Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 72

Morgunblaðið - 02.03.1988, Page 72
1 ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA iil GuójónÓ.hf. / 91-2 72 33 | MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Kjarasamningarnir felldir í Grinda- vík og Garðinum Morgunblaðið/Rax Umferðin gekk að óskum um aUt land í gær, daginn sem nýju umferðarlögin tóku gildi. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík bar nokkuð á að vantaði eyðublöð frá tryggingafélögunum, sem eiga að vera í hverri bifreið samkvæmt nýju reglunum en gert er ráð fyrir að bifreiðastjórar sjái sjálfir um skýrslugerð vegna minniháttar óhappa. Sjá bls. 4: „Þegar óhapp verður og lögreglu er þörf.“ Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ; Sjómenn munu krefjast hækkunar á fiskverði Grindavík. NÝGERÐIR kjarasamningar voru felldir á fjölmennum fundi í Verkalýðsfélagi Grindavíkur sem haldinn var í Félagsheimilinu Festi í gær með 42 atkvæðum gegn 37. Fjórir seðlar voru auðir. Fundurinn er sá fjölmennasti sem haldinn hefur verið um árabil hjá Verkalýðsfélagi Grindavíkur þar sem nýgerðir lq'arasamningar hafa verið til umræðu, en alls voru á fundinum rúmlega níutíu manns. Benóný Benediktsson formaður félagsins kynnti samningana fyrir Loðnu- frysting hafin í Grindavík Grindavík. LOÐNUFRYSTING er haf- in í Grindavík, en Japanir gáfu grænt ljós á loðnu- farm úr Þórshamri GK, sem kom inn til löndunar um miðjan dag á mánudag- inn. Að sögn Ágústu Gísladótt- ur, framkvæmdastjóra Gullvíkur hf. í Grindavík, er ekki seinna vænna, því hrognafylling er orðin 20% og fer því að verða hver síðastur að frysta. „Loðnan er samt of smá eða um 65 stykki í kílói og verður reynt að byija á þess- ari loðnu þangað til Gísli Ámi RE kemur í nótt til Grindavík- ur með stærri loðnu," sagði Ágústa í gærkvöldi. Loðnunni er dælt með sér- stökum dælubíl, sem eigendur Þórshamars GK fengu í Nor- egi, en þar er slíkt áhald not- að til að dæla laxaseiðum milli keija. Nýja dælan hefur því hlotið naftiið „Laxdæla". Kr.Ben. GUÐRÚN Á. Símonar óperusöng- kona lést á heimili sinu í Reykjavík sunnudaginn 28. febr- úar sfðastliðinn, 64 ára að aldri. Guðrún fæddist í Reykjavík 24. febrúar 1924, dóttir hjónanna Símonar Johnsen Þórðarsonar lög- fræðings og Ágústu Pálsdóttur. Hún stundaði fyrst söngnám hjá Sigurði Birkis, en síðan söng- og leiklist- amám og nám í skyldum greinum í „The Guildhall School of Music and Drama" í London 1946 til 1950. Næstu tvö ár var hún við nám í „The English Opera Studio". Öll dvalarárin í London var Guðrún við söngnám í einkatímum hjá Lorenzo Medea í Wigmore Hall auk þess sem hún stundaði háskólanám í ensku. Hún var við söngnám á Ítalíu hjá Carmen Melis í Mflanó til 1954. fundarmönnum og þegar orðið var gefíð laust á eftir var greinilegt að fundarmenn voru ekki alls kost- ar ánægðir með samningana og endurspeglaði atkvæðagreiðslan andann á fundinum. Þegar niðurstaðan lá fyrir ósk- aði formaðurinn eftir uppástung- um um 5-7 manns í samninga- nefnd, því fyrir liggur að leita eft- ir betri samningum. Fyrir skömmu samþykkti félagsfundur að veita stjóm heimild til að boða verkfall, þá mættu aðeins 12 manns. — Kr.Ben. Garði Samningarnir voru felldir með 13 atkvæðum gegn 6 á almenn- um fundi hjá Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Gerðahrepps í gærkvöldi. Fundinn sótti aðallega fólk sem starfar við fískverkun og var að heyra á máli þeirra sem töluðu gegn samningunum að þeim þætti óskiljanlegt að 17 ára unglingar í byggingarvinnu hefðu hærri laun en þeir sem starfað hafa fímm ár við fískverkun. - Arnór „SJÓMENN munu ekki sætta sig við óbreytt fiskverð. Fulltrúar þeirra í Verðlagsráði munu krefj- ast þess, að þeir verði ekki látnir sita eftir, en við teljum að nú vanti 6 til 10% eftir landssvæðum upp á að laun sjómanna hafi hækkað til jafns við laun verka- fólks í landi miðað við tveggja ára tímabil. Við munum því krefj- ast hækkunar á fiskverði," sagði Guðjón A. Kristjánsson, forseti Guðrún Á. Símonar hélt fíölmarga tónleika í mörgum löndum, svo sem í Danmörku, Noregi, Bretlandi, Sov- étríkjunum, Bandaríkjunum, Kanada og íslandi. Hún söng í út- varp og sjónvarp og sígild lög og létt lög á hljómplötur. Hún söng aðalhlutverk í óperum, meðal annars Tosca úr samnefndri óperu, Mímí í La Boheme, Santuzza í Cavalleria rusticana, Rósalindu í Leðurblö- kunni, Sertínu í Ráðskonuríkinu og Amor í Orfeus og Evridís. Hún kom fram sem einsöngvari hjá Sinfóníu- hljómsveit íslands og hljómsveit ríkisútvarpsins. Guðrún var heiðus- borgari Winnipeg-borgar og var sæmd skjaldarmerki borgarinnar úr gulli. Hún var sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1981. Árið 1973 kom út ævisaga hennar, FFSÍ, í samtali við Morgunblaðið. Eftir efnahagsráðstafanir ríkis- stjómarinnar, er enn talið að fisk- vinnslan sé rekin með tapi, einkum frystingin, og því geti hún ekki tek- ið á sig hækkun fískverðs. Nýtt físk- verð átti að taka gildi nú um mán- aðamótin. Með lækkun verðs á ga- solíu úr 8,60 krónum á lítrann í 8,20 lækka útgjöld útgerðar, en á móti kemur að við þessa lækkun, hækkar skiptahlutfall úr 75% í 76% sam- Guðrún Á. Símonar skráð af Gunnari M. Magnúss, „Eins og ég er klædd". Guðrún giftist árið 1960 Garðari Forberg. Þau skildu árið 1967. Guð- rún lætur eftir sig uppkominn son, Ludvig Kára Forberg. kvæmt kjarasamningum við sjó- menn. Því batnar afkoma beggja aðilja eitthvað, laun sjómanna hækka um 1,4%. Stjómvöld munu hafa bundið við það vonir, að lækkun olíuverðsins ásamt niðurfellingu launaskatts á útgerð eftir mitt þetta ár og endurgreiðsla uppsafnaðs sölu- skatts hefði þau áhrif að hægt yrði að ná samkomulagi um óbreytt fís- kverð. Líklega verður það ekki nema skiptahlutfalli verði breytt til að auka laun sjómanna á kostnað út- gerðar en ekki fiskvinnslu. Fyrir ráðstafanir ríkisstjómarinn- ar töldu fulltrúar fiskvinnslunnar frystinguna rekna með 10 til 15% tapi. 6% gengislækkun þýðir 6%' hækkun á tekjum, lækkun vaxta gæti bætt stöðuna um 1% og endur- greiðsla söluskatts og niðurfelling launaskatts um 2%. Þetta þýðir að staðan batnar vemlega, en á móti kemur kjarasamningur, sem kostar 3% og gengislækkun hefur hugsan- lega einhver áhrif til aukningar verð- bólgu fyrst í stað að minnsta kosti, en það eykur innlendan kostnað. Fulltrúar fískvinnslunnar telja því ekkert svigrúm til fiskverðshækkun- ar og telja sumir líklegt að hækkun á fískverði leiði til annarrar gengis- fellingar. Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ, segir að hækkanir á fískverði árið 1986 hafi verið sáralitlar, en vissulega hafí fiskverð hækkað nokkuð á síðasta ári með fijálsri verðlagningu og tilkomu fiskmark- aða, en það dugi ekki til. Óbreytt fískverð verði því aðeins til að fresta vandanum, en það gangi ekki að vertíðarsjómenn fái enga hækkun nú, þar sem meginhluta tekna þeirra sé aflað á næstu mánuðum. Þá seg- ir hann að hækkun skiptahlutfalls úr 75% í 76% komi fískverði ekkert við. Það sé samkvæmt kjarasamn- ingi að skiptahlutfall sé tengt verði á olíu og þar með útgjöldum útgerð- arinnar. Á síðasta ári hafí hlutur sjómanna skerzt um það sama og hann hækkaði nú vegna breytinga á olíuverði. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LÍU, vildi lítið tjá sig um stöðu mála. Hann sagði þó, að það gæti ekki gengið til lengdar að Verðlagsráð sjávarútvegsins ákvæði fiskverð, sem væri undir almennri verðlagsþróun í landinu. Verðlagsráðið kemur saman til fundar í dag og er þess vænzt að útreikningar Þjóðhagsstofnunar á stöðu fiskvinnslunnar eftir aðgerðir stjómvalda liggi þá fyrir. Stunginn með hnífi UNGLINGUR særðist talsvert af hnífsstungu í átökum við annan ungling á Vesturgötunni f gær- kvöldi. Var pilturinn fluttur í sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans. Piltamir vom undir áhrifum áfeng- is þegar til átakanna kom. Rannsóknarlögregla ríkisins hef- ur fengið málið til meðferðar. Guðrún A. Símonar óperusöngkona látin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.