Morgunblaðið - 02.03.1988, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur. Ég
er fædd 30. júlf 1956, kl. 7.05
(Reykjavík) að morgni. Gætir
þú sagt mér eitthvað um sjálfa
mig og mína hæfileika. Virð-
ingarfyllst...“
Svar:
Þú hefur Sól, Úranus, Merk-
úr, Rísandi og Plútó í Ljóni,
Tungl á Miðhimni í Nauti,
Venus í Tvíbura og Mars í
Fiskum.
Föst fyrir
Það að vera Ljón og Naut
táknar að þú ert föst fyrir og
að mörgu leyti óbreytanlegur
persónuleiki. Mick Jagger í
Rolling Stones er líkt og þú
Ljón með Tungl í Nauti. Hann
hefur spilað í sömu hljóm-
sveitinni í 25 ár og á sama
tfma hefur persónulegur stíll
hans lítið sem ekkert breyst.
Þetta táknar einnig að þú ert
að mörgu leyti ráðrík og getur
verið ákaflega þrjósk ef svo
ber undir.
Dul
Þrátt fyrir að þú sért Ljón og
því opin og hlý í grunneðli
þínu, ert þú að mörgu leyti
dul og varkár í famkomu og
hvað varðar persónulegan stfl.
Ástæðan fyrir þessu er sú að
þú hefur Plútó í samstöðu við
Rísanda. Það táknar að þú
ert sjálfsgagnrýnin og meðvit-
uð um neikvæðar hliðar per-
sónuleika þfns og hefur þörf
fyrir að losa þig við neikvæð-
ari þætti. Plútó fylgir að þú
hefur áhuga og hæfíleika á
sálfræðilegum og andlegum
sviðum.
SjálfstœÖ
í korti þfnu er sterkur Úran-
us. Það táknar að þú hefur
þörf fyrir spennu f daglegu
lífi og sækir í það sem er
óvenjulegt. Þér er að mörgu
leyti illa við bönd og hefð-
bundin viðhorf og þarft að
hafa ákveðið sjálfstæði í dag-
legu lffi.
Félagslynd
Venus f Tvíbura táknar að þú
ert félagslynd og forvitin um
fólk og þarft að hafa félags-
legan Qölbreytileika f lífi þínu.
Þar sem Sólin er f tólfta húsi
þarft þú eigi að síður að geta
dregið þig í hlé annað slagið.
ímyndunarafl
Mars í Fiskum táknar að
framkvæmdaorka þín fer að
töluverðu leyti út í ímyndun-
arafl þitt, að þú átt til að
vera draumlynd og utan við
þig, en einnig misjöfn í orku-
beitingu. Þú ert tamamann-
eskja í vinnu. Mars í Fiskum
er algengur hjá listamönnum
og þeim sem vinna að lfknar-
málum.
Mannúöarmál
Þegar á heildina er litið er
líklegt að störfum að mannúð-
armálum henti þér bestu. Þér
gæti t.d. fallið að vinna að
uppeldismálum og hjúkrun.
Vegna Ljónsins og Plútó hef-
ur þú hæfileika til að gegna
stjómunarstörfum. Það á
einnig geta þess að Tungl á
Miðhimni gefur hæfileika til
allra starfa sem hafa með
undirstöðugreinar að gera,
s.s. að fæða, klæða, hýsa og
ala upp. Inn f því er falið
matreiðsla, fatahönnun og
hótelstörf.
Hœtturnar
Það sem helst gæti háð þér
er stöðugleikinn, þ.e.a.8. Þú
þarft að vera á varðbergi
gagnvart því að festa þig í
sama farinu. Einnig þarft þú
að varst tilhneigingu Mars í
Fiskum að láta sig dreyma
um verkin en framkvæma þau
ekki. Ef þú tekst á við þessi
tvö mál ættu þér að vera allir
vegir færir.
GARPUR
DÝRAGLENS
LJOSKA
Líklega ættir þú ekki að
borða hnetusjör og tyggja
kúlutyggjó samtímis___
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Aðdáendur breska bridshöf-
undarins Victor Mollos, sem lést
í haust, þurfa ekki endilega að
kvfða því að heyra ekki fleiri
sögur af þeim einstæðu mann-
gerðum sem Mollo skóp og dáð-
um þeirra og mistökum við
græna borðið. Svo virðist sem
höfundur að nafni Jimmy Tait
ætli sér að reyna að feta í fót-
spor meistarans. Hann hefur
nýlega gefið frá sér bók sem ber
heitið „Frásagnir klúbbmeistar-
ans“, en sá karakter þykir minna
meira en lítið á aðalsögupersónu
Mollos, hina hræðilegu svína-
pest, Göltinn grimma. Ekki nóg
með að grobbi sleitulaust af af-
rekum sínum; hann getur ekki
stillt sig um að hæðast að tak-
mörkuðu spilaviti mótheija
sinna. Og hver kannast ekki við
þessa eiginleika í fari Galtarins.
Hér er spil sem klúbbmeistari
Taits skýrir frá í bókinni:
Vestur gefur, allir á hættu.
Norður
♦ 82
♦ 876532
♦ K7
♦ D104
Vestur
♦ KG7643
♦ 10
♦ D10
♦ ÁK85
Austur
♦ 1095
♦ 4
♦ Á962
♦ G9732
Suður
♦ ÁD
♦ ÁKDG9
♦ G8543
♦ 6
Vestur Norður Austur Suður
1 Spaði Pass 2 spaðar 3 hjörtu
3 spaðar 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Vestur leggur niður laufás og
skiptir svo yfir í tromptíuna.
Hinn almenni spilari — og
vafalaust nokkrir meistarar líka
myndu spila þennan samning
fljótt og óhikað! Eða blasir ekki
við að spila tígli á kónginn? Þá
er spilið tapað, því austur sendir
spaða í gegnum ÁD, áður en
ráðrúm fæst til að fría tígullit-
inn.
Klúbbmeistarinn lét hins veg-
ar út tígulgosann í öðrum slag!
Vestur lagði drottninguna á og
fékk að eiga slaginn. Þar sem
hann getur ekki sótt spaðann
hefur sagnhafi nú nægan tíma
til að fría tígulinn.
En það er heimska vesturs
sem veitir meistaranum hvað
mesta gleði. Hann ætlaði sér
auðvitað að stinga upp kóngnum
ef vestur léti lítinn tígul. Spilið
hefði því tapast ef vestur hefði
fundið þá „augljósu" vöm að
setja tíuna undir gosann!!
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Lichtenstein í
fyrra kom þessi staða upp í skák
Júgóslavanna Stanisic, sem hafði
hvítt og átti leik, og alþjóðlega
meistarans Komljenovic.
Hvítur fann nú óvenjulega
glæsilegan leik:
16. Hd8I! - Dxd8, 17. Rf7+ -
Hxf7, 18. Dxf7 - Rd7, 19. Bc4
- Rf6, 20. Dxg6
Mjög sterkt var einnig 20.
Rxe5!
20. - Rh7, 21. Rxe5! - BxeS,
22. Hxh6
og svartur gafst upp, þvi hann
er óveijandi mát.