Morgunblaðið - 05.11.1987, Side 37

Morgunblaðið - 05.11.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987 37 Le Figaro: Mitterrand vissi um vopnasölima en að- hafðist ekkert París, Reuter. FRANSKA dagblaðið Le Figaro fullyrti í gær að Frangois Mitter- rand hafi árið 1984 verið aagt frá ólöglegri vopnasölu tU írans, en að hún hafi eigi að síður ver- ið látin óáreitt í tvö ár. Þessi frétt siglir í kjölfar upp- ljóstrana um að franska fyrirtækið Luchaire hafí selt vopn til írana, en um 3-5% hagnaðarins hafí runn- ið í kosningasjóð Sósíalistaflokks- ins. Fréttin er byggð á leyniskýrslu, sem herforinpnn Jean-Frangois Barba gerði um málið. Haft var eftir Barba að þáverandi vamar- málaráðherra, Charles Hemu, kunni að hafa snúið blinda auganu að yfírhylmingu aðstoðarmanna sinna, sem vildu koma fyrirtækinu til aðstoðar á erfíðleikatímum og þágu um leið fjárframlög í kosn- ingasjóð Sósíalistaflokksins. „Ég er viss um að samstarfsmenn Hemus og þá sérstaklega helsti aðstoðarmaður hans, [Jean-Fran?- ois] Dubos, hafí hylmt yfír ólöglega vopnasölu Luchaire," var haft eftir Barba. Dubos hefur neitað ásökunum um hverskonar „aðgerðir til þess að afla flokknum Qár“ og Sósíal- istafíokkurinn hefur neitað öllu sömuleiðis. Þetta er síðasta hneykslismálið í röð nokkurra slíkra, en farið er að sverfa til stáls milli sósíalista og hægrimanna fyrir forsetakosningamar, sem fara fram í apríl næstkomandi. Að sögn Barba var það yfírmað- ur frönsku leyniþjónustunnar, DSGE, sem gekk á fund Frakk- landsforseta í Elysée-höll og skýrði honum frá vopnasölunni, en Mitter- rand sagði honum að ræða málið við Hemu. Framkvæmdastjóri Luchaire, Daniel Dewavrin, sagði að hann hefði lagt í vopnasöluna til þess að bjarga fyrirtæki sínu frá gjaldþroti og að um þijár milljónir franka (um 15 milljónir ísl. króna) hefðu verið gefnar til Sósíalistaflokksins. Talið er að mál þetta kunni að draga dilk á eftir sér, því fram að þessu hafa sósíalistar mikið lagt upp úr strangheiðarleika Mitter- rands, sem nú er dreginn í efa. Franskir fjölmiðlar hafa þegar líkt málinu við vopnasöluhneykslið í Bandaríkjunum óg nefna það „Iran- gate“. Tyrkland: Kommúnistaforíngj- ar vilja snúa heim Ankara, Reuter TYRKNESK stjómvöld hyggjast sækja til saka tvo fyrverandi leið- toga kommúnistaflokka ef þeir snúa heim, eftir sjö ára búsetu erlendis. Að sögn Reutersfrétta- stofunnar verða mennirnir ákærðir fyrir að stjóraa ólögieg- um samtökum. Þeir gætu átt yfir höfði sér, allt að fimmtán ára fangelsi. Menn þessir Haydar Kutlu og Hihat Sargin hafa báðir sagt tyrk- neskum blaðamönnum frá því að þeir stefndu að því að snúa aftur til Tyrklands um miðjan nóvember. Sumir fréttaskýrendur segja að endurkoma þeirra myndi setja Turgut Özal, forsætisráðherra, í hinn mesta vanda, þar sem and- stæðingar hans gætu reynt að færa sér þetta í nyt og benda á að lýðræð- isást Özals væri aðeins á yfírborð- inu. Kutlu og Sargin voru meðal Stolið málverk komið í leitirnar TAkió, Reuter JAPANSKA lögreglan kunn- gerði í gær, að hafzt hefði upp á einu af fimm frægum mál- verkum, sem var stolið í Frakklandi og síðan smyglað til Japans. Þetta er málverkið „Drengur með húfu“ eftir im- pressíónistann Jean-Baptiste Camille Corot. Málverkunum mörg hundruð manna, sem flýðu land eftir að herinn tók völdin í landinu í september 1980. Starfs- semi flokka þeirra félaga hefur ekki verið leyfð á ný. Mennimir hafa verið búsettir í Belgíu og Vestur Þýzkalandi. var stolið af safni í grennd við Dijon í október 1984. Málverkið kom í leitimar í gal- leríi í Osaka. Lögreglan telur að hin íjögur málverkin séu líka í Japan. Talið er að þrír Frakkar sem er leitað vegna mesta bankaráns í sögu Japans, hafí komið málverk- unum til landsins. V estur-E vrópu- sambandið: Sækja Daiiir um aðild? UFFE Ellemann-Jensen, utanrik- isráðherra Danmerkur, vill, að Danir sæki um aðild að Vestur- Evrópusambandinu. Kemur þetta fram f viðtali við hann f EB-blað- inu danska. Ellemann-Jensen segist sjálfur telja, að samstarf f öryggismálum eigi að ræða innan Evrópubandalags- ins en það hafí hins vegar alltaf verið stefna Dana að eiga aðild að þeim samtökum, sem ákvarðanimar taka. Sé mikill áhugi á, að samstarf þjóð- anna í öryggismálum fari fram innan Vestur-Evrópusambandsins, WEU, og komi þar einkum tvennt til. Sum- ir vilji treysta samstarfíð til þess að geta tekið upp óháða stefnu gagn- vart Bandaríkjunum en aðrir til að treysta stöðu Evrópuríkjanna innan Nato. Ellemann-Jensen sagði, að á þingi og meðal Dana almennt væri mikill meiríhluti fyrir auknu samstarfi Vestur-Evrópuríkjanna, jafnt í ör- yggismálum sem stjómmálum. Reuter Mynd af Edward Gallo tekin af honum við vinnu sína fyrir tveim árum. Hugðist drepa Shultz Fyrrum hermaður handtekinn á hót- elherbergi með mikið af vopnum Washington, Reuter. LÖGREGLAN í Washington handtók á þriðjudag mann eftir að lögregla í heimabæ hans hafði varað við að hann hefði i hyggju að skjóta George Shultz vamar- málaráðherra og jafnvel Reagan forseta. Maðurinn var alvopnað- ur er hann var handtekinn á hótelherbergi sinu. Edward Gallo var hermaður í Víetnam, og hefur verið atvinnulaus í heilt ár. Hann fór frá heimabæ sfnum í Massachusetts á þriðjudag með tvo hlaðna riffla, og afsagaða haglabyssu í farteskinu. Kvaddi hann móður sína og systur með þeim orðum að hann hyggðist skjóta „ákveðna menn.“ Móðir Gallo hafði samband við yfírvöld í heimabæ þeirra, sem létu Washington-lögregluna vita um ferðir hans. Gallo hefur margsinnis talað um að skjóta George Shultz. Einnig hefur hann gefíð í skyn að hann teldi Ronald Reagan rétt- dræpan, þó hann hafi aldrei sagt beinum orðum að hann hyggðist drepa hann. Gallo hefur aldrei áður komist í kast við lögin og keypti vopnin á löglegan hátt. Ekki er vit- að hvað hann hefur á móti George Shultz, sem hann hefur margsinnis talað um að drepa. Sprengjutil- ræði í Istanbul Istanbul, Reuter. EINN maður lézt og nokkrir slö- suðust, er sprengja sprakk i aðalbækistöðvum Föðurlands- flokks, Turgut Özals, forsætis- ráðherra, í gærmorgun. Tyrkneska fréttastofan, Anatol- ia staðfesti fréttina nokkru eftir að atburðurinn fór að spyijast út. Skrifstofan er í miðborg Ist- anbul. Fyrir fáeinum dögum slösuðust að minnsta kosti níu manns, sumir alvarlega, þegar sprengjur sprungu í skrifstofum flokksins í borginni Izmir á Eyjahafsströndinni. Atburðir af þessu tagi hafa naumazt gerzt frá því árið 1980, en í kjölfar mikilla óeirða, sprengj- utilræða og hvere kyns hryðjuverka tók tyrkneski herinn völdin i sínar hendur í nokkur ár. að þegar við kaupum leðursófasett veljum við alltaf gegnum- litað leður og alltaf anilínsútað (krómsútað) leður og leðurfiúðir af dýrum ífá norðlægum slóðum eða fjallalöndum — og yfir- leitt óslípaðar húðir(sem em endingarbestar). Ef þú ert í einhveijum vafa um hvort þú ert að kaupa góða vöm eða ekki, skaltu bara biðja okkur um 5 ára ábyrgð. Tegund Manila er stórglæsilegt sófasett sem fæst 3+2+1 og 3+1+1. Manila fæst í brúnu og svörtu úrvalsleðri með afborgunum í 12 mánuði ef óskað er. húsgagnfrhöllin REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.