Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
Minning:
Hilmar Jósefsson
frá Strandhöfn
Fæddur 13. janúar 1896
Dáinn 6. september 1987
Hann dó inní haustið. Sofnaði eitt
kvöldið og var látinn þegar að honum
var komið um morguninn. Hvað
væri sælla þreyttum manni að sofna
til hvíldarinnar miklu eins og trúnað-
arfullt bam sefur í fangi móður
sinnar?
Mér fannst það líka táknrænt að
hann þessi mikli ræktunarmaður —
maður gróðurmagns og moldar —
skyldi fá hvfldina um haust þegar
grös og blóm falla í dvala til þess
að vakna síðar til nýs lífs.
Hilmar Jósefsson, sem átti heima
mestallan aldur sinn að Strandhöfn
í Vopnafírði, fæddist að Hólmum í
Vopnafírði. Þessi jörð hefur nú verið
lögð undir kauptúnið Kolbeinstanga.
Foreldrar hans voru hjónin Hildur
Sigurðardóttir og Jósep Guðjónsson.
Jósep var af hinni kunnu Skógaætt
í Vopnafírði en Matthildur móðir
Hildar var frá Nesi í Norðfírði og
Sigurður faðir hennar var ættaður
úr Skagafírði.
Sigurður afí Hilmars var um tíma
verzlunarstjóri fyrir Örum og Wulf
á Kolbeinstanga. Það var einmitt í
verzlunarhúsi þeirra sem Kristján
Jónsson Fjallaskáld lést þegar Sig-
urður var fyrir verzluninni, hann
hafði skotið skjólshúsi yfír skáldið.
Þegar Hilmar var fímm ára gam-
all lést faðir hans. Hildur stóð nú
uppi með þijú ung böm; Hilmar,
Ingibjörgu og Signði, eitt bam hafði
hún misst ungt og var vanfær að
fímmta bami sínu.
Bróðir Jósefs, Hjálmar Jósefsson,
hafði flutzt til Vesturheims og bún-
ast þar vel. Hann bauð nú ekkjunni
til sín með allan bamahópinn. Hildur
vissi vel að mörg böm sem lagt var
af stað með á Vesturfaraskipunum,
komust aldrei lifandi jrfir hafíð. Svo
var það líka ekki fysilegur kostur
fyrir vanfæra konu með smáböm
að leggja uppí svo langa ferð.
Hún fór því hvergi. Hildur var
kona óvenjulegrar gerðar. Hún hafði
notið þeirra forréttinda á þessum
tfma að menntast. Faðir hennar
kostaði hana á Kvennaskólann að
Ytri-Ey hjá frú Ingibjörgu Briem.
Sjálfsagt hafa námsgáfur hennar
líka stuðlað að því að hún fékk að
fara. Hún var kona skarpgreind,
afburðadugleg og svo einstaklega
vel af Guði gerð að fágætt verður
að teljast.
Allt þetta; greind hennar og dugn-
aður og góð fjölskylda varð til þess
að hún þurfti ekki að leysa upp heim-
ilið og senda frá sér bömin, eins og
títt var um margar ungar ekkjur á
þessum tíma.
Nokkru seinna giftist Hildur aftur
og nú bróður Jósefs, Guðjóni Jósefs-
syni, og þau bjuggu að Strandhöfn
allan sinn búskap. Guðjón og Hildur
eignuðust fjögur böm saman og
misstu tvö böm. Það var því hjá
þeim eins og svo mörgum öðrum
hjónum með mikla ómegð, linnulaust
strit.
Þau voru hvorugt þeirrar gerðar
að stritið smækkaði þau, Hildur var
læs á útlend tungumál, las mikið,
fylgdist vel með og heimilið var því
rómað menningarheimili. Þó að
bamafjöldinn hafí verið nokkur,
a.m.k. fyrir þau hjón sem standa
straum af vísitölufjölskyldu nú í
dag, fór fjarri að þau væru neinir
þiggjendur. Þvert á móti — fjöldi
bama var alinn þama upp að meira
eða minna lejiti, a.m.k. átta önnur
böm hefur mér tekist að fá tölu á.
Það myndi þykja ærin viðbót á
hveiju heimili sem er. Svona heimili
réttu alltaf hjálparhönd þar sem
mesta þörfín var — verkuðu betur
en nokkrar stofnanir fyrir munaðar-
laus böm — og allt gert af hávaða-
lausum kærleika sem einkennir slíkt
fólk. Ég veit aldrei hvort þeirra Hild-
ur eða Guðjón voru virkari í þessu
kærleiksstarfí — en víst er um það
að þau voru samhent. Það fór ekki
hjá því að maður sem á svona móð-
ur mótist af þessu uppeldi. Enda var
Hilmar einstaklega sjálfstæður mað-
ur í allri skoðanamyndun, frjór í
hugsun og bæði verkséður og dug-
legur. Hann mat móður sína umfram
aðra — og var ekki einn um það.
Ófáar stúlkur óskyldar Strandhafn-
arfólkinu bera nafn Hildar sem sýn-
ir að til er fólk sem getur þakkað
það sem vel er gert. Sama er að
segja um Hilmar — ekki aðeins bróð-
ir hans hefur komið upp nafni hans
— heldur líka óskylt fólk.
Hilmar las ævinlega mikið og átti
gott og vandað bókasafn. Allt sem
varðar sögu íslands og menningu
var honum hugleikið. Hann talaði
gott mál og kjarnyrt — setningamar
meitlaðar og markvissar. Hann bar
þess merki að hafa unnið í tengslum
við landið sjálft og mér þóttu erfíðis-
hendur hans einstaklega fallegar.
Hilmar var af þeirri kynslóð sem
er að hverfa ofaní moldina — fólk
sem „ ... innheimta ei daglaun að
kveldi", heldur áleit sérhvert verk
þess virði að vinna það vel. Fólk sem
mátti ekki vamm sitt vita í neinu.
Fólk eins og Sveinn mágur minn,
sem vann landi sínu, fjölskyldu allt.
Þetta fólk sem var ekki múgsálir
eins og flölmiðladýrkendur okkar
tíma.
Þetta fólk þorði að vera einstakl-
ingar með sjálfstæða hugsun. Sjálfs-
elska og dekur nútímamannsins var
svo fyairi því, það stóð meðan stætt
var. Ég man þegar ég hitti Hilmar
í fyrsta skipti, þá var hann nýkom-
inn af sjúkrahúsi hér í borg. Þeir
eru ekki að fara skemmtiferðir til
höfuðborgarinnar Strandhafnar-
menn. Það var til lækninga sem ferð-
imar hingað suður vom.
Það var einstaklega áhugavert að
ræða við Hilmar. Ég man eftir löng-
um samtölum um trúmál sem vom
honum hugleikin. Sársaukinn í um-
ræðunni minnti mig á sum verka
Sörens Kirkegaards. Hann hafði
einnig upplifað angist og efasemdir
sem Kirkegaard lýsir svo vel.
Þeir Strandhafnarmenn vom af-
skaplega miklir bændur og fram-
farasinnaðir. Því varð það að Hilmar
stundaði mikið túnasléttur og jarða-
bætur. Þeir virkjuðu bæjarlækinn til
þess að fá rafmagn. Þetta er fólk
sem getur tekið tæknina í þjónustu
sína án þess að verða þrælar hennar.
Það var ekki fyrr en Hilmar var
dáinn að það rann upp fyrir mér ljós
að ég hafði aldrei spurt hann um
laun eða kaup. Ég vissi að hann
hafði alla tíð átt kindur og haft arð
af þeim og er því líklega síðasti
maðurinn sem ég þekki sem aldrei
stóð í verkfalli til þess að ná fram
betri kjömm — maður sem aldrei
krafðist neins sér til handa en lagði
sig allan fram til þess að verða að
liði.
Hann gerði erfðaskrá mörgum
ámm fyrir lát sitt. Hann hafði feng-
ið jörðina Purkugerði út úr arfa-
skiptum og ánafnaði hana alnafna
sínum Hilmari Jósefssyni á Vopna-
firði. Hilmar er kvæntur Birgittu
Guðjónsdóttur frá Fögmbrekku og
rejmdust þau hjón honum betri en
engin þegar ellin sótti að.
Hilmar Jósefsson var sterkur per-
sónuleiki og heilsteyptur maður.
Hann hlaut gott uppeldi og ást hans
á móðurinni var sólskin lífs hans.
Hann kvæntist ekki og eignaðist
ekki böm en reyndist systkinaböm-
um sínum besti frændi. Það þarf
ekki að teija sig á að tína upp „trún-
aðarstörfín" sem hann vann, en hann
var trúr sjálfum sér, því er hér
kvaddur vammlaus og vítalaus mað-
ur sem er sárt saknað af fjölmörgum
vinum og ættingjum.
Ollum ástvinum Hilmars Jósefs-
sonar, nær og fjær, sendi ég einlæg-
ar samúðarkveðjur mínar.
Erna Amgrimsdóttir
Minning:
Valgeir Jónsson
Fæddur 5. apríl 1929
Dáinn 23. febrúar 1988
Hver fögur dyggð í fari manns.
Er fyrst af rótum kærleikans.
Af kærleik sprottin auðmýkt er,
Við aðra vægð og góðvild hver,
og hjartaprýði stilling með.
(Kingo-sb 1886, H. Hálfd.)
Látinn er góður maður og kær
vinur á besta aldri.
Þegar ég og synir mínir flutt-
umst hingað til landsins fyrir þrem-
ur árum urðum við þess aðnjótandi
að verða nágrannar frænku minnar,
Kristínar Gunnlaugsdóttur, og eig-
inmanns hennar, Valgeirs Jónsson-
ar. Þau hjónin urðu okkur ómetan-
legir vinir. Ósjaldan var það þegar
við vorum að koma okkur fyrir á
hinu nýja heimili okkar að við þörfn-
uðumst aðstoðar og þá var oft leit-
að til Geira, alltaf var hann tilbúinn
að rétta okkur hjálparhönd.
Einnig ef synir mínir höfðu þörf
að tala við einhvem, þá var farið í
heimsókn til Kiddýar og Geira og
alltaf var litið bjartari augum á til-
veruna eftir að tala við Geira smá-
stund. Samfylgdin var stutt. En
eftir sitja minningar um góðan vin
og við þökkum fyrir að hafa orðið
þess aðnjótandi að hafa kynnst
Birting afmælis- og
minningargreina,
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
honum. Blessuð sé minning hans.
Elsku Kiddý mín, við vottum
þér, bömum, tengdabömum og
bamabömum innilega samúð okkar
og biðjum góðan Guð að gefa ykk-
ur styrk.
Didda, Tony,
Dwight og Yvan,
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Miðneshreppur
Sjálfstæðisfélag Miðneshrepps heldur aðalfund sinn i Slysavarnafé-
lagshúsinu í Sandgerði föstudaginn 4. mars 1988 kl. 20.30.
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Ungir sjálfstæðismenn
Laugardaginn 5. mars verður haldinn stofnfundur klúbbs ungra sjálf-
stæðismanna utan af landi með aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.
Fundurinn hefst kl. 20.00 í kjallara Valhallar, pg að honum loknum
verða léttar veitingar og opið hús.
Allir sjálfstæðismenn velkomnir.
ísafjörður - ísafjörður
Fulltrúaráð sjálfstæöisfélaganna á (safirði heldur fund urn fjárhags-
áætlun ísafjarðarkaupstaðar fyrir árið 1988 í Sjálfstæöishúsinu, 2.
hæö, miðvikudaginn 2. mars kl. 20.30.
Sjálfstæöisfólk er hvatt til að mæta.
Stjórnin.
Bæjarmálakynning Týs
Dagana 2., 3. og 5. mars gengst Týr, FUS, og fulltrúaráð sjálfstæöis-
félaganna i Kópavogi fyrir bæjarmálakynningu í Flamraborg 1, 3.
hæð. Mikilvægt er aö þeir, sem starfa i hinum ýmsu nefndum og
ráðum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi, mæti og fræðist um hin
ýmsu mál bæjarins. Einnig eru þeir, sem áhuga hafa á bæjarmálum
hvattir til að mæta og kynna sér málefni bæjarins.
Dagskrá:
2. mars Uppbygging stjórnskipulags Kópavogskaupstaðar.
Kristján Guömundsson, bæjarstjóri Kópavogs.
Fjármál Kópavogskaupstaðar.
Guðrún Pálsdóttir, hagsýslustjóri.
Félagsmál: Fjölskyldumál, barnaverndarmál, æskulýðsmál,
öldrunarmál.
Hulda Finnbogadóttir, bæjarfulltrúi Alþýðuflokks.
3. mars Menntamál og húsnæöismál.
Bragi Michaelson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Framtíðarskipulag bæjarins, skipulagssýning.
Sveinn Ivarsson frá verkfræðideild bæjarins.
5. mars Hvaða áhrif hafa verkaskiptahugmyndir rikis- og sveitar-
félaga á Kópavog.
Árni Sigfússon, formaður Sambands ungra sjálfstæöis-
manna.
Fundir hefjast kl. 20.30 hvert kvöld nema laugardag kl. 15.00.
Allir velkomnir.
Týr, FUS, og stjórn futttrúaráðsins i Kópavogi.
Njarðvíkingar
Aðalfundur sjálfstæðisfélagsins Njarðvikings verður haldinn á Hóla-
götu 15, miðvikudaginn 2. mars kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér nýja félaga.
Stjórnin.
Námskeið á
Seltjarnarnesi
Viö viljum mlnna á námskeiöin sem viö höldum:
Ræðunámskeið 9.-16. mars.
Garðyrkjunámskeiö 11.-13. apríl.
Upplýsingar hjá Hildi Jónsdóttur í sima 611514 og Auði Eyr í síma
611842 og Sigríði Einarsdóttur i sima 622353.
Nauðsynlegt að tilkynna þátttöku sem fyrst.
Allir velkomnir.
Sjátfstæðisféiag Seltirninga.
Hafnarfjörður
Bæjarmálaráö Sjálfstæöisflokksins heldur
hádegisveröarfund i Gaflinum laugardaginn
5. mars um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar-
bæjar 1988. Framsögu flytur Jóhann G.
Bergþórsson, bæjarráðsmaöur.
Allt stuöningsfólk Sjálfstæðisflokksins vel-
komið á fundinn.
\