Morgunblaðið - 14.11.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
63
HANDBOLTI
»Uppgjör
milli varnar
og sóknar"
- segirGunnar
Einarsson um leik
FH og Vals
„LIÐ FH og Vals eru mjög ólík.
Valur er varnarlið en FH sókn-
arlið. Þetta verður uppgjör milli
þessara tveggja þátta. Ef FH
nær að spila sömu vörn og í
síðustu leikjum spái ég þeim
sigri, 22:20. Heimavöllurinn er
FH-ingum í hag,“ sagði Gunnar
Einarsson, þjálfari Stjörnunar,
þegar hann ræddi við Morgun-
blaðið um leiki helgarinnar.
Heil umferð verður í 1. deild
karla um helgina. Stórleikur
umferðarinnar er viðureign topplið-
anna FH og Vals í Hafnarfirði á
sunnudagskvöld kl. 20.15.
Þór—Víkingur: „Það er nokkuð
ljóst að Víkingar eiga að vinna
þennan leik. Það er mikill gæða-
munur á þessum liðum. Víkingar
hafa sýnt að þeir eru á uppleið. Ég
spái að Víkingur vinni 26:20.“
Leikurinn hefst kl. 14.00 í dag á
Akureyri.
KR—KA: „Þessi leikur verður mjög
tvísýnn. Liðin eru mjög svipuð að
styrkleika. Þau geta bæði gert góða
hluti ef sá gallinn er á þeim. Ég
spái jafntefli, 20:20.“
Leikurinn hefst kl. 14.00 I dag í
Laugardalshöll.
ÍR—UBK: „ÍR-ingar ættu að eiga
góða möguleika á að vinna Breiða-
blik. Þeir hafa verið ótrúlega
heppnir það sem af er. Hans Gkð-
mundsson leikur ekki með UBK og
veikir það liðið. ÍR-ingar hitta því
vel á að Ieika gegn Blikunum núna.
ÍR vinnur 22:21.“
Leikurinn hefst á morgun kl. 14.00
í Seljaskóla.
Stjaman—Fram: „Þetta verður
tvísýnn leikur og ómögulegt að spá
um úrslit fyrirfram. Framar 'er nú
með sitt sterkasta lið. Á papímum
eru Framarar sterkari en við höfum
samæfinguna umfram þá. Þetta er
mikilvægur leikur fyrir okkur og
við ætlum okkur sigur."
Leikurinn hefst í dag kl. 14.00 í
Digranesi.
Staðan
Fj. leikja U j T Mörk Stig
FH 8 7 1 0 236: 174 15
Valur 8 7 1 0 172: 121 15
UBK 8 5 0 3 164: 165 10
Stjarnan 8 4 1 3 181: 192 9
Vikingur 8 4 0 4 196: 186 8
ÍR 8 3 2 3 167: 179 8
KA 8 2 2 4 154: 168 6
KR 8 3 0 5 168: 183 6
Fram 8 1 1 6 177: 202 3
Þór 8 0 0 8 156: 201 0
Markahæstir
KONRÁÐ Olavson úr KR er
markahæsti leikmaður 1. deild-
ar karla í handknattleik eftir 8
umfeðir. Hann hefur gert 50
mörk, eða 6,25 mörk að meðal-
taliíleik.
Markahæstu leikmenn eru þessir:
Konráð Olavson, KR..................50/14
Þorgils óttar Mathiesen, FH............49
Héðinn Gilsson, FH.......................
Hans Guðmundsson, UBK................45/2
Júlíus Gunnarsson, Fram.............44/14
Valdimar Grimsson, Val...............42/2
Sigurpáll Aðalsteinsson, Þðr........42/25
Skúli Gunnsteinsson, Stjömunni.........40
Sigurður Gunnarsson, Vikingi........40/11
Júlíus Jónasson, Val..................
Stefán Kristjánsson, KR..............
Karl Þráinsson, Vikingi................
Gylfi Birgisson, Stjömunni.............36
Guðmundur Þórðarson, IR..............35/7
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILD
Morgunblaöiö/Einar Falur
Bræðumir Sigurður (tv.) og Valur Ingimundarsynir áttust við í leik ÍBK og UMFN í Njarðvík í gærkvöldi. Valur fagn-
aði sigri í lokin. Hann skoraði meða annars fjórar þriggja stiga körfur.
Njarðvíkingar sigruðu
fyrir fullu húsi
NJARÐVÍKINGAR reyndust of-
jarlar nágranna sinna úr
Keflavík í „Ljónagryfjunni" í
gærkvöldi og hertu um leið tak-
ið á íslandsbikarnum. Geysi-
lega barátta var í leiknum sem
leikinn var fyrir fullu húsi áhorf-
enda og komust færri að en
vildu. Sterkur varnarleikur ís-
landsmeistaranna skipti
sköpum að þessu sinni, sérs-
taklega í fyrri hálfleik þegar
þeir náðu upp 10 stiga forskoti
sem reyndist of mikið fyrir
Keflvíkinga.
Leikurinn einkenndist af geysi-
legri baráttu beggja liða.
Rúmlega 800 hundruð áhorfendur,
sem er nýtt aðsóknarmet í Njarðvík,
létu sitt ekki eftir
liggja og hvöttu sína
menn óspart. Jafn-
ræði var á með
liðunum framan af,
en um miðjan hálfleikinn kom bak-
slag í leik Keflavíkinga sem ekki
náðu að skora stig utan af velli í
heilar 10 mínútur. Á meðan gengu
Njarðvíkingar á lagið og fjórar
þriggja stiga körfur Vals Ingimund-
arsonar lögðu grunninn að 10 stiga
forskoti heimamanna í hálfleik.
Bjöm
Blöndal
skrifar
frá Keflavik
Keflvíkingar gerðu siðan örvænt-
ingarfulla tilraun til að vinna mun
Njarðvíkinga upp í síðari hálfleik,
en íslandsmeistaramir gáfu ekki
þumlung eftir og unnu sannfær-
andi.„Vamarleikur Njarðvíkinga
var geysilega sterkur og fyrir
bragðið gekk sóknin ekki upp hjá
okkur. Þeir era sterkir Njarðvíking-
amir það fer ekki á milli mála, það
UMFN — ÍBK
64 : 53
íþróttahúsið I Njarðvík, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, föstudaginn 13. nóvem-
ber 1987.
Gangur leiksins: 4:4, 14:14, 19:19,
29:20, 33:23, 35:27, 47:35, 57:44,
60:53, 64:53.
Stig UMFN: Jóhannes Kristbjömsson
17, Valur Ingimundarson 14, Isak
Tómasson 10, Helgi Rafnsson 10,
Sturla Örlygsson 6, Hreiðar Hreiðars-
son 4 og Teitur Örlygsson 3 stig.
Stig IBK: Magnús Guðfinnsson 12,
Guðjón Skúlason 10, Axel Nikulásson
8, Jón Kr. Gíslason 7, Hreinn Þorkels-
son 6, Falur Harðarson 4, Ólafur
Gottskálksson 3, Sigurður Ingimundar-
son 2 og Matti Ó Stefánsson eitt stig.
Áhorfendur: 820.
Dómarar: Jón Otti Jónsson og Kristinn
Albertsson og dæmdu þeir prýðilega.
sýndu þeir í kvöld,“ sagði Gunnar
Þorvarðarson þjálfari ÍBK eftir leik-
inn. Valur Ingimundarson þjálfari
og leikmaður UMFN var ekki án-
ægður með alla þætti leiksins hjá
sínum mönnum. „Vömin var góð
hjá okkur, en í sókninni gerðum við
allt of mikið af mistökum." Valur
Ingimundarson, Jóhannes Krist-
bjömsson voru mest áberandi hjá
Njarðvíkingum að þessu sinni og
einnig áttu þeir Helgi Rafnsson og
Isak Tómasson góða spretti.
Magnús Guðfínnsson var besti leik-
maður IBK, sterkur í fráköstum og
skákaði oft stóra mönnunum í
Njarðvík. Axel Nikulásson barðist
vel, en minna bar á öðram í liðinu
og þeir náðu ekki að sýna sínar
betri hliðar.
Staðan
UMFN- -ÍBK 64:53
UMFN 5 5 0 474:342 10
fBK 4 3 1 281:261 6
UMFG 5 3 2 355:348 6
Valur 4 2 2 322:269 4
KR 3 2 1 244:229 4
Haukar 4 2 2 287:273 4
ÍR 3 1 2 203:235 2
Þór 4 0 4 298:387 0
UBK 4 0 4 220:333 0
■ VÍKINGUR frá Stavanger í
Noregi hefur boðið knattspymu-
mönnunum Halldóri Áskelssyni
úr Þór og Andra Marteinssyni
úr KR að koma út til viðræðna og
skoða aðstæður hjá félaginu.
Víkingur leikur í norsku 2. deild-
inni og hyggst nú reyna að fá
liðsstyrk fyrir sumarið. Pétur Arn-
þórsson og Jón Erling Ragnars-
son léku með liðinu 1986.
■ JÓN Ármann Héðinsson -*•
stjómarmaður ÍSÍ var sextugur f
júní í sumar. Honum var veitt gull-
merki ÍSÍ við það tækifæri.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins skilaði Jon _ Armann
gullmerkinu aftur til ÍSÍ. Ástæðan
var sú að hann sagðist ekki taka
við neinu slíku, meðan hann væri
enn starfandi innan íþróttahreyf-
ingarinnar.
■ RYP-KYU Suh formaður
handknattleikssambands Suður-
Kóreu er nú staddur hér á landi.
Suh er byggingarverkfræðingur og
rekur stórt byggingarfyrirtæki í
Seoul. Fyrirtæki hans hefur fengið
stórt verkefni í sambandi við bygg-
ingu Ólympíuþorpsins í Seoul.
Verkfræðingafélag íslands mun
t tilefni af heimsókn Suh efna til
almenns félagsfundar í samstarfí
við Ólympiunefnd íslands og HSÍ
í Verkfræðingahúsinu þriðjudaginn
17. nóvember kl., 17.00.
■ JOE Miller framheiji
Aberdeen skrifaði í gær undir
samning við við skoska liðið Glas-
gow Celtic. Kaupverðið var 650
þúsund pund. Bæði Liverpool og
Manchester United höfðu sýnt
áhuga á að kaupa Miller sem er^
aðeins 19 ára gamall. Búist er við
að hann leiki sinn fyrsta leik með
Celtic gegn Dundee í dag.
■ LIAM Brady var í gær
dæmdur af aganefnd UEFA í fjög-
urra leikja bann í Evrópukeppninni
í knattspymu. Brady, sem nú leik-
ur með West Ham, var rekinn af
leikvelli í leik íra og Búlgara i
síðasta mánuði. Brady hefur ávallt
verið talinn mjög prúður leikmaður
og var þetta í fyrsta sinn sem hann
er rekinn af leikvelli á ferlinum.
Hann hefur leikið 67 landsleiki fyr-
ir íra á síðustu 14 áram. UEFA
hefur því séð fyrir því að hann leiki
ekki með íram í úrslitakeppninni í
Vestur-Þýskalandi næsta sumar. **
ISI
Tennissamband
stofnað í dag
Nítjánda sérsambandið innan
ÍSÍ. Það er tennissamband
íslands. Stofnfundurinn hefst í
íþróttamöðstinni í Laugardal og
hefst kl. 14.00.
HANDKNATTLEIKUR / 2. DEILD
Eyjamenn efstir
HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Fram marði Víking!
ÍBV er efst í 2. deild karla í
handknattleik eftir sigur á
Fylki, 29:20, íSeljaskóla ígær-
kvöldi. Staðan í hálfleik var
14:9 fyrir ÍBV. Þrír aðrir leikur
fóru fram f gærkvöldi.
Haukar unnu Selfyssinga á Sel-
fossi nokkuð öragglega, 27:20
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
10:9 fyrir Hauka. Ámi Hermanns-
son skoraði felsta mörk Hauka, eða
8. Magnús Sigurðsson var marka-
hæstur Selfyssinga með 6 mörk.
HK hélt sér í toppbaráttunni með
því að vinna Gróttu 25:24 á Selt-
jamamesi og Armann vann Aftur-
eldingu í Laugardalshöll með 20
mörkum gegn 19.
Loks var einn leikur í 3. deild karla.
ÍS burstaði Ögra 39:9 í Seljaskóla.
Einn leikur fer fram í 2. deild keu-la
í dag. UMFN og Reynir mætast í
Njarðvík kl. 100.
Staðan ÍBV 7 6 1 0 192:145 13
HK 7 5 1 1 167:142 11
Haukar 7 4 1 2 164:143 9
Reynir 6 4 0 2 134:134 8
Grótta 6 2 2 2 167:156 6
Ármann 7 2 1 4 145:162 5
Selfoss 7 2 1 4 140:178 5
Njarðvik 6 2 0 4 154:156 4
Fylkir 7 1 1 5 149:183 3
UMFA 6 1 0 5 124:138 2
Fram marði Víking, 16:14, í
1. deild kvenna í handknatt-
leik í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Víkingur var yfír í hálfleik, 9:8.
_■■■■ Víkingstúlkumar
Katrin byrjðu vel og vora
Friðriksen yfír nær allan hálf-
skrifar leikinn. Guðríður
Guðjónsdóttir var
tekin úr umferð frá fyrstu mínútu
og við það riðlaðist sóknarleikur
Fram.
Framstúlkumar jöfnuðu strax í
upphafí seinni hálfleiks, 10:10, og
náðu síðan forystunni en Víkingur
jafnaði 14:14 þegar tvær mínútur
vora til leiksloka. Þá brást Guðríði
bogalistinn í vítakasti, en hún
fékk annað tækifæri skömmu
síðar og skoraði þá öragglega,
15:14. Víkingsstúlkumar hófu
sókn og gátu jafnað en Hafdís
Guðjónsdóttir náði að komast inn
í sendingu og skoraði 16. markið
úr hraðaupphalupi og gulltryggði
sigurinn.
Víkingur spilaði sinn besta leik í
vetur en Fram náði ekki að sýna
sitt besta, mótspyman kom þeim
á óvart.
Mðrk Vikings: Inga Lára Þórisdóttir
8/2, Svava Baldvinsdóttir 8, Eiríka Ás-
grímsdóttir, Valdís Birgisdóttir og Sigur-
rós Bjömsdóttir eitt mark hver.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 7/5,
Ama Steinsen 3, Oddný Sigsteinsdóttir
2, Hafdis Guðjónsdóttir, Margrét Blönd-
al, ósk Víðisdóttir og Ingunn Bemódus-
dóttir eitt mark hver.