Morgunblaðið - 02.03.1988, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
FÆRIBANDA-
MOTORAR
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
HANDVERKFÆRI
Fást í öllum helstu
byggingavöruverslunum
um allt land
Askriftarsíminn er 83033
Veldu Kópal
með gljáa við hæfi.
RYÐFRÍAR
ÞREPA-
DÆLUR
= HÉÐINN = |
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 g
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER f
AF ERLENDUM VETTVANGL
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Bangladesh:
Ofbeldi og blóðsúthellingar hafa
sett svip á kosningabaráttuna
Hasina
KJÖRIÐ verður til þings í því vanda vafða landi Bangladesh á
fimmtudag, 3. marz. Kosningabaráttan hefur verið ófriðleg og opin-
berar heimildir segja, að hundrað og fimmtfu manns hafi látið lífið
og átta þúsund slasazt. Talsmenn stjórnarandstöðu segja að langtum
fleiri hafi látizt. í sveitastjórnarkosningunum nú í fyrra mánuði
var mjög róstursamt á kjördag og óttazt er að ekki verði ástandið
betra á morgun, 3. marz. Her og Iögreglu hefur verið skipað að
vera vel á verði, en það er spuming, hversu langt það dregur.
Erlendum blöðum hefur orðið
tíðrætt um kosningabarátt-
una í Bangladesh síðustu vikur og
í nýjasta hefti Economist er til að
mynda spurt, hvemig á því standi,
að ekki virðist vinnandi vegur að
halda friðinn í þessu landi og þaðan
af síður að bæta ástand íbúanna,
sem eru 107 milljónir. „Hefur
Bangladesh innan sinna landa-
mæra sérstaklega óstýriláta íbúa?
Þegar Bretar réðu hér löndum
höfðu Bengalir, núverandi Bangla-
deshar, á sér orð fyrir að vera iðjus-
amir og skarpir, sagðir of sjálf-
stæðir og tilfinninganæmir til að
vera nægilega harðir í her-
mennsku... í eðli Bengala er
metnaður sem gerir að verkum, að
þeir vilja ekki sætta sig við annað
en allir séu jafnir; þeim er ekki
lagið að taka því eins og sjálfsögð-
um hlut að einhveijir telji sig til
þess hæfari en aðrir að vera leið-
togar."
Það eru ekki nema sautján ár
síðan landið fékk sjálfstæði frá
Pakistan. A þessum skamma tíma
hafa íbúar fengið að kenna á flest-
um hörmungum, sem hægt er að
hugsa sér. Náttúruhamfarir hafa
valdið dauða hundruðum þúsunda,
flóð og óáran eyðileggur árlega
uppskeru þeirra í stórum stíl, hung-
ursneyðir hafa geisað og síðast en
ekki sízt hefur verið stöðug barátta
í forystu landsins. Hver þjóðhöfð-
inginn af öðrum hefur verið myrtur
og Mohamed Ershad mun hafa
setið þeirra lengst, rösk fimm ár.
Kosningabaráttan nú hefur mjög
snúizt um hans persónu og stjóm-
arandstaðan krefst afsagnar hans.
Fáist hann ekki til að láta af völd-
um er ekki farið dult með að þá
verði hann fyrr eða síðar gerður
höfðinu styttri.
En það sem orsakar þó umfram
annað hversu ástandið er erfitt og
flókið er að stjómarandstöðunni
virðist gersamlega fyrirmunað að
koma sér saman um nokkum skap-
aðan hlut og nú em í landinu 28
flokkar og flokksbrot. Sem geta
ekki komið sér saman um margt,
utan það að Ershad víki úr sessi.
Athyglivert er að tveir stærstu
stjómarandstöðuflokkamir hafa
konur í forsvari, eins og áður hefur
komið fram í fréttaskýringu um
Bangladesh. Það em Hasina
Wazid, leiðtogi Awami-bandalags-
ins og dóttir Mujiburs Rahmans,
fyrsta forseta landsins sem var
síðar myrtur í valdaráni hersins.
Hin konan er Khaleda Zia og leiðir
hún Þjóðarflokkinn. Maður hennar
er einnig einn fyrrverandi forseta,
sem var og myrtur af herforingjum.
Konumar tvær höfðu það á stefnu
sinni, þegar Ershad boðaði tii kosn-
inga að hvetja kjósendur til að
hundsa kosningamar og sögðu að
á þann einn hátt gætu Banglades-
har sýnt andúð sína í verki á kosn-
ingum, sem hvort sem væri yrðu
bara skrípaleikur.
En stjómarandstöðuflokkamir
gátu þó ekki verið á einu máli um
þetta lengi og í byijun febrúar var
ágreiningurinn kominn í ljós. Kon-
umar tvær deildu hart og lá við
borð að baráttan milli þeirra væri
svo hörð að þær gleymdu þessum
Ershad forseti
ÍsíBbKS
Frá óeirðum i Dacca
sameiginlega óvini, sem þær telja
að forsetinn sé.
Kosningabaráttan hefur ein-
kennzt af vígum og mótmælaað-
gerðum, verkföllum og launmorð-
um og nokkrir frambjóðenda
stjómarflokksins Jatiya-flokksins,
og úr stjómarandstöðu hafa verið
myrtir. Margir eru þeirrar skoðun-
ar, að á kjördag muni svo allt fara
úr böndunum í stærstu borgum
landsins og almennt virðist það
vera álit íbúa að kosningamar leiði
ekki til eins né neins. Ef nokkuð
megi helzt vænta að þær verði enn
til að ala á ergi og ágreiningi með-
al þjóðarinnar. í viðtali við Reuter-
fréttastofuna sagði embættismað-
ur sem ekki vildi láta nafns síns
getið að þeir myndu sigra í kosn-
ingunum, sem réðu yfir valdi og
átti þar ugglaust við forsetann og
herinn, sem fram til þessa að
minnsta kosti hefur stutt hann.
Eins og fram hefur komið boð-
aði Ershad til þessara kosninga til
að reyna að lægja gagnrýnisraddir
sem staðhæfðu að niðurstöður
þeirra hefðu verið falsaðar. Hann
hefur marglýst því yfir, að engum
brögðum verði beitt nú og þjóðinni
gefist kostur á að láta í ljós vilja
sinn, hver sem hann sé. Eftir flestu
að dæma em ýmsir sem taka orðum
hans með fyrirvara. Á hinn bóginn
má af frásögnum draga þær álykt-
anir, að hinn almenni borgari sé
ekki bara orðinn þreyttur á að
endalaus styrr standi um allt og
vegna ástandins á stjómmálasvið-
inu teflist allar aðgerðir, sem gætu
horft til framfara í þessu landi.
Ershad hefur hvatt landsmenn til
að veita sér vinnufrið svo að hann
geti beitt sér af krafti fyrir því að
bæta kjör landsmanna, færa land-
búnað í Bangladesh til nútímans,
þróa iðnaðinn og almennt leita eft-
ir því að bæta hryggilegan hag
þjóðarinnar, sem er meðal hinna
fátækustu í heimi, og Bangladesh
er þar á ofan þéttbýlasta land jarð-
annnar.
Ershad fullyrðir að fái Jatyi-
flokkur hans trygga og góða út-
komu í þessum kosningum muni
það styrkja hann í erfiðu starfí, sem
hann vilji leggja sig allan fram við
að rækja. Ershad segir það ekki
koma til nokkurra mála að hann
fari að afsala sér völdum, það þjóni
varla tilgangi að láta stjóm lands-
ins í hendur sundurþykkrar stjóm-
arandstöðu, sem hann segir að
aldrei hafi bent á neinar raunhæfar
leiðir til að binda enda á hörmulega
stöðu meginþorra þjóðarinnar. Það
getur auðvitað verið nokkuð til í
þessu og sjálfsagt að viðurkenna,
að sjaldgæft er að maður heyri um
bitastæðar hugmyndir kvennanna
tveggja né annarra stjómarand-
stöðumanna.
í greininni í Economist sem
minnzt var á er því spáð að Jatyia-
flokkur Ershad muni trúlega vinna
auðveldan sigur, jafnvel án þess
að nokkur brögð séu höfð í tafli.
Hvað síðan gerist er auðvitao
ógemingur að spá um. Svo virðist
sem þjóðin leiti æ meira huggunar
í trúnni. Bænir eru til dæmis beðn-
ar í flugvélum Biman- flugfélags
Bangladesh og forsetinn hefur
hvatt eindregið til að menn ræki
islam af meiri einlægni. En það er
nú einu sinni svo að bænir hversu
góðar sem þær eru koma ekki í
staðinn fyrir brauð nema rétt tíma-
bundið. Alþjóðabankinn lýsti því
yfir í síðustu viku, að hann myndi
ekki veita Bangladesh meiri aðstoð
fyrr en ríkisstjómin gerði einhveij-
ar þær aðgerðir sem stefndu að
því að koma efnahags- og atvinn-
ulífí á kjöl.
Það virðist svona nokkum veg-
inn sama hvemig þessum kosning-
um lýkur. Svo hörmulegt sem það
nú er bendir ekki margt til þess
að svo stöddu að betra mannlíf sé
í vændum í Bangladesh.
Heimild: Economist, Far Eastern
Economic Review og Reuter.