Morgunblaðið - 09.10.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
Icelandic Freezing Plants í Grimsby;
Frekari viðskipti við
Marks og Spencer rædd
ICELANDIC Freezing Plants
Ltd., dótturfyrirtæki SH í Grims-
by, stendur nú í viðræðum við
verzlunarkeðjuna Marks &
Spencer í Bretlandi um sölu á
verulegu magni af fiskréttum.
Framleiðsla og sala upp í fyrri
samning gengur vel, að sögn In-
gólfs Skúlasonar, framkvæmda-
stjóra.
Ingólfur sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að vörum fyrirtækisins
hefði verið mjög vel tekið í verzlun-
um Marks & Spencer og verð væri
viðunandi. Segja mætti að í þessum
verzlunum stæði íslenzkur gæða-
fískur fyllilega undir nafni. Hann
sagðist binda nokkrar vonir við að
núverandi viðræður leiddu til um-
talsverðrar sölu fískrétta til Marks
& Spencer, en of snemmt væri að
nefna tölur um magn og verð.
Ingólfur gat þess einnig að sala
fyrirtækisins á unnum og óunnum
físki væri með svipuðu sniði og
áður. Þó gengi hægar en áður að
MJÖG harður árekstur varð á
mótum Bústaðavegar og Rétt-
arholtsvegar á miðvikudags-
kvöld. Einn maður slasaðist
lítillega, en tvær bifreiðar eru
mikið skemmdar eftir, ef ekki
ónýtar.
Áreksturinn varð um kl. 23.
Bifreið var ekið suður Réttarholts-
selja sjófrystan fisk. Það stafaði
meðal annars af mikilli aukningu á
slíkri framleiðslu, meðal annars frá
Norðmönnum. Markaðurinn hefði
ekki vaxið svo heitið gæti og því
gengi salan hægt.
veg og annarri austur Bústaðaveg.
Á gatnamótunum eru umferðar-
ljós, en annar ökumannanna hefur
túlkað ljósin rangt og því skullu
bifreiðarnar saman. Annar öku-
mannanna meiddist lítillega.
Báðar bifreiðamar voru dregnar á
brott af kranabifreið og kalla varð
til dælubifreið frá slökkviliðinu til
að hreinsa olíu af götunni.
Ekið á umferðarljós
VEÐURHORFUR í DAG, 09.10.87
YFIRLIT á hádegi f gær: Hæö er yfir Norður-Grænlandi en víðáttu-
mikil lægð austur og norðaustur af landinu, auk þess vaxandi lægð
á sunnanverðu Grænlandshafi.
SPÁ: í dag lítur út fyrir hvassa norðanátt á landinu með snjókomu
eða éljagangi og skafrenningi um allt norðanvert landið en úrkomu-
lítið sunnanlands. Frost 0—6°
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
LAUGARDAGUR: Norðanátt, allsnörp austantil en mun hægari
vestantil og víða él norðan- og austanlands eh bjartviðri sunnan-
og suðvestanlands. Frost 1—4 stig.
SUNNUDAGUR: Hæg norðanátt um austanvert landið en austan
og suðaustan gola eða kaldi annars staðar. Smá él um austanvert
landið, snjókoma eða slydduéi við suðurströndina en úrkomulaust
eða úrkomulítið í öðrum landshlutum. Frost víða 1 til 2 stig norð-
an- og austanlands en 2ja til 3ja stiga hiti sunnanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
•á Léttskýjað
Hálfskýjað
Á Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / # Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * #
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
El
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
*
V
5 5
5
oo
4
K
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavfk hltl + 4 +1 veður snjókoma skýjað
Bergen 11 rigning
Helslnkl 10 þokumóðe
Jen Mayen 2 skúrés.klst.
Kaupmannah. 13 rignlng
Nerssarssuaq 4 heiðskfrt
Nuuk + 4 helðskfrt
Ostó 11 rign. ogsúld
Stokkhólmur 13 þokumóða
Þórshófn 3 skýjað
Algarve 21 skúrðs.klst.
Amsterdam 13 skúrðs.klst.
Aþena 23 skýjað
Barcelona vantar
Berlín 18 rfgnlng
Chlcago 3 Iðttskýjað
Feneyjar 16 þoka
Frenkfurt 13 skúrðs. klst.
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 16 skýjað
Las Palmas 26 skúr
London 12 skýjað
LosAngeles 18 alskýjað
Lúxemborg 8 skúr
Madrfd 22 Iðttskýjað
Malaga 23 léttskýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 7 rign.ðs. klst.
NewYork 9 helðskfrt
Parls 12 þokumóða
Róm 23 skýjað
Vfn 22 skýjað
Washlngton vantar
Wlnnlpeg 2 skýjað
Símamynd/Reuter
Vigdis Finnbogadóttir, forseti íslands, á leið i skoðunarferð um
vínakra í Catania á Sikiley. Þyrla lenti með forsetann á þjóðveginum
og þar tók á móti henni héraðshöfðingi Catania, Vincenzo Catan-
oso, sem sést við hlið hennar á myndinni.
Heimsókn forseta íslands til Sikileyjar:
Farið í þyrlu til
þess að skoða Etnu
Sikiley. Frá Kristínu Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsuis.
ÞYRLA var notuð til þess að
sýna Vigdísi Finnbogadóttir,
forseta Islands, eldfallið Etnu
á öðrum degi heimsóknar
hennar til Sikileyjar í gær.
Eftir að eldfjallið hafði verið
skoðað, lenti þyrlan á þjóðvegi,
þar sem öll umferð hafði verið
stöðvð. Þar tók hérðashöfðingi
Catania á móti forsetanum og
fylgdi henni í skoðunarferð um
vínakra í nágrenninu.
Forsetinn dvaldist í Sýrakúsu í
fyrrinótt og skoðaði þar leikhús
fíá tímum Grikkja á Sikiley í
gærmorgun, sem og hún gerði í
bænum Taormina seinnipart dags-
ins. Heimsókn forsetans til Ítalíu
lýkur í dag og er hún væntanleg
heim til íslands síðdegis, en vegna
verkfalls starfsmanna á Rómar-
flugvelli er óvíst hvenær flugvél
forsetans kemur til landsins.
Grimsby:
80 krónur
fyrir kíló
af grálúðu
OTTÓ Wathne NS seldi á fimmtu-
dag 100 tonn af fiski I Grimsby.
Mjög hátt verð fékkst fyrir grá-
lúðu í aflanum, rúmar 80 krónur,
en verð á ýsu var lágt.
Heildarverð fyrir aflann var 6,8
milljónir króna. 76 tonn áf þorski
fóru að meðaltali á 69,83 krónur
hvert kíló, 8 tonn af ýsu á 60,65 og
8 tonn af grálúðu á 81,07 krónur.
Ur umferðinni í Reykjavík
miðvikudaginn 7. október 1987
Árekstrar bifreiða: 15.
Báðir ökumenn urðu fyrir meiðslum í árekstri kl. 12.10 á mótum
Blöndukvíslar og Straums. Tækjabifreið, sjúkrabifreið og kranabifreið
þurfti á staðinn. Klippa þurfti bifreið svo losa mætti um fætur öku-
manns.
Ökumaður varð fyrir meiðslum og var fluttur á slysadeild eftir árekst-
ur kl. 19.07 á mótum Stekkjarbakka og Höfðabakka og enn varð
umferðarslys kl. 22.55 er bifreiðir rákust saman á mótum Bústaðaveg-
ar og Réttarholtsvegar og ökumaður fluttur á slysadeild. Kranabifreið
ijarlægði bílana.
Samtals 43 kærur fyrir brot á umferðarlögum á miðvikudag.
Ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og hæst ber 94 km/klst
hraða um Sætún þar sem leyfílegur hraði er 50 km/klst.
93 km/klst hraði um Höfðabakka og 90 km/klst hraði um Breiðholts-
braut.
Réttindalaus ökumaður var stöðvaður á vélhjóli.
Ökumenn voru kærðir fyrir akstur á móti rauðu Ijósi á götuvita og
fyrir stöðvunarskyldubrot.
Klippt voru númer af 16 bifreiðum og 5 voru færðir til bifreiðaeftirlits-
manns vegna vanrækslu á aðalskoðun og/eða slæms ástands.
Auk þess að beita sektum létu lögreglumenn fjarlægja 9 bifreiðir vegna
ólöglegra og slæmra lagna.
Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.