Morgunblaðið - 14.11.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
Viðamiklar stjórnkerf-
isbreytingar í burðar-
liðnum hjá Akureyrarbæ
Ekki gert ráð fyrir uppsögnum starfsfólks
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið
unnið að viðamiklum stjórnkerf-
isbreytingum hjá Akureyrarbæ
sem fela meðal annars í sér að
starfsemi bæjarins verði skipt
upp í fjögur svið í stað þess að
nú heyra átján manns beint und-
ir bæjarstjóra. Þau fjögur svið,
sem um ræðir, eru félags- og
fræðslusvið, fjármála- og stjórn-
sýslusvið, tæknisvið og veitusvið.
Einnig er lagt til að vegna sér-
stöðu sinnar verði atvinnumál
undir beinni stjórn bæjarsljóra í
náinni framtið vegna eignar-
halds bæjarins á mikilvægum
fyrirtækjum. Tillaga þessa efnis
frá stjórnkerfisnefnd liggur fyr-
ir fundi bæjarstjómar, sem
haldinn verður nk. þriðjudag, til
fyrri umræðu. Ekki er búið að
ákveða hvemig hinum einstöku
sviðum verður deildaskipt, en á
fundinum verður jafnframt tekin
um það ákvörðun að samelna
allar þijár veitustofnanir bæjar-
ins, það er raf-, vatns- og hita-
veitu, í eina stofnun, Veitustofn-
un Akureyrar.
Tekur nokkur ár
Stjóm veitustofnana leggur
þó
til að fyrst um sinn verði skipulagi
þó þannig háttað að starfseminni
verði skipt í hitaveitu-, rafveitu- og
vatnsveitusvið, en nú þegar verði
unnið að breyttu skipulagi með
sammna verkþátta. „Þetta mun
fela í sér mikla hagræðingu, en
menn vilja fara hægt í sakimar þar
sem mjög dýrt er að breyta húsnæð-
um stofnana auk þess sem ekki
verður farið út í að segja fólki upp
störfum, heldur komi sameiningin
af sjálfu sér þegar fólk annaðhvort
hættir störfum sökum aldurs eða
af sjálfsdáðum. Hjá þessum þremur
stofnunum starfa nú um 60 manns
og er meiningin að fækka í rúmlega
40,“ sagði Sigfús Jónsson bæjar-
stjóri Akureyrar. Hann sagði að
veitustofnanir væm á fjórum stöð-
um í bænum í dag og yrði fyrsta
skrefíð væntanlega að færa stofn-
animar á tvo staði í stað fjögurra
„Líklega verður mjög fljótlega um
einhvem sammna að ræða, en þess-
ar fyrirhuguðu breytingar munu
taka nokkur ár.“
Þess hefur ekki verið nægilega
gætt á undanfömum ámm að
skipuleggja formleg tengsl milli
deilda og óformleg tengsl hafa ver-
ið takmörkuð, m.a. vegna þess að
starfsemin er dreifð um allan bæ,
að sögn bæjarstjóra. „Þróast hefur
óskipulögð valddreifíng, þar sem
deildir starfa mjög sjálfstætt án
skilgreindrar stöðu í heildinni. Sum-
ar stofnanir hafa jafnvel mjög
takmarkaða tilfínningu fyrir því að
þær séu hluti af einni heild er vinni
að sameiginlegu markmiði. Sam-
skiptavandamál em milli sumra
deilda og stofnana sem veldur því
að verkefni em stundum ekki leyst
af hendi á hagkvæmasta máta.
Valddreifing hefur ýmsa kosti þeg-
ar hún er hluti af vel skilgreindu
stjómkerfi, þ.e. þegar hin sjálf-
stæða deild lýtur sameiginlegum
meginreglum og aðhaldi kjörinna
fulltrúa."
Stjómkerfísnefnd leggur til
minniháttar breytingar á fjármála-
og stjómsýslusviði frá því sem nú
er. Gert er ráð fyrir að hinn fjár-
hagslegi þáttur heilbrigðismála
heyri undir þetta svið á meðan
rekstur heilbrigðisstofnana er sam-
starfsverkefni ríkis og sveitarfé-
laga. Sama er að segja um önnur
samstarfsverkefni ríkis og sveitar-
félaga þar sem skömnin er aðallega
í fjármálum.
Til félags- og fræðslusviðs heyra
félagsmál, öldrunarmál, mennta-
og menningarmál, æskulýðs- og
íþróttamál og hinn faglegi þáttur
heilbrigðismála. Til tæknisviðs
heyra öll tæknileg málefni að veitu-
málum undanskildum. Má þar
nefna: skipulagsmál, byggingareft-
irlit og fasteignaskráningar, bygg-
ingamál, gatna- og holræsamál,
umhverfismál, strætisvagna,
slökkvilið, heilbrigðiseftirlit, hafn-
armál og tæknilega þjónustu við
ýmsar deildir stofnana bæjarins.
Samræmingaraðilar
Lagt er til að ákveðnum embætt-
ismönnum verði falið samræming-
arhlutverk innan félags- og
fræðslusviðs annars vegar og
tæknisviðs hinsvegar. Ennfremur
er lagt til að samræmingaraðili
tæknisviðs hafí frumkvæði að
tengslum milli veitustofnunar ann-
ars vegar og annarra stofnana á
tæknisviði hinsvegar. í megindrátt-
um skal verkefni samræmingaraðil-
anna fólgið í að halda fundi með
forstöðumönnum deilda og stofnana
þar sem verkefnin eru kynnt, miðl-
að upplýsingum til og frá bæjarráði,
aðstoðað við samræmingu verkefna
og leyst hugsanleg ágreiningsmál
milli forstöðumanna. Einnig eiga
þeir að beita sér stöðugt fyrir sem
mestri samvinnu einstakra deilda
og stofnana á sínu sviði. Til að leysa
þessi verkefni er óhjákvæmilegt að
koma upp fastmótuðu samskipta-
kerfí innan stóru málaflokkanna
þriggja. Gerðar eru sérstakar tillög-
ur þar um.
Starfshæfni kerfisins
Lögð er megináhersla á leiðir til
að tryggja sem besta starfshæfni
stjómkerfísins í heild. Lagðar eru
til nokkrar innbyrðis breytingar ein-
stakra deilda og stofnana, þar á
Morgunblaðið/Guðmundur Svansson
Börn að leik í Arholti
meðal sameiningu verkefna tveggja
eða fleiri stofnana eða deilda þar
sem breytingin var talin nauðsynleg
til að ná fram aukinni samvirkni.
Ekki er nægilegt að samþykkja
formlegt skipurit ef ekki er tryggt
að lykilmennimir leiki sitt hlutverk
rétt. Því er talið nauðsynlegt að
fyrirskipa formlegt samskiptakerfí
innan stjómkerfís embættismann-
anna á sama hátt og innan nefnda-
kerfísins.
Fækkun nefnda
nauðsynleg-
Sigfús sagði að þá mætti fækka
hinum ýmsu nefndum í bænum, en
þær tillögur sem nú væm til um-
fjöllunar tækju ekki tillit til þeirra.
Nefndarkerfi bæjarins yrði að skoð-
ast betur, en það yrði ekki gert
fyrr en þær breytingar sem nú
stæðu fyrir dymm væm útkljáðar.
„Það er mikið af smánefndum, sem
geta sameinast öðmm stærri. Til
dæmis er einn og sami maðurinn
æskulýðs- og íþróttafulltrúi hér á
Akureyri sem er með eina æsku-
lýðsnefnd og aðra íþróttanefnd í
stað þess að hafa eina æskulýðs-
og íþróttaneftid. Þá má nefna hinar
ýmsu landbúnaðamefndir, sem
mætti sameina, svo sem fjallskila-
nefnd og riðunefnd auk þriggja
skólanefnda, sem em í bænum, tón-
listarskólans, verkmenntaskólans
og gmnnskólans,“ sagði bæjar-
stjóri.
Kaupþing Norðurlands hf.:
Fundur um verðbréfa-
markaðinn á Wall Street
KAUPÞING Norðurlands hf.
efnir tíl hádegisverðarfundar nk.
miðvikudag 18. nóvember þar
sem rætt verður um erlenda
verðbréfamarkaði. Gestur fund-
arins verður Davíð Björnsson
rekstrarhagfræðingur og starfs-
NÝJAR B/EKUR NÝJAR BAEKUR NÝJAR BÆKUR NÝJAR BÆKUR NÝJAR BÆKUR
Ert
omíöA
búin að fá þér þessar bækur?
RAUM SERÍAN
Gerist áskrifendur það borgar sig, tvær bækur í mánuði
kosta aðeins kr. 550. Hringið í áskriftarsíma 96-24966.
NÝJAR B/EKUR NÝJAR B/EKUR NÝJAR BAEKUR NÝJAR BÆKUR NÝJAR BÆKUR
maður Kaupþings hf. í Reykja-
vík.
Davíð er menntaður _ viðskipta-
fræðingur frá Háskóla íslands og
lauk MBA-gráðu í fjármálum og
verðbréfaviðskiptum frá Westem
Ulinois University í Bandaríkjunum.
Davíð hefur undanfarin þijú ár
starfað sem deildarstjóri verðbréfa-
deildar Kaupþings hf.
Davíð hefur kynnt sér sérstak-
lega hlutabréfamarkaðinn á Wall
Street í New York og hann mun
ræða hvemig verðbréfamarkaðir
starfa erlendis, en starfsemi þeirra
er gjörólík því sem gerist hér á
landi. Hann mun ræða um verð-
hmnið 1929 og heimskreppuna sem
því fylgdi, verðhmnið á dögunum
og hugsanleg áhrif þess á efna-
hagslíf heimsins og þá sérstaklega
áhrif þess hér á landi. Einnig mun
hann ræða möguleika íslendinga á
fjárfestingu í skulda- og hlutabréf-
um erlendis í kjölfar síðustu
efnahagsráðstafana ríkisstjómar-
innar.
Þátttaka er öllum opin er áhuga
hafa á að fyigjast með þróun verð-
bréfaviðskipta og taka þátt í
umræðum um efnahagsmál. Þátt-
taka tilkynnist til Kaupþings
Norðurlands hf. fyrir 18. nóvember.
Jón Hallur Pétursson fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
lands sagði að fyrirtækið ráðgerði
slíka fundi af og til eftir efnum og
ástæðum. „Við höfum hugsað okk-
ur röð slíkra funda eftir því sem
tilefni gefst. Fundimir verða þó
ekki reglulegir. Við ætlum að taka
fyrir mál, sem flokkast undir efna-
hagsmál í vfðasta skilningi. Búast
má við að á næsta fundi verði kvóta-
málið tekið fyrir og verður þá
væntanlega fenginn gestur, sem
byggja mun erindi sitt upp á fræði-
legum grunni."
Trillukarlar
funda á
Akureyri
Smábátasjómenn úr svæðis-
félagi smábátaeigenda, Kletti,
ætla að halda fund um málefni
smábátaútgerðar á morgun,
sunnudag, kl. 14.00. A fundinn
mætir formaður Landssambands
smábátaeigenda, Arthur Boga-
son úr Vestmannaeyjum.
Yngvi Amason formaður Kletts
sagði í samtali við Morgunblaðið
að til fundarins væru boðaðir bæj-
ar- og sveitastjómarmenn. Svæðis-
félagið nær yfír byggðir á
Norðurlandi, allt frá Siglufirði aust-
ur að Húsavík. Yngvi sagði að
smábátaeigendur, sem ættu báta
undir 6 tonnum, væm harðast leikn-
ar samkvæmt nýrri fiskveiðistefnu,
og ljóst væri að ef þær hugmyndir
næðu fram að ganga sem uppi
væm, myndu þær gera út af við
tríllukarla.