Morgunblaðið - 05.11.1987, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987
75
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Stórskemmtilegt
í Laugardalshöll
- þegarValsmenn lögðu meistara Víkings, 18:17
VALUR iagði Víking að velli,
18:17, í æsispennandi og stór-
skemmtilegum leik í Höllinni í
gærkvöldi. Þetta var leikur mik-
illar spennu, hörkuvarna og
frábærra markvarða, tvímæla-
laust einhver besti ieikur þessa
íslandsmóts. Um það bil 1200
áhorfendur sem mættu til leiks
fóru ekki sviknir heim og i raun-
inni synd að annað liðið skyldi
þurfa að tapa þessum leik.
etta var gríðarlega jafnt, bæði
í fyrri hálfleik og seinni, jafnt
á Qölmörgum tölum. Sérstaklega
var hasar í seinni hálfleiknum er
jafnt var á öllum
tölum frá 10-10 upp
I 15-15, en þá kom
darraðardans sem
skipti sköpum. Vals-
menn skoruðu, 16-15, og áttu svo
möguleika á að komast tveimur
mörkum yfír, en Kristján varði víti
Valdimars. Hinu megin brenndi
Siggi Gunnars af víti og í þriðju
sókninni kom þriðja vítið og þá
skoraði Júlíus fyrir Val, 15:17.
Síðan var staðan 17:18 fyrir Val
og Júlíus brenndi af víti fyrir liðið
er 55 sekúndur voru eftir. Víkingar
brunuðu upp, misstu knöttinn, en
ekki tók betra við fyrir Val, dæmd
voru skref á liðið er 11 sekúndur
voru eftir. Löng sending fram, beint ■
á Víking sem kominn var fremstur
fram í dauðafæri, en allt í einu virt-
ist togna enn frekar úr Júlíusi
Valsmanni Jónassyni, og tókst hon-
um að blaka knettinum í innkast.
Og tíminn fjaraði út. Valssigur.
í þessum stórleik iéku allir hlutverk
sín með mikilli prýði. Kristján Sig-
mundsson og Einar Þorvarðarson
voru frábærir, vörðu raunar ekki
sérlega mörg skot, enda vamimar
sterkar, en það sem þeir tóku var
nær allt úr dauðafærum. Af útileik-
mönnum stóðu Sigurður Gunnars-
son og Júlíus Jónasson hæst upp úr.
Vík. - Valur
17 : 18
Laugardalshöll, íslandsmótið l.deild,
4. nóvember 1987.
Gangur leiksins:l:l, 5:5, 5:8,
8:8,10:9, 10:10, 15:15, 15:18,17:18.
Mörk Víkings:Sigurður Gunnarsson
7/2, Karl Þráinsson 3/1, Bjarki Sig-
urðsson 2, Guðmundur Guðmundsson
2, Hilmar Sigurgíslason 2, Ámi Frið-
leifsson 1 mark.
Varin skot: Kristján Sigmundsson 11
skot, þar af eitt víti.
Mörk ValsJúlíus Jónasson 7/3, Jakob
Sigurðsson 4, Jón Kristjánsson 2, Geir
Sveinsson 2, Þóröur Sigurðsson 2 og
Þorbjöm Guðmundsson 1 mark.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 10
skot
DómaranStefán Amaldsson og ólafur
Haraldsson, dæmdu mjög vel.
Staðaní
1. deild
FH - UBK 23: 21
Þór - KA 14 : 19
KR - Stjarnan 19 : 24
Víkingur - Valur 17 : 18
ÍR - Fram 24 : 23
FJ. leikja u j T Möik Stig
FH 7 6 1 0 209: 151 13
Valur 7 6 1 0 150: 107 13
Stjaman 7 4 1 2 167: 170 9
Víkingur 7 4 0 3 173: 159 8
UBK 7 4 0 3 143: 146 8
ÍR 7 3 1 3 150: 162 7
KA 7 2 1 4 137: 151 5
KR 7 2 0 5 147: 164 4
Fram 7 1 1 5 158: 181 3
Þór 7 0 0 7 137: 180 0
Skúli
Sveinsson
skrífar
Guðmundur Þórðar sér
um stigin eftir leiktíma
ANNAN leikinn í röð geta ÍR-
ingar þakkað fyrirliða sínum
fyrir stigin sem önglast hefur
í. Á dögunum skoraði Guð-
mundur Þórðarson úr au-
kakasti eftir að leiktíma var
lokið gegn Stjörnuni og tryggði
liði sínu eitt stig. Nú gerði hann
gott betur, skoraði úr vítakasti
gegn Fram eftir að leiktíminn
var úti og tryggði ÍR tvö dýrmæt
stig.
ÆT
IR-ingar geta andað léttar. Þeir
voru mikinn hluta leiksins með
algert frumkvæði í leiknum, Fram-
arar eins og höfuðlaus her, sérstak-
lega í fyrri hálfleik.
Guðmundur Þannig leiddu þeir
GuOjónsson leikinn nær allan
skrífar tíman. Framarar
geta nagað sig í
handarbökin. Eftir að hafa spilað
hroðalegan fyrri hálfleik tóku þeir
að saxa á forskotið og ÍR-ingar
gengu tvívegis í gegn um tilvistar-
kreppur í seinni hálfleik. Þá keppt-
ust menn hver um aðra þvera að
reiða fram glappaskot og þá reynd-
ist dýrmætt að hafa menn í liðinu
eins og Guðmund Þórðarson fyrir-
liða og Hrafn Margeirsson í
markinu. Það er álit undirritaðs að
þegar á heildina er litið voru það
þeir sem sáu um sigurinn.
Annars má segja um ÍR, að þeir
virtust hafa lagt grunninn að stór-
um og tryggum sigri með sannfær-
andi stemmingsleik í fyrri hálfleik.
Ógurlegur gnýr áhangenda liðsins
hvatti þá til dáða, en í seinni hálf-
leik bilaði kjarkurinn og Framarar
höfðu nær nælt sér í stig. Lok-
amínútumar voru bókstaflega
trylltar og hápunktinum var náð
er Framarar reyndu mislukkað skot
þegar 5 sekúndur vom eftir, boltinn
barst fram og Frosti Guðlaugsson
sveif inn úr hominu. Færið þröngt
og Jens búinn að veija vel. Dreif
þá að Framara nokkum sem skellti
Frosta í gólfíð. Þar með var málið
útkljáð, Guðmundur Þórðar sá um
það.
Framan af var ÍR-liðið jafnt með
fyrrgreinda tvo sem bestu menn.
Þeir tveir héldu svo manna best
\
haus þegar á reyndi. Hjá Fram
vom Hermann og Egill einna skást-
ir og Jens varði vel í seinni hálfleik.
ÍR-Fram
24 : 23
íþróttahús Seljaskóla, íslandsmótið 1.
deild, miðvikudaginn 4. nóvember
1987.
Gangur leiksins:4:l, 10:5, 14:8, 16:9,
17:11, 17:16, 19:16, 21:18, 21:21,
22:22, 23:23, 24:23.
Mörk ÍR: Bjami Bessason 6, Guð-
mundur Þórðarson 6,4 víti, Ólafur
Gylfason 4, Magnús ólafsson 3, Finnur
Jóhannsson 2, Frosti Guðlaugsson 2
og Sigfús Bollason 1 mark. Varin skot:
Guðmundur Jónsson 4 og Jens Einars-
son 7 skot.
Mörk FramrEgill Jóhannesson 8,2 víti,
Hermann Bjömsson 5, Birgir Sigurðs-
son 4, Pálmi Jónsson 3 , Atli Hilmars-
son 2 og JÚ1ÍU8 Gunnareson 1 mark.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 17 þar
af 2 víti.
Framarar voru utan vallar í 10 mínút-
ur, ÍR-ingar í 6 mínútur.
Dómarar-.Guðjjón Sigurðsson og Há-
kon Siguijónsson, dæmdu erfiðan leik
í heild vel.
Morgunblaöið Bjami
Hédinn Gllsson sést hér stökkva upp og skora hjá Blikunum.
FH-ingar á
sigurbraut
Hafnfirðingar fylltu íþróttahúsið við Strandgötu
„ÞETTA var mikilvægur sigur -
fjögurra stiga leikur. Það var
mjög skemmtilegt að spila hér
fyrirfullu húsi, stemmningin
var frábær," sagði Þorgils Ótt-
ar Mathiesen, fyrirliði FH, eftir
sigurinn á Breiðablik í Hafnar-
firði í gærkvöldi. Uppselt var á
leikinn og komust færri að en
vildu. Það má því segja að
Haf nfirðingar styðji vel við bak-
ið á hinu unga liði sínu sem
nú er efst í 1. deild.
Mikil taugaveiklun var fyrstu
mínútur leiksins og gerðu lið-
in sig sek um mörg mistök enda
mikilvægur leikur fyrir bæði liðin.
FH byijaði með
miklu krafti í seinni
hálfleik og komst í
15:11 og virtist vera
að taka leikinn í
sínar hendur. Blikamir voru ekki á
sama máli. Þeir tóku Héðin Gilsson
úr umferð og við það riðlaðist sókn-
arleikur FH. Um miðjan seinni
hálfleik var staðn orðin 16:15 og
Breiðablik með boltann og gat jafn-
að í fyrsta sinn í hálfleiknum en
Aðalsteinn skaut í stöng.
FH náði aftur fjögurra marka for-
skoti, 21:17, og sigurinn virtist í
höfn. Blikamir tóku það þá til
bragðs að leika maður á mann með
góðum árangri síðustu þijár mínú-
tumar. Þeir náðu að minnka
muninn í eitt mark 22:21 þegar
hálf mínúta var eftir en Héðinn
innsiglaði sigurinn með því að skora
23. mark FH.
Leikurinn var mjög hraður og
skemmtilegur. Vamarleikurinn og
markvarslan var góð en sóknarleik-
urinn ekki eins markviss.
FH-liðið er heilstejipt og leikgleðin
er þar í fyrirrúmi. Þorgils Óttar
stjómar liðinu inn á vellinum eins
og sá sem valdið hefur. Héðinn
Gilsson er að verða ein mesta skytta
okkar og má varla líta af honum.
Valur
Jónatansson
skrífar
Hann var þó óheppinn í byijun leiks-
ins að láta reka sig tvívegis útaf
og gat því ekki leikið í vöminni.
Homamennimir Gunnar og Pétur
eru ömggir. Óskar Helgason skor-
aði mikilvæg mörk og Bergsveinn
var góður í markinu.
Lið UBK hefur verið að sækja i sig
veðrið að undanfömu eftir slaka
byijun. Það vantaði herslumininn
hjá þeim í gærkvöldi. Bræðumii
Bjöm og Aðalsteinn vom góðir.
Þórður og Jón Þórir Jónsson vom
einnig sterkir. Hans Guðmundsson
átti erfitt uppdráttar gegn sínum
gömlu félögurm Hann var óheppinn
með skot sín. Áhorfendur púuðu á
hann og kann það að hafa farið í
taugamar á honum. Guðmundur
Hrafnkelsson stóð vel fyrir sínu í
markinu.
FH-ingar vom utanvallar í 8 mínút-
ur en Breiðablik í 10 mínútur.
FH - UBK
23 : 21
íþróttahúsið við Strandgötu, íslands-
mótið - 1. deild, miðvikudaginn 4.
nóvember 1987.
Gangur leiksins: 0:1, 4:4, 6:6, 8:6,
9:8, 12:8, 13:10, 14:11, 15:12, 16:15,
21:17, 21:19, 22:19, 22:21, 23:21.
Áhorfendur: 900.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 5, óskar
Helgason 4, Gunnar Beinteinsson 4,
Þórgils óttar Mathiesen 3, Pétur Pet-
ersen 3, Guðjón Ámason 2/1, Óskar
Ármannsson 2/2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
16.
Mörk UBK: Jón Þórir Jónsson 6/5,
Bjöm Jónsson 3, Aðalsteinn Jónsson
3, Kristján Halldóreson 3, Þórður Daví-
ðsson 3, Hans Guðmundsson 2 og
Andrés Magnússon 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafiikelsson
13.
Dómaran Guðmundur Sveinsson og
Gunnar Viðarsson og stóðu þeir sig
þokkalega.