Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 47
47 ' Hetjulegri baráttu ungrar konu, móður þriggja barna er lokið. Við kveðjum Björgu í dag harmi slegin yfír slíkum örlögum sem henni voru búin. Ekkert þráði Björg heitar en að geta verið lengur samvistum við eiginmann sinn og litlu börnin. En tími þessarar góðu stúlku hér á meðal okkar er á enda og það er erfítt að sætta sig við þá miskunn- arlausu staðreynd. Kynni okkar Bjargar hófust þeg- ar hún og frændi minn, Gústaf, byrjuðu búskap sinn í lítilli íbúð hjá ömmu okkar og afa í Hafnarfirði. Björg var seintekin og vör um sig gagnvart fólki, en ákaflega heil- steypt og.trygg þeim sem hún tók. Þegar tímar liðu fram tókst góð vinátta milli okkar. Þau ár sem hún og Gústaf bjuggu í sambýli við gömlu hjónin, reyndist hún þeim frábærlega vel og mikið þótt þeim vænt um hana. Náið samband myndaðist milli Bjargar og ömmu, sem ekki var allra. Á heimili Bjarg- ar og Gústafs var þá sem og síðar gott að koma. Þau voru samstillt að byggja upp hamingjuríkt líf. Mesta hamingja Bjargar var þegar hún eignaðist börnin sín þrjú. Þeim helgaði hún allan sinn tíma og þreyttist aldrei á að sitja með þeim, föndra, spjalla við þau og kenna þeim góða siðu. Enda bera börnin, þó ung séu að árum, góðri móður fagurt vitni. Þau eru ákaflega þroskuð og vel að sér til munns og handa. Missir jafn ástríkar móður er óbætanlegur. Þegar ég með síðustu skiptunum heimsótti Björgu á sjúkrahúsið sat hún upp í rúm- inu, þrotin að kröftum, og var að ljúka við að sauma klukkustreng fyrir Sillu litlu. Við sem fylgdumst með sjúk- dómsstríði hennar fylltumst aðdáun á hugrekki hennar og einlægum baráttuvilja. Við munum minnast hennar sem hetju. Kæri frændi, missir þinn er mik- ill en ég vona að þér takist með stuðningi fjölskyldu þinnar að halda áfram að hlúa að velferð bama ykkar. Þau eru dýrmætasta minn- ingin um framúrskarandi konu. Hildur Hilmarsdóttir Björg, vinkona mín fæddist á Siglufirði 10. apríl 1948. Ekki kann ég að rekja sögu hennar í æsku, það gera eflaust aðrir sem betur þekkja til. Eg sá Björgu í fyrsta sinn hjá sameiginlegri vinkonu okkar. Bjögga, eins og hún var alltaf köll- uð, vakti strax athygli mína, virtist sterkur persónuleiki, fáguð í fasi og framkomu. Síðar tókust með okkur góð kynni, sérstaklega eftir að við vomm orðnar nágrannar á Sléttahrauninu, hér í Hafnarfirði. Ég rölti stundum yfir til hennar á kvöldin og við spjölluðum saman fram á rauða nótt. Oft vomm við prjónandi, Bjögga prjónaði fallegar peysur á bamið sitt, ég hélt mér við lopann. Heimiliskettinum líkaði aldeilis lífið að rekast á lopahnykil á gólfinu og tætti hnykilinn í sund- ur ef af honum var litið. Úti fyrir var veðrið yndislegt, hásumar, sólin svo syíjuð að hún visi varla hvort hún ætti að rísa eða hníga. Indælar stundir í minningunni. Bjögga og Gústi fluttu síðan í stærra húsnæði að Breiðvangi og barnahópurinn stækkaði. Þar á heimilið vom komin þrjú lítil börn og hamingjan virtist brosa við fjöl- skyldunni, þegar uppgötvaðist hjá Bjöggu meinsemd í brjósti og eitl- um. Upphófst nú mikið stríð við veikindin og hart var barist þar til yfír lauk. Það sem einkenndi Bjöggu einna helst var takmarkalaus ást á dýmm og raunar öllu sem lifir, þ.m.t. plöntur, allt dafnaði og óx í návist hennar. Ekki mátti vita af nokkmm svöngum ketti í grenndinni. Hann var tekinn inn og honum gefið, dúfum gefið á svölunum, jafnvel vom þær teknar inn á baðherbergi í stórhríðum. Fuglum gefið fyrir utan sumarbústað, þannig að eftir nokkurra daga dvöl þar, vom fugl- amir mættir, því þeir vissu sér vísan mat í gogginn, þar sem húsmóðirin var. Síðastliðið sumar fómm við og fjölskyldur okkar saman í sumarhús til Hollands. Ferðin var indæl, en MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 það urðu okkur öllum ákaflega mik- il vonbrigði að veikindin mögnuðust upp, með veldisvísi sínum að því er okkur fannst. Það var því lítið annað til ráða en að leita hjálpar. Fararstjórar staðarins reyndust okkur afbragðs vel og pöntuðu tíma hjá sérfræðingi í geislalækningum á sjúkrahúsinu í Eindhoven. Okkur var afar vel tekið af starfsliði sjúkrahússins og þótt komið væri fram yfir lok vinnudags hjá þeim, þá var samt allt sett í gang með að fínna hvort nokku'r breyting væri orðin á sjúkdómnum. Jú, mein- varp fannst á tveimur stöðum og strax var hafist handa við að geisla á blettina. Mér er minnisstætt þeg- ar við stóðum fyrir framan stórt og mikið tæki, sem kallast línuhrað- all. Þá hafði Bjögga á orði að von- andi kæmi fljótt að því að Islending- ar gætu tekið samskonar tæki í gagnið. Áfram liðu dagarnir í Hol- landi. Ekki get ég þrætt fyrir að hafa verið fegin að stíga fæti á íslenska jörð við heimkomuna og að við værum öll saman, eins og áður en við fórum. Ég sakna vináttu hennar, hlát- ursins og húmorsins, samverunnar, gestrisni hennar. Ég kem einnig til með að sakna skapillskunnar, en það er kannski afsökun fyrir minni. Ég sakna gróandans í kringum hana og mannkærleikans. Veri hún sæl, hafi hún þökk fyrir samfylgd- ina. Hvíli hún í friði. Öllum aðstandendum, ættingjum og vinum, eiginmanni, Gústaf Magnússyni, börnunum, þeim Heiðu Björg, Ágúst og Sillu litlu, votta ég og fjölskylda mín, okkar dýpstu samúð. Kristín Guðmundsdóttir í dag, föstudaginn 4. mars„verð- ur mágkona mín, Björg Helga Sig- mundsdóttir, til moldar borin eftir langa og erfíða sjúkdómslegu. Hún hefði orðið fertug á þessu ári. Björg kom inn í fjölskyldu mína fyrir um það bil tuttugu árum. Þá fluttu þau bróðir minn, Gústaf Magnússon, og hún í kjallarann hjá afa ogömmu á Suðurgötu 58, Hafn- arfirði. Þar hafði ég einmitt búið sumarlangt á undan þeim. Sam- skipti okkar urðu ekki náin á þess- um árum enda var ég þá mikið á faraldsfæti. Þannig hófust hin eig- inlegu kynni okkar Bjargar ekki fyrr en haustið 1983, er ég fluttist aftur heim til Islands eftir nokkurra ára búsetu erlendis. Þá tengdumst við líka sterkum böndum í gegnum bömin okkar, en börn þeirra Bjarg- ar og Gústafs eru fædd ’78, ’80 og ’83. Umræðuefnin hjá okkur voru nær óþrjótandi, enda ung börn eilíf uppspretta umfjöllunar og vanga- veltna. Velferð barnanna var okkur ávallt ofarlega í huga ekki síst Björgu. Dáðist ég ósjaldan að þeirri þolinmæði og nærgætni sem hún sýndi í umgengni sinni við börn sín og annarra. Enda var það stöðugt tilhlökkunarefni á mínu heimili að fara í heimsókn til frændsystkin- anna á Breiðvanginum, og ófá tárin kostaði það að þurfa að kveðja „eft- ir svona stutta stund“. Það um- ræðuefni sem okkur Björgu var þó hugleiknast var bóklestur, og rædd- um við það oft hvers konar bækur við ættum að velja fyrir börnin. Nú er Björg farin frá okkur. Hún hefur sofnað svefninum langa. Frá- fall hennar er mikið áfall fyrir okk- ur öll sem hana þekktum. Én þung- bærast er það þó fyrir börnin henn- ar þijú, því skarð móður er vand- fyllt. Ekki síst móður sem helgaði sig nær eingöngu uppeldi barna sinna. Ef til vill er það samt hugg- un að hún hafí loks fengið hvfld eftir þá þrotlausu baráttu sem hún hefur háð, að því er virtist æðru- laus, undanfarin ár við erfíðan og kvalafullan sjúkdóm. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin er aftamjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguijóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson) Bróður mínum, Gústaf Magnús- syni, og bróðurbömunum mínum Heiðu Björgu, Ágúst og Sigurlínu sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Lilja Guðmundsdóttir og fjölskylda. SVAR MITT eftir Billy Graham Ég veit að þú hefur stundum haldið því fram að stjörnuspeki væri af hinu illa. Ég held að stjörnu- speki sé gjöf sem Guð hefur gefíð okkur til að hjálpa okkur að breyta vel. Hvers vegna heldur þú að hún sé andstæð kristinni trú? Margir gefa gaum að stjörnuspeki um þessar mundir og ýmislegri annarri dulhyggju. En það er nauðsynlegt að öllum sé vel ljóst að Biblían bannar allt slíkt afdráttarlaust — þeim sem vilja fylgja Guði. Sums staðar gerir Biblían gys að þeim sem hallast að þessari speki því að hún veitir enga örugga leiðsögn. Um þetta geta menn sannfærst t.d. ef þeir líta á spár svonefndra stjörnuspekinga um eitthvert til- tekið ár. Annars staðar fordæmir Biblían hörðum orðum allar iðkanir í þessar veru. Sjá t.d. 5. Mósebók 18,9-14. Hvemig stendur á þessu? Ein ástæðan er sú að stjörnu- speki er sprottin úr fornum, heiðnum trúarbrögðum. Þar átti að tilbiðja falsgoð í stað þess að tilbiðja hinn eina, sanna Guð og þjóna honum. En Guð hefur birt okkur allt sem við þurfum að vita og við getum komist að raun*um sannindi hans með því að lesa Biblíuna, sem er orð Guðs. Við þurfum ekki að skoða stjörnurnar til að fínna lausn á vandamálum lífsins því að Kristur hefur komið til að hjálpa okkur og frelsa. Biblían segir ennfremur að Guð elski okkur og vilji sýna okkur vilja sinn daglega ef við horfum til hans. Ég bið þig að taka eftir að þetta fólk sem er að spá um framtíðina, hvort sem er úr stjörnunum eða á annan hátt, skírskotar nær alltaf til eigingirni okkar í ýmsum myndum, eins og ágimdar. Okkur fýsir að þekkja framtíðina af því að við viljum ráða yfir henni eða hagnast á henni í eigingjörnum tilgangi. En Kristur kallar okkur til að fylgja sér og lifa sér. Við eigum að þjóna honum, ekki okkur sjálfum. Leitaðu leiðsagnar hjá Guði. Lærðu að ganga með honum á hveijum degi er þú lest orð hans og heimfærir sannindi þess til lífs þíns, í krafti heilags anda. Þá öðlastu gleðina af því af að eiga náið samfélag við Krist og af því að hann gefur hverjum degi tilgang. t SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR frá Neskaupstað, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. mars kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Baldvin Þorsteinsson. t Eiginmaður minn og stjúpfaðir okkar, ÞORVALDUR SÆMUNDSSON, Heiðmörk 9, Hveragerði, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. mars kl. 14.00. Guðrún Lovisa Hannesdóttir og börn. t GÍSLI HÓLMBERGSSON, Ísafirði, verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 5. mars kl. 14.00. Kristmundur Gislason, Anna Gisladóttir, Hólmberg Gfslason, Fríða Gisladóttir, Páll Sturlaugsson, bamabörn og Friðgerður Sigurðardóttir, Sturlaugur Jóhannsson, Sóley Gestsdóttir, Pétur Blöndal, Emma Rafnsdóttir, barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR, Hólmgarði 41, Reykjavík, verður jarðáungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. marz kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á Krabba- meinsfélagið. Gunnar Kristjánsson, Guðriður Kristjánsdóttir, Hanna Karen Kristjánsdóttir, Ólafur Barði Kristjánsson, og barnabörn. Helga Loftsdóttir, Helgi Geir Valdimarsson, Þórir Georgsson, Helga Kristinsdóttir t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför GUÐRÚNAR KRISTÍNAR BENEDIKTSDÓTTUR frá Suðurkoti, Vogum. Sœrún Jónsdóttir, Ólafur Þ. Jónsson, Sigriður S. Jónsdóttir, Guðmundur M. Jónsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður minnar, GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Safamýri 44, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki Borgar- sjúkrahússins i Reykjavik. Óskar Rafn Þorgeirsson og aðstandendur. t Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR HELGADÓTTUR, Hátúnf 8, Reykjavík. Ragnar Elíasson, Hanna Ragnarsdóttir, Árni S. Jónsson, Guðlaug Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför FRIÐSEMDAR BÖÐVARSDÓTTUR, Sætúni, Eyrarbakka. Sérstakar þakkir fá læknar og starfsfólk Vífilsstaðaspitala fyrir góða umönnun. Kjartan Einarsson, Jónfna Kjartansdóttir, Gestur Karlsson, Einar Kjartansson, Þórhildur Gisladóttir, Bryndís Kjartansdóttir, Guðlaugur Þórarinsson, börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.