Morgunblaðið - 09.10.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
-t
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sendill
Sporléttan, geðgóðan sendil vantar strax.
Vinnutími fyrir hádegi og tvo daga eftir hádegi.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
Hólmavík
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Hólmavík.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
95-3263 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík, sími
83033.
fltttgiiiiMfitoife
Höfn, Hornafirði
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Einnig vantar blaðbera.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 81007
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík, sími
91-83033.
Fóstra
óskast mjög eindregið til starfa á dagheimilið
Múlaborg, Ármúla 8A.
Lysthafendur hafi samband við Kristínu Elfu
eða Hörð í síma 685154 eða á staðnum.
Múlaborg - mjúkur staður.
MJÓLKURSAMSALAN
Bitruhálsi 1, pósthólf 635, 121 Reykjavík.
Vöruafgreiðsla
Mjólkursamsalan óskar að ráða starfsmenn
við vöruafgreiðslu. í boði er framtíðarstarf
hjá traustu fyrirtæki. Hjá fyrirtækinu starfar
fólk á^öllum aldri. Góð vinnuaðstaða og
mötuneyti í nýjum og glæsilegum húsakynn-
um á Bitruhálsi 1.
Nánari upplýsingar gefa Þórður eða Bent í
síma 692200.
Getum bætt við
okkur starfsfólki í
eftirtalin störf:
1. í vélasal. Konur og karla við framleiðslu
á pokum. Nánari upplýsingar veitir Jón
Ármann Sigurðsson, verkstjóri.
2. Aðstoðarmenn í prentsal. Upplýsingar
veitir Daníel Helgason.
Upplýsingar eru aðeins veittar á staðnum.
I1.ISÍ.OS llí*
KRÓKHÁLSI 6
Utkeyrsla
Óskum eftir starfsmanni til útkeyrslustarfa á
húsgögnum.
Upplýsingar í verslun okkar á Grensásvegi 3.
Ingvarog Gylfi sf.
Helgarvinna
Okkur vantar duglegt, morgunhresst fólk í
ræstingar um helgar. Hafir þú áhuga líttu
þá við í Broadway í dag á milli kl. 13.00 og
17.00.
Bókaverslun
— afgreiðsla
Bókaverslun í verslanamiðstöð í Austur-
borginni óskar að ráða nú þegar vana
starfskrafta til afgreiðslustarfa. Um er að
ræða tvö störf. Vinnutími 9-13 og 9-18.
Áhugasamir umsækjendur leggi inn eigin-
handarumsóknir á auglýsingadeild Mbl. fyrir
13. þ.m. merkt: „Bók — 778“.
Góð aukavinna
★ Vantar þig kvöldvinnu frá kl. 18.00-22.00?
Okkur vantar fólk til áskriftarsölu. Góðir
tekjumöguleikar fyrir hæfileikaríkt fólk.
★ Vantar þig aukavinnu part úr degi eða
stutt tímabil?
Vinnutíma ræður þú sjálf/ur. Við leitum að
fólki til áskriftarsölu. Góðir tekjumöguleikar
fyrir hæfileikaríkt fólk.
★ Upplýsingar gefur Kristján í síma 36780
milli kl. 14.00-18.00 fram til laugardags.
Tímaritið
Þjóðlíf.
Sölustörf á
ferðaskrifstofu
Þekkt ferðaskrifstofa í Reykjavík ætlar að
ráða nokkra sölumenn til starfa á næstu vik-
um eða mánuðum.
Reynsla í ferðaskrifstofustörfum eða við far-
miðasölu hjá flugfélögum er að sjálfsögðu
vel þegin en ekki skilyrði.
Leitað er að fólki, sem hefur til að bera áhuga
á ferðastarfsemi, ríka þjónustulund, vilja og
metnað til að ná árangri, að ógleymdum sölu-
mannshæfileikum og aðlaðandi framkomu.
Sóst er eftir fremur ungu fólki (20-35 ára)
sem hefur áhuga á að afla sér reynslu og
þekkingar í framtíðarstarfi eða a.m.k. til
nokkurra ára.
Störfunum fylgja námskeið og þjálfun hér á
landi ásamt kynnis- og námsferðum til út-
landa.
Hér er um spennandi möguleika að ræða
fyrir fólk, sem kýs að starfa í lífrænni og sívax-
andi atvinnugrein á öflugri og framsækinni
ferðaskrifstofu.
Málakunnátta er óhjákvæmileg. Verslunar-
skólamenntun, stúdentspróf eða hliðstæð
menntun/reynsla eru lágmarksskilyrði en
reynsla af tölvum er æskileg.
Góð laun og hlunnindi eru í boði fyrir trausta
og reglusama sölumenn.
Umsóknir þurfa að vera ítarlegar. Þær verði
sendar afgreiðslu Mbl. fyrir 20. október
merktar: „Ferðaskrifstofa - 6120“.
Algjörum trúnaði er heitið.
Öllum verður svarað.
Húsbyggendur
athugið
Múrarameistari getur bætt við sig verkefnum
strax.
Upplýsingar í síma 52754.
Starfsmaður óskast
til starfa á járnalager.
Guðmundur Arason, Smíðajárn,
Skútuvogi 4,
Reykjavik,
sími 686844.
PÓST- OG
SiMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
verkamenn
við lagningu jarðsíma úti á landi.
Nánari upplýsingar verða veittar í síma
91-26000.
Uppeldisfræðingur
eða kennari
óskast til að byggja upp forskólastarf á dag-
heimilinu Múlaborg, Ármúla 8A.
Um er að ræða deildarforstöðu á deild 3ja-6
ára barna.
Athugið! Möguleikar á dagvist fyrir barn
starfsmanns.
Upplýsingar í síma 685154 eða á staðnum.
Forstöðumenn.
Viltu vinna
spennandi starf?
Félagasamtök óska eftir fjölhæfum starfs-
manni frá 1. nóvember. Verksvið: Fræðslu-
og útgáfustarf, námskeiðahald, persónuleg
fyrirgreiðsla. Unnið í þriggja manna teymi.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi menntun,
áhuga eða reynslu af félagsmálum.
Umsókn sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 20. október merkt: „Fjölhæfni - 4712“.
Afgreiðslustörf
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða
starfsfólk til starfa við afgreiðslustörf í
SS-búðunum.
Við leitum að duglegum og reglusömum ein-
staklingum, sem eru tilbúnir til þess að vinna
með öðrum starfsmönnum að því, að veita
viðskiptavinum okkar góða þjónustu.
í boði er góð vinnuaðstaða og ágæt laun.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri á skrifstofu fyrirtækisins, Frakkastíg
1, Reykjavík.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.