Morgunblaðið - 09.10.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
21
Borgarráð:
Skipulagsstofa höfuðborgar-
svæðisins verði lögð niður
F orstöðumanninum boðið að kaupa stofuna
BORGARRÁÐ hefur samþykkt samhljóða, fyrir hönd Reykjavík-
urborgar, að skipulagsstofa höfuðborgarsvæðisins verði lögð niður.
Að sögn Gests Ólafssonar, forstöðumanns skipulagsstofunnar, hefur
þess verið farið á leit við hann að hann kaupi stofuna og haldi
starfi hennar áfram.
Að sögn Davíðs Oddssonar borg-
arstjóra var það verkefni skipulags-
stoáinnar að vinna að svæðaskipu-
lagi höfuðborgarsvæðisins, og þar
sem því væri iokið, væri ekki ástæða
fyrir sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu að reka skipulagsstofuna
áfram. Kvað hann sama álit hafa
komið frá Hafnarfjarðarkaupstað.
Sagðist Davíð búast við því að það
yrði samþykkt á aðalfundi Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu í lok mánaðarins að leggja
stofuna niður.
Gestur ólafsson forstöðumaður
skipulagsstofunnar sagði í samtali
við Morgunblaðið, að skipulagi væri
í raun aldrei lokið og væri aðeins
fullt gagn af skipulagi að vinna við
það væri stöðug. „Höfuðborgar-
svæðið er sífellt að vaxa saman og
mikið vandaverk að láta byggðimar
krækjast saman svo vel sé.“
Gestur taldi það ekki vera óklókt
fyrir sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu að hafa í sameiningu
sérfræðinga á sínum snæmm við
að vinna að sameiginlegu skipu-
lagi, hins vegar mætti lengi deila
um hvort hagkvæmara væri að
halda uppi stofu eða hafa verkið í
höndum sjálfstæðs verktaka.
Gestur sagði að nokkrir stjómar-
menn Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu hefðu fært það
í tal við sig að kaupa stofuna. „Það
er ef til vill ein leið til þess að halda
þessu starfi áfram, en hins vegar
virðist mér ekki vera fyrir því
pólitísk samstaða."
Morgunblaðið/Sverrir
Ökumaður sendibifreiðar brotnaði á báðum fótum í árekstri í gær og þurfti að nota járnklippur til
að ná honum úr bifreiðinni.
Klemmdist fastur í sæti sínu
MAÐUR festist inni í bifreið
sinni við árekstur á miðvikudag
og þurfti að nota jámklippur
til að losa hann. Hann er brot-
inn á báðum fótum.
Áreksturinn varð skömmu eftir
kl. 12, á götunni Straumi í Árbæ.
Þar fór lítil sendibifreið yfir á
öfugan vegarhelming og á vinstra
framhom lítillar fólksbifreiðar.
Við áreksturinn klemmdist öku-
maður sendibifreiðarinnar fastur
í sæti sínu og þurfti að nota jám-
klippur til að iosa hann. Það gekk
greiðlega og var maðurinn fluttur
á sjúkrahús, þar sem hann fór í
aðgerð. Hann mun vera illa brot-
inn á báðum fótum. Ökumann
hinnar bifreiðarinnar sakaði ekki.
18 félagar úr FAT, félagi fata
og textílhönnuöa, halda sína
fyrstu samsýningu í Gamla bíói
föstudaginn 9. okt. kl. 21.00 (uppselt)
laugardaginn 10. okt. kl. 16.00
sunnudaginn 11. okt. kl. 16.00
Miðaverð kr. 300.-
Sýningarfólk: Módelsamtökin,
Módel 79, Kramhúsið, börn o.fl.
Alda Sigurðardóttir
Ásdis Loftsdóttir
Ásta Björnsdóttir
Birna Þórunn Pálsdóttir
Eva Vilhelmsdóttir
Gerður Pálmadóttir
Guðrún S. Jónasdóttir
Hulda Kristln Magnúsdóttir
Kristfn Schmidhauser
Malín Örlygsdóttir
Margrét Gunnlaugsdóttir
Margrét Þorvarðardóttir
María Lovlsa Ragnarsdóttir
Marla Manda ívarsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir (SIFA)
Steinunn Bergsteinsdóttir
Valgerður Torfadóttir
Þórdís Kristleifsdóttir
Verið velkomin
MU FÉLAG FATA OG TEXTÍLHÖNNUÐA
MANNLEG
SAMSKIPTI & SÖLUTÆKNI
ER MEIRA EN "GERÐU SVO VEL”
"GET ÉG AÐSTOÐAÐ" EÐA
"ÞAKKA ÞÉR FYRIR"
Iceland Seafood í Bretlandi:
Sölumet í september
Andvirði seldra afurða nú 17% meira en í fyrra
ICELAND Seafood Ltd., dóttur-
fyrirtæki Sambandsins í Hull í
Bretlandi, seldi fisk í Evrópu í
septembermánuði fyrir rúmar
5,5 milljónir punda, um 350
milljónir islenzkra króna. Þetta
er mesta sala i einum mánuði
frá því fyrirtækið var stofnsett
árið 1981. Alls voru seld 2.437
tonn, sem er um 22% meira en
í sama mánuði í fyrra.
Pyrstu 9 mánuði ársins seldi
fyrirtækið fyrir 32,1 milljón punda
á móti 27,4 milljónum í fyira, sem
er liðlega 17% aukning. Á þessu
tímabili nú voru seldar 16.300
tonn en á sama tíma í fyrra
15.600, aukningin er 4%. Nú
stefnir í 40 milljóna punda, 2,5
milljarða króna, sölu á þessu ári,
en heildarsala fyrirtækisins í fyrra
nam 34 milljónum punda.
Að sögn Sigurðar Á. Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Iceland
Seafood, óttuðust menn að að-
stæður heima fyrir leiddu til of
mikils framboðs á frystum þorsk-
flökum fyrir Evrópumarkað, en
markaðsuppbygging fyrirtækisins
hefur komið í veg fyrir það og nú
eru birgðir af þorskflökum í lág-
marki. Þó hefur mikið framboð
meðal annars leitt til 5% verðlækk-
unar á fiystum þorskflökum á
SAMEIGINLEGRI rannsókn við-
skiptabankanna á kindakjöts-
birgðum sláturleyfishafanna við
upphaf sláturtíðar i haust er lok-
ið. Stefán Pálsson bankastjóri
Búnaðarbankans segir að ekkert
hafi komið fram við þessa athug-
un sem tortryggilegt geti talist.
Þeir þrír bankar sem eru með
sláturleyfishafa í viðskiptum, Bún-
aðarbankinn, Landsbankinn og
Samvinnubankinn, stóðu sameigin-
lega að þessari athugun til að bera
saman við þær upplýsingar sem
sláturleyfíshafamir gefa upp vegna
afurðalána. Hafa bankamir ekki
gert svona samræmda athugun á
kindakjötsbirgðunum áður.
Bretlandsmarkaði á þessu ári, en
í fyrra varð á hinn bóginn 30%
hækkun á flökunum.
Stefán segir að óuppgerðar
birgðir kindakjöts þann 1. okt.
hefðu verið 2.800 tonn. Þar af hefðu
verið um 1.100 tonn af kjöti sem
búið var að flytja úr landi en ekki
greiða, þannig að raunverulegar
kindalqötsbirgðir í landinu við upp-
haf sláturtíðar hefðu verið tæp
1.700 tonn. Þetta sagði Stefán að
stemmdi við tölur bankanna og töl-
ur Framleiðsluráðs. Hann sagði að
mikil sala hefði verið síðasta mán-
uðinn, en bankamir hefðu ekki
ástæðu til að tortryggja neitt í því
efni.
Stefán sagði að bankamir
stefndu að því að gera athugun sem
þessa reglulega í framtíðinni.
Kindakjötsrannsókn bankanna lokið:
Birgðir kindakjöts
reyndust 1.700 tonn
Dale Carnegie námskeiðið í sölutækni
og mannlegum samskiptum hjálpar
starísíólki þínu að:
• Skapa jákvæð fyrstu áhrif.
• Bregðast vel við kvörtunum.
• Selja vöru þína og þjónustu betur.
• Gera starfið skemmtilegra.
• Stjórna stressi.
• Svara mótbárum.
• Verða þakklátari einstaklingur.
Við hjálpum starfsfólki þínu að vinna
betur saman og fá meiri áhuga á
fyrirtækinu. Við gerum þetta með því
að fá þátttakendur til þess að nota
margreyndar reglur í mannlegu
samskiptum.
Námskeiðið verður á þriðjudags— og föstudagskvöldum
í sex skipti Kl. 19.00 — 21.30.
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMA 91-8 24 11
o
STJÓRNUIMARSKÓLIIMN
Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
V