Morgunblaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Saga afNauti
Ég hitti um daginn vin minn
sem er í Nautsmerkinu og
áttum við tal saman. „Veistu
hverju ég var að taka eftir í
fari mínu?" sagði hann við
mig. „Nei, það veit ég ekki,“
sagði ég, enda varla von að
ég vissi hvað hann væri að
hugsa.
Þrjóskur
„Ég hef tekið eftir því að ég
get verið mjög þrjóskur,"
sagði vinur minn. „Hefur þú
tekið eftir því að þú getur
verið hvað, — þijóskur?"
sagði ég og lagði áherslu á
hvert orð. Enda varð ég hissa
á þessari yfirlýsingu. „Þú,
Nautið, þijóskur," bætti ég
við. Satt að segja fannst mér
þetta verulega fyndið. Það er
alltaf eilítið sérstakt þegar
manni er sagt í fréttum það
sem alkunna hefur verið und-
anfama áratugi.
Aö reka á eftir
„Já, og ég hef tekið eftir því
hvenær hún birtist helst,“
bætti hann við án þess að
taka eftir viðbrögðum
mínum. „Það er helst þegar
einhver ætlar að reka á eftir
mér, að þá tek ég eftir því
að ég á til að verða rólegri
og rólegri. Ég þoli ekki að
það sé rekið á eftir mér.“
Síðustu orð hans voru mælt
af þunga.
Réttskref
„Eins og þú veist," hélt vinur
minn áfram, þá erum við
Nautin oft frekar róleg í
tíðinni. Við erum ekki löt en
við viljum fara varlega. Við
viljum hafa fætuma á jörð-
inni og vera viss um að hvert
skref sem við tökum sé rétta
skrefið. Skilur þú hvað ég er
að meina?" Hann leit þungum
augum á mig, eins og til að
gefa orðum sínum aukna
áherslu. „Já, já,“ sagði ég,
„ég skil þig ágætlega, enda
er ég sjálfur f Nautinu."
100% viss
„Já auðvitað, þú ert Naut,“
sagði hann og leit á mig. Ég
sá að augnsteinar hans þönd-
ust eilftið út. Hann var
greinilega að endurmeta mig.
„Það sem ég var raunveru-
lega að uppgötva,“ hélt hann
áfram, „er að ég verð óörugg-
ur þegar ég er ekki 100%
viss um að næstu skref f
hveiju máli séu örugg. Þegar
einhver er síðan að reka á
eftir því að ég taki ákvörðun,
þá truflast ég og þarf að fara
enn hægar en áður. Þeim
mun meira sem ýtt er á mig,
þeim mun hægar fer ég,
þangað til ég stoppa jafnvel
aiveg.“
Hcettir viö
„Það fyndna við þetta allt-
saman er að utanaðkomandi
þrýstingur getur jafnvel feng-
ið mig til að hætta við mál
sem ég hef annars áhuga á.“
Hann hafði horft niður f göt-
una þegar hann sagði síðustu
orðin en leit nú á mig og ég
sá að áhyggjuhrukkur höfðu
myndast á ennið. „Þér finnst
þetta ekkert skrítið, eða
hvað?“
Flýta sér hcegt
„Nei, nei, blessaður vertu,“
flýtti ég mér að segja. „Þú
ert bara Naut. Þetta er eðli-
legt. Þú ert að segja að það
borgi sig ekki fyrir fólk að
ýta á þig. Ég skil það vel,
enda er ég sjálfur í Nautinu:
Við viljum fá að þramma í
gegnum lífið, skref fyrir
skref, með fast land undir
fótum. Þú veist hvemig fólk
er. Alltaf að ijúka vanhugsað
út í einhver mál. Og svo ætl-
ar það að reka á eftir okkur,
bara til þess að láta okkur
gera sömu glappaskotin. En
við vitum betur. Það er best
að flýta sér hægt.“
GARPUR
<5 ARPUR. B '/ÐUK
EKK) BO&4HNA
AÐ &EKJA
TÖFfZA -
SLÓE>
OBRA-../
GRETTIR
PALÍTtP SO&A-
LEGUFt POLLUfZ,
J.KK.I SATT,GKETT\R?)
/ OF PJÚFTJP FVRjR \ / 5VONA UITIMN hÍA- \ l UMöA EIN6 OQ ÞlQ J / pú ÆTTire AP \ [ S1AMPA 'A HEKPUM \ V TÓMS )
©1986 United Feature Syndicate.lnc. . -u—
TOMMI OG JENNI
DRATTHAGI BLYANTURINN
FERDINAND
HA \ \!/,//'
HAjM v/ / '
'
cate.inc
SMÁFÓLK
HI.MVNAME 15 LINU5..
I 5IT HERE IN THE
PE5K IN FKONT OF YOU.
I VE BEEN 5ITTIN6
HEKE ALL VEAR_
AREN T vou kinp
.OF OLP FOR ME? .
ftAUGH!
Sæl, ég heiti Lalli.. .Ég sit Ég er búinn að sitja hérna Ertu ekki einum og gam-
hérna við borðið fyrir allan veturinn.
framan þig.
all fyrir mig?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vestur spilar út tfgulníu, topp
af engu, gegn fjórum hjörtum
suðurs.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ KDG102
VDG7
♦ 86
♦ ÁDG
Austur
♦ Á75
♦ 32
♦ ÁDG1042
♦ 76
Vestur Norður Austur Suður
— — — Pass
Paas 1 spaði 2 tíglar 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Austur drepur á tígulás og
suður fylgir með sjöunni. Hveiju
á austur að spila í öðrum slag
og hvaða fjóra slagi vonast hann
til að vömin taki?
Eitt er víst: vömin fær ekki
fleiri slagi á tígul eða lauf.
Spaðaásinn stendur fyrir sínu,
en þeir tveir sem á vantar verða
að koma á tromp. Vonandi á
makker annaðhvort ásinn eða
kónginn í hjarta, en því til við-
bótar verður hann að vera með
tvílit í spaða.
Vestur Norður ♦ KDG102 ♦ DG7 ♦ 86 ♦ ÁDG Austur
♦ 83 ♦ Á75
♦ K54 ♦ 32
♦ 953 ♦ ÁDG1042
♦ 98542 ♦ 76
Besta Suður ♦ ♦ 964 ♦ Á10986 ♦ K7 K103 vömin er því að spila
smáum spaða í öðrum slag.
Þannig helst samgangurinn til
að taka stunguna þegar vestur
kemst inn á trompkóng.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í San Bemardino
í Sviss í september kom þessi
staða upp í skák sstórmeistarans
VlastimUs Hort, sem nú teflir
fyrir V-Þýzkaland og hinnar 13
ára gömlu Judit Polgar, einnar
af hinum frægu Polgar-systrum
frá Ungveijalandi.
20. Bxh6! - Bxh6, 21. Hxe5 -
dxe5, 22. Dxg6+ - Bg7, 23. Rf5
- Df8, 24. Rh6+ - Kh8, 25.
Bd3 og svartur gafst upp, þvf
máti verður ekki forðað. Þrátt
fyrir þetta náði Judit 5*/2 v. úr 9
skákum og varð jöfn ýmsum
þekktum skákmönnum. Hún féll
þó nokkuð í skuggann af litlu
systur sinni, Sofíu, sem hlaut jafn-
marga vinninga, en er aðeins
ellefu ára gömul.