Morgunblaðið - 05.11.1987, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987
Jómfrúræða Valgerðar Sverrisdóttur:
Malefní umhverfisvemdar
ekki fagnrfræðilegt hjal
Hér fer á eftir jómfrúræða Val-
gerðar Sverrisdóttur (F.-Ne.)
sem flutt var á Alþingi 29. októ-
ber sl.:
Hæstvirtur forseti.
Hér er lögð fram af þingmönnum
- fimm flokka þingsályktunartillaga
um einnota umbúðir.
Málefni umhverfísvemdar eru
illu heilli vandamál, sem flestar
þjóðir eiga við að stríða og telja
höfuðnauðsyn að leysa. Þau eru
ekki fagurfræðilegt hjal um óþarfa
heldur nauðsynjamál sem sérhverri
menntaðri þjóð ber skylda til að
taka á.
Við segjum gjaman á hátíðar-
stundum að við viljum að komandi
kynslóðir erfí landið í ekki síðra
ástandi, og helst betra, en þær
kynslóðir sem það byggja nú. Til
þess að svo geti orðið duga ekki
orðin tóm, heldur þarf að eiga sér
__ stað hugarfarsbreyting hjá hinum
almenna borgara, skilvirkara eftirlit
af hálfu sveitarstjóma og síðast en
ekki síst löggjöf frá hinu háa Al-
þingi þar sem hana skortir.
Notkun einnota umbúða er á
margan hátt þægileg og um margt
jákvæð í nútíma þjóðfélagi, en
vandamálin em a.m.k. tvíþætt.
í fyrsta lagi þau náttúruspjöll
sem af þeim hljótast úti í náttúr-
unni og hvar sem er þar sem þeim
er hent og í öðru lagi erfíðleikamir
við að koma sumum af þessum
vamingi endanlega fyrir kattamef.
Hér er ekki um neitt nýtt mál
að ræða, en það hefur aldrei verið
brýnna en nú, þar sem notkun ein-
nota umbúða hefur farið stórlega
vaxandi með tilkomu pökkunarvéla
fyrir öl og gosdrykki í áldósir hér
á landi. I greinargerð Hollustu-
vemdar ríkisins, Náttúmvemdar-
ráðs og Landvemdar kemur fram
að ekki sé ólíklegt að árleg sala á
gosdrykkjum verði um 30 milljónir
áldósa, sem svarar til hátt í 400
tonna af áli.
Það er því ljóst að einn ófögnuð-
ur hefur bæst við önnur spillingaröfl
í islensku umhverfí.
Við búum í fallegu landi stórbrot-
innar náttúmfegurðar. íslendingar
ferðast í vaxandi mæli innanlands
hvort sem er í byggð eða óbyggð-
um. Því miður hefur íslenskum
uppalendum og skólakerfí ekki tek-
ist að innræta þá sjálfsögðu skoðun
í huga sérhvers einstaklings að fara
um landið af skilningi og virðingu.
Hver hefur ekki gengið fram á
umbúðir, hvaða nafni sem þær
kunna að nefnast, á fögmm sumar-
degi í borg eða bæ, sveit eða
óbyggð, og verið eins og stunginn
í augun?
A leið minni frá bílaplani Al-
Valgerður Sverrisdóttir
þingis yfir á skrifstofu, sem er urr
50 m leið, sá ég einn morguninr
25 tómar áldósir með því að horfa
sæmilega í kringum mig.
í 13. gr. laga um náttúmvemd
nr. 47 frá 1971 stendur með leyfi
forseta.
„Á víðavangi er bannað að
fleygja frá sér eða skilja eftir msl,
sem er til hættu eða óprýði, svo og
að bera msi eða sorp í sjó, í fjörur
eða á sjávarbakka, í ár eða á ár-
bakka, í læki eða í lækjarbakka.
Skylt skal að ganga frá áningarstað
og tjaldstæði, er menn hafa tekið
sér úti í náttúmnni, þannig að ekk-
ert sé eftir skilið sem lýti umhverfíð.
Bannað er að safna msli í hauga
á almannafæri við alfaraleiðir.
Skylt er að ganga svo frá sorphaug-
um, að hvorki ijúki úr þeim né fljóti.
Hreinsa má msl á kostnað þess, sem
sannur er að broti á þessu fyrir-
mæli.“ (Tilvitnun lýkur.)
Þetta em góð lög en því miður
vantar nokkuð á að eftir þeim sé
farið.
Með lejrfí forseta langar mig að
vitna aftur í lög um náttúmvemd
frá 1971 en þar segir í 15. gr.:
„Hafí byggingar, skip í fjöm,
bifreiðar eða áhöld eða mannvirki,
þar á meðal girðingar, verið skilin
eftir í hirðuleysi og grotni þar nið-
ur, svo að telja verði til lýta eða
spjalla í náttúm, er eiganda skylt
að fjarlægja það. Fari jörð í eyði
er landeiganda skylt að ganga svo
frá jarðhúsum, girðingum, bmnn-
um og öðmm mannvirkjum að ekki
valdi hættu fyrir fólk og skepnur
né valdi náttúmspjöllum eða sé til
lýta.
Sveitarstjóm skal annast fram-
kvæmdir þær, sem nauðsynlegar
em samkvæmt fyrirmælum þess-
um, á kostnað þess, er skylt var
að annast þær, en hefur látið það
ógert." (Tilvitnun lýkur.)
Það er mikil ábyrgð því samfara
að eiga land, hvort heldur það er
lóð í þéttbýli eða jörð í sveit.
Sú siðferðislega skylda hlýtur að
hvfla á eigandanum, að hann gangi
þannig um landið og haldi við
mannvirkjum, að ekki verði til ama
fyrir þá sem um landið fara.
Á síðustu ámm hefur orðið vem-
leg framför víða til sveita í
umgengni á bóndabýlum. Á það
bæði við um ytra útlit útihúsa og
frágang á hvers konar brotajámi.
En því miður má enn sjá bflhræ
og úreltar landbúnaðarvélar á áber-
andi stöðum, jafnvel uppi á hæstu
hæðum.
í þessu sambandi er rétt að hafa
í huga, að það er gífurlega mikil
vinna sem felst í því að snyrta og
prýða og halda í horfínu á einu
bóndabýli. Það er ekki ólíklegt að
þar sé um a.m.k. hálft starf að
ræða yfír sumarmánuðina ef að
standa á myndarlega að verki.
Á nýafstöðnu Náttúruvemdar-
þingi vom vandamál vegna sorp-
eyðingar og förgunar á brotajámi
og öðmm málmum nokkuð til um-
ræðu.
Þar koma fram í máli manna,
að endurvinnsla væri æskilegasta
leiðin og raunar sú eina sem auð-
velt væri að sætta sig við frá
sjónarhóli umhverfísvemdar.
Sú leið sem farin hefur verið í
nokkmm mæli, það er að urða þetta
msl, hefur ýmsa vankanta. T.d.
hefur tilhneigingin verið sú, að
grafa ekki nægilega djúpt, og hafa
þá herlegheitin minnt á sig áður
en mörg ár hafa liðið.
Hæstvirtur forseti.
Ég vil að lokum endurtaka það
sem ég sagði í upphafí. Málefni
umhverfísvemdar em ekki fagur-
fræðilegt hjal um óþarfa heldur
nauðsynjamál í sérhveiju hugsandi
þjóðfélagi.
radauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Týr FUS í Kópavogi
Viðverutími stjórnar.
Stjóm Týs heldur stjórnarfundi á sunndögum kl. 21.00 í Hamra-
borg 1, 3. hæð. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
HFIMDALI.UK
Byrjenda-
námskeið
Byrjendanámskeið Heimdallar hefst fimmtudaginn 5. nóvember kl.
20.00 I kjallara Valhallar. Árni Sigfússon formaöur S.U.S. og Ólafur
Stephensen formaður Heimdallar mæta í létt spjall og kynna störf
og stefnu félagsins.
Nýlr félagar og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta.
Skólanefndin.
Akranes - bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður
haldinn í Sjálfstæö-
ishúsinu við Heiðar-
gerði, sunnudaginn
8. nóvember kl.
10.30. Bæjarfulltrú-
ar Sjálfstæðis-
flokksins mæta á
fundinn.
Kaffiveitingar.
Sjálfstæðisfélögin, Akranesi.
Grafarvogshverfi
Aðalfundur
verður haldinn fimmtudaginn 12. nóvember
kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forðmaður
skipulagsnefndar, ræðir um skipulags-
málin.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Árbær - Ártúnsholt - Selás
Aðalfundur
verður haldinn
fimmtudaginn 5. nóv-
ember kl. 20.30 í
félagsheimilinu,
Hraunbæ 102b.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
2. Gestir fundarins
verða alþingis-
mennimir Geir H.
Haarde og Jón
Magnússon.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Hafnfirðingar
Eiga frjálshyggjan og Sjálfstæðisflokkurinn
samleið?
Félag urígra sjálfstæðismanna i Hafnarfirði
heldur hádegisfund laugardaginn 7. nóv-
ember kl. 12.15 í Sjálfstæöishúsinu viö
Strandgötu. Gestur fundarins verður Hann-
es H. Gissurarson, stjórnmálafræöingur.
Mun hann svara spurningunni „Eiga frjáls-
hyggjan og Sjálfstæðisflokkurinn samleið?"
Allir velkomnir.
Stefnir.
Hafnfirðingar
Félag ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði býður ykkur að taka þátt
í verkefnastarfi félagsins í vetur. Starfið hefst kl. 11.00 laugardaginn
7. nóvember í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu með því að skipaö
verður í verkefnahópa. Starfað verður í eftirtöldum verkefnahópum:
Atvinnumál.
Sveitastjórnarmál.
islenskur fjármálamarkaður.
Utanríkismál.
Húsnæðis- og dagvistunarmál.
Samgöngu- og umhverfismál.
Námslánakerfið.
Neytendamál
Allir velkomnir.
Stefnir.
51
Utanríkismála-
námskeið
Utanríkismálanámskeið Heimdallar hefst
föstudaginn 6. nóvember kl. 20.00 í kjallara
Valhallar, Háaleitisbraut 1. Davíð Stefáns-
son formaöur utanríkismálanefndar S.U.S.
greinir frá störfum og stefnu ungra sjálf-
stæöismanna í utanríkismálum og Hreinn
Loftsson formaður utanríkismálanefndar
Sjálfstæðisflokksins ræðir um stöðuna i
afvopnunarmálum.
Keflavíkurferð
Námskeiðinu lýkur svo laugardaginn 7.
nóvember með skoðunarferð í Varnarstöð-
ina í Keflavík þar sem aöstaöa og búnaður
varnarliðsins verður skoðaður. Stór-
skemmtileg og fræðandi ferð. Mæting kl. 11.00 i Valhöll. Rútugjald
veröur 350.- kr. og er eina greiðslan fyrir þetta námskeið.
Gullið tækifæri fyrir ungt áhugafólk um stjórnmál og utanríkismál.
Skólanefndin.