Morgunblaðið - 09.10.1987, Side 52
ÍBRUnnBÚT
iSK/' AfÖkYGGISASTÆÐUM
Nýjungár
í 70 ár
^ ^ I í ALHLIÐA PRENTÞJÖNUSTA
$f0tWlplllplp SSGudjónáhf.
I / 91-27233 I
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Tveir björguðust
er trilla sökk
við Sandgerði
Grmdavik
TVEIR menn björgnðust, þegar
handfærabáturinn Birgir RE,
sem er 12 tonn, sökk í gærkvöldi
nm klukkan 11 eftir að hafa
fengið á sig brot i innsiglingunni
til Sandgerðishafnar. Mönnunum
var bjargað um borð í Reyni GK.
Þeir voru nokkuð þrekaðir og
voru fluttir i sjúkrahúsið í
Keflavik.
Tveir bátar tilkynntu sig ekki í
gærkvöldi. Lögreglumenn og björg-
unarsveitarmenn á Suðumesjum og
austur til Þorklákshafnar voru
beðnir að svipast um eftir þeim í
viðkomandi höfnum. Um miðnætti
fundu lögreglumenn annan bátinn
í Grindavíkurhöfn og hinn fannst
síðar í Hafnarfjarðarhöfn.
Nokkrir bátar réru í gærmorgun
frá Sandgerði og áttu þeir í erfið-
leikum með að komast til hafnar í
gærkvöldi eftir að brast á með norð-
anroki. Birgir RE var kominn inn
undir bauju í innsiglingunni þegar
brot reið yfír bátinn og sökkti hon-
Knattspyrna:
Hörður Helga-
son ráðinn
þjálfari Vals
HÖRÐUR Helgason, sem
rfað hefur 1. deildarlið
og KA í knattspymu,
gekk í gær frá eins árs
samningi við fslandsmeist-
ara Vals.
„Mér líst mjög vel á að taka
við Valsliðinu. Þetta er spenn-
andi verkefni. Valur er gott
félag og hefur á að skipa góð-
um leikmönnum. Ég stefni á
að ná enn betri árangri en lið-
ið náði í sumar," sagði Hörður
Helgason, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Valur varð íslandsmeistari
í sumar undir stjóm Ian Ross
sem nú tekur við liði KR.
Valsmenn hafa ekki verið með
innlendan þjálfara undanfarin
15 ár.
Sjá bls. 51.
unm. Annar bátur, Hulda GK átti
í erfíðleikum, er stýrið bilaði og kom
Jón Gunnlaugsson GK til aðstoðar.
Bátamir biðu í nótt utan innsigling-
arinnar eftir að gæfí til hafnar.
Kr.Ben.
Bílasímar
og árekstrar
„ÞAÐ MÁ rekja æ fleiri árekstra
til þess að ökumenn eru að tala
i bilasima og hafa ekki hugann
við aksturinn," sagði Gylfi Jóns-
son, lögreglufulltrúi.
Gylfí sagðist vilja hvetja öku-
menn til að stöðva bifreiðar sínar
utan vegar á meðan þeir notuðu
bflasímana. „Ökumenn hljóta að sjá
að betra er að hafa hugann við
aksturinn en að stofna sjálfum sér
og öðrum í hættu með því að hafa
bílasímann við eyrað. Það er ekki
hægt að hafa athyglina bundna við
margt í einu,“ sagði Gylfí.
Blindaðist í sólinni
Gatnagerðarframkvæmdir hafa verið í Grindavík
í sumar og víða þurft að grafa til að skipta um lagn-
ir eða ganga frá niðurföllum áður en malbikað hefur
verið. Oft hefur komið fyrir að skurðir eða holur
hafa staðið opin lengi án þess að óhöpp yrðu. Nú
gerðist það hins vegar að bílstjóri blindaðist af sól-
inni og varúðarmerki vom hvergi sjáanleg og því
fór sem fór. Hvort verktakinn, bæjarfélagið eða
bfleigandinn ber skaðann af mikið skemmdum bfl
er ekki gott að segja en atvikið varð til þess að
vinnuflokkur mætti á staðinn og fór að vinna í skurð-
inum. _ Kr.Ben.
Fjárlög endurskoðuð í ljósi nýrrar þjóðhagsáætlunar:
Stefnt er að hallalausum
fj árlöffum fyrir næsta ár
RÍKISSTJÓRNIN er að endurskoða fjárlagafrumvarpið fyrir næsta
ár í ljósi nýrrar þjóðhagsáætlunar fyrir árið 1988. Utlit er fyrir að
viðskiptahalli landsins verði að minnsta kosti 6 milljarðar króna á
því ári miðað við núverandi aðstæður og forsætisráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að ekki væri hægt að útiloka að
talan yrði talsvert hærri. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er
nú stefnt að hallalausum fjárlögum, í stað þess að hallinn verði
1,2-1,3 mUljarðar, en óvíst er að það takist. Ljóst er að fjárlögin
verða ekki lögð fram sem fyrsta mál á Alþingi eins og venja er.
Þingið er sett á laugardag en þingfundir hefjast á mánudag.
Ríkisstjómin hélt í gær tvo fundi
um þjóðhagsáætlun fyrir árið 1988
og fjárlagafrumvarpið, en þjóð-
hagsáætlunin verður lögð fram á
Alþingi á mánudag. Þar er gert ráð
fýrir að viðskiptahallinn í ár verði
2,7 milljarðar króna og enn meiri
á næsta ári, eða um 6 milljarðar,
Eimskip vill 3 ára samning
um saltfiskútflutning í körum
Salt flutt í körunum til landsins
Grmdavík.
FORRÁÐAMENN Eimskips hafa boðið ráðamönnum innan Sölu-
sambands íslenskra fiskframleiðenda að flytja saltfisk út í körum
gegn þvi að flytja allan saltfisk til markaðslandanna næstu þrjú
árin. Það mun kosta skipafélagið um það bil 80 mUljónir króna að
taka upp flutninga í körum og hyggst Eimskip nota körin til þess
að flytja salt í þeim heim tU íslands og hætta þar með að flylja laust
salt.
hefur síðan verið fluttur út á pöll-
um, sem er til mikillar hagræðirgar.
Nú sjá forráðamenn Eimskips
þann möguleika að það muni borga
sig fljótt að taka upp saltfiskflutn-
inga í körum, þar sem mikil afföll
eru á pöllunum, auk annars um-
búðakostnaðar, sem félli niður, auk
þess sleppa þeir við að flytja saltið
Mikil bylting átti sér stað fyrir
um fjórum árum í saltfiskspökkun
og útflutningi á saltfíski þegar
Víkurskip hf. hóf innflutning á litl-
um brettum eða pöllum. Með
pöllunum fylgdu grindur, sem áttu
að auðvelda stöfíun á saltfíski, sér-
staklega í skipunum, en þegar til
kom þóttu þær óþarfar. Saltfískur
laust í skipunum og sekkja það
mikið til hér heima, þar sem salt-
endur vilja heldur fá saltið til sín í
jxikum. Hagræðingin er gífurleg
fyrir Eimskip og saltfískverkendur
ef þessi leið yrði farin, auk þess sem
meðferðin á fískinum myndi batna
enn frekar. Forráðamenn SÍF eru
mjög hrifnir af hugmyndinni, en
það stendur í þeim að láta Eimskip
yfírtaka flutningana næstu þrjú
árin, þar sem önnur skipafélög hafa
stóran hlut í flutningunum og sam-
keppnin því hörð. Komið hefur til
tals að SIF standi straum af breyt-
ingunni til þess að Eimskip ráði
ekki alfarið öllum flutningnum.
Kr. Ben.
miðað við núverandi forsendur.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
sagði eftir fyrri ríkisstjómarfundinn
í gær að horfur um viðskiptahalla
á næsta ári væru mjög alvarlegar
og myndin jafnvel dekkri en þama
kemur fram. Þegar Morgunblaðið
bar undir hann horfur á 8-10 millj-
arða viðskiptahalla á næsta ári
sagðist hann ekki vilja nefna tölur
en ljóst væri að þær gætu orðið
talsvert hærri en miðað er við í
þjóðhagsáætlun.
Þorsteinn sagði að mikil sam-
staða væri í ríkisstjóminni um það
hvemig ætti að taka á þessum
málum en vildi ekki segja á hvem
hátt yrði brugðist við. Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra
sagði eftir ríkisstjómarfundinn að
sá viðskiptahalli sem við blasti væri
óviðunandi og við honum þyrfti að
bregðast, en vildi ekki frekar tjá
sig um þær aðgerðir.
Þær raddir hafa heyrst frá iðn-
aði og fiskvinnslu sem segja að
ríkisstjómin verði að falla frá fast-
gengisstefnunni og fella gengið.
Raungengið sé allt of hátt, sem
örvi innflutning, frystingin hafí ver-
ið rekin með 3-5% tapi undanfarið
og fyrirsjáanleg sé vemleg kostnað-
arhækkun fyrirtækja vegna
komandi kjarasamninga. Þorsteinn
Pálsson sagði um þetta að hann
hefði ekki orðið var við neinn þunga
í gengisfellingarkröfum. „Auðvitað
heyrir maður eina og eina rödd af
þessu tagi. En atvinnuvegimir hafa
gert sfna kjarasamninga og ég geri
ráð fyrir að þeir séu tilbúnir til að
standa við þá samninga hér eftir
sem hingað til. Það er ekki hægt
að gera kjarasamninga og koma
síðan til ríkisins og segja: Elsku
mamma, lækkið þið gengið fyrir
okkur."
Ólafur ísleifsson efnahagsráð-
gjafi ríkisstjómarinnar sagði við
Morgunblaðið að ljóst væri að hag-
vöxtur, sem hefur verið um 7% á
þessu ári, myndi dragast saman á
næsta ári, þar sem hagstæðar ytri
aðstæður, svo sem mikil aukning í
verðmæti sjávarafurða, hækkun
afurðaverðs erlendis, lækkun olíu-
verðs og lækkun vaxta væru ekki
lengfur fyrir hendi.
Blaðburðar-
drengur
kserir rán
FJÓRTÁN ára blaðburðardreng-
ur kom í gærkvöld á miðbæjar-
stöð lögreglunnar í Reykjavík og
kvaðst hafa verið rændur 20
þúsund krónum. Sagði hann að
tveir piltar um tvítugt hefðu ráð-
ist á sig og hefði annar þeirra
ógnað sér með hnifi.
Drengurinn, sem ber út Morgun-
blaðið í Kópavogi, sagðist hafa verið
á leið til að gera upp við blaðið, er
hann var rændur. Atvikið mun hafa
átt sér stað um klukkan 22.00, við
Oddfellow-húsið og kvaðst drengur-
inn ekki hafa séð árásarmennina
glögglega, nema að annar þeirra
hefði verið í leðuijakka með kögri.
Lögreglan hóf þegar leit að árásar-
mönnunum, en sú leit hafði ekki
borið árangur þegar síðast fréttist
í gærkvöldi.