Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 18

Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 Samstarfsnefnd ráðuneyta um fjölskyldumál: Treysta þarf stöðu fjölskyldunnar — með velferð barna fyrir augum Víðtækt verksvið og umfangsmikið starf Eins og sjá má af þeim mála- flokkum, sem hér voru upp taldir, er verksvið nefndarinnar afar víðfeðmt, sagði Inga Jóna. Við tók- um fyrst fyrir skólamálaþáttinn. Þar höfðum við í töluverðan sjóð að sækja, þar sem er sú vinna sem unnin hefur verið á liðnum árum á vegum ráðuneytis menntamála. Nefna má, svo dæmi sé tekið, nefnd sem Salome Þorkelsdóttir alþingis- maður stýrði og fjallaði um sam- felldan skóladag og nefnd, sem Bessí Jóhannsdóttir sagnfræðingur leiddi, og fór ofan í framkvæmda- hlið þeirra mála. Við settum okkur í upphafi þá starfsreglu að nýta eins og kostur væri þær rannsóknir og gögn, sem fyrir liggja, en fara ekki út í sjálfstæðar rannsóknir nema þar sem á skorti upplýsingar. Við lítum svo á að það sé æskilegt að vinna fyrst úr könnunum, rann- sóknum og gögnum, sem fyrir liggja að stærstum hluta, og setja fram tillögur til úrbóta, fram- kvæmda- og kostnaðaráætlanir. Skólamálin Við höfum farið ofan í sauma á flölþættum athugunum og upplýs- ingum, sem fyrir liggja varðandi skólamál og reynt að gera okkur grein fyrir hugmyndum og leiðum til úrbóta, bæði að því er fram- kvæmd varðar og kostnað. Við höfum, svo dæmi sé tekið, leitað svara við spumingum eins og þeim: hvað kostar að koma á einsetnum skóla? — hvað kostai- að koma á samfelldum skóladegi? í því sambandi þarf að skoða aðbúnað og húsakost skólanna, möguleika fyrir nemendur til að neyta matar — segir Inga Jóna Þórðardóttir, formaður nefndarinnar ur í því sambandi er efling náms- greinar í heimilisfræðum. Við höfum einnig rætt um það, hvemig er hægt að efla þátttöku foreldra í skólastarfínu, þ.e. að efla samstarf foreldra og skóla. Vaxandi almennur áhugi er á slíku sam- starfí, en máske hefur ekki tekizt að gera farveg þessa samstarfs nægilega greiðfæran. Bein þátttaka foreldra með aðild að skólastjóm hefur mjög komið til umræðu í þessu sambandi. Þá hefur nefndin fyallað nokkuð um umferðaröryggismál að því er varðar böm, vegferð þeirra milli heimilis og skóla, sem og að öðru leyti. Við munum leitast við að gera tillögur í þessu efni. Dagvistarmál í dagvistarmálum stöndum við á töluverðum tímamótum. Framund- an er breytt verkaskipting ríkis og sveitarfélaga. Því má þó ekki gleyma, sem blasir raunar við þegar horft er um öxl í dagvistarmálum, að stærstur hluti þessa málaflokks hefur lengi verið í höndum sveitar- stjómarmanna. Stofnkostnaður hefur til þessa skipzt milli rikis og sveitarfélaga. Þegar á heildina er litið, bæði stofn- kostnað og rekstur, skiptir stofn- kostnaðurinn mun minna máli en rekstrarkostnaðurinn. Það er er einkum og sér í lagi rekstrarkostn- aðurinn sem sagt hefur til sín í útgjöldum sveitarfélaganna, enda kallar hann á mikið og vaxandi fjár- magn. Rekstrarkostnaðurinn hefur að hluta til verið greiddur af þeim, er þjónustunnar njóta, en að öðru leyti og langstærstum hluta hefur hann fallið á sveitarfélögin. í dag eru það svo til eingöngu einstæðir foreldrar sem njóta dag- vistar fyrir böm sín, það er að segja í kerfi sveitarfélaganna. Um böm hjóna gegnir öðm máli, jafnvel þó að aðstæður, efnalegar eða annars konar, skapi biýna þörf fyrir slíka vistun. Böm giftra foreldra hafa hinsvegar möguleika á ieikskóla- plássum. Giftir foreldrar sækja fyrst og fremst sína dagvistarþjón- ustu til dagmæðra eða í einkarekn- ar dagvistir. Fjárhagslegar aðstæður fólks, bæði einstæðra foreldra og hjóna, em að sjálfsögðu mjög mismun- andi. Þetta kerfi getur því leitt og hefur leitt til nokkurs misréttis, þar sem gift láglaunafólk hefur setið á hakanum og hefur ekki notið þeirr- Litlu jólin í grunnskólanum. tíma — en meðan á hefðbundnum vinnutíma stendur. Sumstaðar er reyift að leysa þennan vanda, eink- um hér í Reykjavík, með svokall- aðri viðveru í skólum, sem er ágæt lausn, a.m.k. til bráðabirgða, en hinsvegar hlýtur það að vera keppi- kefli að nýta þann tíma, sem böm- in dvelja í skólanum, þannig að þau fái meira út úr honum í sambandi við nám sitt. Svo virðist og sem foreldrar slitni nokkuð úr tengslum við skólana, þegar böm komast á unglingsár, og fylgist ekki nógu grannt með skólastarfínu. Hér kemur til greina að styrkja stöðu umsjónarkennara, til að koma á betri tengslum að þessu leyti, þannig að það sé ein- hver einn kennari sem beri „ábyrgð" á nemenda og hafi til þess nægjanlega góðar aðstæður. Þetta á einkum við þegar náms- greinum fjölgar og margir kennarar koma við kennslu hvers nemenda, en enginn einn sérstaklega eins og er í yngri bekkjunum. Ennfremur má nefna þörf á að í skólastarfí og námi sé þess gætt frá fyrstu tfð að piltar og stúlkur alist upp við að bæði kyn bera jafna ábyrgð. Um foreldrahlutverk og fjölskylduábyrgð verði því Qallað út frá þessum forsendum. Einn lið- Þorsteinn Pálsson, forsætis- ráðherra, setti á laggir sam- starfsnefnd ráðuneyta um fjöl- skyldumál á síðastliðnu hausti. Skipun nefndarinnar er í sam- ræmi við ákvæði i starfsáætlun rikisstjórnarinnar, sem fjalla um markmið i fjölskyldu- og jafn- réttismálum. Þar er það megin- markmið sett að treysta stöðu fjölskyldunnar með markvissri fjölskyldustefnu, fyrst og fremst með velferð barna fyrir augum. Nefndinni var falið að gera úttekt á og tillögur í ákveðnum málaflokkum, sem varða fjöl- skylduna: skólamálum, dagvist- armálum, skattamálum, lífeyris- og tryggingamálum og loks sveiganlegum vinnutíma. Áfangaskýrsla og fyrstu tillögur nefndarinnar — um skólamál og dagvistarmál — verða væntan- lega lagðar fram síðla í marz- mánuði. Stefnt er að þvi að nefndin ljúki störfum fyrir haus- tið. Það er Inga Jóna Þórðardótt- ir, viðskiptaf ræðingur, formaður nefndarinnar, sem svo kemst að orði þegar blaðamaður Morgun- blaðsins spurði hana hvað liði störfum nefndarinnar. Með henni í fjölskyldunefndinni eru Lára V. Júlíusdóttir, aðstoðar- maður f élagsmálaráðherra, Bessi Jóhannsdóttir, sagnfræð- ingur fulltrúi menntamálaráð- herra, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, bæjarfulltrúi fyrir fjármálaráð- herra og Þrúður Helgadóttir, verkstjóri fulltrúi heilbrigðis- og tryggingaráðherra. í skólunum og margt fleira. Þar styðjumst við meðal annars starf „aldamótanefndarinnar“, svoköll- uðu, sem hefur að vísu ekki lokið störfum að fullu, en við nýtum upp- lýsingar frá henni og ennfremur upplýsingar frá fræðsluumdæmun- um. Einnig höfum við stuðst við fróð- lega könnun á viðhorfum kennara til skólastarfs sem Þórólfur Þór- lindsson, prófessor, gerði. Og skoð- anakönnun, sem gerð var meðal foreldra í Granda- og Árbæjar- hverfum, áður en Grandaskóli og Foldaskóli hófu störf. Lengd skóladags er eitt af því sem mikið hefur verið rætt sem svar við vandamálum, sem verða til þar sem báðir foreldrar vinna úti. Skólatími bama á aldrinum 6 til 9 ára er tiltölulega skammur — og þá koma upp vandamál varðandi gæzlu þessara bama — utan skóla- Inga Jóna Þórðardóttir, formað- ur samstarfsnefndar ráðuneyta um fjölskyldumál. Samfelldur skóladagur, einsetinn skóli, viðvera í skólum, skólamáltí- ðir, aðild foreldra að skólastjórnum og umferðaröryggi nemenda á leið milli heimila og skóla eru meðal athugunarefna fjölskyldunefnd- arinnar. Eftirspum er meiri en framboð þegar dagvistir baraa eiga í hlut. ar fyrirgreiðslu — niðurgreiðslna — sem kerfíð bíður upp á. Þegar rætt er um kjör einstæðra foreldra má ekki gleyma meðlagsgreiðslum og hlut þeirra í framfærslu bama. Ég dreg mjög í efa að upphæð meðlags- greiðslna í dag sé í eðlilegu sam- ræmi við framfærslukostnað og rétt er að vekja athygli á því að ýmsar 1 # § M

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.