Morgunblaðið - 09.10.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
Þreifingar um myndun meirihluta á Ólafsvík:
Bæjarsljóri ver gerðir
sínar á borgarafundi
Ólafsvfk. Frá Benedikt Stefánssyni blaða
ÞREIFINGAR eru í gangi milli
sjálfstœðismanna, Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags um
myndun nýs meirihluta i bæjar-
stjórn Ölafsvikur. Kristján
Pálsson, bæjarstjóri, sem sagt
hefur starfi sínu lausu, boðaði
til borgarafundar í gærkvöldi.
Hugðist hann svara ásökunum
um slæmar fjárreiður bæjar-
sjóðs.
í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Kristján krefjast afsagnar þeirra
sem kosnir voru til trúnaðarstarfa
af meirihluta bæjarstjómar. Sveinn
Þór Elínbergsson, forseti bæjar-
stjómar, og Herbert Hjelm, formað-
ur bæjarráðs, ætla þó ekki að víkja
sæti. „Fundur Kristjáns er tíma-
skekkja og ekki til þess fallinn að
lægja öldumar. Ef þær tölur sem
hann birtir á fundinum em í sam-
ræmi við vinnubrögð hans í meiri-
hlutasamstarfinu er lítið á þeim
oni Morgunblaðsins.
byggjandi,“ sagði Herbert.
Sjálfstæðismenn lýsa sig reiðu-
búna til samstarfs við framsókn og
hvort heldur lýðræðissinna eða Al-
þýðubandalag. Þeir segja útilokað
að vinna með Alþýðuflokknum, þar
sem kratar sprengdu meirihluta A-
og D-lista á fyrsta fundi bæjar-
stjómar eftir kosningar vorið 1986.
Þar hafi Alþýðuflokksmenn sýnt
ódrenglyndi og síðan höggvið í
sama knérunn með óheiðarlegri
gagnrýni á þá sem sátu við stjóm-
völinn kjörtímabilið 1982-86.
„Við setjum það skilyrði fyrir
samstarfí við lýðræðissinna eða
Alþðubandalag að þeir taki til baka
þann ómaklega áróður sem hafður
var í frammi gegn okkur undanfar-
ið eitt og hálft ár,“ sagði Kristófer
Þorleifsson, efsti maður á D-lista.
Viðmælendur blaðsins eru nokk-
uð vongóðir um að myndun meiri-
hluta geti tekist á næstu dögum,
enda megi bæjarfélagið ekki við
neinum töfum. „Ég vil fýrst sjá
úttekt á fjármálum bæjarsjóðs áður
en tekin verður afstaða til myndun-
ar meirihluta. Það eru ýmsir lausir
endar, sem menn verða að taka til-
lit til. Ég vil ekki hafa bæjarstjórann
fyrir rangri sök,“ sagði Stefán Jó-
hann Sigurðsson, fulltrúi framsókn-
armanna.
Meirihluti lýðræðissinna, Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags féll
á bæjarstjómarfundi sfðastliðinn
mánudag þegar Herbert Hjelm,
fulltrúi G-lista, sleit samstarfínu. I
samtali við blaðið sakaði Herbert
bæjarstjórann um lágkúruleg
vinnubrögð og sagði að í raun hefði
Kristján stjómað bæjarfélaginu
einn síns liðs. „Það hefur ekki verið
haldinn fundur í meirihlutanum
síðan í maí. Forsendan fyrir sam-
starfí var löngu brostin. Ég hef
aldrei getað sætt mig við að menn
Morgunblaðið/Sverrir
Frá Ólafsvfk. Félagsheimilið er fremst til vinstri á myndinni.
komi aftan að mér og þar sem ég
hef heitið því að starfa af heilindum
tók ég þessa ákvörðun."
Sveinn Þór Elínbergsson segir
að bæjarstjórinn hafí leynt sam-
starfsmenn sína öllum upplýsingum
um flárreiður bæjarsjóðs. Vegna
framkvæmda við félagsheimilið tók
Kristján lán í Landsbankanum og
samdi um greiðslukjör án samráðs
við meirihlutann eða bæjarstjóm.
Hér er um að ræða skuldabréf til
tveggja ára sem ber forvexti þann-
ig að af sjö milljónum króna fékk
bæjarsjóður aðeins greiddar sex
milljónir. Bæjarstjómarmenn segja
þessi vinnubrögð forkastanleg og
eigi ekkert bæjarfélag að sætta sig
við slfk kjör hjá viðskiptabanka
sfnum.
„Ég tel brýnast nú að við látum
meirihlutamyndun og flokkshags-
muni lönd og leið en vinnum að
irtálefnum bæjarins með almanna-
heill að leiðarljósi. Við höfum beðið
um nákvæma úttekt á íjárreiðum
bæjarssjóðs fyrstu níu mánuði
þessa árs og á gmndvelli hennar
og ársreiknings 1986, sem endur-
skoðandi hyggst Ijúka einhvem
næstu daga, verða frekari ákvarð-
anir byggðar," sagði Sveinn Þór
Elínbergsson, forseti bæjarstjómar
Ólafsvíkur.
JL^esid af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
sím oKV 3 ^'eí'ð 6TT7
AUGLÝSINGASTOFA MYNDAMðTA HF
Kirkjuþing:
Tillaga um stofnun menn-
ingarmiðstöðvar í Skálholti
KIRKJUÞINGIÐ í Bústaðakirkju
hélt sinn fjórða fund f gær, en
meðal mála er mesta umræðu
fengu voru tillaga til þingsálykt-
unar nm menningarmiðstöð í
Skálholti og þingsályktunartil-
laga um safnaðaruppbyggingu.
Alls voru sex mál lögð fram á
kirkjuþingi I gær.
Flutningsmaður tillögunnar um
menningarmiðstöð í Skálholti er dr.
Gunnar Kristjánsson, en í henni
felst að Skálholtsskóla verði breytt
í menningarmiðstöð, þar sem fram
fari námskeið og ráðstefnur um
málefni kirkjunnar og þjóðlífsins. í
greinargerð með tillögunni er talað
um að gera Skálholt að mótsstað
fyrir ólíka aðila samfélagsins, þar
sem skoðanaskipti géti farið fram.
Gert er ráð fyrir að breytingin geti
rúmast innan núgildandi laga um
skólann.
Tillögunni var vel tekið af þeim
er þátt tóku í umræðunni og virt-
ust menn almennt sammála um að
breytinga væri þörf á rekstri Skál-
holtsskóla, þar sem aðsókn að
skólanum hefði ekki alltaf verið sem
skyldi. Séra Jón Einarsson var einn
þeirra er tóku til máls og fagnaði
hann greinargerðinni, en taldi til-
löguna þó skipta meginmáli og
fannst hún ekki viðeigandi. Hann
lagði áherslu á að í Skálholti væri
nú þegar menningarmiðstöð og að
markmið skólans væru í fullu gildi
í dag. í máli sr. Jóns kom líka fram
að kirkjan ber enga ábyrgð á skól-
anum, þar sem hann heyrir undir
menntamálaráðuneytið, en aftur á
móti ber kirkjuráð ábyrgð á fjár-
málum skólans.
Annað mál varðandi Skálholt, er
lagt var fram á kirkjuþingi í gær,
var þingsályktunartillaga um upp-
byggingu Skálholts, en á næsta ári
verða 25 ár liðin frá vígslu Skál-
holtskirkju og 80 ár liðin frá
fæðingu dr. Bjama Benediktssonar,
fv. forsætisráðherra og ritstjóra
Morgunblaðsins, sem beitti sér fyrir
setningu laga, er heimiluou ríkis-
stjóminni að afhenda þjóðkirkju
íslands Skálholtsstað. Samkvæmt
ákvæðum laganna á ríkissjóður að
greiða árlega ákveðna upphæð í
sjóð, sem vera skal til uppbygging-
ar í Skálholti. Ætlunin var að
upphæðin héldi raungildi sínu, en
sú hefur ekki orðið raunin og fjár-
hæðin farið rýmandi með ámnum.
Þess er nú vænst, að á afmælis-
og minningarári fáist leiðrétting,
svo að vilji þeirra, sem lögin settu
og staðinn afhentu, megi ná fram
að ganga, segir í lok greinargerðar-
innar.
Annað mál, lagt fram af dr.
Gunnari Kristjánssyni, var þings-
ályktunartillaga um safnaðarupp-
byggingu. Greinargerð með
tillögunni var mjög ítarleg og margt
sem borið var fram. Meðal annars
að þörf væri á breytingum á starfí
kirkjunnar með tilliti til nýrra að-
stæðna í breyttu þjóðfélagi. Einnig
að gerð væri könnun á kirkjusókn
og annarri starfsemi safnaðarins.
Af umræðum sem fram fóm mátti
ráða, að margir vom sammála um
að einhverra breytinga á safnaðar-
starfínu væri þörf. Umræðumar
vom þó ekki allar jákvæðar. Sr.
Þorbergur Kristjánsson var harð-
orður gegn slíkum breytingum og
taldi þær vafasamar og tvísýnt um
árangur. Hann sagðist vera á móti
því að kirkjan væri að eltast við
kröfur um að vera „í takt við
tímann" og „svara væntingum". í
kirkjunni em sérfræðingar til að
segja prestinum hvemig hann eigi
að ná vinsældum og alltaf er verið
að tala um hvetju fólk hefur áhuga
á, sagði sr. Þorbergur. Hann hélt
áfram og talaði um að verið væri
að markaðssetja kirkjuna, t.d. með
því að tala um „gleðina í guðs-
þjónustunni". Með þessu ætti að
gera kirkjuna aðgengilegri, en hún
yrði bara yfirborðsleg og boðskap-
urinn útundan. Sr. Einar Þorsteins-
son og sr. Jón Einarsson tóku að
nokkm í sama streng, en sr. Jón
bætti því líka við að hann teldi
áhrif kirkjunnar meiri en menn al-
mennt gerðu sér grein fyrir.
Samstaða var um að málið væri
umfangsmikið og ekki hægt að
gera því full skil á stuttum tíma, en
í tillögunni er gert ráð fyrir að
nefndin sem fjalli um málið skili
skýrslu ásamt drögum á næsta
þingi. Lagt er til að Kristnisjóður
greiði fyrir störf nefndarmanna, en
það kom fram að menn töldu að
sjóðnum myndi ekki vera það fært.
Dr. Gunnar sagðist með þessu vilja
vekja athygli á að menn fengju
greiðslu fýrir störf sem þessi hjá
kirkjunni, en ynnu ekki allt í sjálf-
boðavinnu fremur en tíðkaðist
annars staðar.
Önnur mál, sem rædd voru á
kirkjuþingi í gær, voru tillaga til
þingsályktunar varðandi lög um
fóstureyðingar og almannatrygg-
ingar, þar sem lagt er til að aðstoð
við verðandi mæður verð aukin, svo
hægt verði að draga úr fóstureyð-
ingum af félagslegum orsökum.
Einnig tillaga til þingsályktunar um
söngmálafulltrúa og breytingu á
lögum um trúfélög.
Kirkjuþing heldur áfram störfum
og meðal mála á dagskrá í dag er
tillaga til þingsályktunar um krist-
infræðikennslu í grunnskólum og
starfsréttindi guðfræðinga. Þessi
mál hafa nýlega verið til umfjöllun-
ar í Morgunblaðinu og var þá rætt
við Ólaf Skúlason vígslubiskup, þar
sem hann lýsir óánægju presta með
ný lög, sem skipa háskólamenntuð-
um guðfræðingum, er kenna krist-
infræði, í hóp leiðbeinenda. Birgir
ísleifur Gunnarsson, menntamála-
ráðherra, segir að hér sé um að
ræða lög um lögvemdun starfs-
heitis gmnnskólakennara og skóla-
stjóra, _ sem sett voru á Alþingi
1986. í greinargerð með tillögunni,
sem lögð verður fram á þinginu í
dag, segir m.a.: „Þótt fullur skiln-
ingur sé á gildi þess að lögbinda
starfsheiti og starfsréttindi kennara
er með öllu óviðunandi að þeir sem
hafa menntun til og er treyst til
að annast uppfræðslu í söfnuðunum
skuli ekki njóta sömu viðurkenning-
ar gagnvart kristinfræðikennslu í
grunnskóla."
Fjórar aðrar þingsályktunartil-
lögur verða lagðar fyrir kirkjuþing
í dag. Þær eru um stríðsleikföng
til gjafa, um að stofnuð verði staða
tónlistarstjóra við Skálholtskirkju,
en það er þriðja mál um Skálholt
er lagt er fram á þinginu, um afnám
dags tileinkaðan boðun meðal gyð-
inga og um endurskoðun á lögum
um veitingu prestakalla nr. 44, 30.
mars 1987. Þá verður lagt fram
álit löggjafamefndar um siðfræði-
stofnun Háskóla íslands og þjóð-
kirkjunnar og dr. Gunnar Kristjáns-
son er með fyrirspum til formanns
nefndar sem sér um endurskoðun
á skipan prestakalla.