Morgunblaðið - 14.11.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
Frakkland:
Málverk
eftir kumia
meistara
boðin upp
Parfs, Reuter.
FRANSKIR listaverkasalar vonast
nú til, að verðið, sem fékkst í New
York fyrir málverkið „Sverðliljur"
eftir Van Gogh, verði til að hækka
verðið á mesta listaverkauppboði,
sem haldið hefur verið í Frakkl-
andi. Verður það í næstu viku og
þá m.a. boðin upp verk eftir Van
Gogh, Monet, Picasso, Modigliani,
Salvador Dali og Matisse.
Joel-Marie Millon, forseti Drouot-
uppboðsfyrirtækisins, segir, að lista-
verkamarkaðurinn verði æ mikilvæg-
ari sem griðastaður flárfestenda og
býst hann við, að fyrir verkin 44, sem
verða seld í næstu viku, fáist 53 millj-
ónir dollara. Bindur hann miklar vonir
við, að verðið, sem fékkst fyrir
„Sverðliljur" Vincents Van Gogh, 53,9
milljónir dollara, hæsta verð fyrir
málverk bæði fyrr og siðar, verði til
að hækka uppboðsverðið.
Hér á eftir fer listi yfir 10 dýrustu
listaverk, sem seld hafa verið á upp-
boði. Er verðið í dollurum:
• „Sverðliljur" eftir Van Gogh.
1987. 53,5 millj.
• „Sólbíóm" eftir Van Gogh. 1987.
39,9 millj.
• „Brúin í Trinquetaille" eftir Van
Gogh. 1987. 20,2 miilj.
• Guðspjöll Hinriks ljóns, lýst hand-
rit frá 12. öld. 1983. 11,9 millj.
• „Lotning vitringanna" eftir Man-
tegna. 1985. 8,1 millj. eða 10,4 á
núvirði.
• „Rue Mosnier" eftir Manet. 1966.
7,7 millj. eða 11 á núvirði.
• „Málverk af ungri stúlku í gull-
ofínni skikkju" eftir Rembrandt.
1986. 10,3 millj.
• „Sævarmynd: Folkstone" eftir
Tumer. 1984. 10 millj.
• „Land undir hækkandi sól“ eftir
Van Gogh. 1985. 9,9 millj.
• „Kona við lestur" eftir Braque.
1986. 9,5 milj.
M.
jf*■ ■**
DRUKKNUÐUI SKOLPINU
Reuter
Að minnsta kosti 37 manns fórust í gær þegar langferðabifreið fór I og annar óþverri rennur um. Mikil þoka var þegar slysið átti sér
út af vegi í úthverfum Mexikóborgar og lenti út í skurði, sem skolp | stað. Myndin sýnir þegar bifreiðin var dregin upp úr skolpinu.
Daniel Ortega leggur
fram vopnahlésáætlun
Washington, Reuter.
DANIEL Ortega, forseti Nic-
aragua, hefur lagt fram 11-liða
áætlun um vopnahié í landinu og
Noregur:
Krónprinshjónum
sagt til syndanna
ÓBló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðaina.
„NORSKA konungsfjölskyldan
verður sjálf til að binda enda á
konungdæmið í landinu ef
krónprinsinn og kona hans geta
ekki skilið hvað til þeirra friðar
heyrir." Grete Knudsen, einn
þingmanna Verkamanna-
flokksins, iét þessi orð falla í
Stórþinginu í fyrradag en hún
telur, að margt af þvi, sem þau
krónprinshjónin hafa verið að
vasast í, sé allt of litað af
pólitík.
Krónprinshjónin, Haraldur og
Sonja, hafa verið dálítið umdeild
að undanfömu og finnst mörgum
sem þau átti sig ekki á stöðu sinni
í samfélaginu. Meðal ávirðing-
anna má nefna þessar:
★ Sonja var kjörin varaforseti
Rauða krossins og lét sig hafa
það að beijast við annan mann
um embættið. Auk þess hefur
Rauði krossinn átt í deilum við
stjómvöld vegna afstöðunnar til
flóttamanna.
★ Afskipti Sonju af hemum og
yfirlýsingar hennar um, að konur
ættu að taka meiri þátt í her-
mennskunni.
★ Aðild Haralds að Alþjóðanátt-
úmvemdarsjóðnum, sem hefur
hamast gegn hvalveiðum Norð-
manna.
★ Þátttaka Haralds í siglinga-
keppni, sem kostuð var af einka-
fyrirtækjum. Kom hann sjálfur
fram í auglýsingum fyrir nokkur
fyrirtæki og ekki þótti það verra
fyrir þau þegar Haraldur vann til
heimsmeistaratignar í ákveðnum
siglingaflokki.
Grete Knudsen finnst aftur á
móti mikið koma til Ólafs kon-
ungs, sem hún segir vera samein-
ingartákn fyrir alla þjóðina.
Ummæli hennar um krónprins-
hjónin urðu hins vegar til þess,
að umræðu um lífeyri konungs-
fjölskyldunnar var frestað. Ólafur
konungur fær nú í laun tæpar
átta milljónir ísl. kr. á ári og
Haraldur og Sonja fá þá upphæð
ætlar hann að leggja hana fyrir
Miguel Obando y Bravo kardiná-
la, sem hvorirtveggju, skærulið-
ar og sandinistar, hafa samþykkt
sem milligöngumann.
Samkvæmt friðaráætlun Mið-
Ameríkuríkjanna frá í ágúst skal
komið á vopnahléi milli stjórnvalda
og skæruliða í Nicaragua og E1
Salvador og sagði Ortega, að tillög-
ur sínar væru „mjög raunsæjar,
mjög sveigjanlegar og ættu því að
geta orðið árangursríkar".
Ortega vill, að væntanlegar við-
ræður við skæruliða og aðra stjóm-
arandstæðinga fari fram í
Washington og verði Bandaríkja-
stjóm beinn aðili að þeim. Vill hann
með því leggja áherslu á þá skoðun
sína, að skæruliðamir séu aðeins
handbendi Bandaríkjastjómar.
Stjómin í Washington hefur hins
vegar vísað þessu á bug. Skærulið-
ar vilja, að viðræðumar fari fram
í Managua, höfuðborg Nicaragua,
en á það má Ortega ekki heyra
minnst.
Alfredo Cesar, einn leiðtogi
skæmliða, sagði í gær í viðtali við
NBC-sjónvarpsstöðina, að Ortega
ætti nú aðeins tvo kosti. Væri ann-
ar sá að hafna friðaráætlun
.Mið-Ameríkuríkjanna en hinn að
leysa upp flokk sandinista. „Hér er
um að ræða lenínískan flokk, sem
er byggður upp á sama hátt og
aðrir slíkir. Það væri sjálfsmorð
fyrir flokkinn að hrinda friðaráætl-
uninni í framkvæmd," sagði Cesar.
Grænland:
Alþýðusamband í ótal pörtum
Nuuk, frá NJ. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
Verkalýðshreyfingin í Græn-
landi er klofin og krefst hvor
fylkingin þess að vera viður-
kennd sem hinn eini, rétti fulltrúi
launþega. Samböndin eru því tvö
og raunar það þriðja í burðar-
liðnum.
Til klofningsins kom á nýlegu
þingi samtakanna í Julianeháb en
þá beið „gamla" stjómin hvem ósig-
urinn á fætur öðrum, m.a. í máli,
sem snerist um að banna uppeldis-
fræðingum aðild og um brottrekstur
varaformannsins en hann var sak-
aður um ýmsar vammir og
skammir.
Bankamir tveir í Grænlandi hafa
lokað reikningum alþýðusambands-
ins þar til ljóst er hver ræður á
þeim bæ en leifamar af gömlu
stjóminni hafa búið rammlega um
sig í aðalstöðvunum í Nuuk og neita
öðrum um aðgang. Það er þó ekki
nóg með, að þessar tvær fylkingar
berist á banaspjót, heldur er sú
þriðja að fæðast. Standa að henni
tæknimenn á útvarpinu, prentarar
og ýmsir aðrir, tæknimenntaðir
65 ríki hafa tilkynnt
þátttöku í Seoul 1988
Seoul, Reuter.
SEXTÍU og fimm ríki hafa stað-
fest þátttöku sina í Ólympíuleik-
unum í Seoul á næsta ári, að því
er framkvæmdanefnd leikanna
skýrði frá á fimmtudag. í þessum
hópi er ekkert kommúnistaríki.
Þjóðir, sem eiga aðild að Al-
þjóðaólympíunefndinni (IOC), hafa
frest til 17. janúar næstkomandi til
Númálum vií jólinl
að tilkynna þátttöku í leikunum í
Seoul. Hinn 17. september síðastlið-
inn, þegar nákvæmlega ár var til
leikanna, sendi IOC aðildarríkjum
sínum, sem er 167, boð um þátttöku
í Ieikunum.
Meðal ríkjanna 65 eru 18 Evr-
ópuríki, 15 Asíuríki, 12 frá Afríku,
15 frá Suður- og Norður-Ameríku
og 5 ríki úr Eyjaálfu.
Suður-Kóreumönnum var falin
framkvæmd ieikanna árið 1981, en
í hitteðfyrra kröfðust Norður-
Kóreumenn þess að fá að halda
hluta leikanna. Fyrir tilstilli IOC
hafa verið haldnir Qórir fundir með
Norðan- og Sunnanmönnum. Er
ágreiningur um skiptingu óleystur
og hafa Norðanmenn hafnað hverri
málamiðlun IOC af annarri.