Morgunblaðið - 14.11.1987, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
fclk f
fréttum
SINAWIK
Yf ir tvö hundruð konur
á tískusýningu
OSinawik-konur héldu árlegan
tískusýningarfund sinn í Súlna-
sal Hótels Sögu þriðjudaginn 10.
nóvember síðastliðinn. Fundir sem
þessi eru haldnir í nóvember ár
hvert og sóttu fundinn að þessu
sinni rúmlega tvö hundruð konur,
úr Reykjavík og einnig utan af
landi. Sýnd voru föt frá Verðlistan-
um, Útilífí, Marco Polo, Heru,
Tískuhúsi Markús og Pelsinum auk
brúðarkjóla eftir Þórhöllu Harðard-
óttur. Hárgreiðslu annaðist hár-
greiðslustofan Aristókratinn og um
snyrtingu sá Salon Ritz. Helga
Helgadóttir stjómaði sýningunni og
var jafnframt kynnir.
Helga Helgadóttir kynnir.
Morgunblaðið/Þorkell
Dagbjört Guðmundsdóttir, Ester Jónsdóttir, Þórhalla Grétarsdóttir
og Guðrún Ólafsdóttir í fatnaði frá Verðlistanum.
md eintökum
PELICAN ENDURREIST:
Drápum hljóm-
sveitina þegar
við rákum Pétur
Hljómsveitin Pelican, ein vin-
sælasta og eftirminnileg-
asta hljómsveit á síðasta áratug
verður endurreist í veitingahús-
inu Þórscafé um næstu helgi. Er
ekki að efa að margir munu
fagna þessum tíðindum enda átti
hljómsveitin fjölmarga aðdáend-
ur, sem enn líta með söknuði til
þeirra ára þegar hún fór sem
logi yfir akur og tryllti landslýð
með kraftmiklum leik sínum.
Mönnum er líka í fersku minni
dramatisk endalok sveitarinnar,
en aðdragandann að því má rekja
til þess þegar söngvarinn Pétur
Kristjánsson var rekinn, öllum
að óvörum. Þau sár virðast þó
gróin og Pétur mætir til leiks
ásamt félögum sínum, þeim
Björgvin Gíslasyni gítarleikara,
Jóni Ólafssyni bassaleikara, Óm-
ari Óskarssyni gitarleikara og
Ásgeiri Óskarssyni trommuleik-
Bjöggi Gísla þegar hann var beðinn
um að rifja aðeins upp ferilinn.
„Við komum úr hinumn og þessum
hljómsveitum, Pétur og Gunni Her-
manns úr Svanfríði, Ómar og Geiri
úr Ástaijátningu og ég úr Náttúru.
Jonni kom svo til liðs við okkur í
janúar 1974 og þá gerðum við
fyrstu plötuna „Uppteknir", sem
varð metsöluplata. Platan var tekin
upp í Shaggy Dog Studióinu í
Massachusetts í Bandaríkjunum og
eftir að við komum heim var spilað
á fullu um allt land, en helstu stað-
imir voru líklega Festi, Stapi,
Klúbburinn og Félagsgarður í Kjós
þar sem við settum áðsóknarmet.
Um þetta leyti varð Ómi Vald um-
boðsmaður okkar og það var
heilmikið um að vera í kringum
þetta."
Fimm milljóna sukkið
DAVID
BOWIE:
Smitaði hann
Wonduaf
eyðni?
Wanda Nichols
mætir hér til
réttarsalarins í Dallas
þar sem ákæra henn-
ar á hendur tónlistar-
manninum David
Bowie um meinta
nauðgun var tekin
fyrir. Við vitnaleiðslur
vottaði Wanda að eftir
að Bowie hefði niður-
lægt sig hefði hann
bitið sig í bakið og
boðið sig velkomna í
hóp þeirra sem væru
sýktir af eyðni.
Hvorki Bowie né verj-
andi hans létu sjá sig
við vitnaleiðslumar.
Reuter
Séð yfir hluta gesta á tískusýn-
ingarfundi Sinawik.
ara.
„Pelican var stofnuð vorið 1973
og tók strax strikið beint á toppinn,
þótt ég segi sjálfur frá,“ sagði
„Snemma á árinu 1975 fómm
við aftur til Bandaríkjanna, í
Shaggy Dog stúdíóið, þar sem við
gerðum plötuna „Lítil fluga", eða
GLENN CLOSE
Ólétt, en neitar að gefa upp faðemið
Leikkonan Glenn Close, sem er okkur
íslendingum að góðu kunn fyrir leik
sinn í kvikmyndunum Jagged Egde og
The Big Chill, á von á bami. Það þykir
nokkmm tíðindum sæta þar sem hún
skildi við mann sinn snemma á þessu ári
og hefur ekki verið við karlmann kennd
síðan. Aukinheldur er hún orðin fertug
og ekki seinna vænna að eiga sitt fyrsta
bam. Ekki vill hún gefa upp nafn bams-
föðursins og hefur það valdið miklum
heilabrotum þar vestra. Glenn er hreint
himinlifandi yfír þessum ánægjulegu frétt-
um og getur vart beðið fram í apríl, þegar
von er á að bamið líti dagsins ljós.
Svo skemmtilega vill til að Glenn hefur
nýlokið við að leika í myndinni Fatal
Attraction þar sem hún leikur einhleypa
konu sem verður þunguð.
Glenn Close ásamt mótleikara sínum í Banvænu aðdráttar-
afli, Michael Douglas. Hann mun þó ekki grunaður um að
eiga hlutdeild í barni Glennar.