Morgunblaðið - 09.12.1987, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
53
Stutt en líflegt jafntefli
Skák
Margeir Pétursson
21. einvígisskák Kasparo'vs og
Karpovs í Sevilla á Spáni lauk á
mánudagskvöldið með jafntefli.
Staðan er því enn jöfn, báðir
hafa hlotið tíu og hálfan vinning.
Með hverju jafntefli færist Ka-
sparov nær því að verja heims-
meistaratitil sinn, því til þess
nægir honum 12-12 jafntefli.
Karpov hafði hvítt í skákinni og
á nú aðeins eftir að hafa hvítt í
einni skák til viðbótar, þeirri
næstsíðustu. Tími áskorandans
til að vinna skák hefur því senn
runnið sitt skeið og sumir i Se-
villa eru jafnvel á þeirri skoðun
að hann hafi misst af lestinni,
pressan á hann þegar svo stutt
er eftir, verði óbærileg. Það má
benda á að í heimsmeistaraein-
vígum hefur þeim sem þurft
hefur að vinna síðustu skákina,
aidrei tekist það.
í skákinni kom upp mjög hvasst
afbrigði af Griinfeldsvörn. Karpov
hafí öflugt frípeð, en Kasparov hins
virkt spil með léttum mönnum
sínum. I 24. leik varð Karpov að
fóma skiptamun fyrir peð og vei
staðsettan riddara svarts. Það kom
mörgum í Sevilla á óvart að Kasp-
arov skyldi vilja þráleika, þar sem
bætur Karpovs fýrir skiptamuninn
voru óljósar, þar á meðal Helga
Ólafssyni, stórmeistara. Eganov,
sem er í forsvari fyrir lið heims-
meistarans á Spáni, sagði hins
vegar við blaðamenn sem furðuðu
sig á friðsemd Kasparovs: „Er ekki
hugsanlegt að hann hafi séð meira
í stöðunni en þið?“
Þegar Kasparov bauð jafntefli í
28. leik, hugsaði Karpov sig um í
tíu mínútur áður en hann þáði boð-
ið. Eftir skákina skoðuðu meistar-
amir stöðuna í u.þ.b. fimm mínútur
og bendir það til þess að þeir hafi
lagt úlfúð sína til hliðar í bili.
Þegar lokastaðan I 21. skákinni
er grannt skoðuð kemur það ekki
mikið á óvart að Kasparov hafi
ekki viljað tefla á tvær hættur.
Frípeð Karpovs er mjög sterkt og
svarta liðið meira og minna upptek-
ið við að stöðva það.
22. einvígisskákina á að tefla í
dag, en báðir eiga einn frest eftir
og það er ekki ólíklegt að þeir noti
þá næstu daga. Fresti hvorugur,
lýkur einvíginu á mánudaginn kem-
ur, en það gæti dregist til föstu-
dagsins 18. desember. Á meðan
bíða allit áhugamenn spenntir eftir
því hver verður heimsmeistari fram
til 1990.
21. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Griinfeldsvörn
1. d4
í 17. og 19. skákunum hóf
Karpov taflið með 1. Rf3, vafalaust
í því skyni að sniðganga Griinfelds-
vörnina.
1. - Rf6 2. c4 — g€ 3. Rc3 - d5
4. Rf3 - Bg7 5. Db3
Rússneska afbrigðið sem Karpov
beitti einnig í 15. skákinni. Hann
notaðist að staðaldri við það í ein-
víginu í fyrra, með góðum árangri.
Kasparov svarar eins og í 15. skák-
inni:
5. — dxc4 6. Dxc4 — 0-0 7. e4 —
Ra6 8. Be2 - c5 9. d5 - e6 10.
0-0 — exd5 11. exd5 — Bf5 12.
Hdl - He8 13. d6 - h6 14. Bf4
í 15. skákinni lék Karpov 14. h3
- Rb4 15. Bf4 - Rd7 16. Hd2,
en svartur náði öflugu mótspili með
peðaframrás á drottningarvæng:
16. - a6 17. Db3 - b5 18. Ddl -
c4. Endurbót Karpovs nú felst í því
að hann vinnur tíma með því að
spara sér leikinn h2-h3. Samt sem
áður tekst svarti að ná mótspili:
14. - Rd7 15. Hd2 - Rb4 16.
Db3 - Be6 17. Bc4 - Rb6 18.
Bxe6 - Hxe6 19. a3?!
Afmæliskveðja:
Guðfinnur Jónsson
í dag, 9. desember, er vinur okkar
hjóna Guðfinnur Jónsson, Sogavegi
176, Reylqavík, 75 ára.
Kynni okkar af Guðfinni eru ekki
löng en hann kom til lands í Vest-
mannaeyjagosinu 1973 og höguðu
örlögin því svo að hann kom með
hópnum sem kom hingað á Seltjam-
araes. Svo vel vildi til að hægt var
að útvega Guðfinni og syni hans
húsnæði og hóf Guðfínnur skömmu
síðar störf hjá Seltjamamesbæ og
hefur starfað hjá okkur síðan.
Guðfinnur er búfræðingur frá
Hvanneyri og hefur þekking hans
á ræktun komið að góðum notum
í starfi hans hér í bæ.
Vandfundinn er betri og sam-
viskusamari starfsmaður en Guð-
fínnur og má telja þá daga með
fíngmm annarrar handar, sem hann
hefur verið forfallaður frá vinnu
undanfarin 15 ár. Guðfinnur lenti
í alvarlegu bílslysi fyrir 6 árum
síðan og áttu fæstir von á að sjá
hann vinnufæran eftir það en á
fætur komst hann og af sínum al-
kunna dugnaði hélt hann áfram
störfum.
Ekki hafði Guðfinnur lengi dvalið
hér á meginlandinu þegar hann fór
að huga að eigin húsnæði og keypti
hann fyrir þá feðga íbúð að Soga-
vegi 176, Reykjavík og nú nýlega
allt húsið.
Á þessum tímamótum vil ég fyr-
ir hönd samstarfsmanna svo og
fjölskyldu minnar óska vini mínum
Guðfinni og bömum hans til ham-
ingju með afmælið.
Sigurgeir Sigurðsson
Bifhjól fyrir bifreið
BIFHJÓL og bifreið skullu
saman í Lækjargötu á laugar-
dag. Farþegi á hjólinu slasaðist
lftillega.
Slysið varð um kl. 20.50 á laug-
ardagskvöld. Bifhjólinu var ekið
norður Lækjargötu og beygt niður
Það kann að vera að Karpov
hafi nú þegar haft þann möguleika
í huga að fórna skiptamun á d3,
honum getur varla hafa yfirsézt
sjálfsagt og öflugt svar svarts. Það
hefur hins vegar aldrei þótt góð
latína að þvinga andstæðinginn til
að leika beztu leikjunum. Eg held
að Kasparov hefði leikið 19. — Rd3
hvort sem hann væri þvingaður til
þess eða ekki. Það var þó allt ann-
að en auðvelt að leika í stöðunni á
hvítt. 19. Rb5 er t.d. svarað með
19. - He4! 20. Bg3 - Rc4. Hinn
hlutlausi leikur 19. Bg3 var því ef
til vill beztur.
19. - Rd3! 20. Bg3 - c4 21. Dc2
- Hc8 22. Hadl - Dd7 23. h4 -
f5!
Hvítur verður nú að láta af hendi
skiptamun, því svartur hótaði 24. —
f4 og hvíta frípeðið feliur.
24. Hxd3 — cxd3 25. Dxd3 — Rc4
26. Dd5 - Rb6
Það er ljóst að hvítur hefur bæt-
ur fyrir skiptamuninn eftir 26. —
Rxb2 27. Hel - Hce8 28. Rb5, en
hvort þær eru nægilega miklar er
erfitt að segja til um. Heimsmeist-
arinn telur einn fugl í hendi betri
en tvo í skógi og reynir ekki að
vinna taflið.
27. Dd3 - Rc4 28. Dd5 - Rb6
í þessari stöðu þáði Karpov jafn-
teflisboð heimsmeistarans.
Skólabrú. Þá varð það fýrir bif-
reið sem ók Lækjargötu í suður.
Ökumaður bifhjólsins slapp án
meiðsla, en ung stúlka, sem var
farþegi hans, var flutt á slysa-
deild. Meiðsli hennar munu þó
vera lítil.
SKAKSTRIÐ
YIÐ
PERSAFLOA
Bókin er komin
í bókaverslanir
Frásögn af mcrkum atburði í íslenskri skáksögu, scm er ævintýrið mikla við Persaflóa
er íslenska Ólympíuskáksveilin náði 5. sæti í keppni 108 þjóða um hinn eftirsótta
Ólympíutitil. Ekki þarf að fjölyrða um það, að þessi árangur er sá besti sem íslensk
skáksveit hefur náð og staðfestir rækilega að íslendingar eru mcðal sterkustu skák-
þjóða heims.
Þótt íslenska þjóðin fylgist vel með skákmeisturum sínum og sé ekki líkleg til að
gleyma afrekum þeirra, ætti það ekki að spilla fyrir að fá í hendumar með þessari
bók skemmtilega og lifandi lýsingu á Ólympíumótinu frá fyrstu hendi, én höfundar
bókarinnar voru í miðri hringiðu atburðanna í Dubai.
Jón L. Ámason, stórmeistari og þriðjaborðsmaður íslensku Ólympíusveitarinnar, skrif-
ar meginhluta bókarinnar. Jón er löngu kunnur fyrir skemmtilegan ritstíl, en hann
hefur um langt skeið skrifað fasta þætti um skák í DV.
í fyrri hluta bókarinnar lýsir hann aðdraganda mótsins og undirbúningi íslensku skák-
sveitarinnar. Þá tekur við ferðalýsing og frásögn af daglegu lífi á
Ólympíumóti í ákaflega framandi umhverfi. Frásögnin er krydduð gamansömum lýs-
ingum óvæntra atvika á þessum ókunnu slóðum. í síðari hluta bókarinnar er mótinu
sjálfu ítarlega lýst frá umferð til umferðar og skákir íslenska liðsins birtar og margar
þcirra skýrðar af keppendum sjálfum.
Liösstjóri íslenska liðsins, Kristján Guðmundsson, kemur hér til liðs við Jón L. og
lýsir gangi mála á skákstað, er spennan var í hámarki. Mikill fengur er að þætti
Kristjáns þar sem hann lýsir undirbúningi og hemaðaráætlun hverrar
viðureignar. Af þeim skrifum má Ijóst vera, hve mikils virði samstaða og
jafnvægi hugans hjá liðsmönnum er í þcim hildarleik, sem Ólympíumótin em.
Loks em valdar skákir annarra en íslendinganna úr hverri umferð skýrðar og skrár
og fróðleikur um fyrri Ólympíumót birtast í bókarlok.
Vönduð og eiguleg bók. Tilvalin jólagjöf til þeirra, er
gleðjast yfir velgengni íslendinga á sviði skáklistarinnar.
Stuðningur við góðan málstað.
W
X
SKAKSAM bainid
ÍSLANDS
STOFNAÐ 1925
Laugavegi 71, pósthólf 1674,121 Reykjavík,
sími 27570 kl. 14-17 virka daga.
Ct !) PIOIMEER’ SJÓNVÖRP