Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 23

Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 23 skírskotun: Á ítalskur innflytjandi að segja frá því að ítalir séu að stelast inn í landið? Á Eddie að elska náungann eða hugsa um eigið skinn? Það hefði verið auðvelt að draga aðallega fram það pólitíska í verk- inu, en ég hef forðast að láta aðalat- riðið vera pólitík innflytjenda eða pólitík Bandaríkjanna. Eg legg hins vegar meiri áherslu á ástarsöguna í leikritinu, því þetta er mikil ástar- saga. Þama er fjallað um hina leyndu ást mannsins, sem flestir fá einhvem tíma að reyna, og það að vera tilbúinn að fóma öllu til að vemda þann sem manni þykir vænst um af öllum. Ég veit ekki hvort Eddie gerir sér nokkum tíma grein fyrir því að samband hans og Katrínar er miklu sterkara en samband föður og dóttur. Ef til vill er ástríða hans fyrst og fremst að vilja varðveita og vemda hrein- leikann og sakleysið sem hann sér í henni. Allt um það er hér leikið á geysilega viðkvæmar tilfínningar. En svo er líka mikill húmor í þessu verki, skondin fyrirbæri sem koma fram í bland við alla alvöruna. Við reynum að gera því skil líka. Höfundur styðst við eigin reynslu í mörgu. Það hefur til dæmis verið á það bent að ástarsagan hér eigi sér að einhveiju leyti samsvöran í sambandi hans við Marilyn Monroe. Rúmlega þrítugur Brooklyn- leikur frá Bandaríkjunum, á hann erindi við okkur hér og nú? Svo sannarlega, svo sannarlega. Það era ekki til mörg leikrit sem era eins og verk Millers, verk sem koma virkilega við kvikuna í áhorf- andanum. Ef sýningin tekst á áhorfandinn að geta hlegið bæði og grátið. Hann hlýtur að verða fyrir áhrifum. Og hann á að geta gengið út úr leikhúsinu með eitt- hvað verðmætt að hugsa um. Höf- undurinn er að segja svo margt sem skiptir máli. Og textinn er svo sterkur, svo bjóðandi frá höfundar- ins hendi, að það jafnast fátt á við það. Það eitt væri nóg til að gera það sjálfsagt að setja Miller á svið. Miller verður alltaf sýndur, alls staðar í heiminum. Það hefur til dæmis sýnt sig með Horft af brúnni að það hefur jafnan gengið betur að setja það upp annars staðar en í Bandaríkjunum. Þetta er raunar alls ekki amerískt leikrit í sjálfu sér. Efnið er svo algilt. Það má segja að það sé allt að því tilviljun að það er látið gerast í New York. Og eitt enn. Það sem er svo sér- kennilegt og skemmtilegt við allt þetta er að það verður ekki hjá því komist þegar þetta verk er unnið að allir helli sér út i það af öllu afli, allri sinni getu og tilfínningu. Þess vegna er svo dýrmætt að fá að stýra svona verki. Og ef dæmið gengur upp á það ekki að láta neinn ósnortinn. Ef allt fer að vonum hjá okkur hér, og ég hef ekki ástæðu til að óttast annað, þá held ég að fólk eigi að geta gengið ánægt út úr leikhúsinu að sýningu lokinni. Þetta leikrit getur gefið manni góða kvöldstund, gefíð manni eitthvað sem skiptir máli, en það skilur mann ekki eftir tóman. Það ætti að geta ómað innan í manni í tals- verðan tíma á eftir. Viðtal: SvPáll ■Hrttað gnidara <■10101111 ,ttn*fnaniu með l»un imm,, IjWnUun, •imablllnu kvittun i||| hun er' Mlu samrasnii 1 I l>SK 5.07 | D. Frumrit G'elðtlutkiti GJALDDA9I . FYRIR SKIL . A STAÐGREÐSLUFE Launagreiöendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endur- gjaldi mánaðarlega. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hversu oft í mánuði laun eru greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram eða eftir á. Gjalddagi skila er 1. hvers mánaðar en eindagi þann 15. Með greiðslu skal fylgja grein- argerð á sérstöku eyðublaði „skilagrein". Skilagrein berað skila, þó svo að engin stað- greiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heilum krónum. Allir launagreiðendur og sjálf- stæðir rekstraraðilar eiga að hafa fengið eyðublöð fyrir skilagrein send. Þeir sem ein- hverra hluta vegna hafa ekki fengið þau snúi sér til skatt- stjóra, ríkisskattstjóra, gjald- heimtna eða innheimtumanna ríkissjóðs. -Gerið skil tímanlega og forðist örtröð síðustu dagana. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Hvqð er Gucci að gera í 33000 fetum? í tollfrjálsu versluninni um borð eru gjafasett og snyrtivörur frá Gucci, Cartier, Estee Lauder og YSL ■ Silkislœður og silkibindi frá Chanel, Galimberti og Basile ■ Skartgripir frá Pétri Tryggva og Peter Van Der Mark ■ Auk þess myndavélar, útvarpstœki, barnaleikföng, ferðastraujárn, vekjaraklukkur, leðurvörur og fleira og fleira.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.