Morgunblaðið - 14.11.1987, Blaðsíða 20
VJS/9 08x W X
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
Þátttakendur á starfsfræðslunámskeiði Sóknar við námskeiðsslitin.
Starfsfræðslunámskeið fyrir Sóknarfólk:
Hólmfriður Aradóttir, Linda
Andrésdóttir og Eyvindur
Steinarsson.
Þátttaka í námskeiði þýð-
ir hækkun um launaflokk
Níu hundruð þátttakendur á árinu
UNDANFARIÐ hefur staðið
yfir starfsfræðslunámskeið á
vegum Starfsmannafélagsins
Sóknar fyrir ófagiært starfsfólk
á dagheimilum og síðastliðinn
miðvikudag voru útskrifaðir
123 þátttakendur af námskeið-
inu.
Það eru Námsflokkar
Reykjavíkur sem sjá um nám-
skeiðshaldið, og í ræðu Guðrúnar
Halldórsdóttur skólastjóra, við slit
námskeiðsins kom fram, að JQöldi
þátttakenda á námskeiðum af
þessu tagi á árinu yrði 900 manns.
Að sögn Þórunnar Sveinbjöms-
dóttur.Formanns Sóknar, sem
hefur umsjón með námskeiðahald-
inu fyrir hönd félaga, þá hafa verið
haldin samskonar námskeið á veg-
um félagsins allt frá árinu 1976,
en þá voru gerðir um það kjara-
samningar að slík námskeið skyldu
haldin. Samkvæmt þessum kjara-
samningum eru það Námsflokkar
Reykjavíkur sem annast fram-
kvæmd námskeiðanna, en atvinnu-
rekendur bera af þeim allan
kostnað. Starfsmannafélagið Sókn
sér hins vegar um allan undirbún-
ing
„I upphafi var einungis um að
ræða námskeið fyrir starfsfólk á
bamaheimilum og þá sem sáu um
umönnun aldraðra," sagði Þórunn.
„Síðan hafa mál þróast á þann veg
að við eigum nú rétt á starfs-
fræðslu fyrir alla aðila í Sókn, og
má geta þess að á næstunni út-
skrifast hópur frá öllum öðrum
stofnunum sem félagsmenn okkar
starfa á. Það má segja að þetta
sé ákveðið innlegg í kjarabaráttu,
þar sem mikil þátttaka í þessu
námskeiði jafngildir eins launa-
flokks hækkun. Námskeiðið sem
nú er afstaðið getum við kallað
kjama, en í febrúar gefst kostur
á öðru námskeiði, sem veitir
tveggja launaflokka hækkun. Það
námskeið er sérhæfðara og miðast
við ákveðnar atvinnugreinar."
Þórunn sagði að kjamanám-
skeiðið miðaði fyrst og fremst að
því að byggja upp starfsmanninn
á vinnustað sínum frá félagslegu
sjónarmiði, og ennfremur að veita
honum öryggi með aukinni þekk-
ingu. Á námskeiðinu, sem er 60
klukkustundir, fá þátttakendur
upplýsingar frá félaginu sjálfu og
um almannatryggingar, auk þess
sem meðal annars er fjallað um
sálfræði, heilbrigðisfræði og sið-
fræði. Þá er einnig fjallað um
brunavamir og hjálp í viðlögum.
„Flest okkar starfsfólk vinnur á
stofnunum þar sem alltaf er fyrir
hendi að upp geti komið aðstæður
þar sem þekking á þessum sviðum
kemur að miklu gagni, og þá er
nauðsynlegt að kunna að bregðast
rétt við,“ sagði Þórunn.
„Nú í haust er vandi þessarar
starfsstéttar það mikill, að við
verðum að drífa þær umsóknir sem
berast um námskeið eins hratt í
gegn og mögulegt er, en til dæmis
fyrir þremur árum síðan þá fékk
fólk með eins árs starfsaldur ekki
aðgang að námskeiðum. í dag vill
helst enginn vinna þessi láglauna-
störf og sótt er í fólkið af hinum
almenna vinnumarkaði. Markmiðið
að stórum hluta er að fá menntun
fyrir Sóknarfólk til dæmis á Kópa-
vogshæli og á ýmsum geðdeildum,
þar sem hjúkrunarfræðingar og
sjúkraliðar eru ekki í þessum störf-
um. Auk þess byggja mjög margar
öldrunarstofnanir á starfi okkar
fólks. Segja má að störf þessi
beinlínis krefjist þess að fólk fái
einhvern stuðning til þess hrein-
lega að geta sinnt þeim,“ sagði
Þórunn að lokum.
Eftir að þátttakendur á nám-
skeiðinu höfðu veitt viðtöku
skírteinum sínum voru nokkrir
þeirra teknir tali, og spurðir álits
á námskeiðinu.
Hólmfríður Aradóttir, sem starf-
Þórunn Sveinbjörnsdóttir
formaður Sóknar.
ar á skóladagheimilinu Brekku-
koti, sagðist hafa haft mjög mikið
gagn af námskeiðinu. „Námskeiðið
var vel upp byggt, en þó tel ég
að það hefði mátt vera betur skipu-
lagt. Það er þó fjöldamargt sem
fram kom á þessu námskeiði sem
ég tel að komi mér til góða í starfi.
Ég vil sérstaklega taka fram að
kennslan í skyndihjálp var mjög
góð, og vildi ég hvetja alla til að
sækja slíkt námskeið."
Linda Andrésdóttir starfar á
leikskólanum Drafnarborg. „Ég tel
mig öruggari eftir að hafa tekið
þátt í námskeiðinu, og finnst ég
hafa lært margt á því, til dæmis
í sambandi við samskipti við for-
eldra bamanna. Ég hélt þó að
námskeiðið myndi fjalla nánar um
starfið sjálft inni á bamaheimilun-
um, en er samt ánægð með það í
heild."
Eyvindur Steinarsson var eini
karlmaðurinn sem þátt tók í þessu
námskeiði_ en hann starfar á Lauf-
ásborg. „Ég tel að svona námskeið
þjappi fólki saman og það eykur
víðsýni manns. Ég get þó ekki
sagt að ég hafi lært mikið á því
varðandi starfíð sjálft, en ég hef
áður starfað sem gæslumaður og
sem ófaglærður kennari þroska-
heftra í Noregi. Þetta skilar sér þó
í auknum launum."
Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur, af-
hendir þátttakendum viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku á
námskeiðinu.