Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 Miðstjórn Alþýðusambands Islands: Atkvæðagreiðsl- an ekki ólögleg MIÐSTJÓRN Alþýðusambands íslands telur hvorki lög Dags- brúnar né lög Alþýðusambands- ins hafi verið brotin við atkvæða- greiðslu um nýja kjarasamninga Dagsbrúnar á almennum félags- fundi á mánudaginn var. Því sé ekki ástæða til frekari afskipta af málinu. Atkvæðagreiðslan var kærð til miðstjórnarinnar og rnálið tekið fyrir á fundi hennar í gær. í samþykkt miðstjórnarinnar segir að ekki sé ágreiningur um lögmæti fundarins og boðun til hans og mönnum beri saman um að ekki hafi verið óskað eftir skriflegri at- kvæðagreiðslu og hafi slík ósk ver- ið sett fram sé ljóst að hún hafí ekki borist til fundarstjóra, en at- kvæðagreiðslan fór fram með handauppréttingu. Að úrslitunum fengnum virðist ekki hafa verið gert tilkall til endurtalningar. Þá segir að ekki hafi verið ágreiningur á fundinum um val telj- ara eða talningarfyrirkomulag. Síðan segir: „Fram hefur komið að talningarfyrirkomulagið er hefð- bundið við afgreiðslur samninga í Dagsbrún. Teljarar voru tilnefndir af fundarstjóra án fyrirfram sam- ráðs og ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að teljarar hafi gefið upp rangar tölur og þeir stað- festa að fundarstjóri hafi lesið upp þær tölur sem þeir afhentu honum. Af sjónvarpsupptöku verður ekki annað ráðið en að atkvæðagreiðslan var tvísýn og töluverður fjöldi fund- armanna sat hjá.“ Danska flutningaskipið Kongsaa: Geram kröfu um bj örgunarlaun — segir Róbert Guðfinnsson fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma RÓBERT Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma á Siglu- firði, eiganda togaranna Stálvíkur og Sigluvíkur, sagði í samtali við Morgunblaðið að krafa yrði gerð um að Stálvík fengi björgunarlaun fyrir að hafa bjargað danska vöruflutningaskipinu Kongsaa við Raufarhöfn. Geir Zoega, umboðsmaður tryggingafélags Kongsaa, British Marine Mutual, sagði í samtali við Morgunblaðið að trygginga- félagið hefði ekkert vitað um þetta mál þegar hann hafði samband við það síðdegis í gær þegar danska skipið Teresa Olalia hafði tek- ið Kongsaa í tog frá Eiðisvík til Seyðisfjarðar. Geir sagði að ef Stálvik hefði bjargað Kongsaa við Raufarhöfn teldi hann að Stálvík ætti rétt á björgunarlaunum, ef hún hefði fært Kongsaa í öruggt var á Eiðisvík. Sigluvík og Þorsteinn EA buðust til að færa Kongsaa til hafnar en Kongsaa afþakkaði aðstoðina. Rób- ert Guðfínnsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma, sagði að búist væri við Stálvík og Sigluvík til Si- gluflarðar fyrir hádegi í dag. „Það tókst að stöðva lekann sem kom að Stálvík vegna áreksturs hennar og Kongsaa á Eiðisvík, með því að blása út lóðabelg í gatið," sagði Róbert. „Það verður gerð krafa um að viðgerð vegna skemmda á Stálvík, sem urðu við áreksturinn, verði greidd. Auk þess munum við fara fram á að fá greidd björgunar- laun fyrir að bjarga Kongsaa við Raufarhöfn, því ef Stálvík hefði ekki komið skipinu til aðstoðar hefði það strandað þar. En þetta kemur að sjálfsögðu allt betur í ljós í sjó- prófunum sem haldin verða vegna þessa máls,“ sagði Róbert. Þorvaldur Jónsson, umboðsmað- ur eiganda skipsins, Bents Christ- ensens í Sæby í Danmörku, sagði að lítilsháttar leki hefði komið að Kongsaa við áreksturinn en farmur þess, 1.354 tonn af loðnumjöli, hefði ekkert skemmst. Þorvaldur sagðist búast við að Kongsaa og Teresa Olalia yrðu komin til Seyðisfjarðar fyrir hádegi í dag. 3Borgvmfr?flhit> í dag BLAÐ B BLAÐ C ÓPERAN Don Carlos var flutt í Háskólabíói í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi áhorfenda. Flyljendur voru Sinfóníuhljómsveit íslands, kór islenzku óperunnar ásamt 11 einsöngvurum undir stjórn Klauspeters Seibels. Filippus konungur var sunginn af J.H. Rootering, Don Carlos af G. Aristo, Elisabet drottning af L. Bosabalian, Eboli prinsessa af M. Pawlus-Duda og Kristinn Sigmundsson söng Posa markgreifa. Jón Ásgeirsson tónlistar- gagnrýnandi Morgunblaðsins sagði í hléi á tónleikunum að þetta væru frábærir söngvarar og allur flutningur hinn bezti. „í heild- ina glæsilegur Carlos," sagði Jón Ásgeirsson. Morgunblaðið/BAR. Hluti kórs og hljóðfæraleikara á tónleikunum í gærkvöldi. „Glæsilegur Carlos“ Jafnt hjá Jóhanni og Georgiev JÓHANN Hjartarson gerði jafn- tefli við Kiril Georgiev í 8. um- ferð skákmótsins í Linares í gær. Timman gerði jafntefli við Júsupov en allar aðrar skákir fóru í bið. Timman er enn langefstur með 7 vinninga eftir 8 umferðir en næst- ir komaJBeljavskíj og Júsupov með 4V2 vinning og Beljavskíj á auk þess biðskák við Nunn. Nunn, Chandler og Ljubojevic hafa 4 vinn- inga og biðskák, og Portisch, 111- escas, Jóhann og Georgiev eru með 3V2 vinning og biðskák. Nicolic er með l'/2 vinning og biðskák og Tsjiburdanidze er með V2 vinning og biðskák. Viðræður um ullarvönikaup haida áfram Samningaviðræður við Sovét- menn um ullarvörukaup ganga fremur treglega, en þokast þó heldur í áttina að sögn Jóns Sig- urðarsonar forstjóra Álafoss hf. Jón vildi ekki tjá sig nánar um gang viðræðnanna, þegar Morgun- blaðið náði tali af honum í gær- kvöldi. Hann sagði þó ljóst, að þær héldu áfram í dag og sennilega yfir helgina. Viðræðurnar fara fram á Akureyri. Fimm fulltrúar niinni- hlutans gengu af fundi Dapurleg framkoma, segir borgarstjóri BORGARFULLTRÚAR Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks og Kvennalista gengu af fundi borg- arstjórnar í gærkvöldi er sam- þykkt hafði verið að ganga til samninga við ístak hf. um fyrsta áfanga ráðhúsbyggingar við Tjörnina. Sex mál voru þá enn óafgreidd á dagskrá fundarins. Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar, telur útgönguna ólögmæta samkvæmt sveitar- stjórnarlögum og lét bóka vítur á borgarfulltrúana fimm. Minnihlutafulltrúamir lögðu fram bókun, þar sem segir að rétt- arstaða fólks í Reykjavík sé skert með því að vísa frá tillögu þeirra um að auglýsa og kynna skipulag ráðhúslóðarinnar með lögformleg- um hætti, og hafi borgarbúar með því verið sviptir rétti sínum til áhrifa á skipulagið. Einnig segir í bókuninni að með því að ganga nú þegar til samninga við ístak sé kynningin á ráðhúsinu ómerkt, þar sem henni ljúki ekki fyrr en fímmta maí. Borgarbúum séu með þessu send þau ótvíræðu skilaboð, að meirihlutinn muni hafa athuga- semdir þeirra að engu og kynningin sé skrípaleikur. „Ég man ekki eftir því að þetta hafi gerst áður,“ sagði Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjómar, í samtali við Morgunblaðið. Magnús lét bóka á fundinum, að samkvæmt sveitarstjómarlögum bæri borgar- fulltrúum skylda til að sækja alla borgarstjómarfundi nema lögmæt forföll hömluðu því, og því teldi hann útgönguna ólögmæta og ólýð- ræðislega. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull- trúi Framsóknarflokksins, lét bóka að hún teldi mótmæli fimmmenn- inganna vantraust á félagsmálaráð- herra, sem hefði samþykkt skipulag Kvosarinnar. Hins vegar hefði hún kosið að bíða með að heíja bygg- ingu ráðhússins, þótt ekki teldi hún það tilefni til útgöngu. „Oft hefur okkur sviðið undan ákvörðunum sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en ekki séð ástæðu til að ganga út,“ sagði Sigrún. „Þetta er ósköp dapurleg fram- koma,“ sagði Davíð Oddsson, borg- arstjóri, í samtali við Morgunblaðið. „Þama var aðeins verið að sam- þykkja að gera ákveðinn verksamn- ÓSKAR Kjartansson gullsmiður lést í Landakotsspítala í gær- morgun, 38 ára að aldri. Hann fæddist í Reykjavík 23. apríl árið 1949, sonur hjónanna Kjartans Ásmundssonar gullsmiðs og Kristínar Bjarnadóttur. Óskar lauk námi í gullsmíði frá Goldschmiede Schule í Tforzhein í Þýskalandi árið 1970 og stundaði þar síðan framhaldsnám um nokk- urra mánaða skeið. Hann starfaði á gullsmíðaverkstæði Kjartans Ás- mundssonar í Aðalstræti frá hausti 1970 og tók við rekstri þess að föður sínum látnum. Óskar átti sæti í bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Þá gegndi hann um tíma forystustörfum í Félagi íslenskra gullsmiða. Óskar sérhæfði sig í orðusmíði og smíðaði fálkaorð- ur fyrir forsetaembættið um margra ára skeið. Óskar beitti sér fyrir stofnun samtaka krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra í fyrrahaust og er eitt af meginmarkmiðum þeirra, að koma á endurhæfíngarstöð. Hef- ur Krabbameinsfélag Islands tekið ing, sem var í samræmi við fyrri ákvarðanir borgarstjórnar. Þessi uppákoma var augljóslega skipu- lögð fyrirfram, þarna var dreift vélritaðri bókun sem var skrifuð fyrir fundinn. Svona framkoma er alveg óþekkt.í borgarstjórn og verð- ur fyrirgefín í þetta sinn, en ég vona að svona lagað gerist ekki aftur." Óskar Kjartansson ákvörðun um að hún verði opnuð síðar á þessu ári. Óskar lætur eftir sig eiginkonu, Herdísi Þórðardóttur, og þrjú böm. Óskar Kjartansson gullsmiður látinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.