Morgunblaðið - 09.12.1987, Side 80
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ISLANDS HF.
^ . - - . . ir^ir ^ A*. I ALHLIÐAPRENTÞJÓNUSTA |
#1f0ítllPtoPW ISGuðjónáhf.
' 91-2 72 33 I
L
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Hitinn fór í 10 stig á Norðurlandi í gær:
Auð jörð um allt
land og ekki þarf
að fóðra fuglana
VEÐURBLÍÐUNA í vetur má
m.a. marka af því að Katla hf.
hefur aðeins selt 2 tonn af fugla-
fóðri það sem af er vetrar i stað
20 tonna á sama tima i fyrra.
Katla er langstærsti framleið-
andi fuglafóðurs hér á landi og
hefur nýverið keypt ný tæki til
að mala og blanda kommat ofan
í smáfuglana, sem ættu að geta
afkastað 10 tonnum á dag, en
ekki hefur reynt á þau ennþá.
„Ástæðan fyrir því að það hefur
IWfer lítið selst af fuglafóðri er fyrst og
fremst sú, að það eru engir fuglar
til að fóðra,“ sagði Kristján Haukur
Skarphéðinsson, líffræðingur hjá
Guðmundur H.
Garðarsson:
Reynt verði
jslö þróa sig
frá kvótakerfi
„Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherslu á að svo fljótt sem unnt
* er verði reynt að þróa sig út úr
kvótakerfi í fiskveiðum," sagði
Guðmundur H. Garðarsson í
umræðum um kvótafrumvarpið
í efri deild Alþingis í gær. Guð-
mundur sagði einnig að margir
sjálfstæðismenn væru þeirrar
skoðunar að gildistími kvóta-
frumvarpsins, þ.e. 4 ár, væri of
langur.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
sagði að á gildistíma kvótakerfis-
ins, frá 1984, hefðu verið veidd 250
-þúsund tonn af þorski umfram það
sem stjómvöld hefðu ákveðið.
Karl Steinar Guðnason sagði að
meðan kvótakerfíð hefði verið við
lýði hefði skipastóll Suðumesja-
manna minnkað um 10-12 skip.
Sjá nánar á bls. 45.
Náttúrufræðistofnun. Hann sagði
að það væm einkum snjótittlingar,
sem fólk fóðraði á veturna, og þeir
kæmu ekki til byggða nema jarð-
bönn væru á láglendi. í veðurblíð-
unni í vetur væri hins vegar nóg
af fræjum og heymoði fyrir fuglana
og þeir hefðu því nóg æti úti á víða-
vangi og hefðu ekkert að sækja í
kaupstaðinn. Þá geta kviknað flug-
ur í þara í fjörunum á sólskins-
dögum hvenær sem er vetrar og
sækja ýmsir fuglar, svo sem þrestir
og starrar, í þær.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um er nýliðinn nóvember sá hlýjasti
í Reykjavík síðan 1968, og sá átt-
undi hlýjasti á öldinni. Á Akureyri
var nóvembermánuður sá næsthlýj-
asti á öldinni, en þar var meðal-
hitinn 3,9 stig, sem er 3,7 stigum
yfír meðallagi. Nú er enginn snjór
á láglendi á landinu, að sögn Magn-
úsar Jónssonar, veðurfræðings, og
í gær var 7—9 stiga hiti víða um
land, og 10 stiga hiti sums staðar
á Norðurlandi, sem er svipað veður
og í septembermánuði.
DAGAR
TIL JÓLA
Morgunblaðið/Guðmundur Svansson
Félagar í Björgunarsveitinni Tindi á Ólafsfirði kanna ástand flaksins í fjöruborðinu, 150-160 metr-
um fyrir neðan veginn.
Ólaf sfjarðarmúli:
Ungur maður mikið
slasaður eftir bílveltu
UNGUR maður frá Sauðárkróki
liggur nú stórslasaður í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
eftir að hann missti stjórn á bif-
reið sinni i fyrrakvöld í Ólafs-
fjarðarmúla. Bifreiðin hafnaði
gjörónýt í fjöruborðinu, sem er
160 til 160 metrum fyrir neðan
veginn. Það vildi ökumanninum
til happs að hann kastaðist út
60 til 80 metrum fyrir neðan
veginn. Lá hann þar meðvitund-
arlaus og höfuðkúpubrotinn er
björgunarsveitarmenn frá Ól-
afsfirði komu að honum á tólfta
timanum þá um kvöldið. Ungi
maðurinn var heldur á batavegi
í gærkvöldi.
Óhappið varð í svokölluðu
Syðra-Drangsgili en þar hefur orð-
ið dauðaslys. Þama hafa einnig
orðið mörg óhöpp og er gilið aðal-
slysagildran í Múlanum, að sögn
lögreglu. Vegarkaflinn verður hins-
vegar úr sögunni með tilkomu
nýrra jarðgangna um Múlann.
Apótekari Dalvíkinga, Óli Þ.
Ragnarsson, átti leið um Múlann
um kvöldið og sá hann hjólför í
snjóföl á vegarbrúninni sem bentu
til útafaksturs. Án þess að stöðva
bílinn hélt hann rakleiðis á lög-
reglustöðina á Ólafsfírði til að gera
viðvart. Þá nutu björgunarsveitar-
menn aðstoðar báta við að lýsa upp
Múlann á meðan á leit stóð.
Sjá nánar á Akueyrarsíðu á bls.
44.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar:
4
Morgunblaðið/Bjami
Þorgils Óttar fyrirliði íslands
skorar mark í gærkvöldi.
Heimsmeist-
arar lagðir
íslendingar unnu heimsmeist-
ara Júgóslavíu í landsleik í
handknattleik í gærkvöldi
25:22. Þetta er þriðji sigur
íslands yfir heimsmeisturun-
um á þessu ári. Þjóðirnar
mætast aftur í Laugardalshöll
í kvöld.
Kostnaður við flugstöð fór
871 milljón fram úr áætlim
Ekki réttur samanburður segir byggingamefnd sem telur kostnað fara 3% fram úr áætlun
SKÝRSLA ríkisendurskoðunar um byggingu flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar var lögð fram á Alþingi í gær, en í byijun ágústmánað-
ar sl. óskaði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, eftir því,
að gerð yrði sérstök úttekt á byggingarkostnaði flugstöðvarinnar.
Niðurstaða ríkisendurskoðunar er sú, að framkvæmdakostnaður við
fullgerða flugstöð nemi 2 milljörðum og 992 milljónum króna, þegar
hann hefur verið framreiknaður til verðlags í september 1987, en
upphafleg kostnaðaráætlun hafi numið 2 milljörðum 121 milljón
króna, framreiknuð með sama hætti. Mismunur nemi 871 milljón
króna. Byggingarnefnd flugstöðvarinnar sendi frá sér í gær athuga-
semdir vegna skýrslu ríkisendurskoðunar og segir þar, að ekki sé
rétt að bera byggingarkostnað saman við upphaflega áætlun heldur
verði að taka tillit til breytinga á mannvirkinu meðan á framkvæmd-
um stóð. Miðað við slíkan samanburð hafi byggingarkostnaður farið
3% fram úr áætlun.
í niðurstöðum ríkisendurskoðun-
ar segir, að fímmti og stærsti
verkáfangi hafí farið úr böndum,
þurft hafí að endurhanna loftræsi-
kerfí, sem hafi komið stjómendum
verksins á óvart, skort hafi á heild-
aryfirsýn, bæði §árhagslega og
framkvæmdalega og áætlanagerð
og eftirfylgni hafí verið ábótavant.
Hins vegar hafí yfírstjóm verksins
brugðizt rösklega við, þegar erfíð-
leikar steðjuðu að.
Þá segir ennfremur, að í apríllok
sl. hafí sú vitneskja borizt til fjár-
málaráðuneytis, að verulegt fé
vantaði til byggingarinnar umfram
það, sem áætlað hafí verið. Þá hafí
verið heimiluð bráðabirgðalántaka
að fjárhæð 480 milljónir króna. í
júlímánuði hafí svo komið í ljós, að
þessi fjárþörf nam 890 milljónum
króna. Loks segir ríkisendurskoðun,
að athygli fjárveitingavaldsins hafí
ekki verið vakin á þessum vanda
fyrr en í apríllok og hafí ekki fengizt
viðhlítandi skýring á því.
í athugasemdum byggingar-
nefndar segir, að hún sé ósammála
því að skort hafi á heildaryfirsýn
við yfírstjóm verksins. Gerðar hafí
verið áætlanir um kostnað hvers
byggingaráfanga, sem lagðar hafí
verið til grundvallar Qárlagabeiðni
nefndarinnar ár hvert. Um fjárþörf
bygginganefndar snemma á þessu
ári segir, að í sumum tilvikum hafí
hún verið ófyrirsjáanleg.
Byggingarnefnd segir, að þróun
verðlags og gengismála hafi verið
framkvæmdinni verulega óhagstæð
og innlendar verðbreytingar hafí
skapað mikinn fjárhagsvanda.
Aætlanir byggingamefndar hafi
miðast við verðlagsforsendur §ár-
laga, sem því miður hafí ekki reynzt
réttar,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti sameinaðs þings, sagði í
gærkvöldi, að skýrsla ríkisendur-
skoðunar yrði tekin til umræðu í
þinginu í næstu viku.
Sjá kafla úr skýrslu ríkisend-
urskoðunar og athugasemdum
byggingarnefndar á bls. 30,
31, 66 og 67 og samtal við
formann byggingarnefndar á
bls. 2.