Morgunblaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.10.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987 ísland - Bretland á Evrópumótinu í bríds: Bretár kræktu í silfrið í síðasta spili mótsins Brids GuðmundurSv. Hermannsson Andrúmsloftið var hlaðið spennu þegar síðasta umferð Evrópumótsins í Brighton hófst. Þótt flestir byggjust við að bar- áttunni um Evrópumeistaratitil- inn væri lokið, gátu enn fimm þjóðir náð öðru sæti og þar með tryggt sér farseðil á Heimsmeist- aramótið í Jamaica í október. Tvær þjóðir i viðbót áttu einnig raunhæfan möguleika á að ná þriðja sæti. Og siðan voru Svíar ekkert öruggir með að vinna; þeir höfðu 409,5 stig og áttu að spila við Frakka sem voru i 5. sæti með 382 stig. Norðmenn voru i 2. sæti með 393 stig og áttu að spila við Hollendinga sem hafði gengið illa á mótinu, og Bretar oglslendingar, sem voru í 3. og 4. sæti með 388 og 386 stig, áttust einnig við í lokaum- ferðinni. Töfluleikur umferðarinnar var auð- vitað milli Breta og íslendinga og töflusalurinn var fullur af fólki sem hvatti sína heimamenn óspart. Það gerðu skýrendumir einnig og þeir voru svo hlutdrægir í skýringum sfnum að sumum þótti nóg um. ísland- svinurinn Zia Mahmood tók sig þá til og lagði sitt lóð á hina vogarskálina í skýringunum. Hjalti Elíasson sétti Guðlaug R. Jóhannsson og Öm Amþórsson í sýn- Lokaður salur: Vestur Norður Austur Suður Kirby SSv Armst. Jón 1 tígull 1 spaði pass 2 hjörtu * 2grönd pass ölauf dobl a. pass Kirby byijaði á precisiontígli og Sigurður fann einhversstaðar spaða- strögl. Kirby sýndi síðan láglitina með 2 gröndum og Armstrong fór þá beint i 5 lauf. Jón byijaði á að taka spaðaás og síðan hjartaás og spilaði svo hjarta á kóng og tromp. Armstrong spilaði tíguldrottningu en þegar Jón lét lítið stakk hann upp ás og reyndi síðan að trompa niður tígulinn. En sú leið gekk ekki upp og á endanum varð Armstrong að gefa slag til viðbótar svo spilið fór einn niður við lítinn fögn- uð breskra áhorfenda. Ef Armstrong hefði hleypt tíguldrottningu var eftir- leikurinn auðveldur en sennilega hefur hann reiknað Sigurði fleiri há- spil en hann átti. Opinn salur: Vestur Norður Austur Suður ÖA Forrester GRJ Brock 1 tígull pass 2 spaðar 3 hjörtu pass 4 hjörtu a.pass Sagnir þróuðust óheppilega fyrir Öm og Guðlaug. Forrester sleppti spaðaströglinu og þá gat Guðlaugur sagt frá sínum spaðalit. 2 spaða sögn- in hans er umdeilanleg þar sem hún Suður ♦ Á V Á109763 ♦ K762 ingarherbergið í fyrri hálfleik, gegn Raymond Brock og Tony Forrester, akkerispari Bretanna. Jón Baldursson og Sigurður Sverrisson spiluðu gegn Graham Kirby og John Armstrong sem aldrei náðu sér reglulega á strik í þessu móti. ísland byijaði vel. Sigurður opnaði á 2ja laufa „flöldjöbbblaopnun" í fyrsta spili sem varð til þess að Bret- amir fóru í óvinnandi 3 grönd, meðan Guðlaugur og Öm sögðu og unnu 2 grönd við hitt borðið, 5 impar inn. Og í öðru spili urðu Armstrong á ótrúleg vamarmistök þegar hann gaf Sigurði 3 grönd á hættunni sem Öm og Guð- laugur tóku léttilega tvo niður við hitt borðið, 13 impar inn. En síðan dofnaði yfir leiknum og í næstu 9 spilum skiptust liðin aðeins á 7 imp- um, Bretar fengu 4 impa, íslendingar 3. Áhorfendur vöknuðu þó upp þegar spil 12 kom á sýningartjaldið: Vestur gefur/NS á hættu. Norður ♦ G10974 VKG82 ♦ G3 ♦ 84 Vestur ♦ 54 ♦ Á109854 ♦ ÁD63 Austur ♦ K86532 ♦ D ♦ D ♦ G10972 átti að sýna einlita hendi með geim- áhuga, en það hafa svosem sést margar ljótari sagnir en þetta við bridsborðið. Hún varð þó til þess að AV fundu aldrei laufasamleguna og síðan spilaði Öm eðlilega út spaða- drottningunni gegn 4 hjörtum. Þarmeð var samningurinn unninn og raunar vann Brock 5 hjörtu með því að trompsvina fyrir spaðakóng aust- urs. 11 impar til Breta og bresku áhorfendumir tóku gleði sína aftur. Og nú fóm Bretamir I gang. í næsta spili fengu þeir 7 impa I búta- spili og síðan fylgdu tvisvar siimum 6 impar I kjölfarið þegar bæði íslensku pörin reyndu hörð geim meðan Bret- amir spiluðu bút. íslendingar áttu þó slðasta orðið í hálfleiknum þegar Öm opnaði á 1 spaða með: S. G1053 H. K3 T. ÁD L. D10985 Andstæðingamir áttu afganginn af spöðunum, 8 hjörtu og 25 punkta saman, svo öll geim stóðu. Spaðaopn- unin gerði þeim þó erfitt fyrir og þeir enduðu I 2 hjörtum. Við hitt borð- ið opnaði vestur á 1 tígii og Jón og Sigurður vom fljótir I 4 hjörtu svo fsland fékk 6 impa. Bretar vom þó aðeins yfir í hálfleik, 34-27. Svíar vom einnig yfir gegn Frökkum, 37-25 en Norðmenn höfðu lent I hollenskri hakkavél, vom undir 3-40. Eins og staðan var í hálfleik vom Bretar komnir í annað sætið og Norð- menn í það þriðja en íslendingar vom enn í fjórða sæti. Hægt var að fylgj- ast með stöðunni ! leik Norðmanna og Hollendinga I sýningarsalnum því hann var spilaður í sérstöku herbergi og spilin borin saman jafnóðum og þau vom spiluð. Hjalti setti Ásgeir og Aðalstein í lokaða salinn í senni hálfleik, gegn „gömlu mönnunum" Jeremy Flint og Rob Sheehan, en Jón og Sigurður komu í opna salinn gegn Brock og Forrester. Bretamir fengu strax 4 impa I fyrsta spili þegar Brock vann 3 tígia á skemmtilegan hátt, sem Ásgeir tap- aði. Og I 3. spili fengu íslendingar skell. Jón átti I vestur, á hættu gegn utan: S. KG1062 H. 653 T. Á765 L. 3 Brock I suður opnaði á eðlilegu laufi, Jón sagði 1 spaða, Forrester 1 grand, Sigurður 3 spaða og Brock 3 grönd. 3ja spaða sögnin var veik I eðli sínu en lofaði samt góðum spaðastuðning og einspili einhversstaðar, sérstaklega á þessum hættum. Jón sá fyrir sér einspil í tígli, hugsanlega drottning- una fimmtu I spaða og eitthvað I hjarta. Hann sagði þvi 4 spaða sem fengu kaldar kveðjur, þe. dobl og -800 á skorblaðið. Sigurður átti nefnilega líka einspil I laufi og fjóra hunda I spaða en Forrester, sem grandaði, átti ÁD75 í spaða. 3 grönd hefðu unnust en Ásgeir og Aðalsteinn spil- uðu 5 lauf og fengu 420, 9 impar til Breta. Og þá var komið að Ásgeiri og Aðalsteini að taka vafasamar sagn- ákvarðanir. Ásgeir átti í norður, á hættu gegn utan: S. KG72 H. 6 T. 7653 L. KG93 Flint í austur opnaði á 12-14 punkta grandi, Aðalsteinn sagði pass, Sheehan 2 lauf, Ásgeir sagði pass og Flint 2 hjörtu sem vom pössuð til Ásgeirs. Ásgeir hafði réttu skiptinguna til að enduropna með dobli en styrkurinn var frekar lítíll. Auk þess mátti búast við að Aðalsteinn hefði komið inná strax ef hann ætti eitthvað til að segja á. Ásgeir doblaði samt og Aðalsteinn, með: S. D3 H. KG95 T. KD4 L. 10874 ákvað að passa doblið niður. Flint var fljótur að renna heim 9 slögum og 10 impum því sami samningur var spilaður ódoblaður við hitt borðið. Sennilega hefði Aðalsteinn sloppið ódoblaður í 3 laufum sem hefðu þó farið tvo niður. En íslendingar spymtu við fótum í næsta spili. Jón og Sheehan fengu upp á hendina, á hættunni gegn utan: S. 74 H.ÁKDG96432 T. 6 L. 6 Kúristamir í myndinni, Busar í Paradís. Kúristar í Paradís Kvlkmyndir Arnaldur Indriðason Hefnd busanna II: Busar í Paradís (Revenge of the Nerds II: Nerds in Paradise). Sýnd í Bíóhöllinni. Stjörnugjöf: ★ Bandarisk. Leikstjóri: Joe Roth. Handrit: Dan Guntzelman og Steve Marshall. Framleið- endur: Ted Field, Robert Cort og Peter Bart. Kvikmyndataka: Charles Lorrell. Helstu hlut- verk: Robert Carradine, Curtis Armstrong og Larry B. Scott. Hvað er hægt að segja um mynd eins og Busar í Paradís? Að hún sé mestmegnis kjánaleg endaleysa sem hægt er að hlæja að einu sinni á hálftíma fresti? Að hún sé ein af þessum myndum sem blandar kjánaskapnum við tilfinningasemi, sem ekkert erindi á í hana? Hún kom manni sannar- lega ekki á óvart. Hún er eins lummuleg og maður átti von á. Stríðinu á milli stúdentafélag- anna Alfa Beta og Þrílembinga er ekki lokið. Máttur kúristavis- kunnar stendur með Þrílembing- um, nautheimskan er á bandi Alfa Beta. Núna er stríðið háð á þingi Sambands stúdentafélaga í Fort Lauderdale í Flórída þar sem kúr- istamir streða við að fá sig viðurkennda meðlimi. Það gengur auðvitað á ýmsu. Stundum er gamanið groddara- legt, stundum hallærislegt og oftast ófyndið en það eru andartök á stangli í myndinni sem hægt er að hafa gaman af og hinn ágæti leikari Robert Carradine hefur fullkomnað aulahátt kúristans með leik sínum. Busamyndimar gera út á sama fólkið og fer á Lögregluskóla- myndimar. Og þær eru eins og löggumjmdimar að því leyti að ef sömu brandaramir em endur- teknir nógu oft verður ekkert eftir til að hlæja að. Ef þeir halda áfram að gera Busamyndimar verða þær sjálfsagt eins og Lög- regluskólamyndimar á endanum, hrútleiðinlegar. Þær eiga ekki langt í land með það nú þegar. Birkir Njálsson — Kveðjuorð Vor hinzti dagur er hniginn af himnum í saltan mar. Sú stund kemur aldrei aftur sem einu sinni var. Og sólbrenndar hæðir hm'pa við himin fölvan sem vín. Það er ég sem kveð þig með kossi kærasta ástin mín. Því okkur var skapað að skilja. Við skiljum. Og aldrei meir. Það líf kemur aldrei aftur, sem einu sinni deyr. (H.K.L) Megi algóður Guð opna honum sinn náðarfaðm og veita honum frið. Badda Gaman var að hlusta á Birki segja frá spaugilegum atvikum, oft viðkomandi fluginu, en hann hafði góða frásagnargáfu. Birkir var ókvæntur og bamlaus. Við vinnufé- lagar á Bsp. munum sakna góðs drengs, og megi Guð styrkja fjöl- skyldu hans og aðstandendur. Mín, sál, því örugg sértu, og set á Guð þitt traust Hann man þig, vís þess vertu, og verndar efalaust Hann mun þig miskunn krýna. Þú mæðist litla hríð. Þér innan skamms mun skína úr skýjum sólin blíð. P.G. Vinnufélagar Bsp. Nú þegar góður drengur er farinn okkur frá allt of snemma, þá koma í hugann minningar. Haustið ’83 byrjaði Birkir hér hjá okkur á tæk- nideild Borgarspítalans. Birkir Njálsson var rafvirki að mennt. Hann var óþreytandi við að afla sér þekkingar, iðulega var hann á námskeiðum er tilheyrðu faginu, hér heima og erlendis. Á þessum tíma er hann starfaði hér, var hann búinn að ávinna sér traust og álit sem góður og vand- virkur tæknimaður, og fékk sífellt erfíðari og flóknari verkefni, hann sá m.a. um tækjabúnað rannsókna- stofanna, símstöðina, kallkerfi hússins, laser-tækið, og fleira. Eitt var það, sem Birkir hafði mikla ánægju af öðru fremur en það var flugið. Hann átti hlut í flug- vél og flaug þegar tækifæri gafst til. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.