Morgunblaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
ISLENSKUR
ULLARIÐNAÐUR
íslenskur ullarfatnaður á sýningu i París.
eftir Yngva
Guðmundsson
Umræður um stöðu íslensks ull-
ariðnaðar síðustu mánuði ásamt
framtíðarhorfum er brennandi
spuming hjá þeim sem að greininni
standa.
Frá árinu 1970 hafa orðið miklar
framfarir í jgerð fatnaðar úr
íslenskri ull. I stað hinnar hefð-
bundnu lopapeysu komu á markað-
inn jakkar, peysur og ýmsar
smávörur. Þessi fatnaður var vél-
pijónaður í stað handpijónaðs
fatnaðar sem var uppistaðan í fatn-
aði úr ull. í upphafí var framleiðslan
frekar fábrotin hvað varðar mynst-
ur, liti, snið og hönnun, en þessi
fatnaður líkaði vel og jók strax hlut-
deild sína á þeim mörkuðum sem
fyrir voru, ásamt því að opna nýja
markaði.
Bandframleiðendur lögðu sitt af
mörkum til vöruþróunar og til varð
svokallað loðband sem í senn var
bæði áferðarfallegt og endingar-
gott.
Mikil vinna var lögð í meðferð á
voðinni þ.e. þvott, ýfíngu og frá-
gang. Þessi þáttur í efnavinnslunni
átti eflaust sinn þátt í hve skjótum
vinsældum og fótfestu fatnaður úr
íslenskri ull náði. Framleiðendum
fjölgaði og með þarfir markaðarins
í huga var fjárfest í nýjum og full-
komnari sauma- og pijónavélum
ásamt hjálpartækjum. Innflytjend-
ur pijóna- og saumavéla aðstoðuðu
við val á tækjum sem hentuðu okk-
ar framleiðslu og keyptar voru nýjar
tölvustýrðar pijónavélar sem ein-
falda alla mynsturgerð til muna.
Þó ber að hafa í huga, að vegna
„Á síðastliðnum 5 árum
hafa orðið ótrúleg'ar
framfarir í greininni,
nýir litir, mynstur og
hönnun hafa gert fram-
leiðsluna mun fjöl-
breyttari.“
sérstöðu bandsins og efnavinnsl-
unnar er bæði mynsturgerð og
hönnun takmörk sett. Ráðnir voru
hönnuðir með nýjar hugmyndir,
starfsfólk fyrirtækja sótti námskeið
erlendis og segja má að stöðug
vöruþróun hafí átt sér stað. A
síðastliðnum 5 árum hafa orðið
ótrúlegar framfarir í greininni, nýir
litir, mynstur og hönnun hafa gert
framleiðsluna mun fjölbreyttari.
Á kynningarfundi sem Álafoss
boðaði til nýverið var ný tilrauna-
verksmiðja til bandframleiðslu
kynnt framleiðendum ásamt öðrum
sem að greininni standa. Eins má
geta þess að hafín er kónalitun á
bandi sem gerir framleiðanda
mögulegt að sérlita band í litlu
magni, sem er nýjung fyrir ullariðn-
aðinn.
Iðnaðardeild Sambandsins hefur
verið með vöruþróun á bandi svo-
nefnda Superwash-ull, einnig
pastel-liti sem víðast henta okkar
ullaráferð vel. Nefna má vöruþróun-
arverkefni Sauma- og pijónastof-
unnar Drífu á Hvammstanga,
fallega peysulínu undir nafninu
„Moss". Fínull er ullarverksmiðja,
nýtekin til starfa, sem sérhæfir sig
í gerð smávöru úr angórubandi, þar
skapast möguleikar á nýjum band-
tegundum til viðbótar þeim sem
fyrir eru.
Starfsfólk pijóna- og saumastofa
víðs vegar um land hefur öðlast
reynslu og þekkingu við framleiðslu
á pijónlesi og víst er að ekki vilja
allir né geta unnið við fískvinnslu
eða þjónustu.
Kynning ýmissa sýningarhópa á
ullarvöru víða um heim hefur verið
góð landkynning og ullariðnaði til
sóma. Framleiðsla og sala á ódýrum
fatnaði úr ull í magni hentar okkar
framleiðslu ekki.
Hönnun á vönduðum og dýrum
gæðafatnaði með íslenskum sérein-
kennum er góður kostur. Vonandi
sjá framleiðendur bjartari tíð fram-
undan. Það væri miður fyrir ulla-
riðnaðinn í landinu að sjá eftir
þeirri fjárfestingu, þekkingu og
reynslu sem skapast hefur. Hæðir
og lægðir þekkja allir, smálægð er
á leiðinni yfír landið en bjart fram-
undan.
Vöruþróun og markaðssókn er
lykilorð að velgengni íslensks iðnað-
ar.
Höfundur er atarfamaður trefja -
deildar Iðntækniatofnunar ía-
landa.
Smáörk gefin út
í tilefni dags
frímerkisins
Veitt úr Frímerlqa- og
póstsögnsjóðnum í
fyrst sinn
DAGUR frímerkisins og dagur
Alþjóðapóstsambandsins er í dag,
en sambandið var stofnað fyrir
eitt hundrað og þrettán árum. í
tilefni af degi frímerkisins gefur
Póst- og símamálastofnunin út
smáörk með einu frimerki, auk
þess sem í dag kemur út frímerki
helgað tannvernd og hefti með
12 frímerkjum. Einnig verður í
dag veitt í fyrsta skipti úr
Frímerkja- og póstsögusjóðnum,
sem stofnaður var 29. október
1986.
Myndefni smáarkarinnar sem gef-
in er út í dag er eftir Auguste Meyer
og tekið úr ferðabók Paul Gaimards.
Söluverð hennar er 45 krónur en
verðgildið 30 krónur og rennur and-
virði yfirverðsins, 15 krónur, í
Frímerkja- og póstsögusjóðinn, sem
veitt verður úr í dag í fyrsta sinn.
Tilgangur sjóðsins er að efla og
styrkja störf og rannsóknir á sviði
frímerkjafræða og póstsögu og hvers
konar kynningar- og fræðslustarf-
semi til örvunar á frímerkjasöfnun.
Formaður sjóðsins er Halldór S.
Kristjánsson, skrifstofustjóri sam-
gönguráðuneytisins.
Á degi frímerkisins kemur einnig
út frímerki helgað tannvemd og hefti
með 12 frímerkjum og er verðgildi
hvers þeirra 13 krónur. Heftið er
nýjung í frímerkjaútgáfu stofnunar-
innar.
Kjörorð dags Alþjóðapóstsam-
bandsins er: Pósturinn, fjarlægðir
minnsti vandinn. Sambandið hefur
lagt á það áherslu að stuðla að góðum
og auknum samskiptum milli þjóða.
Höfuðstöðvar þess eru í Bem og I
því em 168 þjóðir.
SÉRTILBOÐ ÞESSA HELGI
Blómstrandi Begoniur.
Aðeins Kr. 170,-.
stL,tturafn 0r* k°mr,ir
Ge^ZÍslulre^
9q 7nGm fyrst,
Ráðgjöt
og leiðbeiningar
Garöyrkjuiræðingarnir
Hafsteinn Hafliðason og Por
S*sso„lelöbe,na«;Um
,„eaietöogtæWun„»Js®utó'
laugardagog sunnudagki.
13:00-19:00.
Ath.: Fáið litprentaöan
leiðbeiningarbækling.
Magntilboð
Geriö hagstæð kaup.
50 stk. túlípanar..^'490.
50 stk. krókusar ..
25stk.páskalil|ur ....kr.490,
Rauöurjólatúlipani
(Brilliant star)
lOstk. kr. 229,-
Bleik jólahýasinta
(Anne Marie)
4 stk. kr. 199,-
Dökkblár jólakrókus
(Rememberance)
10stk.kr. 169,-
Riddarastjarna
(Amaryllis)
1 stk. kr. 295^
Hvítar jólaliljur 10 stk^k'295
EmtöldogþægtlegræktumHenta
t.d.ískólumog barnaheimilum.
h