Morgunblaðið - 09.12.1987, Side 4

Morgunblaðið - 09.12.1987, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987 Björgnn eignast nýtt sanddæluskip BJÖRGUN HF. gerði nýlega samninga við skipasmíðastöð Orenstein & Koppel í LUbeck í Þýskalandi um breytingu á flutningaskipinu Norbit Waal, sem Björgun hf. hefur fest kaup á, í sanddæluskip. Norbrit Waal, sem hlýtur íslenskt nafn nú um áramótin, var upprunalega smíðað í Selby á Eng- landi árið 1979 og hefur verið notað til flutnínga á steinefnum og málmgrýti. Skipið, sem afhent verður hinum nýju eigendum fullbúið í maílok 1988, flytur mest 1500 rúmmetra eða um 2250 tonn efnis. Skipinu er ætlað að vinna við öflun byggingarefna og skelja- sands — auk ýmis konar hafnar- verkefna. Fyrirhugað er að selja sanddæluskipið Perlu, en Sandey, sem breytt var í dæluskip 1962 hjá Oreinsteín & . Koppel, verður áfram gert út af Björgun hf. Þrátt fyrir sölu Perlu mun afkastageta dæluskipa Björgunar nærri tvö- faldast við tilkomu hins nýja skips. VEÐUR Kostnaðarverð skipsins að breyt- ingu lokinni eru rúmar 200 milljón- Norbrit Waal, sem Björgun hefur fest kaup á og Iætur breyta í sanddæluskip. Kostnaðarverða að breytingu lokinni verður 200 milljónir króna. Tollur ekki endurgreiddur af birgðum Fjármálaráðuneytið hafnar al- farið málaleitan stórkaupmanna um að endurgreiddur verði toilur af birgðum vara sem lækka um áramót. Karl Th. Birgisson upp- lýsingafulltrúi ráðuneytisins segir að slíkt sé út i hött. í fyrsta lagi sé það illframkvæmanlegt og í öðru lagi tíðkist ekki að endurgreiða eða endurkrefja mismun af birgðum þó tolla- breytingar kunni að eiga sér stað. Starfsmenn fjármálaráðuneytis- ins eiga annríkt þessa dagana. Fyrirhugaðar breytingar á aðflutn- ingsgjöldum, vörugjöldum og söluskatti hafa mikil áhrif á vöru- verð í landinu og fólk hringir mikið í ráðuneytið til að leita upplýsinga. Karl segir að áberandi séu fyrir- spurnir kaupmanna, meðal annars um áhrif breytinganna á verð ein- stakra vörutegunda. Meðal annars hefur verið spurt um breytingar á' verði húsgagna. Að sögn Karls breytist húsgagna- verð almennt ekki. Tollur og vörugjald af húsgögnum sem flutt eru frá löndum innan EFTA og EB breytist ekki og ekki heldur sölu- skattur. Aftur á móti lækkar lítil- lega tollur á húsgögnum sem flutt eru frá öðrum löndum. Verð á inn- lendri framleiðslu breytist ekki nema lækkun á aðföngum skili sér í verðinu. Þá hefur verið spurt um byssur. Tollur á þeim lækkar úr 80% í 30% og kemur það fram í útsöluverðinu. Verð á fatnaði breytist ekki, hvorki innfluttum né innlendum. Guðlaugur Bergmann kaupmaður í Kamabæ segir að viðskiptavinir spyiji mikið um þetta og hefði hann fengið þær upplýsingar að tolla- breytingarnar hefðu ekki áhrif á verð á fatnaði. Egg eiga að hækka um 25% vegna þess að söluskattur leggst á verð þeirra. Aftur á móti hækka kjúklingar ekki vegna þess að fyrir- hugað er að lækka kjarnfóðurgjald- ið. Aðspurður hvemig þetta yrði útfært sagði Karl að ekki væri búið að móta reglur um það, en ákveðið væri að fóðurgjaldslækkunin yrði endurgreidd til framleiðenda ali- fugla- og svínakjöts, en ekki eggjabænda. Menn frá fjármála- og landbúnaðarráðuneyti eru að semja reglur um framkvæmdina. VEÐURHORFUR t DAG, 9.12.37 YFIRLIT A hádegl I gmr: Yfir Bretlandseyjum er 1029 míllibara hæð en hægfara 910 millibara lægð um 700 km suður af Hvarfi. Lægðar- drag noröaustur um vestanvert Grænlandshaf. Hlýtt verður ófram, en þó mun kólna nokkuð ó Norðaustur-landi þegar líður á nóttina. 8PÁ: í dag verður vestan- og suðvestankaldí um sunnanvert landið, en hæg breytileg átt og slðar norðaustankaldí um landfð norðan- vert. Rigning eða súld á Vestur- og Suövesturlandi, en þurrt víðast ó Suðausturlandi. Norðaniands verður sennilega slydda I fyrramól- ið, en él síðdegis. Hiti 0 til 8 stig. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA FIMMTUDAGUR OG FÖSSTUDAGUR: Breytileg átt og víöast úr- komulaust. Hiti 0—5 stig víðast hvar. FÁKN: 0 a * HáHskýjaó * Heiðskírt Lóttskýjað , Skýjaö Alskýjaö x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rlgning / / / * / # / * / * Sfydda / * / # # * * * * * Snjókoma # # * ■J 0 HKastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir V É' == Þoka = Þokumóða ’, » Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 (gær að ísl. tíma hW veður Akureyrl 10 dqijað Reykjavlk 8 þokumóða Bergen Helsinkl Jan Mayen Kaupmannah. Naresarsauaq Nuuk Osló Stokkhólmur Þórshðfn Algarve Amsterdem Aþena Bvciiona Berlln Chicego Ferreyjar Frankfurt Glaagow Hamborg Las Palmas London LosAngefes Lúxamborg Madrfd klallAvrta IVlBlfOs vv Montreal NewYork Parfs R6m Vin Waahington >IIImmIm — wmnipeg Valencia *2 skýjsð ♦10 snjókoma 0 snjókoma 1 léttskýjað 6 rfgnlng +8 skafrenningur ♦2 skýjað ♦6 léttskýjað ...1..r^s. 16 súld 0 mlstur 18 skýjað 16 héffskýjað ♦2 mistur 6 þoka 7 skýjað ♦2 heiðskírt ♦2 þoksésið.klst. ♦2 skýfað 20 léttskýjað skýjað alakýjað ♦3 heiðsklrt 10 16 18 úrkomaigr. +7 þokumóða 2 Skýjað 0 léttskýjað 16 Hgnlng ♦2' hálfskýjað 2 alskýjað snjókoma 4 11 16 hátfskýjað / / / / / 5 9 / / / / DAG kl. 12.00:, ', ’, Heimíld: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.16 I gœr) Hreinlætistæki með afslætti ÝMSAR byggingavöruverslanir bjóða nú ,jólaafslátt“ af hrein- lætis- og blöndunartækjum, en einmitt þessar vörur lækka mikið í verði um áramótin. Bygginga- vörudeild SÍS býður 15% afslátt af þessum vörum og sagði Mark- ús Stefánsson verslunarstjóri að það væri í og með gert vegna tollalækkunarinnar um áramót. Markús sagði að verslunin gæfi oft afslætti fyrir jól og áramót. Afslátturinn nú væri þó einnig gef- inn vegna tollabreytinganna. Hreinlætis- og blöndunartæki væru meðal þeirra tegunda sem lækkuðu mest og væri reynt að halda uppi einhverri sölu á vörunum með þessu tilboði. Sagði Markús að mikil óvissa væri með áhrif tollabreyting- anna um áramót á hinar ýmsu tegundir byggingavara og ómögu- legt fyrir menn að átta sig á þeim fyrr en reglugerðin hefði verið gef- in út. Vesalingarnir í Þjóðleikhúsinu: Mikið selt í forsölu FORSALA á söngleikinn „Vesal- ingarnir", jólaleikrit Þjóðleik- hússins, hefur verið óvenju mikil, að sögn Signýjar Pálsdóttur, markaðsstjóra Þjóðleikhússins. Nær uppselt er á fyrstu átta sýn- ingarnar og aðeins er hægt að fá örfáa miða á efri svölum á fyrstu sýningarnar eftir áramót. Mikið hefur einnig verið selt á aðrar sýningar, en söngleikurinn verður frumsýndur á annan jóla- dag, 26. desember. Þegar hafa selst 7000 miðar, og sagði Signý að mikið væri um að hópar og starfsmannafélög pöntuðu miða á Vesalingana. „Þetta er met- forsala, en við höfum aldrei áður verið með þetta margar sýningar í sölu í einu, og forsalan byrjar líka óvenju snemma. Það er tölvuvæð- ingin sem gerir okkur þetta kleift.“ Reiknað er með að hægt .verði að hafa 40 sýningar af Vesalingunum, en sýningum lýkur um miðjan mars. Þrjátíu leikarar fara með hlut- verk í söngleiknum, og þrjátíu manna hljómsveit sér um undirleik, en leikstjóri er Benedikt Ámason. Nýjar reglur Evrópubandalagsins: Engin áhríf á far- gjöld Flugleiða Framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins samþykkti á dögunum nýjar reglur sem meðal annars heimila flugfélögum að ráða sjálf fargjöldum sínum. Er talið að þetta hafi i för með sér lækkun á flugfargjöldum með vorinu, eins og kom fram i Morg- unblaðinu á þriðjudag. Steinn Logi Bjömsson fulltrúi forstjóra Flugleiða sagði f samtali við Morgunblaðið að ekki væri búist við að þessar reglur ættu eftir að verða til þess að flugfargjöld milli íslands og annarra landa lækkuðu. Flugfargjöld Flugleiða væru þegar lægri en gengur og gerist hjá flug- félögum í Evrópu. Reglumar og þær verðlækkanir sem koma í kjölfar þeirra hefðu þó hugsanlega áhrif á samkeppni á leiðum eins og milli Oslóar og Stokkhólms og milli Glasgow og Kaupmannahafnar. Það hefði þó ekki mikil áhrif á rekstur félagsins vegna þess hve flugfargjöld á milli þessara staða er lltill hluti af heild- artekjum félagsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.