Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
35
Þmgmeim starfi 2 vikur
við framleiðslustörf
UNNUR Sólrún Bragadóttir,
varaþingmaður Alþýðubanda-
iagsins á Austurlandi, hefur lagt
fram tillögu til þingsályktunar
um að þingmenn, aðrir en ráð-
herrar, verði ár hvert gert skylt
að starfa tvær vikur við þjón-
ustu- eða framleiðslustörf.
Unnur Sólrún Bragadóttir
(Abl/Al) mælti fyrir þingsályktun-
artillögu sinni um vettvangsþekk-
ingu þingmanna í sameinuðu þingi
í gær. Tillagan er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að undirbúa skuli
breytingar á starfi þingmanna, ann-
arra en ráðherra, sem feli í sér að
þingmönnum verði ár hvert skylt
að starfa tvær vikur við almenn
framleiðslu- eða þjónustustörf í sínu
kjördæmi. Jafnframt skyldunni sé
þetta réttur sem þingmanni ber.
Þessar starfsvikur falli inn í starf
þingmanna á jafneðlilegan hátt og
viðvera á þingfundum gerir nú. I
þessu skyni verði sett á fót nefnd
á vegum Alþingis til að undirbúa
breytinguna. Nefndin starfi í náinni
samvinnu við samtök launafólks og
atvinnurekenda. Miðað skal við að
Raforkumál
og blýfrítt
bensín
TVÆR þingsályktunartillögur
voru samþykktar af Sameinuðu
þingi í gær. Sú fyrri fjallar um
ráðstafanir til úrbóta í raforku-
málum Norður-Þingeyjarsýslu og
hin síðari um hugsanlega notkun
á blýlausu bensíni á íslandi.
Tillagan um raforkumál Norður-
Þingeyjarsýslu hljóðar svo: „Alþingi
ályktar að fela iðnaðarráðherra að
gera ráðstafanir til úrbóta í raf-
orkumálum Norður-Þingeyjarsýslu.“
Einnig samþykkti Alþingi svo
hljóðandi tillögu: „Alþingi ályktar
að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd
er meti hvort taka eigi í notkun blý-
laust bensín og hvaða aðgerða sé
þörf til að svo geti orðið. Nefndin
ljúki störfum eigi síðar en fyrir árs-
lok 1988. Kostnaður við störf nefnd-
arinnar greiðist úr ríkissjóði."
nefndin skili áliti fyrir upphaf næsta
þings.“
Unnur Sólrún sagði að sláandi
fáir þingmenn kæmu úr almennum
framleiðslu- eða þjónustustörfum
sem stór hluti þjóðarinnar ynni. Það
hefði margoft komi fram í tali þing-
manna hversu mikilvægt væri að
bakgrunnur þeirra væri sem fjöl-
breytilegastur og að Alþingi endur-
speglaði það þjóðfélag sem það
stjórnaði. Ef svo ætti að vera þyrftu
þingmenn að kynnast þeim störfum
sem minnst væru metin og lægst
væru launuð. Hún teldi eðlilegt að
fyrirtækin sem tækju þingmenn í
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, svaraði í gær
fyrirspurn frá Guðmundi
Ágústssyni (B/Rvk) um notkun
jarðhita í stað olíu í fiskimjöls-
verksmiðjur. Ráðherrann sagði
að tilraun með þetta væri nú að
fara af stað í Grindavík og myndi
hún leiða í ljós hversu hagkvæm
svona breyting væri.
Halldór Ásgrímsson sagði að
nokkrum sinnum hefði verið gerð
athugun á hagkvæmni þess að nota
jarðorku í stað olíu í fiskimjölsverk-
smiðjum. Niðurstaðan hefði ávallt
orðið sú að þetta hentaði vel en
verksmiðjurnar væru ekki staðsett-
ar nálægt jarðhitasvæðum. í
Grindavík stæði nú til að fara að
nota jarðhita frá Svartsengi. Áætl-
að verð á gufunni væri þriðjungur
olíuverðsins og myndi þetta því
spara um 10% af rekstrarkostnaði.
Það bæri þó að hafa í huga að verð
gufunnar réðist af flutningslengd.
Nú væri um að ræða þijár hafn-
ir þar sem jarðgufa væri talin vera
nógu nálægt, Grindavík, Straums-
vík og Húsavík. Tilraunin í
vinnu greiddu þeim ekki laun, en
að föst þingmannslaun breyttust
þann tíma og í staðinn kæmu laun
samsvarandi þeim er þeir hefðu
fengið á viðkomandi vinnustað.
Að lokum sagði Unnur að nokkr-
ir þingmenn hefðu látið þann vilja
í ljós að þessi tillaga yrði dregin
tilbaka. Taldi hún að þeir er svo
töluðu hefðu mesta þörf á starfs-
skiptum.
Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/Rvk)
tók einnig til máls um þessa til-
lögu. Hún sagði hana vera skemmti-
lega og tók jákvætt í innihald henn-
ar.
Halldór Ásgrimsson,
sjávarútvegsráðherra.
Grindavík myndi leiða j' ljós hvort
um hagkvæma breytingu væri að
ræða.
Fiskimj ölsverksmiðjur:
Jarðhitatilraun
í Grindavík
STUTTAR ÞINGFRETTIR
FUNDIR voru í sameinuðu
þingi og neðri deild í gær. I
sameinuðu þingi svöruðu ráð-
herrar fyrirspurnum og tvær
þingsályktunartillögur voru
samþykktar. Neðri deild af-
greiddi stjórnarfrumvarp um
endurgreiðslu uppsafnaðs
söluskatts til sjávarútvegs.
Einnig mælti Jón Baldvin
Hannibalsson, fjármálaráð-
herra, fyrir frumvarpi. um
ráðstafanir ríkisstjórnarinn-
ar í efnahagsmálum. Umræð-
unni var frestað klukkan 16
en hófst síðan aftur klukkan
20.30. Stefnt er að því að af-
greiða frumvarpið sem lög í
dag.
Tveir varaþingmenn
Tveir varaþingmenn tóku sæti
á Alþingi í gær. Ellert Eiríksson
tók sæti Matthíasar Á. Mathies-
en (S/Rn) og Björn Gíslason tók
sæti Sighvats Björgvinssonar
(A/Vf). Björn hefur ekki áður
setið á Alþingi.
Viðskiptajöfnuður við
einstök lönd
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, og Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra (fyrir hönd
utanríkisráðherra), svöruðu í
gær fyrirspurn frá Inga Birni
Albertssyni (B/Vl) um hvort þeir
hygðust gera eitthvað til að jafna
þann óhagstæða mun sem væri
á innflutningi Islendinga frá all-
mörgum löndum og útflutningi
þeirra þangað. Ráðherramír
sögðu ríkisstjórnina ekki hafa
uppi áform í þeim efnum,
fríverslun væri meginreglan í
viðskiptum okkar við önnur lönd.
Viðskiptaráðherra sagði að við
ættum að selja á bestu markað-
ina og flytja inn þaðan sem hag-
stæðast væri verð. Jöfnuður í
viðskiptum okkar við útlönd í
heild væri síðan allt annað mál.
Kosningaréttur íslendinga
erlendis
Jón Sigurðsson, dómsmála-
ráðherra, svaraði í gær fyrir-
spurn frá Kristínu Halldórsdótt-
ur (Kvl/Rn) um hvort dómsmála-
ráðuneytið hygðist bæta stöðu
þeirra Islendinga sem búsettir
væru erlendis og gætu því ekki
neytt kosningaréttar hér á landi.
Dómsmálaráðherra sagði að
samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar væru nú um 10.500
Islendingar, 18 ára og eldri, bú-
settir erlendis. Ekki væru til
nákvæmar tölur um hver margir
hefðu neytt kosningaréttar síns
í síðustu kosningum. Hann sagði
að við heildarendurskoðun á
kosningalögunum yrði reynt að
bæta stöðu þessa fólks, t.d. með
fjölgun kjörstaða.
Bjórinn í nefnd
NEÐRI deild afgreiddi í gær
bjórfrumvarpið til allsheijar-
nefndar. Fyrstu umræðu lauk
rétt fyrir miðnætti í fyrradag
en atkvæðagreiðslu var þá fre-
stað.
Erfiðlega gekk að afgreiða
frumvarpið til annarrar umræðu
og þó forseti endurtæki atkvæða-
greiðsluna nokkrum sinnum tóku
ekki nógu margir þingmenn þátt
í henni. Ólafur G. Einarsson
(S/Rn) bað þá um nafnakall og
tókst þannig að afgreiða málið.
Tveir þingmenn sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna, Stefán Valgeirs-
son (SJF/Ne) og Steingrfmur J.
Sigfússon (Abl/Ne). Steingrímur
J. sagði að efnislega eins fnur^
varpið hefði komið til afgreiðslu
nefndarinnar og væri því ekkert
því til fyrirstöðu að taka efnislega
afstöðu til frumvarpsins. Hann
væri andvígur efni þess og greiddi
því ekki atkvæði með því að það
kæmi til frekari/ umræðu í deild-
inni.
Næst var greitt um að vísa
málinu til allsheijarnefndar og bað
þá Ólafur Þ. Þórðarson um nafna-
kall. Bættist hann síðan í hóp
þeirra er sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Félag veggfóðrarameistara:
60 ára afmælis minnst
Sérfróður maður fylgisF
með hreindýrastofninum
FÉLAG veggfóðrarameistara í
Reykjavík er 60 ára í dag,
föstudaginn 4. mars. Stofnda-
gurinn er 4. mars 1928.
í tilefni afmælisins hefur stjórn
félagsins gestamóttöku í samko-
musal meistarafélaganna í Skip-
holti 70 eftir kl. 17. Á myndinni
EFTIRFARANDI ályktun • var
samþykkt á fundi Borgarmálafé-
lags jafnaðarmanna sl. laugardag.
Fundur Borgarmálafélags jafnað-
armanna, haldinn 27. febrúar, harm-
ar þá rangtúlkun sem frumvarp ríkis-
hér að ofan eru stjómarmenn Fé-
lags veggfóðrarameistara en þeir
eru, talið frá vinstri: Jóhann Ein-
arsson gjaldkeri, Hrafnkell Björns-
son varaformaður, Örn Guð-
mundsson formaður, Guðmundur
J. Kristjánsson framkvæmdastjóri,
Steinþór Eyþórsson ritari. og Jón
Ólafsson meðstjómandi.
stjómar Þorsteins Pálssonar um
kaupleiguíbúðir hefur fengið í fjöl-
miðlum. Félagið hvetur ríkisstjómina
til þess að kynna frumvarpið betur
og tryggja að það verði að lögum
fyrir vorið.
Hreindýranefnd Skotveiðifé-
lags Islands hefur beðið Morgun-
blaðið að birta eftirfarandi
fréttatilkynningu:
Vegna mikillar umljöllunar í fjöl-
miðlum undánfarna daga um að
hreindýr séu að falla úr hor eða
sjúkdómum vill hreindýranefnd
SKOTVÍS vekja athygli á eftirfar-
andi atriðum.
1. Fyrir tæpum tveimur árum
vann nefnd á vegum menntamála-
ráðuneytisins drög að frumvarpi til
laga um veiðar og friðun hreindýra.
I þessum frumvarpsdrögum eru
ítarleg ákvæði um hver skuli hafa
frumkvæði að björgun hreindýra í
hörðum ámm. Einnig er þar gert
ráð fyrir fastri stöðu sérfróðs aðila,
sem hefði yfirumsjón með að sam-
hæfa eftirlit og rannsókn á hrein-
dýrastofninum.
Vegna frétta um dauða all-
margra dýra undanfarið er sérlega
brýnt að þessi drög verði lögð fram
og kynnt á hinu virðulega Alþingi
og þau afgreidd sem lög hið fyrsta.
Minna má á að heimildarmönnum
frétta af dauða dýranna ber illa
saman um aldur dýra sem fallið
hafa og allar orsakir.
2. Hreindýranefnd Skotvís legg-
ur áherslu á, að þegar í stað verði
skipaður sérfróður maður af ráðu-
neytinu til að annast skráningu og
sýnatöku úr þeim dýrum sem fallið
hafa og sýnin send til greiningar
að Keldum.
3. Einnig skal bent á þá stað-
reynd, að erlendis þykir það sjálf-
sögð skylda yfirvalda, að sjá um,
að villtum dýrum sé komið til bjarg-
ar á viðeigandi hátt þegar hart er
í ári og eru þar hreindýr engin
undantekning. Með slíkum aðferð-
um er að verulegu leyti komið í veg
fyrir skemmdir af völdum hreindýra
KirKjubæjarklaustri.
ÚTIHÚS brunnu til kaldra kola
á bænum Keldunúpi i Hörgs-
landshreppi í gær, en um
klukkan 11 varð vart við eld í
hlöðu og fjósi á bænum. I fjós-
inu voru 14 nautgripir og tókst
bóndanum að koma þeim út í
tæka tíð. í öðru húsi sam-
byggðu voru fjórir kálfar og
tókst nauinlega að bjarga þeim.
Þegar slökkvliðið kom á vett-
á viðkvæmum tijágróðri eins og
gerst hefur undanfarið á Héraði.
Ákvæði um þessa hluti er að fínna
í ofangreindum frumvarpsdrögum.
4. Hreindýrin á Íslandi, sem eru
þjóðareign — eru að verðmæti um
90 millj. króna. Verðmæti árlegs
meðalveiðikvóta er um 19 milljónir
króna.
Ofangreind frumvarpsdrög gera
einnig ráð fyrir, að ákveðinni fjár-
hæð árlegs veiðikvóta sé varið til
bjargar dýrum í hörðum árum.
vang voru húsin alelda og brunnu
þau til kaldra kola en fjárhúsi, sem
sem sambyggt var, tókst að
bjarga. í hlöðunni var meirihluti
heyforða ábúenda, um 5 þúsund
baggar, og talið er að þeir séu
allir ónýtir. Tjónið er því mikið og
tilfinnanlegt fyrir ábúenduma,
Elínu Pálsdóttur og Guðna Bergs-
son. Eldsupptök eru ókunn.
Ályktaðum kaupleigu
Útihús brunnu
til kaldra kola