Morgunblaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.10.1987, Blaðsíða 13
f- MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987 13 TÍMASJÁ RÚRÍAR Myndlist Bragi Ásgeirsson í Kjarvalssal á Kjarvalsstöð- um sýnir Þuríður Fannberg, betur þekkt undir listamanns- heitinu Rúrí, 5 ný verk, er hún hefur gefíð samheitið „Tími“ fram til 11. október. Þetta eru engin almenn mynd- verk, heldur tvö viðamikil umhverfísverk, „grafískar dóku- mentasjónir", ljósmyndir og teikningar og hafa öll verið á sýningum erlendis áður, í Kaup- mannahöfn, Malmö og Helsing- fors, en eru nú í fyrsta skipti sýnd h*r heima. Jafnframt heftir hún látið prenta 40 síðna kynn- ingarrit með myndum í svart- hvítu og lit, sem eru heimildir um verk, sem hún hefur verið að vinna að á undangengnum árum svo og gjöminga ýmiss konar. Rúrí er atorkumikil listakona, Rúrí sem leggur jaftivel meiri áherslu á að sýna og vera virk í listinni í útlandinu en hér heima, enda hafa víst fáir íslenzkir myndlist- armenn sýnt jafn víða á sl. áratug og hún. En Rúrí hefur þó komið heil- mikið við sögu í íslenzkum núlistum og þá einkum hvað varðar umhverfísverk og gjöm- inga, en einnig getur hún bmgðið fyrir sig traustum sígildum vinnubrögðum, svo sem sjá má í verðlaunaverki fyrir flugstöð Leifs Eiríkssonar. En framar öllu öðra er Rúrí hugmyndafræðilegur listamað- ur, þar sem hvert verk er sjálf- stæð hugmynd í efni og útfærslu og er hér á línu með Joseph Beuys og raunar mörgum öðram. Verk Rúríar era framar öðra fjöl- þjóðleg og þannig gerð undir sterkum áhrifum frá alþjóðleg- um straumum síðustu áratuga og þannig séð koma þau manni ekki á óvart, nema ef vera skyldi fyrmefnt verðlaunaverk. Menntun listakonunnar er mjög traust, og ég held að eink- um njóti hún þess ríkulega að hafa verið tvö ár í málmsteypu- deild Iðnskóians, sem auðveldar henni mjög að hagnýta sér lista- skólanámið og framkvæmd hinna ýmsu hugmynda sinna. Þetta kemur vel fram á sýn- ingunni, t.d. í umhverfísverkinu „Safn", þar sem hinar dökku kistur era hin vandaðasta smíð og skapa dulmögnuð áhrif á hinu afmarkaða svæði. Gerandinn hefur staðsett hina margvísleg- ustu hluti og dót úr nýliðinni tíð og fortíð í kistumar, og stundum nær því að framkalla óvænt áhrif hjá skoðandanum. Allar kistum- ar era eins, en númer og innihald mismunandi. Þessi hluti sýningarinnar hafði einna öflugust áhrif á mig, en ég er ekki viss um, að hér komi fram sterkustu né persónu- legustu einkenni listamannsins. Umhverfísverk Rúríar, „Con- crete“, er t.d. mjög í anda þess, sem ég hef séð á höggmyndasýn- ingum ytra, t.d. sumarsýning- unni í Veksölund fyrir utan Kaupmannahöfn. Verkið vekur hjá manni ákveðin viðbrögð, einkum þegar maður sér það í lit í ritlingnum. í svart-hvítu ljós- myndunum verða áhrifín önnur og öllu rýrari. Slíkur leikur með tímann og rýmið getur verið mjög áhuga- verður, þegar best lætur og orsakað sterk viðbrögð hjá fólki. Ég er þó ekki alveg jafn mik- ið með á nótunum varðandi umhverfísverkið „Tími“, þar sem listakonan framkallar ljósmyndir á stórar glerplötur sem hanga í lausu lofti og er með dót úr fortíð á gólfí — en kannski fellur húsnæðið ekki að hugmyndinni, t.d. sýnist mér verkið komast betur til skila í dagsbirtu er skín inn um glugga á Sveaborg. í öllu falli hreyfði verkið lítið við kenndum mínum. Hvað varðar ljósmyndir af verkunum „Tími Lystiskáli" og „Rúst“, þá er ákaflega erfítt að taka afstöðu til þeirra, því að helst hefði maður þurft að vera á staðnum, þar sem verkin vora sett upp, til að vera fær um það, meðtaka áhrifín að fullu. Vinnubrögð Rúríar era þaul- hugsuð og vísindaleg og hún hefur fyrir löngu sannað styrk sinn sem listamaður af alþjóð- legri gráðu og sýningin staðfestir það ágætlega, en satt að segja þá gefur ritlingurinn mun betri hugmynd hér um. Oruggar upplýsingar um KASKÓ-ÁVÖXTUN Síðasta vaxtatímabil gaf ársávöxtun sem svarar 22,96% Ávöxtun fyrir síðasta vaxtatímabil KASKÓ-reikningsins (júlí-sept.) var 5,3%. Það þýðir miðað við sömu verðlagsþróun fyrir heilt ár 22,96% ársávöxtun. Ef miðað er við síðustu þrjú vaxtatímabil KASKÓ-reikningsins (janúar-sept.) þá er ársávöxtun reiknuð á sama hátt 24,38%. KASKÓ - öryggislykill Sparifj áreigenda. VKRZUJNRRBRNKINN -viwucr meb fi&i f L.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.