Morgunblaðið - 09.10.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
31
Morgunblaðið/GSV
Frá fundi starfsmanna RÚVAK. Frá vinstri: Ema Indriðadóttir, Gestur Einar Jónasson, Bergsteinn
Gíslason, Sigríður Guðnadóttir, Margrét Blöndal, Kristján Siguijónsson og Björg Þórðardóttir.
Vetrardagskrá RÚVAK
hefur göngu sína
Steríósendingar á döf inni
VETRARDAGSKRA svæðisút-
varps Akureyrar hóf göngu sina
síðastliðinn mánudag. Ymsar nýj-
ungar eru á döfinni hjá þeim
útvarpsmönnum og ber hæst að
telja morgunþátt svæðisútvarps-
ins. Honum er útvarpað eftir
fréttir kl. 8.00 á morgnana og
stendur til 8.30. Fluttar eru fréttir
af veðri, færð og flugi hér norðan-
lands auk þess sem léttri tónlist
er fléttað inn á milli i morguns-
árið og fólk tekið i létt spjall.
Ema Indriðadóttir deildarstjóri
ríkisútvarpsins á Akureyri sagði í
samtali við Morgunblaðið að svæðis-
útvarpið yrði áfram á sfnum stað
milli kl. 18 og 19 á kvöldin í umsjá
þeirra Kristjáns Sigurjónssonar og
Margrétar Blöndal. „Þá erum við með
þáttagerð bæði fyrir rás 1 og 2 auk
þess sem fréttamenn eiga að finna
fréttir fyrir landsútvarpið þegar svo
ber undir og umsjónarmenn svæðisút-
varpsins koma stöku sinnum inn í
dægurmálaútvarp Stefáns Jóns Haf-
stein. Á laugardagskvöldum er þáttur
Valgarðs Stefánssonar „í hnotskum"
á rás 1 sem endurtekinn er um miðj-
an miðvikudag. Á sunnudagskvöldum
er þáttur Hauks Ágústssonar „Drif-
fjaðrir". Haukur ræðir við fólk sem
hefur verið í forystu á hinum ýmsu
sviðum í eigin heimabyggð. Þá verður
fréttaþátturinn „Landpósturinn" á
Verkmenntaskólinn:
Opið hús
OPIÐ hús verður í hinum nýja
Verkmenntaskóla á Eyrar-
landsholti á morgun, laugar-
dag, frá kl. 13 til 16. Nú stendur
yfir fjórða starfsár skólans og
hefur gestum árlega verið boð-
ið að skoða skólann síðan hann
hóf göngu sína.
Baldvin Bjamason aðstoðar-
skólameistari sagði í samtali við
Morgunblaðið að bóknámsálma og
verknámshúsin stæðu gestum op-
in og yrðu nemendur í verknámi
við iðju sína í skólanum á morg-
un. Bókleg kennsla mun hinsvegar
liggja niðri. Baldvin sagði að skól-
inn væri stærsti „vinnustaður"
Akureyrar með hátt í 1.000 nem-
endur og slæi þvf SÍS-verksmiðj-
umar út. Forráðamenn skólans
vonast til að fólk kynni sér starf-
semi skólans þar sem mikil
vanþekking virðist ríkja manna á
meðal um Verkmenntaskólann.
„Fólk hér í bænum veit varla hvar
hinn nýi skóli er, svo ég tali nú
ekki um hvað fram fer hér,“ sagði
Baldvin.
föstudagskvöldum á rás 1 í umsjá
fréttamanna. Auk þessara þátta
verða tónlistarþættir sem ýmsir
þáttagerðamenn skipta á milli sfn,
þeir Rafn Sveinsson, Snorri Sturlu-
son, Sverrir Páll Erlendsson, Inga
Eydal og Kristján Siguijónsson. Okk-
ur dreymir hinsvegar um að setja hér
upp leikrit, svona tvö á ári. Gallinn
er sá að við höfum ekki sérstakt leik-
listarstúdíó eins og fyrir sunnan.
Hinsvegar held ég að það ætti ekki
að vera vandkvæðum bundið að taka
upp leikrit hér, að minnsta kosti er
hér nóg af atvinnuleikurum," sagði
Ema.
Sjónvarpsþættir
Gísli Sigurgeirsson er fréttamaður
sjónvarps á Akureyri og mun hann
koma til með að gera nokkra mann-
lífsþætti frá Akureyri. Margrét
Blöndal hefur í undirbúningi viðtals-
þátt við Ingimar Eydal í tilefni af
25 ára hljómsveitarafmæli hans og
verður sá þáttur að öllum líkindum
sýndur í nóvember. Þá er trúlegt að
Ema muni sjá um mánaðarlega um-
ræðuþætti eftir áramótin.
Steríó á næsta leiti
Ema sagði að útsendingar
RUVAK væm ennþá í mónó. Hins-
vegar væri mikið búið að ræða um
steríólínu fyrir RUVAK og væri sú
framkvæmd á næsta leiti. Hún væri
þó helmingi dýrari fyrir RÚV en
mónólínan núverandi.
Erna Indriðadóttir deildarsljóri
RÚVAK.
Tveir nýir fréttamenn
Ráðnir hafa verið tveir nýir frétta-
menn hjá ríkisútvarpinu á Akureyri.
Gestur Einar Jónasson, sem áður var
útvarpsstjóri Hljóðbylgjunnar, hóf
störf hjá RUVAK í lok september og
Sigurður Tómas Björgvinsson hefur
störf þann 1. nóvember nk. á frétta-
stofu. Hann er Siglfirðingur og hefur
BA-próf í stjómmálafræðum frá Há-
skóla íslands. Hann hefur ekki
starfað áður sem fréttamaður, en
unnið að umferðarþáttum á vegum
Umferðarráðs.
Ragna Hermaiinsdóttir
sýnir í Gamla Lundi
RAGNA Hermannsdóttir mynd-
listarmaður opnar sina fyrstu
einkasýningu á Akureyri i
Gamla Lundi við Eiðsvöll, á
morgun laugardag 10. október
kl. 16.00. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 18. október kl.
20.00.
Ragna hefur nýverið haldið sýn-
ingu í Reykjavík. Sýningin á
Akureyri samanstendur að hluta
til af verkum frá Reykjavíkursýn-
ingunni, en einnig myndum sem
sýndar verða í fyrsta skipti. Um
er að ræða teikningar, grafik,
málverk og bækur sem Ragna
hefur gert.
Ragna hóf myndlistamám á full-
orðinsárum og stundaði nám við
Myndlista- og Handíðaskóla ís-
lands 1979-1983. Framhaldsnám
stundaði hún í Bandaríkjunum og
síðar við ríkisakademíuna í Amst-
erdam, þaðan sem hún útskrifaðist
á liðnu sumri.
Ragna Hermannsdóttir mynd-
listarmaður.
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 17.00 til 20.00 og kl. 15.00
til 20.00 um helgar.
Kaupþing Norðurlands hf.:
Efnir til náms-
stefnu um íslenskan
fj ármagnsmarkað
KAUPÞING Norðurlands hf.
efnir til námsstefnu um íslenskan
fjármagnsmarkað og hlutverk
hans þann 16. október nk. og
hefst hún kl. 14.00. Námsstefnan
er einkum ætluð framkvæmda-
stjórum og forstöðumönnum
fyrirtækja og stofnana, svo og
öðrum sem áhuga hafa á að taka
þátt í umræðum um þær miklu
breytingar sem orðið hafa á
íslenskum fjármagnsmarkaði á
síðustu árum, áhrif þeirra og
horfur í nánustu framtíð.
Kaupþing Norðurlands hf. hefur
fengið þrjá fyrirlesara til þess að
halda fyrirlestra á námsstefnunni.
Prófessor Guðmundur Magnússon
hagfræðingur talar um hlutverk
fjármagnsmarkaðar í hagkerfinu
og hvernig hann hefur þróast. Davíð
Bjömsson rekstrarhagfræðingur
ræðir um öflun lánsQár gegnum
verðbréfamarkað, hvemig fjár-
mögnun fer fram og hvað hún
kostar. Þá ræðir dr. Pétur H. Blön-
dal stærðfræðingur um þýðingu
raunvaxta og helstu ávöxtunarleið-
ir. _
í frétt frá fyrirtækinu segir að
starfsemi verðbréfamarkaða hafi
stóraukist, einkum með tilkomu
ávöxtunarsjóðanna. Kaupleigufyr-
irtæki hafa verið stofnuð og starf-
semi þeirra nú þegar orðin stór hluti
af fjármagnsmarkaðnum. Bankar
hafa stofnað verðbréfadeildir sem
miðla skuldabréfum. Útgáfa
skuldabréfa hefur stóraukist, þann-
ig að í dag hefur sparifjáreigandi
mun fleiri ávöxtunarvalkosti en
áður. Hann getur keypt bréf ávöxt-
unarsjóðanna, bréf útgefin af
kaupleigufyrirtækjunum og stór-
fyrirtækjum, bankatiyggð skulda-
bréf veðdeilda, banka og sparisjóða,
spariskírteini ríkissjóðs og hann
getur lagt sparifé sitt í banka, seg-
ir ennfremur.
Þátttaka í námsstefnunni til-
kynnist Kaupþingi Norðurlands hf.
fýrir mánudaginn 12. október.
Málfreyjur
funda á
Akureyri
ANNAÐ ráð málfreyja á íslandi
mun hefja vetrarstarf sitt með
ráðsfundum sem haldnir verða á
Hótel KEA á Akureyri dagana
10. og 11. október. í ráðinu eru
starfandi niu málfreyjudeildir,
þar af þrjár á Norðurlandi. Ein
er í Mývatnssveit og tvær á Akur-
eyri. Málfreyjudeildin Rún á
Akureyri verður gestgjafi fund-
arins á laugardaginn, sem hefst
kl. 10.30.
Meðal dagskrárefnis á fundinum
mun forseti Landssamtaka mál-
freyja á íslandi, Kristjana Milla
Thorsteinsson, flytja fréttir af 'al-
þjóðaþingi ITC. Ingveldur Ingólfs-
dóttir, fyrrverandi forseti
landssamtakanna, mun flytja
fræðslu um deildarstörf.
Málfreyjudeildin Mjöll Akureyri
verður gestgjafi fundarins á sunnu-
daginn og hefst hann kl. 10.15.
Meðal efnis verður fræðsla um
óundirbúinn ræðuflutning í umsjón
Patriciu Hand. Einnig verður
fræðsla um undirbúnar ræður og
mun Sigrún Sjgurðardóttir annast
þá fræðslu. Á ráðsfundinum fer
fram ýmis önnur fræðsla auk hinna
hefðbundnu félagsmálastarfa.
Akureyri
óskar eftir fólki á öllum aldri til að
bera út Morgunblaðið strax og það
‘ kemuríbæinn.
„Hressandi morgunganga"
Hafiðsamband!
Hafnarstræti 85, Akureyri,
sími 23905.
R^OCJOF OC RNÐNINCAR
Ráðningaþjónusta
NÁMS-OGSTARFSRÁÐGJÖF
Stefanía Amórsdóttir - Valgerður Magnúsdóttir,
BREKKUGÖTU 1, AKUREYRI. SÍMI 96-27577.
Opiðfráki. 13-17