Morgunblaðið - 14.11.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
51
Minning:
Stefán Guðjónsson
Vestmannaeyjum
Fæddur 8. maí 1904
Dáinn 4. nóvember 1987
Afí fæddist á Raufarfelli undir
Austur-Eyjafjöllum og ólst þar upp
í stórum systkinahóp. Foreldrar
hans voru Guðjón Tómasson og
Ingveldur Jónsdóttir. Hann missti
ungur foður sinn, en móðir hans
náði hárri elli.
Afí fór til Vestmannaeyja ungur
að árum og hóf þar sjósókn. í Vest-
mannaeyjum kynntist hann ömmu,
Rósu Runólfsdóttur. Þau hófu bú-
skap á Skólavegi 8, eða Búðafelli,
en svo nefndist húsið. Þar fæddust
bömin þeirra tvö, Ingveldur, móðir
okkar, og Guðjón. Seinna flytjast
þau í Hólatungu.
Afí missti ömmu unga, aðeins
38 ára. Þá voru bömin 12 og 15
ára. Afi bjó einn með bömum sínum
í Hólatungu, þar til þau náðu full-
orðinsárum.
Foreldrar okkar hófu búskap sinn
í Hólatungu hjá afa og þar ólumst
við upp til 6 ára aldurs.
Afí var mjög bamgóður og hænd-
umst við þvf strax að honum. Hann
hafði alltaf tíma fyrir okkur tvíbur-
ana. Á morgnana biðum við eftir
að hann snýtti sér hraustlega, eins
og neftóbaksmenn gera. Þá var
okkur óhætt að fara á fætur og til
hans.
Á þessum árum var afí farinn
að vinna ( landi, í Hraðfrystistöð-
inni, þar sem hann vann fram að
gosi. Hann vildi hvergi annars stað-
ar vera en úti ( Eyjum. Þar dvaldi
hann einnig í gosinu og tók þátt í
björgunar- og uppbyggingarstarfi.
Eftir að gosinu lauk hóf hann störf
hjá hraunhitaveitunni, þar sem
hann vann allt fram á síðasta ár,
þá orðinn 82 ára gamall. Hann var
alla tíð vinnuglaður og vann hörðum
höndum. Þrátt fyrir það var alltaf
létt yfír afa og stutt í grínið. Gleði-
maður var hann og ungur í anda
fram á síðasta dag.
Að leiðarlokum viljum við þakka
afa fyrir allar gleði- og ánægju-
stundimar, sem við áttum með
honum, bæði sem böm og fullorðn-
ir menn. Fjölskyldur okkar þakka
honum einnig liðnar stundir.
Blessuð sé minning hans.
Bjarni og Stefán
Rögnvaldssynir
í dag verður til moldar borinn
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
Stefán Guðjónsson, sem andaðist á
heimili s(nu, Hólatungu, þann 4.
nóvember sl. Stefán eða Stebbi í
Hólatungu eins og hann var alltaf
kallaður í Eyjum var fæddur að
Raufarfelli, A-Eyjafjöllum. Foreldr-
ar hans voru Ingveldur Jónsdóttir
frá Lambafelli, A-Eyjafjöllum og
Guðjón Tómasson frá Selkoti í sömu
sveit. Þau bjuggu að Raufarfelli og
eignuðust 13 böm, en 9 komust til
fullorðinsára. Hjörleifur, Guðný,
Tómas, Þorbjörg og Gróa eru látin,
en Anna og Ragnhildur búa undir
Eyjafjöllum og Sigurjón býr í Vest-
mannaeyjum.
Stebbi kom fyrst til Eyja á vetr-
arvertíð árið 1927 og réð sig á mb.
Ófeig, og var þar í nítján ár, en
það var einmitt í Eyjum að hann
kynntist ungri stúlku, Rósu Run-
ólfsdóttur frá Norðurvík í Mýrdal,
V-Skaftafellssýslu, og þau giftu sig
árið 1932. Þau byrjuðu sinn búskap
að Búðarfelli í Vestmannaeyjum en
fluttu síðan að Hólatungu, og var
hjónaband þeirra alla tíð mjög gott.
Þeim varð 2ja bama auðið. Þau eru
Ingveldur sem er gift Rögnvaldi og
búa þau í Kópavogi, og Guðjón sem
er giftur Emu Tómasdóttur og búa
þau í Vestmannaeyjum.
Árið 1946 varð Stebbi að hætta
á sjónum og fór að vinna í landi
vegna veikinda konu sinnar og hófst
nú sameiginleg barátta ungra hjóna
við erfíðan sjúkdóm, sem sigraði
að lokum og Rósa lézt þann 25.
apríl 1948 aðeins 38 ára gömul.
Þetta voru erfiðir tímar hjá Stebba
með 2 böm, Ingveldi tæpra 16 ára
og Guðjón 12 ára. Það síðasta sem
þeim hjónum fór á milli áður en
hún skildi við var það að halda §öl-
skyldunni saman, og það gerði
hann. Það hefur oft verið erfítt í
Hólatungu, en Stebbi og krakkamir
stilltu saman strengi sína og aldrei
urðu erfíðleikamir það miklir að
ekki hefðist að ráða fram úr þeim.
En þannig var Stebba rétt lýst,
tryggur, heiðarlegur, duglegur og
mikill baráttumaður.
Þegar Stebbi hætti á sjónum þá
fór hann að vinna í Hraðfrystistöð
Vestmannaeyja og vann þar í tæp
27 ár, eða fram að eldgosinu árið
1973. Eftir gos stefndi hugur hans
til Eyja og um leið og byijað var
að taka til hendinni þá var Stebbi
mættur og vann hann ötullega við
hreinsun og uppbyggingu á eyjunni
sem honum var svo annt um, enda
gaf Stebbi okkur ungu mönnunum
ekkert eftir í vinnu. Síðan fór hann
að vinna hjá Vestmannaeyjabæ við
Fjarhitun Vestmannaeyja undir
stjóm Högna Sigurðssonar frá
Vatnsdal, og fór alveg sérstaklega
vel á með þeim félögum, sem og
einnig öðrum starfsmönnum þar.
Stebbi hafði það mikla ánægju af
því að vinna, að það var ekkert á
dagskrá hjá honum að fara að
hætta að vinna, þegar hann var
Fæddur 10. júní 1912
Dáinn 7. nóvember 1987
Góður vinur minn, Ámi Guð-
laugsson, er látinn. Þegar ég flutti
hingað til Dalvíkur fyrir um ljórum
árum, kynntist ég þeim frábæru
hjónum Þórgunni og Árna en frá
okkar fyrstu kynnum hafa þau
reynst mér alveg einstaklega vel.
Ef Ámi kom á minn vinnustað og
sá mig ekki þá var hringt heim til
mín til að athuga hvort ég væri
veik, slík var umhyggja hans fyrir
mér.
Ámi og Þórgunnur áttu nýlega
gullbrúðkaupsafmæli. Þau eignuð-
ust þrjú böm, Snorra, Þorleif og
Svanhildi. Báða synina misstu þau
af slysförum. Ámi bar sorg stna í
hljóði. Dóttir Áma, Svanhildur, hef-
ur reynst foreldrum sínum einkar
vel alla tíð og veit ég að Þórgunnur
fær stuðning frá henni á þessum
erfíðu stundum eins og áður. Bama-
bömum sínum var hann frábær
afí, þau hafa misst mikið.
kominn á eftirlaun. Hann hætti
ekki að vinna fyrr en árið 1985 þá
81 árs að aldri, og maður hafði það
á tilfinningunni að honum hafí samt
fundist hann hætta heldur snemma,
enda vom það ekki margir vinnu-
dagamir sem Stebbi var frá á sinni
starfsævi.
Stebba kynntist ég fyrst í gos-
inu, en þá vorum við saman í
vinnuhóp við hreinsun bæjarins.
Síðan áttu leiðir okkar eftir að
liggja meira saman, er ég giftist
sonardóttur hans og frá þeim tíma
hefur samband okkar verið mikið
og gott, og nú er skarð fyrir skildi
á Ásavegi 26, en þangað kom hann
oft og það var oft gaman að glett-
ast yfír kaffibolla og þá kom oft í
ljós þessi „orginal týpa“ sem Stebbi
var, háalvarlegar umræður urðu oft
meinfyndnar á sömu mínútunni.
Að leiðarlokum vilja ég og fjöl-
skylda m(n þakka Stebba fyrir
ánægjulegar samvemstundir. Böm-
um og öðmm aðstandendum vottum
við innilega samúð okkar.
Guð blessi minningu hans.
Guðjón Hjörleifsson
í dag fer fram frá Landakirkju
útför móðurafa okkar, Stefáns Guð-
jónssonar.
Stebbi afí í Hólatungu var ávallt
kátur og heilsuhraustur fram til
síðasta dags. Hann átti tvö börn,
Ingveldi og Guðjón, með eiginkonu
sinni, Rósu Runólfsdóttur, sem lést
aðeins 38 ára gömul. Bamabömin
urðu 10, bamabamabömin em orð-
in 9. Heimsótti hann böm og
bamaböm eins oft og hann gat því
við komið. Sérstaklega hændust
litlu bömin að honum og ungling-
ana umgekkst hann sem jafningja.
Hann vann hjá Hraunhitaveitunni
frá upphafí hennar en hætti þar á
siðasta ári. Átti hann þar marga
góða vini og var þar ekkert kyn-
slóðabil. Hann var lítið fyrir að fara
af Eyjunni en þegar hann var kom-
inn af stað hafði hann gaman af
og var hrókur alls fagnaðar hvar
sem hann kom. Hann átti mikið af
skyldfólki undir Eyjafjöllum þar
sem hann var fæddur og uppalinn
og fór hann margar eftirminnilegar
ferðir þangað, þá síðustu nú í
ágúst. Sem unglingur hreifst hann
af Þórsmörkinni en kom ekki þang-
að eftir að hann fluttist til Eyja
fyrr en hann var orðinn 81 árs og
hafði þá mjög gaman af. Hann
stoppaði yfirleitt stutt á fasta
landinu, það átti ekki við hann að
sitja auðum höndum og verkefnin
biðu hans heima. Við viljum þakka
afa fyrir samfylgdina og allar góðu
minningamar sem við eigum um
hann.
Rósa og Birgir.
Elsku Þórgunnur, þér samhrygg-
ist ég og bið Guð að styrkja þig í
sorg þinni, Svanhildi og Ninna,
bamabömum Áma, systkinum og
öðrum ættingjum votta ég samúð
mína.
Ása
Arni Guðlaugs-
son - Minning
Það myndi gleðja þá 50 Skandinava og
fjölda annarra frá öllum heimshornum að fá þig með
til IHTTI í Luzern/Sviss i
Hótelstjórnunarnám (á ensku).
Næsta 3 ára nám (námskeið 88A) byrjar mánudaginn 15. febrúar
1988. Námskostnaður pr. önn eru 23.000 svissneskir frankar. Innifal-
ið er fullt fæði og húsnæði.
Viö bjóöum einnig uppá sérstakt 4 vikna námskeið í mars 1988:
Stjórnun smárra og miðlungs stórra hótela
(á ensku) (námskeið SM88/1) fyrir hóteleigendur, framkvæmdastjóra
og yfirmenn á hótelum.
Biðjið um bæklinga fyrir námskeið 88A eða SM88/1 hjá:
IHTTI International Hotel and Tourism Training Institutes Ltd., Box 95,
4006 Basel/Switzerland.
Sími (61) 42 30 94, telex 965 216 TC CH.
Vinsamlegast takið fram i hvaöa dagblaöi þiö sáuð auglýsinguna.
Sólbaðsstofa
Ástu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18, sími 28705
Afturerkomið að
okkarvinsælatil-
boði sem allir
þekkja:
24 tímar á aðeins
1800-kr.!
Nýjar Perur
Nrteri
Ef»!
Tilboðið stendur aðeins í viku.
Verið
velkomin
Avallt heitt á könnunni
Ef þér er
kalt,
getur þú
sjálfum þér
um kennt!
Norsku
STIL-LONGS
ullarnærfötin halda á
þér hita.
Norsku
STIL-LONGS
ullarnærfötin eru hlý,
þægileg og sterk,
dökkblá á lit og fást á
alla fjölskylduna.
Verðdæmi:
Bamabuxurfrá... kr. 650,-
Dömubuxurfrá .. kr. 810,-
Herrabuxurfrá... kr. 950,-
Þér líður betur í þeim bláu.
Grandagarði 2. Sími 28855.
Opið frá kl 9-12 laugardögum
-ms*»