Morgunblaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987 39 Sovétríkin: Einn af ritstjórum Ogonjok staðinn að heimildafölsun Moskvu, Reuter. EINN ritstjóra vikuritsins Ogon- jok á á hættu að verða rekinn eftir að upp komst að tölur, sem hann birti í nýlegri grein í blað- inu, voru uppspuni frá rótum. Ogoitjok hefur verið einn ötulasti málsvari „glasnost", þeirrar stefnu sem kennd hefur verið við opnari umræðu í Sovétríkjunum. Ritstjóri erlendra frétta, Dmítríj Biijúkov, skrifaði grein um skoðana- könnun, sem hann sagði hafa verið framkvæmda í borginni Novosíbírsk. Samkvæmt meintri könnun áttu 30% aðspurðra að styðja svonefnda um- bótastefnu Kremlarbænda, 20% lögðust gegn henni, en 50% stóð á sama. Biijúkov beislaði skáldfákinn svo um munaði, því í greininni, sem birt- ist fyrir tveimur vikum, sagði hann að könnunin hefði verið gerð af sér- fræðingum EKO, hagfræðitímarits, sem gefið er út í tengslum við vísinda- akademíuna. Við eftirgrennslan kom hins vegar í ljós að ekki var flugufót- ur fyrir þessu. Blaðið baðst afsökunar á þessari fölsun ritstjórans og sagði að hann hefði fengið áminningu í flokksskír- teini sitt. Það er alvarlegasta áminning kommúnistaflokksins, þeg- ar brottvikning er undanskilin. Þá mun mjög vafasamt að hann haldi starfí sínu, en málið þótti enn alvar- legra en ella þar, sem greinin birtist í U.S. News and World Report í októ- ber sl. Vilja loka Krisljaníu Kaupmannahöfn, Reuter. DANSKA stjórnin hefur í hyggju að loka „frírikinu" Kristjaníu. Telur stjórnin að ástandið þar sé orðið það slæmt að ekki sé verj- andi að fólk búi við slíkar aðstæð- ur. Að sögn stjómarmeðlima er Kristj- anía sælureitur eiturlyfjasala, glæpamanna og skattsvikara. „Astandið er hræðilegt," sagði varn- armálaráðherra Danmerkur, Johan Collet, nýverið á þingi. „Þéssi félags- lega tilraun hefur mistekist. Morð, ofbeldi, eiturlyfjaviðskipti og önnur lögleysa ræður ríkjum," bætti hann við. Stjómarandstaðan er á móti því að Kristjanía verði lögð niður og hefur lagt til að staða „fríríkisins" verði styrkt. Þessar umræður um framtíð „frí- ríkisins" em ekki nýjár af nálinni. Eftir að Kristjanía var stofnuð fyrir sextán árum hefur hún verið þymir í augum margra sem telja hana lasta- bæli. Upp á síðkastið hafa þær raddir verið háværari sem vilja að Kristj- anía verði lögð niður. Strætisvagna- og sjúkrabifreiðastjórar neita að aka þangað og nýverið fannst lík sem múrað hafði verið í gólf. Nú búa í Kristjaníu um 900 manns, þar á meðal eru margir sem stunda atvinnu annars staðar en vilja þó hvergi annars staðar búa en í „fririkin". Segja íbúamir að vand- ræðin stafi af utanaðkomandi fólki og að fréttir af lifnaðarháttum íbúa séu ýktar. Þar fást fjarstýrðir bílar af öllum gerðum og í mörgum verðflokkum. Jeppar — Pickup — Buggi — Ralll — og kappakstursbílar, með til- heyrandi mótorum og fjarstýringu. Bllstjórar frá 3ja til 95ára, jafnt próflausirog með próf akabílum frá Tómstundahúsinu. Póstsendum — Góð aðkeyrsla, næg bilastæði. LauffijMpRHÚ SIÐHr vegi 164 simi 21907 Tækið sem kveður burt „snjóinn“ Fyrir nokkrum árum innleiddi JVC HQ myndbætirásirnar. Nú er þriðja kynslóð HQ tækja frá JVC komin og HR-D210, aðalmynd- bandstæki JVC í ár, hefur ótrúleg myndgæði. • Gpplausn þess er 3,2 MHz, en það samsvarar 256 láréttum lín- um, sem er hæsti línufjöidi sem mælst hefur í VHS frá upphafi. JVC kynnir Hátind VHS: HR-D210 Videobæklingar á íslensku • Besta fréttin er að upptökurnar með HR-D210 eru heiðskírar. VHS hönnuðurinn hefur afrekað að búa til tæki sem endanlega kveður burt „snjóinn". • Meðal eiginleika sem prýða HR-D210 er skráleitarkerfið Index Search System sem JVC hefur ný- lega gert að VHS staðli, en með því er leitun á myndböndum gerð mun þægilegri. • Með HR-D210 fylgir líka 6 síðna bæklingur með ítarlegum leiðbeiningum á íslensku. Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um HR-D210 eða önnur tæki frá JVC, hafðu þá samband og við sendum þér nýja JVC video- bæklinginn, sem er á íslensku. Tæknilegir yfirburðir og öryggið sem fylgir JVC gerir HR-D210 að einu mest eftirsótta myndbandstækinu í dag. Verð kr.41.700 stgr. kjör við allra hæfi HR-D210 og önnur JVC myndbandstæki fást í Reykjavík hjá ^KAUPSTAÐ ÍMJÓDD og Leysi Nóatúni auk Faco. Og úti á landi hjá hinum fjölmörgu JVC umboðsaðilum. JVC FACO Laugavegi 89 © 91-13008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.