Morgunblaðið - 05.11.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B
251. tbl. 75. árg.________________________________FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsjns
Kínverskir kommúnistar;
V egvilltum hót-
að brottrekstri
Peking, Reuter.
AGANEFND kinverska komm-
únistaflokksins hefur hótað þvi
að gera sérhvem flokksmann
brottrækan sem hneigist til kapít-
alisma. í skýrslu nefndarinnar
sem birt var í gær segir að um-
bótastefnu stjórnvalda fylgi sú
hætta að „úrkynjaðar kapítalísk-
ar hugmyndir" nái að skjóta
rótum.
í skýrslunni segir að nokkrir
flokksfélagar hafi ekki verið pólitískt
undir það búnir að axla þá ábyrgð
Svíþjóð;
Vilja skoða
vopnabúr
átta ríkja
Stokkhólmi, Reuter.
YFIRVÖLD í Svfþjóð hafa óskað
eftir því við ríkisstjórnir átta
ríkja, að sænskum rannsóknar-
mönnum verði heimilað að skoða
vopnabúr ríkjanna. Er þetta liður
i rannsókn á ólöglegri sölu
sænska vopnafyrirtækisins Bo-
fors til írans og fleiri ríkja.
Olof Rydbeck, sem annast rann-
sókn málsins, sagði í viðtali við
dagblaðið Dagens Nyheter í gær,
að bón þessa efnis hefði verið kom-
ið á framfæri við stjómvöld í
Singapore, Túnis, Indónesíu, Ástr-
alíu, Pakistan, Argentínu, Noregi
og Irlandi. Hugmyndin væri sú að
telja flugskeyti af gerðinni
Robot-70, sem ríkin hefðu keypt frá
Svíþjóð, og ganga þannig úr skugga
um hvort einhver skeyti hefðu verið
seld til írans.
sem fylgir þeirri stefnu stjómvalda
að auka samskiptin við umheiminn
og þetta hafí kallað fram „alls kyns
óheilbrigðar hugmyndir". 13. þingi
kínverska kommúnista lauk á sunnu-
dag og var ákveðið að fylgja áfram
umbótastefnu Dengs Xiaoping
flokksleiðtoga. Skýrsla aganefndar-
innar var lögð fyrir þingið og segir
í henni að þrátt fyrir allt hafi frammi-
staða flokksmanna verið góð.
Segir ennfremur að sérstaka
áherslu beri að leggja á flokksaga
og að allir flokksmenn séu jafnrétt-
háir. „Spilltum meðlimum ber
umsvifalaust að víkja úr flokknum,"
segja höfundar skýrslunnar og rekja
nokkur dæmi um embættismenn sem
fengið hafa skipun um taka pokann
sinn eftir að hafa orðið uppvísir að
spillingu.
Pram (cemur einnig að á árunum
1982 til 1986 var 151.935 meðlimum
vikið úr kommúnistaflokknum en það
það þýðir að 3.165 flokksmenn hafa
verið gerðir brottrækir á mánuði
hverjum á þessu tfmabili eða rúmlega
100 á dag.
Hátíðahöld í Teheran
Reuter
íranir flykktust út á götur höfuðborgarinnar, Teh-
eran, í gær til að minnast þess að átta ár voru liðin
frá því að byltingarverðir tóku sendiráð Bandaríkja-
stjómar í borginni á sitt vald og tóku starfsmenn
þess í 444 daga gíslingu. Irna, hin opinbera frétta-
stofa írans, sagði milljónir manna hafa tekið þátt
í hátíðahöldunum víða um landið. Bar fólkið spjöld
þar sem Bandaríkjastjóm var fordæmd í hvívetna
og iögð að jöfnu við Satan sjálfan. í gær vora einn-
ig liðin 13 ár frá því Ayatollah Khomeini byltingar-
leiðtogi fór í sjálfskipaða útlegð og var myndum
af honum einnig haldið á lofti. Tveir menn létust
í sprengingu í bænum Mahabad í norðvesturhluta
landsins og sagði útvarpið í Teheran að þar hefðu
flugumenn Bandaríkjastjómar verið að verki.
Fundi kjarnorkuáætlananefndar NATO lokið;
Einhugur um afvopnunar-
stefnu Bandaríkjasljórnar
Afvopnunarsáttmáli styrkir NATO, segir Reagan Bandaríkjaforseti
Monterey, Washington, Bonn, Hamborg, Reuter.
FUNDI kjamorkuáætlananefnd- I gær. Fundinn sátu vamarmála-
ar Atlantshafsbandalagains i ráðherrar 14 aðildarrílga auk
Montery í Bandaríkjunum lauk í I Einars Benediktssonar, fastafull-
Hryllingi Stalínstímans
hefur enn ekki verið lýst
- segfir sovéski and-
ófsmaðurinn Andrei
Sakharov
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKI andófsmaðurinn
Andrei Sakharov segir i viðtali,
sem birtist i gær i vikuritinu
Moskvufréttir, að enn hafi Sov-
étborgurum ekki verið skýrt frá
þeim hörmungum sem Jósef
Stalín, fyrrum Sovétleiðtogi,
leiddi yfir þjóð sina. Viðtalið var
tekið þremur dögum áður Mik-
hail S. Gorbachev, Sovétleiðtogi,
hélt ræðu sina á mánudag í til-
efni þess að um þessar mundir
em 70 ár liðin frá þvi kommún-
istar bmtust til valda í Rúss-
landi.
Er þetta í fyrsta skipti frá árinu
1970 sem ummæli höfð eftir Sakh-
arov birtast í sovéskum fjölmiðlum.
Andrei Sakharov.
Athygli vekur einnig að í viðtalinu
gengur Sakharov mun lengra í
gagnrýni sinni á stjómarhætti
Stalíns en Gorbachev gerði i hátíð-
arræðunni.
Viðtalið birtist undir fyrirsögn-
inni: „Andrei Sakharov: Það er
algjörlega nauðsynlegt að segja
sannleikann." Sakharov, sem sleppt
var úr útlegð á síðasta ári, lofar
Nikita Khrushchev, sem tók við af
Stalín, og segir hann hafa verið
„framúrskarandi leiðtoga". Þá
hvetur Sakharov til þess að sagn-
fræðingum verði heimilað að segja
„meira en hálfan sannleikann" og
lýsir þeirri skoðun sinni að brýnt
sé að látið verði af því pukri sem
einkennt hafi umfjöllun um sögu
Sovétríkjanna.
í viðtali við fréttamann Reuters-
fréttastofunnar í Moskvu í gær
sagði Sakharov að hann hefði búist
við að Gorbachev myndi fjalla á
opinskárri hátt um valdatið Stalíns
í ræðu sinni en raun bar vitni.
Kvaðst hann bæði hafa búist við
og vænst afdráttarlausari yfirlýs-
inga, sagðist telja gleðilegt að
GorbaChev hefði ákveðið að skipa
nefnd til að rannsaka valdatíð
Stalíns.
trúa íslands hjá NATO. Fundar-
menn lýstu yfir afdráttarlausum
stuðningi við væntanlegan sátt-
mála risaveldanna um uppræt-
ingu meðal- og skammdrægra
kjarnorkuflauga á landi og fögn-
uðu því að stefnt væri að helm-
ings fækkun langdrægra flauga.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti sagði í sjónvarpsræðu i gær
að þess yrði gætt í hvivetna að
fyrirhugað samkomulag risa-
veldanna yrði ekki til þess að
veikja vamir Vestur-Evrópu og
lýsti þeirri skoðun sinni að það
myndi verða til þess að treysta
samstöðu aðildarríkjanna enn
frekar.
Háttsettur embættismaður innan
bandalagsins sagði að með svo af-
dráttarlausri stuðningsyfirlýsingu
vildu fundarmenn gera banda-
rískum þingmönnum ljóst að þess
væri vænst að Bandaríkjaþing stað-
festi afvopnunarsáttmálann og var
þess raunar getið sérstaklega í loka-
yfirlýsingu fundarins. í viðræðum
sín á milli létu fundarmenn í ljós
þá von að staðfesting þingsins lægi
fyrir í ágústmánuði á næsta ári en
þá er áætlað að uppsetningu meðal-
drægra bandarískra kjarnorku-
flauga verði lokið í Evrópu í
samræmi við ákvörðun bandalags-
ins frá árinu 1979. Minntust menn
í þessu samhengi á að Bandaríkja-
þing hefði aldrei staðfest SALT
II-samkomulagið um takmörkun
langdrægra kjamorkuflauga sem
risaveldin gerðu með sér í júní árið
1979. Caspar Weinberger, vamar-
málaráðherra Bandaríkjanna, bað
menn að hafa þetta í huga og
hvatti til þess að ekki yrði hætt við
uppsetningu flauganna fyrr en öld-
ungadeild Bandaríkjaþings hefði
staðfest sáttmálann.
Fundarmenn ræddu einkum
hvemig treysta megi kjamorku-
vamir Vestur-Evrópu eftir að
risaveldin hafa upprætt meðal- og
skammdrægar flaugar. Engin
ákvörðun var tekin en í lokayfírlýs-
ingu fundarins sagði að unnið yrði
að endumýjun vígvallarvopna með
kjamorkuhleðslum til að vega á
móti yfírburðum ríkja Varsjár-
bandalagsins á sviði þess háttar
vopna og hins hefðbundna herafla.
Reagan Bandaríkjaforseti sagði
í ræðu í gær að framsýni leiðtoga
ríkja Vestur-Evrópu hefði gert það
að verkum að nú væri samkomulag
um fækkun kjamorkuvopna nánast
í höfn. Sagði hann að Bandaríkja-
menn myndu aldrei víkja frá
skuldbindingum sínum um að koma
ríkjum Evrópu til varnar og lýsti
yfir því að afvopnunarsáttmálinn
yrði ekki undirritaður væri einhver
hætta á að með því yrðu vamir
Vestur-Evrópu veiktar.
Sjá nánar um ræðu Reagans for-
setaog„Ekkisamið . . .ábls.34.