Morgunblaðið - 05.11.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987
Sokkabuxurnar
sem passa
M/Mettt
ísleJkV////
AmeriBka
■njNGUHALS 11. SÍMI 82700
Fiskveiðasj óður
lánar til 40 skipa
29 þeirra keypt eða smíðuð erlendis
FISKVEIÐASJÓÐUR hefur frá
upphafi síðasta árs lánað til
kaupa eða smíði á 40 skipum.
Auk þess hefur mikil endurnýjun
átt sér stað í flotanum. Af þess-
um skipum voru 9 keypt notuð
erlendis, 20 smíðuð erlendis og
11 hér á landi.
Lánveitingar hófust í upphafi
síðasta árs eftir nokkurt hlé og gilda
um þær strangari relgur en áður.
Skipting lánveitinganna er sú, að
14 skip eru undir 100 rúmlestum,
10 yfir þeim mörkum, Loðnuskip
eru 4 og skuttogarar 3. Samtals
voru þessi skip að verðmæti um 4,3
milljarðar króna og lánar Fiskveiða-
sjóður 60 til 65% af kaupverði þeirra
eftir því hvort þau eru smíðuð eða
keypt að utan eða innan lands.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði í setningarræðu sinni á
aðalfundi LÍÚ, að nauðsynlegt hefði
verið að hefja þessa endurnýjun,
því mikils vert sé, að hún eigi sér
stað í aföngum, en ekki í risastökk-
um eins og oft áður hafí gerzt.
Kristján sagði, að vanskil útgerð-
arinnar við Fiskveiðasjóð væru nú
óveruleg. Þann 30. september
síðastliðinn hefðu lán sjóðsins til
útgerðarinnar numið tæpum 9 millj-
örðum króna. Af því hefðu um 100
milljónir verið í vanskilum eða um
1%. Á þessu ári gjaldféllu afborgan-
ir og vextir að upphæð 1,7 milljarð-
ar króna og væru vanskilin 6% af
þeirri upphæð.
Síld landað
á Húsavík
Eigendaskipti á
Hr aðf ry stihúsinu
Eyrarbakka.
NÝSTOFNAÐ hlutafélag,
Bakkafiskur hf., hefur fest kaup
á Hraðfrystihúsinu á Eyrar-
bakka af Suðurvör hf. í Þorláks-
höfn, sem rekið hefur Hrað-
frystihúsið undanfarin þrjú ár.
Hið nýja hlutafélag mun yfírtaka
allar eignir Hraðfrystihússins, þar
á meðal bátana Stakkavík og
Bjamavík. Framkvæmdastjóri fé-
lagsins er Hjörleifur Brynjólfsson.
Suðurvör mun halda áfram rekstri
sínum í sinni upprunalegu mynd,
en félagið hefur rekið útgerð og
saltfískverkun í Þorlákshöfn.
Hraðfrystihúsið hefur verið lang-
stærsti atvinnurekandinn á Eyrar-
bakka, með 70-100 manns í vinnu.
Óskar
Húsavík
FYRSTA síldin barst til Húsavík-
ur á þessu hausti í gær, miðviku-
dag en þá kom Sigþór ÞH 100
með um 90 tonn.
Það hafði ekki verið áformað að
salta síld hér á þessu hausti svo
farmurinn fer að mestu í frystingu
og eitthvað er flutt til Grenivíkur
til frystingar þar. Það sem ekki
næst að frysta fer í fóðursfld fyrir
búfé.
Sigþór ÞH 100 er búinn að afla
um 700 tonn á rúmri viku en hann
kom frá Þýskalandi um miðjan
október eftir miklar breytingar og
endurbætur sem allt hefur reynst
vei.
Fréttaritari
LEÐURSÓFASETT
— MÝ SEIMPIIMG
FJÖLBREYTT ÚRVAL - GOTT VERÐ
Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar <15670 — 44544.
Matthías Bjarnason:
Hef ekkert orð aftur að taka
„Ég hef ekkert orð aftur að taka,
en gæti bætt miklu fleiri orðmn
við. Annars hélt ég að þetta mál
væri ekki á starfssviði Hjarta-
verndar, en það er gott að fá
upplýsingar um hvað verið er að
vinna þar,“ sagði Matthías
Bjarnason alþingismaður um
bréf starfsfólks Hjartavemdar.
„Annað hef ég ekki um málið
að segja, en mér er alveg sama
hvaða fólk þetta er. Það segir mér
ekkert fyrir verkum hvað ég má
segja og hvað ég má ekki segja.
Ég hef til þess frelsi. En ég hélt
að þetta fólk ætti að vera í öðrum
störfum," sagði Matthías að lokum.
Eyjólfur Konráð Jónsson;
Ekkert ljótt að tala um mafíu
„Menn hafa sagt að ég hafi talað
um dýralæknamafiu á Alþingi,
en það gerði ég aldrei. Ég talaði
aftur á móti um annars konar
mafíu,“ sagði Eyjólfur Konráð
Jónsson þegar hann var inntur
álits á bréfi starfsmanna Hjarta-
verndar.
„Ég get nú lítið sagt um þetta.
En mér fannst ég alveg geta talað
um mafíu. Mér fannst það ekkert
ljótt. Ég sagði ekkert ljótara," sagði
Eyjólfur Konráð.
Halldór Blöndal:
Tók ekki þátt í umræðum á þing*i
„ÞAÐ er misskilningur að ég „Hins vergar hef ég talað tæpi-
hafi tekið þátt í umræðum um tungulaust utan þings og hefur
húsnæðismálin á Alþingi þar sem kjaminn f mínum málflutningi verið
ég á sæti f efri deild en frum- sá að ráðherrann hefur farið offari
varpið var lagt fram í neðri en ekki hirt um að gera grein fyrir
deild,“ sagði Halldór Blöndal al- sínum málum."
þingismaður.