Morgunblaðið - 14.11.1987, Page 27
AnnaMar-
grét varð
stigahæst
í undan-
keppninni
ÞAÐ vakti athygfli að í undan-
keppninni um titilinn Ungfrú
heimur í Albert Hall í fyrrakvöld
hlaut Anna Margrét Jónsdóttir
flest stig hjá dómurum eða sam-
tals 34 stig. Austurriska stúlkan
Ulla Weigerstorfer hlaut þá
næstflest stig ásamt fulltrúum
Colombíu og Venezuela eða 32
stig. í lokakeppninni á milli
þeirra 12 efstu dæmir síðan önn-
ur dómnefnd óháð úrsiitum úr
stigagjöfinni í undankeppninni.
Fyrri dómnefndin, sem vinnur
með öllum hópnum fyrir keppnina
gefur stig, sem síðan standa ásamt
þeim stigum sem seinni dómnefndin
gefur, eftir að lokakeppnin sjálf er
hafin. Ekki er gefið upp hveijir
skipa seinni dómnefndina fyrr en í
beinni útsendingu sjónvarpsins í
sjálfri lokakeppninni.
Stigin úr undankeppninni hjá
hinum 12 efstu voru þessi: ísland
34, Austurríki, Venezuela og
Colombía 32, Pólland 30, Argentír.a
26, Frakkland, Holland og Hong
Kong 24 stig og Guan, Israel og
Nígería 22 stig.
Auglýs-
ingar í
læstri
dagskrá
TVEIMUR auglýsingatímum var
skotið inn í beina útsendingu frá
keppninni Ungfrú heimur, á
fimmtudagskvöldið, og sagði Jón
Gunnarsson að yfirleitt bönnuðu
framleiðendur sjónvarpsþátta að
augiýsingum væri skotið inn í þá
i læstri dagskrá en sérstakt leyfi
hefði verið veitt af seljendum
þessa þáttar. Var þetta i annað
sinn sem Stöð 2 sýndi beint frá
keppninni um Ungfrú Heim og
hefur sérstakur samningur verið
gerður á milli aðstandenda
keppninnar og Stöðvar 2.
Jón sagði að auglýsingar hefðu
einnig verið undanfarið milli dag-
skrárliða í barnaefni á laugardags
og sunnudagsmorgnum, og einnig
í kringum þætti eins og Heilsuhæ-
lið í Gervahverfi.
Stöð 2 er nú farin að selja auglýs-
ingar í læsta dagskrá sína og í
nýjustu auglýsingaverðskrá er sérs-
taklega boðið upp á auglýsingar í
læstri dagrskrá. Jón Gunnarsson
auglýsingarstjóri Stöðvar 2 segir
að engar athugasendir hafi verið
gerðar við slíkt af hálfu útvarpsrétt-
amefndar, enda sé slíkt leyfilegt
að mati Stöðvar 2 þar sem auglýsin-
gatímamir séu vel aðgreindar frá
öðm dagskrárefni.
Jón sagði að stefnan væri að
auglýsingatímar yrðu aldrei lengri
en 2 mínútur í læstri dagsrkrá.
II SSSmVÓV1 .t ! sniOWHM'.V.I QI6AJSHQOHOK
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
Þriðja bindi af sögu Framsóknarflokksins komið út:
Mestur vandi var
að velja og hafna
- segir Þórarinn Þórarinsson, höfundur verksins
„ÞEGAR ég lít til baka yfir þessa áratugi, finnst mér nafnið á
riti mínu, Sókn og sigrar, vera réttnefni. Þar á ég ekki aðeins
við þátt Framsóknarflokksins í stjórnmálasögunni. Þessi orð, sókn
og sigrar, eru í raun táknræn fyrir alia þjóðarsöguna á þessu
skeiði, “ segir Þórarinn Þórarinsson, fyrrum ritstjóri og alþingis-
maður, i formála að þriðja bindi ritverks sins um sögu Framsóknar-
flokksins, sem nú er komið út. Þórarinn segir þar jafnframt að
með þessu bindi Ijúki frásögn hans af þætti flokksins i stjórn-
málasögunni á fyrstu 60 starfsárum flokksins, frá 1916 til 1976.
í tilefni af útkomu ritsins ræddi Morgunblaðið við höfundinn.
„Égvarfenginntilaðskrifasögu verk. „Það kom fljótlega í ljós að
Framsóknarflokksins í tilefni af 50 sagan var það yfirgripsmikil að
ára afmæli hans árið 1966,“ sagði henni yrði ekki gerð fullnægjandi
Þórarinn er hann var spurður um skil í einni bók. Niðurstaðan var
tildrög þess að hann réðst í þetta því sú að skipta þessu í tvö bindi
Varðberg og SVS;
Dr. Voslensky
á hádegisfundi
DR. MICHAEL S. Voslensky
verður á hádegisfundi hjá Varð-
berg og SVS (Samtök um vest-
ræna samvinnu) i Átthagasalnum
á Hótel Sögu í dag, 14. nóvem-
ber. Salurinn verður opnaður kl.
12.00.
Hin sovéska tilraun með stjórnun
á manninum er sjötug um þessar
mundir. Rússnesku orðin „glasnost"
og „perestrojka" eru notuð til að
skýra ýmsa þætti í stjómarstefnu
Gorbatséffs, ríkisleiðtoga í Sov-
étríkjunum. Dr. Voslensky sem
hefur ritað bækur og greinar um
Sovétríkin og flutt marga fyrir-
lestra fjallar um þessi tvö hugtök
í framsöguerindi sínu sem hann
flytur á ensku. Hann tengir þau
þriðja hugtakinu, „nómenklatúru"
(sovéska hástéttakerfinu).
Fundurinn er opinn félagsmönn-
Dr. Michael S. Voslensky
um í SVS og Varðbergi, svo og
öllum gestum félagsmanna.
og fyrsta bindið kom út á 50 ára
afmæli flokksins í desember 1966.
Það fjallaði um tímabilið frá 1916
til 1937. Þá var ákveðið að ég héldi
þessu áfram, en á næstu árum hafði
ég hins vegar lítinn tíma til að sinna
verkinu þar sem ég var bæði rit-
stjóri og þingmaður og hafði fleiri
störfum að gegna. Ég byijaði eigin-
lega ekki aftur fyrr en 1984, eftir
að ég hætti ritstjóm Tímans. Annað
bindið, sem fjallar um tímabilið frá
1937 til 1957 kom síðan út í fyrra
og á þessu ári hef ég svo lokið við
síðasta bindið um árin frá 1957 til
1976. Með þessu bindi lýkur frá-
sögn minni af þætti Framsóknar-
flokksins í stjómmálasögunni á
fyrstu 60 starfsámm hans. Lengra
held ég ekki áfram enda er erfítt
að fjalla um atburði sem em svona
nálægt manni $ tíma,“ sagði Þóra-
inn.
Þórarinn kvaðst vera ángæður
með að hafa lokið þessu verki.
„Mér hefur þótt þetta skemmtilegt,
ekki síst vegna þess að tuttugasta
öldin er að mínu mafysögulegasata
öldin í sögu okkar íslendinga. Á
þessari öld hafa órðið mestar fram-
farir á öllum sviðum. Við höfum
átt marga góða forystumenn og
margt nýtt hefur komið til sögunn-
ar á sviði lista og menningar."
Þórarinn sagði að varðandi verk-
ið hefði sér verið mestur vandi á
höndum að velja og hafna. „Ég
varð að sleppa fjölmörgu sem ég
hefði viljað segja frá þar sem ég
varð fyrst og fremst að binda mig
við stjómmálasöguna. Tilgangurinn
með þessu verki mínu má segja að
sé tvíþættur. Annars vegar að rifja
upp stjómmálasögu þessa tímabils,
mönnum til fróðleiks og vonandi
einhverrar ánægju, misjafnlega þó
kannski eftir því hvar í flokki menn
standa. Hins vegar lít ég svo á að
þetta gæti orðið heimildarrit seinna
meir fyrir menn, sem væru að
kynna sér sögu landsins og þá sérs-
taklega hvað varðar afstöðu
Þórarinn Þórarinsson.
framsóknarmanna til hinna ýmsu
mála.
Ég kem að vísu víða við stefnu
og sögu hinna flokkanna enda úti-
lokað að segja sögu eins flokks án
þess. Ég hef reynt að hafa þetta
eins hlutlaust og mér framast er
unnt þótt vitanlega hljóti frásögnin
að draga einhvem keim af tengslum
mínum við flokkinn. Þegar rituð er
saga eins flokks getur maður líka
alltaf búist við þeirri gagnrýni að
hlutur annarra sé ekki nógu stór.
Ég hef þess vegna gætt þess að
hafa sérstaka kafla um forystu-
menn annarra flokka. Má þar til
dæmis nefna merka forystumenn
Sjáifstæðisflokksins svo sem Jón
Þorláksson, Ólaf Thors og Bjama
Benediktsson," sagði Þórarinn Þór-
arinsson.
íslenska óp-
eran sýnir
Don Giovanni
ÁKVEÐIÐ hefur verið að ís-
lenska óperan sýni Don Gio-
vanni í vetur og er frumsýning
fyrirhuguð £ febrúar.
Hljómsveitarstjórinn hefur þeg-
ar verið ráðinn en ekki hefur verið
ráðið í öll hlutverkin enn sem
komið er.
Tónlistarhúss-
happdrættið
Drætti hefur verið frestað til 9. janúar.
Miðar fást í Gimli við Lækjargötu og ístón, Freyjugötu 1.
Tilvalin gjöf til að stinga í hvern jólapakka.
Áhugafólk um tónlistarhús á íslandi, sem hefur mögu-
leika á að ganga í hús til að selja miða, vinsamlegast
hafið samband við framkvæmdastjóra í síma 29107 eða
17765.
Samtök um byggingu Tónlistarhúss á íslandi.