Morgunblaðið - 09.10.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
15
Reiðubúnir til náins sam-
starfs við fiskvinnsluna
- segir Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands íslands
„Mér finnst þetta ákaflega
athyglisvert og get tekið undir
margt af því sem forseti AJ-
þýðusambands Vestfjarða
segir. Við erum reiðubúnir til
þess að aðstoða fiskvinnsluna,
sem við teljum að verulega
hafi hallað á. Við erum tilbúnir
að taka upp náið samstarf við
fiskvinnslueigendur til þess að
efla greinina,“ sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson, formaður
Verkamannasambands íslands,
aðspurður um ummæli Péturs
Sigurðssonar, forseta Alþýðu-
sambands Vestfjarða, í Morg-
unblaðinu á miðvikudag, þess
efnis að verkafólk og vinnuveit-
endur taki höndum saman um
að veija fiskvinnsluna.
„Ég held að það sé þjóðarheill
í veði að þessir aðilar snúi bökum
saman. Fiskvinnsla á íslandi á það
í vök að verjast, að það veitir
ekki af kröftum beggja," sagði
Guðmundur ennfremur. Hann
benti á að þessir aðilar hefðu stað-
ið sameiginlega að námsskeiðum
fyrir fiskvinnslufólk og þar hefði
náðst mjög góður árangur.
„Ég er ekki f minnsta vafa um
það að nánara samstarf yrði báð-
um aðilum til farsældar. Hins
vegar erum við ekki á því að hag-
ur fiskvinnslunnar liggi í því að
pína laun fiskvinnslufólks niður.
Það verður bara til þess að hún
verður enn frekar undir en verið
hefur," sagði Guðmundur.
Hann sagði að það væru miklir
ónýttir möguleikar í fiskvinnsl-
unni og hún ætti að vera tilbúin
til samstarfs við verkafólk um að
efla hana. „Hinu er ekki að leyna
að okkur finnst fiskvinnslan eiga
ákaflaga takmörkuð ítök í Vinnu-
veitendasambandinu," sagði
Guðmundur að lokum.
Fundur VSI
og ASA á
mánudag
FORS V ARSMENN Vinnuveit-
endasambands íslands halda til
Egilstaða á mánudag til fyrsta
fundar við fulltrúa Alþýðusam-
bands Austurlands um nýja
kjarasamninga. Áður en samn-
ingafundurinn hefst verður
haldinn fundur með fiskverkend-
um á Austurlandi.
Fundur fiskvinnslunefnda VSÍ og
Verkamannasambands íslands á
þriðjudag varð árangurslaus. Annar
fundur þessara aðila verður ekki
fyrr en eftir fund Vinnuveitenda-
sambandsins með Alþýðusambandi
Austurlands.
SýniríFÍM-
salnum
MARGRÉT Jónsdóttir opnar sýn-
ingu í FÍM-salnum í Garðastræti
6 í dag, föstudaginn 9. október.
Þar sýnir hún olíumálverk sem
eru ÖU máluð á þessu ári.
Margrét stundaði nám í _Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1970-1974 og framhaldsnám við
Saint Martin’s School of Art í Lon-
don 1974-1976.
Margrét var einn af stofnendum
Gallerí Suðurgata 7 og starfaði við
það árin 1977-1981.
Hún hefur tekið þátt í sýningum
bæði hér heima og erlendis og má
þar t.d. nefna sýningar í Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, It-
alíu, Englandi, Póilandi og Banda-
rílqunum.
Sýningin í FÍM-salnum er opin
daglega kl. 14-19 og stendur til 25.
október nk.
Ólaf s víkurvegur:
Lægsta til-
Vegna þess að:
er með innbyggðum herði
hefur sérlega fallega áferð
er því létt að þrífa
þekur algjörlega í 2-3 umferðum
boð 59% af
kostnaðar
áætlun
SIGURÐUR Vigfússon, Bjarnar-
fossi í Staðarsveit, átti lægsta
tilboð í lagningu Ólafsvíkurveg-
ar á SnæfeUsnesi, frá Vegamót-
um að Hofsstöðum. Tilboð hans
var 4,3 milljónir kr., sem er 59%
af kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar en hún var 7,2 milljónir kr.
Umræddur vegarkafli er 2,5 km
að lengd og á verktakinn að ljúka
verkinu 25. júlí næsta sumar. Sex
fyrirtæki buðu í veginn og voru til-
boð allra töluvert innan við kostnað-
aráætlun verkkaupa.
Dagur
frímerk-
isins í dag
DAGUR f rímerkisins er í dag
föstudaginn 9. október. Af
því tílefni hefur ísafolda-
prentsmiðja hf. gefið út
bókina íslensk frímerki 1988.
Þetta er 32. útgáfa þessarar
bókar sem er 112 bls. að stærð.
Höfundur bókarinnar er Sig-
urður H. Þorsteinsson
-nýja Ijósa línan
Fæst í öllum helstu málningarverslunum
Efnaverksmiðjan
Sjöfn
Aknrevri Sími QR-91 Aflfl