Morgunblaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987 19 að fá nokkra velþóknun á þeirri tilhugsun, að við höfum þó altént eitthvað að skrifa um — eins og okkar aðstæður væru gjörsamlega aðrar en þær sem gerast annars staðar í heiminum. Hvað mig snertir er ég Roth sammála: Við erum ekki svo frábrugðin ykkur hinum. Ég veit ekki hvort ég get fallizt á þetta að öllu leyti — það er til að mynda staðreynd að austur- og miðevrópskar, og þá ekki hvað sízt tékkneskar, bókmenntir hafa á síðastliðnum 30 árum leitt fram á sjónarsviðið fjölmarga mikilhæfa rithöfunda, og fjöldi þeirra er á engan hátt í réttu hlutfalli við fjölda íbúa þessara landa. — Já, en hversu mikilhæfír eru þeir svo eiginlega — hversu þungt eiga öll þessi viðurkenndu nöfn eftir að vega? Líttu á Albert Ca- mus — hjá honum var fyrir hendi algjör eining og samruni persónu- leika og rithöfundar. Það er sem sagt til heilmikið af bókmenntum, sem samdar eru út frá allt ann- arri viðmiðun og hvíla á öðrum grunni; það eru þess háttar bók- menntir, lifandi raunhæfar bókmenntir, sem ég hef mun meira dálæti á. Ef menn fara að glugga í ævi- sögur rithöfunda frá 19. öld, komast menn að raun um, að Dostojévskij var einn í þessum hópi, en það voru á hinn bóginn enskir rithöfundar þess tíma ekki, því að þeir skrifuðu sín verk í anda gervimennsku — þeir voru dugmiklir og færir handverks- menn, en þeir sömdu ekki skáld- verk með sínu eigin lífí. Heilmikið af því sem birtist af veigamiklum tékkneskum bók- menntum nú á dögum, kemur út sem samizdat — fjölrit — það er að segja að verkin eru skrifuð á ritvél með kalkipappír og dreift frá manni til manns á ólöglegan hátt. Geturðu útskýrt þetta kerfi svolí- tið betur? Samizdat-ritverk eru fyrst og fremst afar dýr. Líttu á þetta rit hérna með gagnrýnar greinar — það kemur út þrisvar á ári, og hvert hefti kostar 50 tékkneskar krónur. Ég gaf út allmargar grein- ar í þykku samizdat-hefti fyrir nokkru — það kostaði 370 tékkne- skar krónur og samt seldist það upp á skömmum tíma, öll 50 ein- tökin. Óinnvígðir hafa oft á tíðum grunsemdir um, að samizdat-ritin njóti sérstaks fjárstuðnings frá einhveijum vafasömum skugga- öflum hér í Tékkóslóvakíu eða í útlöndum. Það er alveg rangt, þótt Charta 77 takist að útvega og leggja fram einhveijar tiltölu- lega óverulegar fjárupphæðir. Hvað kostar venjuleg skáldsaga í opinberri útgáfu, þegar hún er komin í bókaverzlanir? Eitthvað á bilinu 25—30 tékkn- eskar krónur (ein tékknesk króna samsvarar eitthvað á milli einnar og 3,75 íslenskrar krónu allt eftir því hver hin opinbera gengisskrán- ing er). Hvemig geturjafn fámenn þjóð og Tékkar og Slóvakar, og jafn Iítil borg og Prag verður þó að teljast á alþjóðamælikvarða, haldið uppi jafn þróttmikilli og lifandi menningar- og bókmenntastarf- semi? Hún var nú samt allt önnur og fjölbreyttari hér áður fyrr, eða allt fram til áranna milli heims- styijaldanna; á þeim tímum átti slík fjölskrúðug menningariðja rætur sínar að rekja til sambúðar ailra hinna mismunandi þjóðahópa hérlendis: Tékka, Slóvaka, Þjóð- veija, þýzkumælandi gyðinga, tékkneskumælandi gyðinga, rétt- trúaðra gyðinga og landflótta Rússa... SKÝRR: Lagasafnið kom- ið mn í LAGASAFN íslands er nú kom- ið inn í tölvu Skýrsluvéla ríkisins. Öflun upplýsinga úr safninu er því auðveldari en áður og ný lög eða breytingar á lögum verða færðar jafnóð- um inn. Þá verður útgáfa lagasafns á bók auðveldari og ódýrari en áður. Frá þessu er sagt í nýjasta tölu- blaði SKÝRR-frétta. Þar kemur fram, að vorið 1986 var texti lag- anna frá 1983 kominn inn í textaleitarsafn og forrit tilbúin. Þá átti eftir að færa breytingar á lögum inn í textann og nú hefur textinn allur verið samræmdur gildandi lögum í ársbyijun 1986. í viðtali við Sigurð Líndal, pró- fessor, kemur fram að þessi tölvuvæðing auðveldaði alla upp- lýsingaöflun, því gott leitarkerfi í lagasafni flýtti fyrir leit að margví- slegum atriðum í lögum. Til dæmis væri í einu vetfangi hægt að fá skrá yfír alla lagastaði þar sem orðið þjófnaður kæmi fyrir. Þó yrði iðulega að þrengja skil- tölvu greininguna til að fá ekki yfír sig alltof langa lista með óþörfum upplýsingum. Sigurður sagði, að nú verði auðveldara að fá heildar- yfírsýn yfír löggjöf á ýmsum sviðum, þannig að auðveldara verði að hreinsa til, fella niður það sem úrelt er og hefur ekki gildi lengur ef Alþingi ákveður svo og við setningu nýrra laga verði bet- ur hægt að forðast skörun laga og ýmislegt ósamræmi sem óneit- anlega hafi ágerst í seinni tíð. Þeir, sem þegar eru tengdir SKÝRR geta fengið aðgang að lagasafninu með því að biðja skrif- lega um það. Aðrir, sem eiga til dæmis einkatölvu, geta tengst SKÝRR með upphringisambandi um talsímanetið, en allar nánari upplýsngar veita starfsmenn not- endaráðgjafarsviðs SKÝRR. Þrír starfsmenn SKÝRR hafa unnið mest að tölvuvæðingu lagasafns- ins, þau Einar Jónasson, yfírkerf- isfræðingur, Lilja Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri notendaráð- gjafarsviðs og Jón Sigurgeirsson, lögfræðingur. Flúðavegur: Vélgrafan með lægsta tilboð VÉLGRAFAN sf Selfossi átti lægsta tilboð í tæplega 750 metra kafla á Skeiða- og Hrunamannavegi, frá Hellis- holti að Flúðum. Tilboð fyrir- tækisins var 1.418 þúsund krónur, sem er 78% af kostn- aðaráætlun Vegagerðarinnar. Kostnaðaráætlun var 1.814 þús- und krónur. Níu verktakar buðu í veginn, þar af voru sjö með tilboð um eða undir kostnaðaráætlun- inni. Tilboðin voru öll frá verktök- um á Suðurlandi. AF ERLENDUM VETTVANGI Kúba: Castro hefur ekki þörf fyrir sovéskt „glasnost“ Snýr við blaðinu í ef nahagsmálum Á SAMA tíma og „glasnost“, stefna Gorbachevs og stjórnar hans, auka frelsi og boða komu félagslegra umbóta í Sovétríkjunum stefnir Kúba, sem er háð velvilja og samstarfi við Sovétríkin, í allt aðra átt, mörgum kúbönskum borgurum til mikillar ar- mæðu. Castro, sem haldið hefur um stjórnartaumana og hvergi slakað á klónni siðan 1959, virðist ekki telja að kúbönsk alþýða hafi gott af sovéskri þíðu. Hingað til hefur sovéska fréttatímaritið Novedades du Moscu“ fengið að liggja óhreyft í Havana en upp á síðkas- tið hefur það verið rifið út. Kúbanskir borgarar vilja ekki missa af nýjustu fréttum af „glasnostinu" í Sovétríkjunum, sem þeir hafa ekki fengið að kynn- ast heima fyrir, þó þeir gjarnan vildu. Á Kúbu hefur Fidel Castro snú- ið þróuninni við og hert miðstýr- inguna. Fyrir fímmtán mánuðum hætti Castro við sex ára efna- hagstilraunir og lýsti yfír að hann hefði áhyggjur af „ný-kapítalísk- um“ áhrifum sem væru farin að skjóta upp kollinum. Þær breyt- ingar sem koma sér verst fyrir almenning á Kúbu er að Castro ákvað að loka fyrir markaði bænda, sem hafa séð fólki fyrir nauðþurftum í endalausum vöru- skorti í verslunum í borgum landsins. Markaðimir hafa gert það að verkum að fólk hefur get- að keypt matvæli sem áður höfðu aldrei borist til borganna og bændur hafa náð að eignast meira fé en áður. Fjölmiðlar á Kúbu hafa að und- anfömu verið fámálir um atburði og gang mála í Sovétríkjunum. Dagblöð greindu frá því í fáeinum línum að lög hefðu verið sett í Sovétríkjunum sem heimiluðu og hvettu fyrirtæki til að verða sjálf- um sér nóg í rekstri og fjármögn- un. Castro sjálfur hefur ekki farið mörgum orðum um Sovétríkin eða Gorbachev. Hann hefur hins vegar gefíð í skyn að hann sé ekki sátt- ur við hina nýju stefnu Sovétleið- togans. Á þingi ungliða í kommúnistaflokki landsins sagði Castro í ávarpi að Kúbanir ættu sjálfír að ákveða á hvem hátt þeir þróuðu og nýttu hugmyndir fræðinganna Marx og Lenins. Gagnrýndi hann í ávarpinu gróða- sjónarmið í viðskiptum og verslun. Nýjustu áætlanir Castros til að auka framleiðslu í landinu fela í sér að hann mun sjálfur stöðugt hvetja menn til dáða. Nú eru til- vitnanir í orð hans á skiltum meðfram vegum landsins: „Eina leiðin til að binda enda á óreiðu og litla framleiðni er að hver maður beri ábyrgð á eigin verki" segir meðal annars í hvatningar- orðum hans. Hann hefur reynt þessa hvatningarherferð áður með misjöfnum árangri. Til eru þeir sem em sammála Castro um að bændamarkaðimir hafi alið af sér græðgi og að eina von Kúbu felist í meiri vinnu. „Við getum ekki öll lifað á braski," segir ung kennslukona. En flestir Kúbanir skella skolla- eymm við hvatningarorðum Castros og segja að bændamark- aðimir hafi verið til mikilla bóta fyrir alla aðila, bæði bændur og borgara. Verslanir á Kúbu geta ekki státað af miklu vömúrvali og ef ekki er eitthvað að vömnni þá er eitthvað að tækjum eða búnaði verslana þannig að þær geta ekki boðið uppá ákveðnar vömr. Þessir samverkandi þættir, skortur á hraéfni og skortur á vinnslu, em að ganga af efna- hagskerfí Kúbu dauðu. Það að Castro hefur á ný feng- ið áhuga á efnahagskerfínu er mikið áhyggjuefni fyrir kúbanska hagfræðinga, sem margir hveijir hafa hlotið menntun sína á Vest- urlöndum. „Að Castro skipti sér af efnahagsmálum er dauðadóm- ur,“ segir ungur hagfrasðingur sem vinnur fyrir stjómina. Síðasta ár varð mikill halli á fíárlögum. Samkvæmt opinbera dagblaði á Kúbu féll verðmæti þjóðarfram- leiðslu um 50%. Stjómin kennir um lélegu árferði sem leiddi af sér lélega uppskem, lækkun Bandarílq'adollars og lækkun olíu- verðs. Þetta ár verður verra en árið í fyrra, segja hagfræðingar. Gorbachev er dijúgur með sig í Suður-Ameríku, en er hann of fijálslyndur fyrir vinaríkin? Kúbanir þurfa árlega að þiggja 4 billjónir dollara af Sovétstjóm- inni. Nýjustu aðgerðir Castros, sem em þvert á við stefnu Sovét- manna hafa komið af stað vangaveltum um áframhald á lán- veitingum frá Sovétríkjunum. Ólíkt því sem áður var nefndi Castro ekki hagtölur og tölur yfir framleiðni og eyðslu í langri ræðu sem hann flutti á 26 ára byltingar- Fidel Castro afmælinu. Og í ræðu sem hann hélt nú nýlega sagði hann að töl- ur skiptu ekki öllu máli. Ekki ætti að einblína á tölur heldur horfa á mannlegar hliðar. Þykir þetta augljóst merki þess að efna- hagsástandið sé afar bágborið. Hagfræðingurinn ungi spáir því að efnahagskerfíð muni hrynja og segir að raunvemlegar breytingar geti ekki átt sér stað meðan kyn- slóð Castros sé við völd en, bætir hann við: „Castro verður að víkja og þá mun efnahagskerfi Kúbu batna og við verða Ungveijaland Kyrrahafsins." Hagfræðingar telja að stefna Castros geti gert samskipti Kúbu og Sovétríkjanna erfíðari, sem er afar slæmt fyrir Kúbani nú þegar hallar undan fæti í efnahagsmál- um. Prófessor Wayne Smith, fyrmrn yfírmaður „American Int- erests Section" í Havana, segir að það sé óhjá- kvæmilegt að misræmið leiði til árekstra í sam- skiptum þjóð- anna. Kúbansk- ur hagfræðingur við Harvard- háskóla segir að nú þegar séu hagfræðingar á Kúbu famir að kvarta yfír því að Sovétríkin eigi of sterk ítök í markaðsmálum Kúbu. Samskipti ríkjanna em ekki einhliða því að Sovétmenn eru háðir hemaðaraðstoð Kúbana. í Angólu er kúbanskt herlið sam- tals 20.000 hermenn. í Eþíópíu em kúbanskir hermenn eitthvað færri. í báðum þessum löndum em Sovétmenn með herlið til að styðja við bakið á kommúnista- stjómum sem em þar við völd og hafa þegið aðstoð Kúbu við gæsl- una. Þó að Kúba sé háð fjárveiting- um frá Sovétríkjunum veitir það Kúbönum frelsi að vita að Sov- étríkin háð aðstoð þeirra. Castro telur sig greinilega ekki þurfa ekki að hlíta í einu og öllu stefnu sovéskra stjómvalda, eins og að- gerðir hans í efnahagsmálum sýna glöggt. Og hvað sem segja má um samskipti Kúbu við Sov- etríkin þá er eitt víst: Af áralöng- um samskiptum við Sovétmenn vita Kúbanir hversu langt þeir mega ganga og Sovétmenn vita hvað þeir geta boðið Kúbönum. (Heimildir: The Wall Street Journal og The Economist.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.