Morgunblaðið - 14.11.1987, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 14.11.1987, Qupperneq 64
rs juglýsinga- síminn er 2 24 80 aana ^SUZUKI LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Flugvélin TF AIE brennur við Selfossflugvöll skömmu eftir óhappið. Flugvélin var smíðuð árið 1947 og af gerðinni North American Navion A. Hún var keypt hingað af Flugmálastjórn árið 1953 og var í notkun þar til árið 1963 er hún var seld Flugsýn hf. Síðastliðin 15 ár hefur hún verið í eigu ýmissa einkaaðila. Á innfelldu myndinni, sem Pétur P. Johnson tók, er TF-AIE eins og hún leit út fyrir óhappið. Gengu óstuddir frá brenn- andi flaki flusrvélarínnar Selfossi. ^mm ^ TVEIR menn björguðust giftusamlega úr brennandi lítilli eins hreyfils flugvél, TF AIE, sem nauðlenti skammt vestan flug- valiarins á Selfossi síðdegis í gær. Eldur kom upþ í vélinni skömmu eftir flugtak. Vélin fylltist strax af reyk en þrátt fyrir það tókst flugmanninum að nauðlenda eft- ir að hafa reynt að snúa vélinni inn á flugvöllinn. Að sögn sjónarvotta kom eldu'rinn upp í vélinni þegar hún var komin í um hundrað metra hæð og magnaðist fljótt. Vélin tók sig upp í norðurátt af norður-suður-brautinni. Flugmaðurinn sveigði vélinni í vestur og hugð- ist ná inn á vestur-austur-brautina en tókst ekki og nauðlenti á sandfláka skammt frá brautinni. í nauðlendingunni stakkst vélin bratt niður á nefíð og fór á hvolf. Hún varð strax alelda en flugmanninum og farþega hans tókst að komast út úr vélinni og gengu þeir óstuddir frá flakinu inn á flugvöllinn þang- að sem sjúkrabifreið sótti þá. Þór Mýrdal flugmaður sagði að vélin hefði strax fyllst af reyk og þeir ekki séð neitt. Hann kvaðst hafa opnað vélina til að reyna að losna við reykinn en ekkert dugði. Það hefði verið vonlaust að ná inn á flugbrautina og ekki annað að gera en koma vélinni niður. „Mér er það eiginlega óskiljanlegt hvemig við komumst út,“ sagði Þór og að þeir hefðu varla vitað almennilega af sér eftir nauðlend- inguna fyrr en þeir vom komnir út og flýttu sér frá brennandi vélinni. Þór brenndist á fót- um og skrámaðist á höndum. Farþegi vélarinn- ar hlaut eina smáskrámu í andliti. Læknir heilsugæslustöðvarinnar, Sigurður Ingi Sigurðsson, sagðist ekki hafa trúað eigin augum þegar mennimir komu gangandi óstuddir inn á slysastofuna eftir að hann hafði fengið tilkynningu um flugslys. Gert var að sámm mannanna á heilsugæslu- stöðinni, flugmaðurinn var fluttur í bmnadeild Landspítalans en farþeginn fékk að fara heim. Sig. Jóns. Forsætisráðherra um sölu ríkisfyrirtækja: Andvirðið til uppbygg- ingar á landsbyggðinni? Selfossi, frá Stefáni Friðbjamarsyni blað „VÍÐAST í hinum vestrænu löndum er nú unnið að því að losa eignir ríkisins i atvinnufyr- irtækjum og fjármálastofnunum eins og bönkum,“ sagði Þor- steinn Pálsson forsætisráðherra á ráðstefnu Byggðastofnunar og Sambands ísl. sveitarfélaga um byggðamál á Selfossi í gær. „Eðlilegt er að slíkar umbreyt- ingar tengist með einum eða öðrum hætti almanna hagsmun- um. í þessu ljósi varpa ég fram þeirri hugmynd til umhugsunar að andvirði af sölu opinberra fyrirtækja eða stofnana verði anni Morgunblaðsins. hagnýtt til að efla og auka fjöl- breytni atvinnulífsins tun land allt. Ekki með þvi að ríkið stofni fyrirtæki heldur með þvi að aðstoða einstaklinga og fyrir- tæki á hveijum stað við að leggja fram hlutafé til að treysta starfsemi fyrirtælga og stofna ný.“ Forsætisráðherra sagði að nýta mætti söluandvirðið tii að auðvelda einstaklingum og félögum þeirra að leggja fram eigið fé í starfandi eða ný fyrirtæki í heimabyggð. Þetta gæti ef til vill tengst þeim hugmyndum sem Þróunarfélag Is- lands hefur sett fram og vinnur nú að um stofnun fjárfestingarfé- laga í einstökum landshlutum, sagði ráðherrann. Með aukinni framleiðni í hefð- bundnum framleiðslugreinum, sjávarútvegi og landbúnaði. sé lögð sífellt meiri áhersla á vöruþróun, úrvinnslu, söiustarf, markaðsmál og þjónustu. „Atvinnulífið er að breytast úr framleiðslu í þjónustu," sagði ráðherrann. Og hann bætti við: „Tryggja verður að atvinnulíf- ið á landsbyggðinni fylgi þessari almennu þróun.“ Hann nefhdi tvö dæmi um hvemig það mætti verða. í fyrsta lagi að forræði og framtak í sölu og vinnslu á afurðum hinna hefðbundnu búgreina, færðist heim í héruðin. Með því sköpuðust störf í héraði við þjónustu og mark- aðssókn. „Stærstu fyrirtækin eiga bændumir sjálfir. Það eru því hæg heimatökin," sagði ráðherrann. í annan stað, að sölusamtök sjávarútvegs efli tengsl einstakra fyrirtækja við markaðinn, þannig að störf að sölu- og markaðsmál- um, tækni og vömþróun, verði til á landsbyggðinni, ekki síður en á höfuðborgarsvæðinu. Allt að 67% verð- munur VERÐLAGSSTOFNUN birti nið- urstöðu verðkönnunar í stór- mörkuðum á höfuðborgarsvæð- inu í október. Kannað var verð á 280 algengum vörutegundum og reyndist Fjarðarkaup í Hafn- arfirði með lægsta verð á mun fleiri vörutegundum en aðrir stórmarkaðir, eða 127 af 269. í könnuninni reyndist mestur hlutfallslegur munur á verði ein- stakra vörutegunda á frystum rækjum í 500 g pokum. Lægsta verðið var 219 kr. en það hæsta 365, sem er 67% hærra. Frystar gulrætur og grænar baunir kostuðu 47% meira í einni verzlun en ann- arri. Sjá ennfremur bls. 44. Morgunblaðið/RAX FAGNAÐAR- FUNDIR Fegurðardrottning íslands, Anna Margrét Jónsdóttir, sem hafnaði í þriðja sæti í keppninni Ungfrú Heimur 1987 í Lundunum í fyrra- dag, kom heim til íslands í gær með þotu Flugleiða. í anddyri Flug- stöðvar Leifs Ejríkssonar beið unnusti hennar, Ámi Harðarson, eftir henni og urðu með þeim fagn- aðarfundir. Sjá fréttir og viðtöl á bls. 26 og 27. Neyðarblys sást yfir Geithálsi NEYÐARBLYS sást á lofti skammt frá Geithálsi fyrir ofan Árbæ í gærkvöldi. Tilkynning um blysið barst lög- reglunni í Hafnarfirði og Árbæ um kl. 22 í gærkvöldi og voru leitar- menn sendir á staðinn. Leit stóð enn yfír á miðnætti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.