Morgunblaðið - 09.12.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Skýrslan sýnir
að ásakanirnar
eiga sér ekki stoð
- segir Þorsteinn Ingólfsson
„ÞAÐ VAR mikil lífsreynsla fyrir mig að koma inn í störf bygginga-
nefndar síðastliðið sumar, um það leyti sem miklar umræður hófust
um byggingu flugstöðvarinnar, sem að minum dómi leiddu til mjög
ósanngj arnrar gagnrýni og ásakana á nefndina," sagði Þorsteinn
Ingólfsson, núverandi formaður bygginganefndar Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar. „Ég fagna því mjög að athugun ríkisendurskoðunar ligg-
ur nú fyrir og ég held að allir sanngjarnir menn hljóti að sjá að
þær hörðu ásakanir, sem nefndin hefur legið undir, eiga sér ekki stoð.
„Mér er ljóst hið vandasama hlut-
verk þeirra manna sem unnu að
skýrslu ríkisendurskoðunar, þar
sem á nokkrum vikum er fjallað
um verkefni, sem hefur verið áratug
í undirbúningi og framkvæmd,"
sagði Þorsteinn ennfremur. „Það
gengi kraftaverki næst ef ekki
væri, eftir á að hyggja, hægt að
benda á ýmis atriði sem betur hefðu
Félagsmálaráðherra:
Skipulags-
stjórn
gefí umsögn
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra hefur farið
fram á að Skipulagsstjóm ríkis-
ins gefi ítarlega umsögn um
einstaka liði í erindi sem Guðrún
Jónsdóttir arkitekt sendi ráð-
herra vegna fyrirhugaðs ráðhúss
24. nóvember sl.
í erindi Guðrúnar til félagsmála-
ráðherra lagði hún til að ráðherra
staðfesti ekki tillöguuppdrátt og
greinargerð um miðbæ Reykjavíkur
heldur legði fyrir skipulagsstjóm
að taka málið upp að nýju til með-
ferðar í samræmi við skipulagslög
og reglugerðir svo og náttúruvemd-
arlög.
Pólýf ónkórinn:
Tónleikar
álaugardag
Pólýfónkórinn flytur tónverkið
Messías eftir Hándel í Hallgrims-
kirkju laugardaginn 12. desember
kl. 17:00.
Tónleikamir verða ekki á sunnu-
dag, eins og stóð í frétt Morgun-
blaðsins í gær.
Morgunblaðið biður lesendur og
Pólýfónkórinn velvirðingar á þess-
um mistökum.
Sjá viðtöi við kórfélaga á bls.
32-33 í dag.
í dag
. B
Hvað er í bladinu? I
£. r i
mátt fara, en mestu máli skiptir,
að mínum dómi, að bygginganefnd-
in hefur lokið, að mestu, byggingu
glæsilegrar flugstöðvar, sem vissu-
lega kostar sitt, en er jafhframt
eitt arðbærasta mannvirki sem ég
þekki til hér á landi og þjónar hlut-
verki sínu vel. Bygginganefndin
taldi sér bæði rétt og skylt að gera
opinberlega grein fyrir sjónarmið-
um sínum varðandi skýrslu ríkis-
endurskoðunar og vildi jafnframt
koma á framfæri atriðum sem ekki
er fjallað um í skýrslunni," sagði
Þorsteinn Ingólfsson sendiherra að
lokum. Hann tók við formennsku í
nefndinni af Sverri Hauki Gunn-
laugssyni síðastliðið sumar.
Morgunblaðið/Ingólfur Friðgeirsson
Jónas Guðmundsson og hvalurinn sem hann fékk á línuna. Með
á myndinni eru börn Jónasar, Guðmundur 9 ára og Líney 5 ára.
Eskifjörður:
Yeiddi
hval á línu
Eskifírði.
JÓNAS Guðmundsson, trillu-
karl á Líney SU 10 frá
Eskifirði, fékk heldur betur
vænan drátt á línuna hjá sér
nýlega. Þar var um að ræða
um það bil 300 kg höfrung
sem flækst hafði í línunni og
drukknað.
Jónas á Líney var úti á svo-
nefndri Gerpisröst þennan dag
og var afli fremur tregur á
línuna. Fékk hann aðeins um 300
kg af þorski þannig að aflinn
tvöfaldaðist að þyngd við þennan
eina „fisk“.
Hvalurinn, sem var um 2,6
metrar á lengd, var of stór til
að Jónas, sem rær einn á báti,
réði við að innbyrða hann. Greip
hann því til þess ráðs að draga
hvalinn til lands. Aðspurður
sagðist Jónas ætla að skera hval-
inn niður í frystikistuna hjá sér
og verður hann allur nýttur til
matar.
— Ingólfur
Viðskiptaráðherra hafnar báðum
tilboðunum í Utvegsbankann hf.
Nýtt útboð næsta vor eftir endurmat á stöðu bankans
JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra hafnaði í gær báðum tilboðunum
sem bárust í hlutabréf rikisins í Utvegsbankanum hf. og segir það
mat sitt að ekki hafi komið fram fullnægjandi tilboð í bréfin, sem
samræmist þeim forsendum sem lágu til grundavallar hlutafjárút-
boðinu og stefnu ríkisstjórnarinnar í bankamálum. Hann segist
væntanlega munu láta fara fram nýtt útboð næsta vor, sem verði
betur undirbúið og þar komi til greina að selja einnig hluta annarra
bankastofnana i eigu ríkisins.
BLAÐ B
Þegar Morgunblaðið spurði Jón
Sigurðsson hvers vegna þessi
ákvörðun væri tekin fyrst núna, eft-
ir að viðræður við tilboðsgjafana um
sölu bréfanna hafa staðið yfir í sum-
ar og haust, sagði hann að sér hefði
ekki tekist að ná samkomulagi við
þá sem tilboð gerðu í bréfin, um
sölu sem fullnægði þeim kröfum sem
hann gerði til þessarar hlutabréfa-
sölu. „Þeir vildu einfaldlega kaupa
meira, hvor um sig, en ég var tilbú-
inn að selja þeim hvorum um sig og
við gátum ekki náð samkomulagi á
þeim grundvelli sem áður hafði verið
auglýstur," sagði Jón.
Hann sagðist telja að hyggilegt
væri úr þessu að bíða niðurstöðu
matsnefndar um eigin§árstöðu
bankans við upphaf hlutafélagsins,
og einnig að sjá fyrsta ársreikning
hlutafélagsbankans og gera á þeim
grundvelli grein fyrir flárhagslegum
forsendum þessa fyrirtækis.
Jón sagðist ekki vera að reyna
að drepa þessu máli á dreif heldur
myndi hann reyna að undirbúa nýtt
hlutafjárútboð vandlega, setja meg-
Siðanefnd BÍ
fjallar um mál
Ríkisútvarpsins
SIÐANEFND Blaðamannafélags
íslands hefur ákveðið að fjalla
um fréttaflutning Ríkisútvarps-
ins um Stefán Jóhann Stefáns-
son, fyrrverandi forsætisráð-
herra.
Bjami Sigurðsson lektor, for-
maður siðanefndarinnar, sagði I
samtali við Morgunblaðið eftir fund
nefndarinnar í gær að nokkur mál
iægju nú fyrir nefiidinni og væri
því óvist hvenær mál Ríkisútvarps-
ins yrði tekið fyrir.
inreglur og undirbúa fjárhagslega
greinargerð til væntaniegra kaup-
enda svo þeir sjái hvað þeir eru að
kaupa en á það hafi skort síðast,
þegar bréfín voru boðin út á föstu
verði. Hann sagði koma til greina
að fela þeim fyrirtækjum sem starfa
á verðbréfamarkaðinum að selja
bréfin.
Kristján Ragnarsson sendi við-
skiptaráðherra bréf fyrir hönd 33
tilboðsgjafa í hlutaféð, þar sem hann
sagðist harma þessa afstöðu, um
leið og hann lýsti furðu sinni á að
viðskiptaráðherra teldi ekki tilboðið
samiýmast þeim forsendum sem
ríkisstjórnin ákvað _ að leggja til
grundvallar sölunni. I tilboði hópsins
hefði falist fyrirheit um sameiningu
tveggja banka við Útvegsbankann
og einnig hefði eignaraðild verið
dreifð milli margra óskyldra aðila
og ávallt legið fyrir að hópurinn
væri fús að draga úr hlutafjárkaup-
um sínum til að rýma fyrir fleiri
aðilum ef þess væri óskað. í þriðja
lagi hefði tilboð hópsins losað ríkis-
sjóð undan eignarhaldi á hlutafé í
banka sem ríkisstjómin hefði talið
brýnt að selja.
Kjartan Páll Kjartansson for-
stöðumaður fjármáladeildar Sam-
bandsins sagði að þar hefði ekki
verið tekin afstaða til þessarar sölu-
synjimar á kaupum Sambandsins og
samstarfsfyrirtækja þess á hluta-
bréfum Útvegsbankans hf. Bæði
stjómarformaður og forstjóri fyrir-
tækisins em erlendis en Kjartan
bjóst við að stjóm Sambandsins
myndi fialla um málið eftir helgina.
Hafrannsóknastofnun:
Lögð til tvöföldun
á loðnukvótanum
Heildarafli úr stofninum verður þá um 1,1 milljón lesta
ÍSLENZKIR fiskifræðingar hafa nú lagt til að loðnukvótinn verði
aukinn um 550.000 lestir. Áður hafði 500.000 lestum verið úthlutað,
en ákvörðunin nú kemur í kjölfar leiðangurs á loðnuslóðir í síðari
hluta nóvembermánaðar. Endanleg niðurstaða um úthlutun bíður
staðfestingar norskra fiskifræðinga og þess hve mikið Norðmenn
hyggjast taka af sínum hluta, sem er rúm 15%. 84% að minnsta kosti
koma til skipta hér á landi.
Við ákvörðun loðnuafla undanfar-
in ár hefur í upphafi vertíðar verið
miðað við niðurstöður leiðangurs,
sem farinn er á þeim tíma og þá
ákveðnu magni úthlutað til bráða-
birgða, Leiðangur í október hefur
svo í flestum tilfeilum ákvarðað end-
anlegt magn. Sá leiðangur misókst
í ár og annar var farinn í nóvem-
ber. Alls mældust nú 1.310.000
lestir af loðnu, þar af tæpar
1.280.000 af hrygningarloðnu.
„Miðað við að 400.000 lestir af loðnu
hrygni á vori komanda og reiknað
verði með sömu þyngdaraukningu
og dánarstuðlum og verið hefur,
svarar mælingin til að leyfa megi
veiðar á 550.000 lestum til viðbótar
þeim aflakvóta, sem þegar hefur
verið úthlutað. Hafrannsóknastofn-
un leggur hér með til að það verði
gert,“ segir meðal annars í skýrslu
stofnunarinnar til sjávarútvegsráðu-
neytisins.
Norðmenn og íslendingar skipta,
samkvæmt eldri samningi, veiðum
úr þessum loðnustofni þannig á milli
sín, að 15% komi í hlut Norðmanna,
en 85% í okkar hlut. Við fyrri úthlut-
un í haust var miðað við 500.000
lestir. Af þeim komu 84.000 í hlm
Norðmanna, en 416.000 í okkar hlut
Hlutur Norðmanna var þá heldui
meiri en venjuleg skipting segir ti
um, en það stafar af því, að vii
höfðum veitt umfram okkar hlut i
síðustu vertíð. Af þeim 550.000 lest
um, sem nú er lagt til að verð
úthlutað, koma 82.500 auk 1.00(
lesta í hlut Norðmanna en afgangur
inn í okkar hlut. Á þessari vertíi
hafa Færeyingar veitt 66.000 lesti:
með fulltingi Grænlendinga. Samtal:
verður afli úr þessum loðnustofni j
vertíðinni rúm 1,1 milljón lesta, þa
af koma tæpar 900.000 í okkar hlut
Á síðustu tveimur vertíðum va
heildarveiðin um 1,3 milljónir lesta.
Norðmenn hafa sýnt áhuga á þ\
að taka aflahlut sinn hér við land
vetur eins og undanfarin ár, en fr;
því hefur ekki verið gengið enn.