Morgunblaðið - 09.12.1987, Side 44

Morgunblaðið - 09.12.1987, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987 AKUREYRI Ungur maður slasaðist í útaf- keyrslu í Olafsfjarðarmúla RÚMLEGA tvítugur piltur frá Sauðárkróki missti stjórn á bíl sínum í Ólafsfjarðarmúla á ell- efta tímanum í fyrrakvöld með þeim afleiðingnm að bíllinn fór fram af Múlanum og hafnaði í fjöruborðinu, 150 til 160 metrum neðar, gjörónýtur. Svo virðist sem ökumaðurinn, sem reyndist vera einn i bifreiðinni, hafi kast- ast út úr bifreið sinni ofarlega í Múlanum sem mun hafa orðið honum til lifs, að sögn björgunar- sveitarmanna. Hjólförin lágu fram af Apótekari Dalvíkinga Óli Þ. Ragnarsson sem var á leið frá Dalvík til ÓlafsQarðar tók fyrstur eftir hjólförum í Múlanum sem bentu til útafkeyrslu. Hann sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa haldið rakleiðis áfram til Ólafsfjarð- ar án þess að stöðva bíl sinn enda hefði ekkert verið hægt að sjá í myrkrinu. „Bílljósin hjá mér lýstu beint eftir hjólförunum og beint fram af. Örlítill snjóruðningur var á vegarbrúninni og sá ég hvar förin lágu alveg í gegnum ruðninginn. Ég gerði lögreglunni á Ólafsfirði strax viðvart og fór ég með henni á slysstað auk þess sem björgunar- sveitarmenn úr Tindi voru kallaðir út. Komið var á vettvang um kl. 23.20. Sextíu til áttatíu metrum neðan við veginn í snarbröttum Múlanum fannst meðvitundarlaus ungur maður, höfuðkúpubrotinn og mikið slasaður. Björgunarsveitar- menn bundu kaðal í bifreið sveitar- innar og sigu niður í Múlann með sjúkrakörfu þar sem ókleift er að fóta sig á þessum stað vegna bratta. Okumaðunnn óþekktur Leit var haldið áfram eftir að hinum slasaða hafði verið komið fyrir í sjúkrabíl þar sem enginn manna á slysstað þekkti til öku- mannsins. Læknir frá Ólafsfírði kom á staðinn með sjúkrabílnum og var haldið með manninn á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann liggur enn þungt haldinn. Morgunblaðið/Guðmundur Svansson Flak bifreiðarinnar í fjörunni. Varla er hægt að greina að þetta hafi verið bifreið. mun það hafa tekið nokkurn tíma, að sögn lögreglunnar. Bifreiðin hafði nýlega verið seld frá Akur- eyri og var á A-númeri, en skráður eigandi var kona, búsett í Reykjavík. Aðalslysagildran í Múlanum Bifreiðin var af gerðinni Honda Civic árgerð 1980. Svo virðist sem ökumaður hafi verið á leið frá Akur- eyri til Sauðárkróks og valið sér leiðina fyrir Ólafsfjarðarmúla og ætlað yfir Lágheiði á áfangastað. Óhappið varð í Syðra-Drangsgili, einmitt á þeim stað þar sem áður höfðu tvö ökutæki farið fram af fyrir nokkrum árum. I fyrra óhapp- inu létu feðgar lífið í Múlanum og í því síðara fór jarðýta fram af en ökumaður bjargaðist. A þessum stað er aðalslysagildran í Múlanum, en þessi vegarkafli verður úr sög- unni með tilkomu nýrra jarðganga í gegnum Ólafsfjarðarmúla. Ólafsfjarðarmúlinn séður af sjó. Bifreiðin hrapaði niður 150-160 metra og ökumaðurinn fannst á grastó rétt fyrir ofan þverhnýpið. Þrír björgunarsveitarmenn fóru frá ljóst var að ekki höfðu fleiri verið Ólafsfirði á slöngubát að bílflakinu, í bílnum var farið að grennslast sem hafnaði í fjöruborðinu. Þegar fyrir um hver hinn slasaði væri og Við komum fyrst að frammðumii og Ktlu neðar lá maðurinn — segir Guðni Aðalsteinsson formaður bj örgnnar s veitarinnar Tinds „Björgunarsveitin var ræst út um kl. 23.00 eftir að lögreglunni hafði verið gert viðvart um hjól- förin. Krapi og hálka var á veginum þó óvíst sé enn með hvaða hætti óhappið bar að. Þá voru nokkrir bátar fengnir til að fara út og lýsa upp Múlann á meðan við vorum að leita,“ sagði Guðni Aðalsteinsson, formaður björgunarsveitarinnar Tinds, í samtali við Morgunblaðið. „Ökumaðurinn hefur misst stjóm á bíl sínum þama í beygjunni ann- aðhvort vegna hálku eða þá hann hefur ekki verið nógu kunnur að- stæðum í Múlanum. Hann var búinn að beygja inn í Syðra-Drangsgil og var að fara út úr því aftur er hann lenti út af. Það veit hinsvegar eng- inn hvenær óhappið varð eða hve lengi hann hafði legið þama meðvit- undarlaus," sagði Guðni. Hann sagði að efst í hlíðinni hefðu björgunarsveitarmenn komið að brotinni framrúðunni og litlu neðar hefði maðurinn legið í snjón- um. „Við reyndum að hlúa að honum þar til læknirinn kom með sjúkrabílnum og þá var hann dreg- inn upp í börunum og fluttur inn á sjúkrahúsið. Við bundum kaðla í björgunarsveitarbílinn og létum okkur síga niður í Múlann og höfð- um síðan annan kaðal til að draga upp sjúkrabörumar. Það er engan veginn hægt að gera sér grein fyr- ir því hvort ökumanninum tókst að koma sér út úr bílnum eða hvort hann hefur kastast út eftir að framrúðan fór úr.“ Guðni sagði að bíllinn væri ótrú- legur á að líta. Hann hefði stungist niður hrikalegt bjargið, rúllað niður Morgunblaðið/Guðmundur Svansson Félagar úr björgunarsveitinni Tindi kanna ástand bílflaksins í fjöru- borðinu. hlíðina og alla leið niður í fjöru og væri nú ein málmhrúga. Sigutjón Magnússon úr björgun- arsveitinni er einn þremenninganna er fór sjóleiðina að bílflakinu. „Að- koman var vægast sagt hroðaleg og hefði ömgglega enginn lifað af að fara þarna niður með bílnum. Billinn er nú um það bil 20 sm hár og um tveggja metra langur og er afturendinn og mælaborðið nú á svipuðum stað. Það er ekki einu sinni hægt að sjá hvaða bíltegund þetta var. Það verður örugglega ekki reynt að ná honum upp,“ sagði Sigutjón. Rjúpna- veiðimenn Eigum öryggisblys í átta skota pakkningum. Póstsendum um land allt. SANDFELL HF Veiðarfæri - útgerðarvörur v/Laufásgötu, sími 96-26120 TÍSKU- UÓS í AKURUÓSI AKURVÍK Allt fyrir bílinn Látið yfirfara bílinn fyrir veturinn. Vandið valið - Við vöndum verkin. Við Tryggvabruul. Akureyri - Sími 22700 þÓRSHAMAR HF. . er\ BÓKVAIi KOMPAN SKIPAGÖTU 2 • AKUREYRI SÍMI 96-2 59 17 reiknné'AR örbvlgjuofn ar íHIf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.