Morgunblaðið - 14.11.1987, Síða 23

Morgunblaðið - 14.11.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987 23 það Lars Ingemann, sem sýndi þetta safn einnig hér á landi á FRÍMEX 87 á liðnu vori. í þessu safni eru mjög góð og fágæt aura- bréf, en skýringar með safninu eru nánast engar. Verður að telja það galla, enda er einmitt þörf á að skýra margt í sambandi við þessa útgáfu. Safn þetta hlaut gyllt silfur. Danskur safnari, Tor C. Jensen, sýndi nú í fýrsta sinn safn sitt af útgáfunni í GILDI ’02—’03. Hefur Tor um allmörg ár verið að safna frímerkjum úr þessari útgáfu, sem er sérstakur kapítuli í íslenzkri frímerkjasögu, svo sem alkunna er. Hygg ég óhætt að fullyrða, að þetta sé bezta í GILDI-safnið, sem nú er til. í því eru bæði stimpluð og óstimpluð merki og mikill fjöldi þeirra afbrigða og „prentvillna“, sem kom fram við yfírprentun þessa á sínum tíma. Eins hefur Tor náð í fjölda bréfa með þessum frímerkj- um, og það, sem mest er um vert, er, að þau virðast öll eða flest hafa verið réttilega notuð á þeim stutta tíma, sem þau giltu til burðar- gjalds. Það kom þess vegna tæplega á óvart, að safnið fengi gyllt silfur. Kunnur danskur safnari, Ole Svinth, átti svo mjög gott safn af íslenzkum skipspóstsbréfum og eins frímerkjum með erlendum póst- stimplum. Fyrir þetta safn sitt hlaut hann stórt silfur. Þá átti íjórði Daninn úr hópi ís- landssafnara, Orla Nielsen, safn, sem spannar yfír árin 1847—1918. í þessu safni eru margir áhugaverð- ir hlutir, en það stendur samt enn töluvert að baki þeim söfnum, sem nú hefur verið lýst. Það fékk silfur- verðlaun. Enn eitt íslenzkt safn kom nú fyrst fyrir augu á alþjóðasýningi'. Það á danskur maður, Torben Jen- sen, en hann er eins og flestir landa hans einnig vel þekktur hér á landi. Er þetta sérsafn frímerkja með mynd Kristjáns konungs X., en þau komu fyrst út árið 1920. Hafa kom- ið fram margs konar afbrigði við prentun þessara merkja, og hefur Torben viðað að sér verulegu efni á liðnum árum. Eru það stök merki og eins á heilum bréfum eða á snyfsum. Þetta safn hlaut silfrað brons. Eru allar líkur til, að mönn- um hér heima gefíst kostur á að sjá þetta safn og eins safn það af í GILDI-merkjunum, sem lýst var hér að framan, á væntanlegri af- mælissýningu LÍF, LÍFÍL 88, í marz á næsta ári. Af því, sem nú hefur verið rakið, geta lesendur séð, að ótrúlega flöl- breytt íslenzkt frímerkjaefni var á HAFNIU 87. Það eitt var ærið skoð- unarefni fyrir áhugamenn um íslenzka frímerkjasögu. En þó var þetta ekki nema dropi í frímerkja- hafínu, 78 rammar af um 4000, sem á sýningunni voru. í sambandi við þessa sýningu vakna margar al- mennar spumingar, og verður komið að sumum þeirra í næsta þætti. Ég vil svo að endingu minna les- endur á skiptimarkað, sem verður haldinn í húsakynnum Landssam- bandsins í Síðumúla 17 sunnudag- inn 22. þ.m. Eftir nokkurra ára hlé ákvað stjóm Félags frímerkjasafn- ara að endurvekja þessa starfsemi í apríl síðastliðnum. Svo vel tókst til, að nú er aftur farið af stað með skiptimarkað og enn í samvinnu við Félag myntsafnara og nokkra áhugamenn um póstkortasöfnun. Er þess að vænta, að þessir markað- ir verði árviss atburður í starfí safnara, því að þar fá menn oft ágæta hluti í söfn sín og geta svo um leið losað sig við annað, sem þeir hafa ekki þörf fyrir. Þannig verður þetta hagur allra, þegar upp er staðið. Skiptimarkaðurinn hefst kl. 13 og stendur til kl. 17 og er að sjálfsögðu öllum opinn. Nánar má vafalaust lesa um hann í frétta- tilkynningu frá FF. Loks vil ég minna félaga í FF á fundinn næstkomandi fímmtudag kl. 20.30 í Síðumúla 17. Þar mun Magni R. Magnússon segja frá HAFNIU 87, og eins verður stutt uppboð á frímerkjum. Kynning á bamabókum í Borgarbókasafninu Vísnakvöld á Hótel Boi'g’ Tónlistarfélagið Vísnavinir heldur vísnakvöld mánudaginn 16. nóvember á Hótel Borg. Á vísnakvöldinu flytur Bergþóra Ámadóttir m.a. efni af nýrri plötu sinni, „í seinna lagi“. Áuk þess koma fram Bjami Hjartarson og Bræðrabandið, Sævar Magnússon og félagar og ljóðskáldið Birgitta Jónsdóttir. Dagskráin hefst kl. 20.30. Bergþóra Ámadóttir er meðal þeirra sem koma fram á vísna- kvöldi á Hótel Borg á mánudag- inn. Borgarbókasafn Reykjavikur gengst í samvinnu við bókaútgáf- una Vöku-Helgafell fyrir kynn- ingu á bamabókum í dag, laugardag, í Bústaðasafni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Á bókmenntakynningunni lesa rit- höfundamir Guðmundur Ólafsson og Kristín Steinsdóttir úr nýútkomnum bókum sínum, „Klukkuþjófurinn klóki" og „Franskbrauð með sultu". Þau hafa bæði hlotið verðlaun úr Verðlaunasjóði íslenskra bamabóka, sem stofnaður var 1985 í tilefni af 70 ára afmæli Armanns Kr. Einars- sonar rithöfundar, en fjölskylda Ármanns og bókaútgáfan Vaka lögðu fram stofnfé sjóðsins. Verðlaunin voru í fyrsta skipti veitt Guðmundi Ólafssyni fyrir bók- ina „Emil og Skundi" árið 1986 og 1987 hlaut Kristín Steinsdóttir þau fyrir bókina „Franskbrauð með sultu". Kynningin hefst í Bústaðasafni kl. 13.30 og verður síðan endurtekin í Borgarbókasafninu í Gerðubergi kl. 15.30. Höfundamir árita bækur sínar sem verða á boðstólum að kynningu lokinni. ER K0MINTILLANDS1NS Viö slógum enn eitt SKODASölumetiö þetta áriö og uröum því uppiskroppa fyrr en ella. Þess vegna geröum viö sérstakar ráðstafanir og fáum 88 árgeröina til landsins rakleitt frá verksmiöjunum á mettíma. Kíktu á upphitunarsýninguna um helgina, viö erum sannfæröir um aö þetta eru bestu bílakaupin í dag. Já, hvaö segir þú um nyjan bíl fyrir kr. 165.900.- SÝNINC LAUGARDAG KL.13-17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.