Morgunblaðið - 09.12.1987, Page 20
GOTT FÖLK / SÍA
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
Fyrir unga fólkið
1, skór, snyrtivörur og íleira í
Trefill 199-
HAGKAUP
Kuldajakkl 3,999”
Peysa 999-
Kvenbuxur
Miss Selfridge
frá 99-
nnn Bjöm Borg
999“ gjafakassi 1.255“
Kvenskór 1.599-
BjömBorg
gjafakassi 1.009“
Karlmannaskór 1.899-
HAGKAUP_
Reykjavík Akureyri Njarðvík 91-30890
Matreiðslu-
skóli stofn-
settur í
Hafnarfírði
MATREIÐSLUSKÓLI Hilmars
B. Jónssonar tekur til starfa að
Bæjarhrauni 16, Hafnarfirði, í
febrúar næstkomandi. Skólinn
mun bjóða upp á stutt dag- og
kvöld sýnikennslunámskeið, en
einnig lengri verkleg námskeið
fyrir alla aldurshópa.
Hilmar B. Jónsson og Elín Kára-
dóttir, eiginkona hans, stofnuðu
tímaritið Gestgjafann, tímarit um
mat, fyrir sex árum og hafa starfað
að útgáfu þess síðan. Þau seldu
Gestgjafann hins vega nýlega til
þess að geta snúið sér að stofnun
og rekstri matreiðsluskóla, að því
er segir í fréttatilkynningu. Þar
segir ennfremur að Hilmar og Elín
ætli að fá til sín marga leiðbeinend-
ur á hinum ýmsu sviðum matreiðslu
og matargerðar, svo og öllu því sem
lýtur að borðhaldi. Námskeið skól-
ans verða auglýst fljótlega eftir
áramót.
Aðventuhá-
tíð í Reyk-
hólakirkju
Miðhúsum, Reykhólasveit.
ÞRIÐJA sunnudag í aðventu,
sunnudaginn 13. desember, verð-
ur aðventuhátíð í Reykhóla-
kírkju.
Gestur hátíðarinnar verður
Sveinn Guðbjartsson, forstjóri Sól-
vangs í Hafnarfírði, og predikar
hann en sóknarpresturinn, sr. Bragi
Benediktsson, þjónar fyrir altari.
Eftir guðsþjónustu gengst kvenfé-
lagið Liljan fyrir kaffisölu til ágóða
fyrir dvalarheimilið Barmahlíð á
Reykhólum en nú er senn lokið
fyrsta áfanga heimilisins. Fyrstu
íbúar þess flytja þar inn upp úr
áramótum.
Sóknarprestur hvetur til góðrar
mætingar úr öllum hlutum Reyk-
hólahrepps til styrktar þessu góða
málefni.
— Sveinn.
Gœði
i Jyrirrúmi
Þessi fallegi sími er hannaður af hinu
rómaða fyrirtœki Bang og Olufsen.
Beocom er tónvalssími með 11 númera
minni, sjálfvirkt endurval og á honum er
spjald með minnisblokk. Undir spjaldinu
er símaskrá fyrir númer í minni og leið-
beiningará íslensku um notkun símans.
Beocom ersíminn fyrirþá, sem vilja
nútíma tœkni í fallegri hönnun.
PÓSTUR OG SÍMI
Beocom simann fœrðu í söludeildum
Pósts og síma íKringlunni, Kirkjustræti og
á póst- og símstöðvum um land allt.