófu sinn búskap þurfti Frið- þjófur að vera allt í senn bóndi, útgerðarmaður og skipstjóri. Öll vinna var erfíðari þá en nú er því flest var unnið í höndunum. Frið- þjófur var ekki sú manngerð sem hlffði sér og margur er sá steinninn sem hann varð að bera úr Rifstún- inu. Blað var brotið í lífí þeirra hjóna þegar þau tóku þá ákvörðun að selja bújörð sína svo þar yrði byggð höfn fyrir hreppinn. Halldóra og Friðþjófur sáu miklar breytingar eiga sér stað á Rifi, er lítil bújörð breyttist í heilt þorp með ámnum og tilkomu landshafnarinnar. Frið- þjófur og Halldóra áttu langa ævi saman og hefur hér aðeins verið stiklað á stóm, en af miklu er að taka. Nú em allir bræðumir í Rifí, eins ög þeir vom oft nefndir, Friðþjófur, Pétur og Steingrímur, horfíiir til feðra sinna. Afkomendumir halda starfínu áfram. María Guðmundsdóttir Btómastofa fíiðfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öllkvöld til kl. 22,- éínnig um helgar. Skreytingar við Öll tilefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.