Morgunblaðið - 02.03.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Hafnsögubáturinn Villi í Grindavíkurhöfn.
Grindavíkurhöfn
fær hafnsögubát
Félag hrossabænda:
Reiðhestar og ferskfiskur
í sömu flugvél til útlanda
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Halldór Gunnarsson formaður markaðsnefndar Félags hrossabænda,
Sigurður Ragnarsson og Óiafur Torfason forstöðumaður Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins kynntu fyrirhugaðan útflutning á reið-
hestum á vegum Félags hrossabænda.
Gnndavík.
GRINDAVÍKURHÖFN keypti
nýlega hafnsögubát, Haka, sem
Reykjavíkurhöfn hefur haft í
þjónustu sinni frá 1947. Hinn nýi
hafnsögubátur Grindvíkinga
heitir nú Villi.
Það var ekkja Vilmundar heitins
Ingimundarsonar, hafnarvarðar,
Valgerður Þorvaldsdóttir, sem gaf
nýjum hafnsögubát Grindvíkinga
nafnið Villi, við athöfn sem fór fram
I Grindavíkurhöfn einn kaldan vetr-
armorgun fyrir skömmu að við-
stöddum hafhamefndarmönnum og
bæjarstjóm.
I stuttri ræðu sem Guðmundur
Guðmundsson formaður hafnar-
nefndar hélt, kom fram að Vilmund-
ur heitinn hefði þann röska áratug,
sem hann var hafnarvörður, sýnt
höfninni mikla umhyggju og rækt
og því vel við hæfi að nefna bátinn
í höfuðið á honum.
„Það var orðin full þörf að höfn-
in eignaðist öflugan hafnsögubát
því hér ríkti ófremdarástand. Þurft
hefur að notast við hinar og þessar
trillur í gegnum árin þegar taka
átti kaupskipin inn og út úr höfn-
inni og skapaði það mikið óöryggi,"
sagði Guðmundur.
Hafnsögubáturinn Villi er með
350 hestafla Cummingsvél oggetur
nýst sem dráttarbátur þegar slík
þörf er fyrir hendi.
FÉLAG hrossabænda hefur und-
irritað samning við fyrirtækið
Fish-Cargo um leigu á DC 855
flugvél til að flytja út reiðhesta
í mars og apríl, annars vegar til
Ostende í Belgiu og hins vegar
til Gardemoen á Eidsvoll skammt
frá Osló. Flugvélin, sem einnig
flytur ferskan fisk til Belgiu,
getur tekið tæplega 80 hross í
hvorri ferð. Þegar hefur verið
pantað pláss fyrir milli 70 og 80
hross sem flest fara til Sviþjóð-
ar. Stefnt að því að fljúga fyrri
ferðina um miðjan mars.
Félag hrossabænda og Búvöru-
deild Sambandsins hafa um nokk-
urt skeið haft samstarf um útflutn-
ing á reiðhestum og sláturhrossum
en nú hefur Sambandið sagt upp
þessu samstarfí. Á fundi með
fréttamönnum sem Félag hrossa-
bænda hélt í gær kom fram að fé-
lagið hefur ákveðið að beita sér
fyrir áframhaldandi útflutningi
hrossa.
Hefur félagið ákveðið að hafa
samvinnu við Sigurð Ragnarsson
sem áður starfaði hjá Búvörudeild
Sambandsins við hrossaútflutning.
Sigurður hefur stofnað sjálfstætt
fyrirtæki, Faxatorg, og mun han
sjá um frágang skjala, útvegun
dýralæknisvottorða, innheimtu og
fleira. Hann hyggst auk þess starf-
rækja umboðssölu á hestum, gefa
út söluskrár, veita upplýsingar um
markaðsmál og aðstoða einstakl-
inga við útflutning hrossa.
Sigurður Ragnarsson sagði að í
hans verkahring yrði einnig að sjá
um flutning á hestum, geymslu
þeirra og uppihald þar til þeir verða
fluttir utan, en flogið verður frá
Keflavík og hrossum safnað saman
a.m.k. fímm dögum fyrir brottför.
Fluggjald fyrrir hvert hross er um
16.000 íslenskar krónur ef miðað
er við staðgreiðslu. Við það bætist
greiðsla fyrir þá þjónustu sem Sig-
urður innir af hendi sem verður um
10 — 12.000 krónur á hest.
Að sögn Halldórs Gunnarssonar
formanns markaðsnefndar Félags
hrossabænda gerir þessi samningur
við Fish-Cargo kleift að flytja út
hross á mjög hagstæðu verði. Flug-
vélin er sérstaklega búin út sem
gripaflutningavél á efra flutnings-
rými, en neðri hæð vélarinnar er
einangruð og þar verður ferskur
fískur sem fluttur verður til Belgíu.
Verið er að athuga hvort mögulegt
er að flytja físk einnig í einangruð-
um hluta af efri hæð vélarinnar,
ef ekki tekst að fylla hana af hross-
um.
Halldór sagði að á síðasta ári
hafí hagnaður af útflutningi reið-
hesta verið samtals 60—70 milljónir
króna. Á undanfömum árum hafa
verið seldir út um 600 reiðhestar á
ári og fjölgaði þeim úr um 200 á
ári eftir að samstarf Félags hrossa-
bænda og Búvörudeildar Sam-
bandsins hófet.
Þorlákshöfn:
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Hluti hljóðfæraleikaranna sem spiluðu á tónleikunum.
Lúðrasveit Stykkishólms:
38 hljóðfæraleikarar
léku á tónleikum
- Kr. Ben.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Við athöfnina er hinn nýi hafnsögubátur Grindvíkinga var tekinn I
notkun. Frá vinstri: Valgerður, Þorvaldsdóttir, Guðmundur Guð-
mundsson, formaður hafnarnefndar, Bjarni Þórarinsson, hafnar-
stjóri, og Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri.
Ný æskulýðsmiðstöð opnuð
Þorlákshöfn.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Frá opnun æskulýðsmiðstöðvarinnar í Þorlákshöfn.
FÉLAGSMIÐSTÖÐ var formlega
tekin í notkun fyrir nokkru hér (
Þorlákshöfn.
Félagsmiðstöðin, sem opin er þijú
kvöld f viku, er fyrir krakka úr
7. bekk og upp úr. Böm í 4., 5.
og 6. bekk fá að vera tvo daga i
viku fyrir kvöldmat.
Það hefur lengi verið haft á orði
hér að enginn staður annar en sjopp-
umar væru fyrir bömin til að eyða
frítíma sínum. Fyrir um ári fóru tveir
áhugasamir menn að kanna mögu-
leika á að fá stað sem hægt væri
að nýta fyrir félagsmiðstöð og einnig
að kynna sér hvemig slfkir staðir
væru reknir. Enginn fannst staður-
inn, en áhugi unglinganna fyrir þessu
leyndi sér ekki.
Það var sfðan ekki fyrr en f haust
að Hjörtur Sandholt og Torfi Áskels-
son tóku þráðinn upp að nýju og
fengu leyfí hreppsnefndar til að
breyta smfðastofu f enda félags-
heimilisins, sem hefur verið ónotuð
um tfma vegna kennaraskorts.
Fjjótlega varð Torfí að hverfa til
annarra starfa en Hjörtur hélt
ótrauður áfram og með aðstoð fíölda
sjálfboðaliða og peningastyrkja frá
hreppsnefnd og klúbbum eins og
Kiwanis og Lions og fjölda fyrir-
tækja á staðnum tókst honum og
áhugasömum unglingunum að gera
smfðastofuna að aðlaðandi félag-
smiðstöð þó eitthvað skorti á að öll
tæki séu fyrir hendi.
Einar Sigurðsson, oddviti hrepps-
nefndar, afhenti unglingunum veg-
legan lykil til merkis um það að nú
væri félagsmiðstöðin þeirra.
Búið er að skipta starfeeminni t
hópa. Sem dæmi um hópa má nefna
skák, biHjarð, dans, pílukast, Ijós-
myndun, mjmdbönd og fleira.
Hjörtur sagði í ræðu sinni við opn-
unina, um leið og hann þakkaði öllum
samstarfíð og unglingunum ánægju-
leg kynni, að nú réðist framhaldið
af þvf hvað áhugi og dugnaður ungl-
inganna entist, því þeir ættu sjálfir
að sjá um skipulag og framkvæmd
hér eftir. - JHS
Stykkishólmi.
UM ÞESSAR mundir hefir
Lúðrasveit Stykkishólms starfað
í 44 ár. Var stofnuð þjóðhátíðar-
árið 1944.
Núverandi stjórnandi Lúðra-
sveitarinnar er Daði Þór Einars-
son tónlistarskólastjóri sem er
einnig þjálfari hennar ásamt
Hafsteini Sigurðssyni tónlistar-
kennara.
Nýlega voru haldnir tónleikar í
Félagsheimilinu, þar sem 38 hljóð-
færaleikarar léku undir stjóm Daða
Þórs fjölbreytta tónlist bæði inn-
lenda og erlenda við mikla hrifningu
áheyrenda. Var gaman að fylgjast
með þessum tónleikum og verða
þeirrar ánægju aðnjótandi hvað
Hólmarar eiga marga efnilega tón-
listarmenn. Á fyrstu árunum og
frameftir var aðaluppistaðan áhug-
asamir sjálfboðaliðar og hugsjóna-
menn. Víkingur Jóhannsson var
bæði stjómandi hennar yfír 30 ár
og æfði einnig hjjóðfæraleikarana
og var það mikið starf og tímafrekt.
Hafsteinn Sigurðsson kynnti á
tónleikunum þau verk sem þar vom
flutt og lýsti að nokkru efni og
höfundum, en eins og áður sagði
var dagskráin vel valin, efnisrík og
skemmtileg. Eldri borgurum bæjar-
ins var boðið á tónleikana.
Lúðrasveitin varð í lokin að leika
nokkur aukalög svo að alls vom
leikin þama um eða yfír 20 verk.
Þá skal þess getið að Lúðrasveit-
inni hefír boðist þátttaka í lúðra-
sveitamóti sem fram fer í Austur-
Þýskalandi nú í sumar. Hefír verið
ákveðið að reyna að nýta sér þetta
boð, og er þegar hafínn undirbún-
ingur æfínga undir þau verk sem
sveitin hyggst flytja þar.
— Árni
Fræðsla um
samskipti for-
eldra og bama
Foreldrafélag Breiðholtsskóla
efnir til fræðslufundar um efnið
„Samskipti foreldra og bama“ I
kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30
í Breiðholtsskóla.
Fyrirlesari verður Húgó Þóris-
son, skólasálfræðingur. Fyrirepum-
ir og umræður verða eftir fyrirlest-
urinn.
Fræðslufundurinn er opinn öllum
foreldmm, kennumm og hverjum
öðmm, sem hafa áhuga á uppeldis-
málum.