Morgunblaðið - 14.11.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
41
Félag íslenskra náttúrufræðinga;
Niðurskurðtir rannsókna hefur
Raufarhöfn.
NOKKRAR umræður hafa faríð
fram um fyrírhugaðar breyting-
ar & kvóta smábáta og tilhögun
veiða þeirra. Meðal annars sam-
þykkti sveitarstjóm svohljóðandi
bókun miðvikudaginn 11. nóvem-
ber:
„Sveitarstjóm Raufarhafnar-
hrepps mótmælir harðlega þeim
hugmyndum sjávarútvegsráðuneyt-
isins sem fyrir liggja um kvóta á
smábáta. Ljóst má vera að þær
munu koma nyög illa niður á lands-
byggðinni og ef af verður mun mikil
eignaupptaka eiga sér stað hjá stór-
um hóp manna." Þessi bókun var
send þingmönnum Norðurlands-
kjördæmis eystra, Landssambandi
íslenskra útvegsamanna og Lands-
sambandi smábátaeigenda.
- Helgi
I»
Basar Kvennadeild-
í f ör með sér minni hagvöxt
FÉLAG íslenskra náttúrufræð-
inga telur að nái fyrirhugaður
niðurskurður á fjárveitingum til
rannsókna í þjónustu atvinnu-
veganna fram að ganga, sé
stoðum kippt undan efnahags-
legum framförum hérlendis og
að í kjölfaríð muni óhjákvæmi-
lega fylgja samdráttur á flestum
sviðum þjóðlífsins.
Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyr-
ir 25% niðurskurði fjárveitinga til
leiðbeiningaþjónustu Búnaðarfé-
lags íslands og búnaðarsamband-
anna, um það bil 15% niðurskurði
til Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins auk 20% niðurskurðar til
Orkustofnunar.
Ólafur Dýrmundsson ráðunautur
hjá Búnaðarfélagi íslands sagði á
blaðamannafundi sem Félag
íslenskra náttúrufræðinga efndi til
um málið að þær raddir hefðu
heyrst innan Stéttasambands
bænda að niðurskurður á rannsókn-
um í þágu landbúnaðarins sé brot
á búvörusamningi Stéttasambands-
ins og ríkisstjómarinnar. Verkefni
við rannsóknir í landbúnaði hafí í
raun margfaldast undanfarin ár
með tilkomu nýrra búgreina svo
sem fiskeldis, loðdýraræktar og
Týndir
drengir í
Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN hefur innan tíðar
sýningar á myndinni „Týndir
drengir“. Leikstjóri er Joel
Schumacher en meðal leikenda
eru Dianne Wiest, Kiefer
Sutherland, Jason Patríc, Jami
Gertz og Corey Haim.
Sögusviðið er bær við strendur
Kalifomíu. Fjallar myndin um
bræður á unglingsaldrí sem nýflutt-
ir eru þangað og lendir annar þeirra
í vafasömum félagskap þar sem
meðal annars em tíðkaðar vígsluat-
hafnir og bergt á göróttum drykkj-
um.
Yngri bróðirinn óttast um bróður
sinn og heldur að hann sé að lenda
á valdi vampíra. Hann reynir að
bjarga bróður sínum og bænum öll-
um frá ógninni sem að þeim steðjar,
segir í frétt frá Bíóhöllinni.
ferðaþjónustu og emmg vegna
tölvuvæðingar í landbúnaði. Fjár-
veitingar hafí ekki aukist að sama
skapi og þörfín fyrir rannsóknir og
því skjóti nú skökku við að fjármála-
ráðherra ætli, án samráðs við
landbúnaðarráðuneytið, að skerða
framlög til þessara mála svo mikið
niður raun ber vitni.
Fram kom hjá Ólafí á að fyrir
rúmu ári síðan hefði verið óskað
eftir því við Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun að fram færi fagleg úttekt
á rekstri Búnaðarfélagsins og bún-
aðarsambandanna. Svar við beiðn-
inni hefði enn ekki borist og því
væri rennt blint í sjóinn með niður-
skurðinn án þess að vitað væri
hvemig hann bitnaði á þeirri starf-
semi sem fram fer á vegum félags-
ins.
Unnur Steingrímsdóttir formað-
ur Félags íslenskra náttúrufræð-
inga sagði á fundinum að
'rannsóknir væru undirstaða efna-
hagsleg nýsköpunar og skynsamle-
grar nýtingar náttúruauðlinda.
Unnur sagði að það lýsti ótrúlegri
skammsýni stjómvalda að veita
rannsóknastarfsemi í landinu slíkt
högg nú þegar liðin væru 50 ár frá
því rannsóknir í þágu atvinnuveg-
anna hófust hérlendis.
Ólafur Karvel Pálsson fískifræð-
ingur sagði á fundinum að stjóm-
völd hefðu skyldu til að efla
rannsóknir á öllum sviðum þjóðlífs-
ins. Ekki væri aðeins um að ræða
menningarlega og siðferðislega
skyldu gagnvart komandi kynslóð-
um heldur einnig efnahagslega
skyldu, rannsóknir væru undirstaða
efnahagslegra framfara og hefði
hagfræðingurinn Robert Solov
fengið Nóbeisverðlaun í hagfræði
fyrir það meðal annars að sýna fram
á að 60-70% hagvaxtar mætti rekja
til þróunarstarfs og rannsókna.
Basar í
Landa-
kotsskóla
KVENFÉLAG Kristskirkju,
Landakoti, verður með basar,
kaffisölu og happdrætti í
Landakotsskóla sunnudaginn
15. nóvember.
Basarinn hefst kl. 15.00 og
verður margt muna á boðstólum.
Raufarhöfn:
Smábáta-
kvótanum
harðlega
mótmælt
Samband íslenskrasveitarfélaga:
Fjármálaráðstefna á mánudag*
HIN árlega ráðstefna Sambands
íslenskra sveitarfélaga um fjár-
mál sveitarfélaga verður haldin
á Hótel Sögu í Reykjavík nk.
mánudag, 16. nóvember.
Á ráðstefnunni verður rætt um
forsendur flárhagsáætlana sveitar-
félaga fyrir árið 1988, um stað-
greiðslu opinberra gjalda og um
breytta innheimtu þeirra og loks
um tilfærslu verkefna frá ríki til
sveitarfélaga, sem ráðgerð er nú
um áramótin.
Ráðstefnuna sitja rúmlega 200
þátttakendur.
(Fréttatilkynning)
ar Rauða krossins
KVENNADEILD Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands
heldur árlegan basar sinn í Fé-
lagsheimili Fóstbræðra að
Langholtsvegi 109-111 sunnu-
daginn 15. nóvember og hefst
hann kl. 14.00.
Á basamum verða á boðstólum
allskonar handavinna, heimabakað-
ar kökur, jólakort og fleira. Allur
ágóði rennur til bókakaupa fyrir
sjúkrabókasöfn spítalanna.
BILAR HÆKKUDU
MISMIKID
EDAEKKERT
5. tölublað Bílsins er nýkomið á blað-
sölustaði, fjölbreytt efni að vanda.
(Ath! 4. tölublað seldist upp hjá útgefanda á 10 dögum).
Áskriftasími er: 91 -82300
Frjálst framtak