Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
19
þjónustugreiðslur, svo sem dagvist-
argreiðslur, hafa löngum tekið mið
af þeim. Hér er brýn þörf endur-
skoðunar. Rekstrarkostnaður hvers
dagheimilispláss var að meðaltali á
sl. ári um 20 þúsund krónur á
mánuði, en greiðsla í lægri gjald- ’
flokki er innan við 5 þúsund krón-
ur, eða tæplega fjórðungur kostnað-
ar.
Einn aðalvandi dagvistarkerfis-
ins í dag er skortur á starfsfólki,
sem að hluta til tengist launamál-
um. Að mínu viti er samband milli
þessa og verðlagningar þjónustunn-
ar. Við.verðum að vera raunsæ og
horfast í augu við þetta — og þessi
vandi verður aldrei leystur fyrr en
gjaldskrár dagvistarstofnana taka
meira mið af raunverulegum kostn-
aði — og að niðurgreiðslur taki mið
af efnahag fólks en ekki hvort for-
eldrar eru giftir eða ekki. Ennfrem-
ur þurfa dagvistarmál að vera meira
til umíjöllunar í kjarasamningum.
en verið hefur. Það er eftirtektar-
vert hversu fátítt er að fyrirtæki
reki dagvistarþjónustu á sama tíma
og talið er sjálfsagt að menn hafí
aðgang að mötuneyti.
I starfsáætiun ríkisstjómarinnar
er vikið að greiðslufyrirkomulagi
dagvistar bama og að athugun á
þvf, hvemig nýta megi bamabætur
til að mæta þörfum foreldra. Þama
er opnaður möguleiki á nýrri leið í
þessum málum. Fyrirgreiðsla í
þessu formi gerði foreldrum þá bet-
ur kleift að mæta kostnaði vegna
dagvistar og ákveða sjálfír hvar
þeir kaupa slíka þjónustu.
Við höfum einnig fjallað um
menntunarmál uppeldisstétta, en
skortur á menntuðu starfsfólki er
tilfinnanlegur. Því miður er ekki
útlit fyrir að úr rætist að þessu leyti
á næstunni, ef tekið er mið af þeim
fjölda sem nú er í Fósturskólanum.
A liðnum árum hefur verið reynt
að bæta úr með námskeiðum fyrir
ófagiært aðstoðarfólk. Raunar er
fjallað um það efni í Sóknarsamn-
ingum. Rætt hefur verið um frek-
ari menntun aðstoðarfólks og settar
fram hugmyndir um nýja starfs-
stétt, fóstruliða. Það væri þá á sinn
hátt sambærilegt við það sem gerð-
ist á sjúkrahúsunum þegar sjúkra-
liðar fengu sitt verksvið, starfs-
menntun og starfsheiti. Ég held að
það sé full þörf á því skoða þessar
hugmyndir betur til að tryggja eðli-
legt streymi starfsfólks inn á þessar
stofnanir. Nýta mætti flölbrauta-
skólana i þessu sambandi. Þá mætti
einnig nýta betur þá starfsreynslu,
sem fjöldi kvenna hefur af uppeldi
eigin bama, t.d. með því að skapa
þeim skilyrði — með námskeiðum
— til vissra starfsréttinda.
Skattamál
Varðandi skattamálin þá er það
grundvallarsjónarmið, að mínu viti,
að ríkisvaldið og skattareglur séu
hlutlausar gagnvart því, hver aflar
teknanna, hvort það er karlinn eða
konan. Við munum í þessu sam-
bandi líta á persónuafslátt maka,
sem í dag er ekki millifæranlegur
nema að 8/io hlutum og erfítt er
að sjá hvaða rök eru þar að baki.
Þá verður og skoðað hvort jafnrétti
sé varðandi eignaskatt hjóna og
áhrif lögskilnaðar á skattlagningu
eigna. Ennfremur, hvort mögulegt
er að taka tillit til þess í skattlagn-
ingu heimilis, þegar unglingar
dvelja lengi inn á heimilum, eftir
að þeir eru orðnir sjálfstæðir skatt-
þegnar, afla oft lítilla tekna og eru
á framfæri foreldra meðan þau eru
í námi.
Lífeyris- og trygg-
ingamál
Ég tel einnig að huga verði vel
að og taka á réttindamálum heima-
vinnandi fólks, sem og lífeyrisrétt-
indum maka. Hver er td. réttur
maka við sambúðarslit eða skilnað
varðandi þau lifeyrisréttindi sem
orðið hafa til á sambúðartímanum,
t.d. þar sem aðeins annar aðilinn
hefur aflað tekna utan heimilis? Er
ekki rétt að tryggja að lífeyrisrétt-
indi séu sameign hjóna, en ekki
séreign annars þeirra?
Sá merki áfangi náðist f tíð
Ragnhildar Helgadóttur sem heil-
brigðis- og tryggingaráðherra, að
fæðingarorlof var lengt upp í sex
mánuði í áföngum. Þetta er að sjálf-
sögðu merkt fjölskyldumál og þjón-
ar fyrst og fremst þeim tilgangi að
tryggja velferð bama. Enn sem
komið er fer lítið fyrir því að feður
nýti sér rétt sinn sem þeir hafa
samkvæmt lögunum. Ástæða þess
er að einhverju leyti tengd því
launamisrétti kynjanna sem er í
dag. En þetta breytist vonandi
smám saman.
Nauðsynlegt er og að huga að
ýmsum tryggingarmálum heima-
vinnandi, svo sem sjúkratrygging-
um. Þar vil ég til dæmis nefna stöðu
fjölskyldunnar og afkomuöryggi
vegna langvarandi veikinda fyrir-
vinnu.
Sveigjanlegur
vinnutími
Ifyrir liggur stefnuyfírlýsing Ai-
þingis varðandi sveigjanlegan
vinnutíma í þingsályktun. Sam-
kvæmt þessari ályktun ber ríkis-
valdinu að stuðla að sveigjanlegum
vinnutíma, þar sem honum verður
við komið.
Þá liggja og fyrir í þingtíðindum
svör flármálaráðherra við fyrir-
spum frá Salome Þorkelsdóttur um
framkvæmd þessarar ályktunar.
Sitthvað veldur því að fólk hefur
ekki nýtt sér sveigjanlegan vinnu-
tíma í ríkara mæli en raun ber vitni
um. Til dæmis má nefna starfstíma
dagvistarstofnana, þar sem sveigj-
anleiki hefur ekki verið mikill. Þetta
mun þó vera að breytast. Og tillög-
ur nefndarinnar í dagvistarmálum
munu einnig snerta þann þátt.
Lífskjarakönnun
Þegar komið var lyktum þessa
viðtals spurði blaðamaður, hvort
það hefði einhverja sérstaka þýð-,
ingu eða merkingu að í samstarfs-
nefnd ráðuneyta um fjölskyldumál
eru fímm konur en enginn karl.
Það vekur alla jafna ekki at-
hygli þegar ríkisstjómin skipar
nefnd þar sem karlar einir sitja. í
þessu tilviki er um tilviljun að ræða
þar sem nefndin er skipuð sam-
kvæmt tilnefningu ráðherranna. En
ætli þetta sé ekki fyrirboði um það
sem koma skal og menn verða að
venjast, því að nefndir séu svo til
eingöngu skipaðar konum. í dag
þykir það ekki tiltökumál þegar ein-
göngu karlar sitja í nefiidum, en
sennilega er stutt í að sagt verður
— og svo verður að hafa einn karl
með!
Samstarfsnefndin byggir og á
könnunum og gagnasöfnun, sem
fjölmargir aðilar, karlar sem konur,
hafa að staðið, bæði innan ráðu-
neyta og starfshópa um einstök
atriði.
Sigurður Snævarr, hagfræðing-
ur, er starfsmaður samstarfsnefnd-
ar ráðuneyta um fjölskyldumál.
Hann á jafnframt sæti í nefnd á
vegum forsætisráðuneytisins, sem
nú er að hleypa af stokkunum viða-
mikilli lífskjarakönnun, sem við
munum hagnýta okkur. Þannig
reynum við að starfa í tengslum
við það sem annars staðar er gert
og forðast tvíverknað eftir mætti.
Starf okkar felst því að drjúgum
hluta í því að vinna úr og samhæfa
niðurstöður, sem fjölmargir aðilar
hafa unnið að.
Við skilum sem fyrr segir álits-
gerð og tillögum um tvo fyrstu
málaflokkanna síðla í marzmánuði
en um hina þijá málaflokkanna
seinni hluta sumars.
Ég vona að okkar innlegg geti
verið framkvæmdatillögur og
kostnaðaráætlanir — og komið til
ákvörðunar í tengslum við fjárlaga-
gerð fyrir komandi ár. Þær munu
og ná til breytinga á ýmsum við-
komandi lögum. Að hluta til verða
þær síðan tillögur um, hvem veg
skuli staðið að frekari könnun og
þróun í þessum þýðingarmikla
málaflokki, sem varðar stöðu fjöl-
skyldunnar í samfélaginu, jafnrétti
fólks og velferð bama og unglinga.
kleift aö íesta^agQDah0 K12 býður upp á réttu >
óþartlega stort. Sop hver|um og einum.
SÓDhoKÍ^simSerfií
l^fotlítiö^Wofstör^^
Bjóðum míkiö
úrval
vandaðra
símkerf a og
símstöftva i
öllum
stærðum og
gerdum
. Hátalari og hringing án
.&s&~g2%r
kertinu gangandiþra W
Fjöidi'annarra möguleika
sem vert er aö kynna sér hjá
sölumönnum okk®r'.,boö
, Skjásímar, er syna skilabo .
SS?ííSS5S*?'-ni
umogeinnibæiarlinu
milli innanhússlina.
Sopho K1
Litiö en öflugt
_______________
Lítið en öflugt-----^lknfetd^g'it'' Wrirtæki’
möguleikasemstæmuy
boöiö hingað til.
JBI IX
UÓSRITUNARVÉLAR