Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 19
AUK/SlA K109-48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
19
Margir ökumenn kunna ekkí
að nota tjónstilkynningar
Kynningu ábótavant segja lögreglumenn
Morgunblaðið/Þorkell
Lögreglan við leiðbeiningarstörf. Benedikt Lund lögreglumaður
útskýrir fyrir ökumanni, hvernig fylla á út tjónstilkynningu.
l kennslustund hjá Benedikt Ltmd lögreglumanni. „Hvor er A
og hvor er B — í hvaða reiti á að skrifa?“ Tjónstilkynningin
reynist mönnum erfið við fyrstu sýn og að sögn lögreglumanna
má gera ráð fyrir að þeirra störf verði að miklu leyti svipuð
þessu á næstunni.
ÞEGAR nýju umferðarlögin
tóku gildi þann 1. mars sl., áttu
um leið að vera komnar svo-
nefndar tjónstilkynningar í all-
ar bifreiðir. Við minniháttar
óhöpp og þegar ekki verða slys
á fólki er nægjanlegt að fylla
þessar tilkynningar út og þarf
ekki að kalla til lögreglu. Til
þess að kanna hvernig þessar
tilkynningar hafa komist til
skila og hvort ökumenn viti
hvernig á að nota þær, slóst
Morgunblaðið í för með lög-
reglunni í Reykjavík þegar far-
ið var á vettvang vegna minni-
háttar umferðaróhappa á mið-
vikudaginn. Þessi óhöpp voru
dæmigerð fyrir atvik, þar sem
ekki þarf að kalla til lögreglu,
heldur nægir að fylla út tjón-
stilkynningu og afhenda trygg-
ingarfélagi.
Fyrstu tveir dagarnir, sem nýju
umferðarlögin gilda,' voru ein-
dæma rólegir hjá slysarannsókna-
deild lögreglunnar, að sögn þeirra
lögreglumanna sem blaðið hafði
tal af. Höfðu útköll yfirleitt verið
vegna smávægilegra óhappa, þar
sem nægt hefði að fylla út tjónstil-
kynningar. Lögreglan tók hefð-
bundna skýrslu um atvik og leið-
beindi síðan fólkinu með útfyll-
ingu eyðublaðanna. Töldu lög-
reglumenn ekki óeðlilegt, að
óhöpp væru fá fyrstu dagana eft-
ir lagabreytinguna, fólk færi var-
legar, líkt og í upphafi vetrar.
Síðan mætti búast við fleiri óhöpp-
um þegar menn teldu sig orðna
öruggari og hættir að vera óvissir
á hinum nýju reglum.
Morgunblaðið fór með í útkall
vegna tveggja árekstra. Þegar á
staðinn var komið í fyrra sinnið,
stóðu bílamir óhreyfðir frá því að
þeir höfðu verið stöðvaðir eftir
áreksturinn. Þetta var lítilsháttar
árekstur og sást tjón á frambretti
annars bílsins, engin meiðsli höfðu
orðið á fólki.
Hvorug kvennanna sem óku
bílunum höfðu tjónsskýrslu í
bflnum, en vissu hins vegar um
tilvist þeirra. Þær vissu ekki
hvemig fylla skyldi út þessi eyðu-
blöð og því þurftu lögreglumenn-
irnir að leiðbeina þeim við það,
að lokinni vettvangsrannsókn að
hefðbundnum hætti. Það var aug-
ljóst, að tjónstilkynningin kom
konunum ókunnuglega fyrir sjón-
ir, enda höfðu þær ekki kynnt sér
innihaldið. „Það má ekki opna
þetta, er það?“ spurði önnur þeirra
og síðan komu spurningamar
hver af annarri: „Hvemig á að
fara að þessu?“ „Hvað á að skrifa
hér?“ „A að fylla bæði eintökin
út?“ „Hvað á svo að gera við
þetta?" Þar sem ekki var ágrein-
ingur með ökumönnum, gekk
greiðlega að fylla út tjónstilkynn-
inguna og lögreglan gat snúið sér
að öðrum árekstri, sem á meðan
hafði orðið í nándinni. Þar var
sama uppi á teningnum. Smá-
vægilegt nudd tveggja bíla og
ökumenn, sem að þessu sinni vom
karlar, vildu fá lögreglu á vett-
vang. Þar endurtók sig sama at-
Dæmigerður árekstur fyrir þá, sem lögreglan þarf ekki að sinna,
ef ökumenn hagnýta sér tjónstilkynningarnar: Lítið tjón, engin
meiðsli á fólki og hreinar línur um atvik. Tjónstilkynningar
þarf að fylla út, jafnt þótt lögregla sé kvödd á vettvang.
skýrsluna út.
Lögreglumennirnir sögðust
eiga von á, að fyrsta kastið yrði
mikið um slík atvik sem þessi.
Það tæki fólk líklega nokkum
tíma að átta sig á að í mörgum
tilvikum nægir að fylla út tjónstil-
kynningu á vettvangi og óþarft
að kalla til lögreglu. Það léttir
mjög á störfum lögreglunnar
segja þeir, en tóku fram, að mjög
skorti á, að tryggingafélögin
hefðu kynnt almenningi nægilega
vel þessar tilkynningar. Þeir sögð-
ust hafa orðið þess varir, að öku-
menn vissu ekki hvort þeir ættu
að nota tjónstilkynningamar, enn
síður hvemig á að fylla þær út.
Með tjónstilkynningunum
fylgja leiðbeiningar, sem em læsi-
legar þótt ekki hafi verið tekið
utan af þeim hlífðarplastið. í þess-
um leiðbeiningum er sagt til um,
hvenær á að kveðja til lögreglu,
en auk þess er lögreglan ætíð
reiðubúin til að koma á vettvang,
ef um vafamál er að ræða, eða
ef málsaðilar vilja fá lögreglu-
skýrslu um málið, að sögn lög-
reglumanna, sem blaðið ræddi við.
Það eru ekki eingöngu stórtjón,
sem lögreglan er kvödd til að
taka skýrslu um. í tilvikum sem
þessum, nægir að fylla út tjón-
stilkynningu og koma henni til
tryggingafélags, ekki er nauð-
synlegt að kalla til lögreglu.
burðarás, lögreglumenn rannsök-
uðu vettvang, afhentu ökumönn-
unum eintök af tjónsskýrslu og
sýndu þeim hvemig á að fylla
ÞAD BÝR MARGT
í SKEIFUNNI
Ég ætla aö segja ykkur frá nýju bílasölunni sem í
Skeifunni býr. Hún nefnistTOYOTA BÍLASALAN og þar er
gott val notaðra bíla af öllum tegundum. Langi ykkur til að
skoða gripina, takið þá eftir stóra nýja húsinu sem stendur
austan við Hagkaup... eða: vinstra megin við aðalinngang
Hagkaups.
Þar gangið þið inn í nýtt fyrirtæki, T0Y0TA BÍLASÖLUNA
sem byggir þó á langri reynslu og öruggri þjónustu Toyota.
Verið velkomin alla virka daga milli kl. 9:00 og 19:00
og laugardaga milli kl.10:00 og 17:00.
TOYOTA
SKEIFUNNI 15, SÍMI 687120