Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 25
, MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 25 Krabbameinsfélag Islands opnar rannsóknarsstofu í dag: Aformað að opna endurhæfíngarsfcöð Herferð til fjáröflunar SETT hefur verið upp rannsóknarstofa í sameinda- og frumulíf- fræði á vegum Krabbameinsfélags íslands. Rannsóknarstofan er hluti af kerfi sem koma á upp til að vinna á krabbameini frá sem flestum vígstöðum, að sögn Snorra Ingimarssonar, forstjóra Krabba- meinsfélags íslands. Rannsóknarstofan verður til húsa að Skóg- arhlíð 8, en þar er einnig fyrirhugað að koma upp endurhæfingar- stöð fyrir krabbameinssjúklinga. Hafin er herferð til fjáröflunar í gegnum Visa-ísland til styrktar þessum verkefnum. Morgunblaðið/Þorkell Laufey Ámundadóttir, líffræðingur, við störf á nýju rannsóknar- stofu Krabbameinsfélags íslands. „Á rannsóknarstofunni skapast meðal annars aðstaða til að þróa nýjar aðferðir við leit að krabba- meini,“ sagði Snorri. „Þar verða jafnframt skilgreindir áhættuhópar í þjóðfélaginu og það fólk, sem er hættara við að fá krabbamein en gengur og gerist. Þannig verður hægt að fylgjast betur með þeim en ella.“ Síðastliðið haust voru stofnuð samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Eitt af baráttu- málum samtakanna er að koma á endurhæfingarstöð fyrir krabba- meinssjúklinga og eru uppi hug- myndir um að slík endurhæfingar- stöð geti tekið til starfa síðla næsta sumar. „Þetta fólk er mjög duglegt að beijast fyrir samtökin þrátt fyr- ir að mörg þeirra séu sjálf með krabbamein og í meðferð. Samtökin eru enn ein þáttaskilin í baráttunni gegn krabbameini hér á landi. Einn af ötulustu forvigismönnum þessara samtaka var Óskar Kjatansson gull- smiður, sem lést í fyrrinótt. Honum entist ekki aldur til að sjá drauma sína rætast en margar hendur verða til að bera það ljós áfram, sem hann og félagar hans tendruðu," ÞRIÐJI bekkur Leiklistarskóla íslands frumsýnir föstudaginn 4. mars barnaleikritið „Með álf- um og tröllum" eftir Staffan Vesterberg í Lindarbæ. Þýðandi er Ulfur Hjörvar. Leik- stjóri er Kári Halldór. Leikmynd og búninga gerir Messíana Tómas- dóttir og lýsingu annast Ólafur Örn Thoroddsen. Þetta er ævintýraleikrit og ijallar sagði Snorri. „Frá þeim kom mjög skýr áskorun til félagsins um að beita sér fyrir því að komið yrði á endurhæfingu fyrir krabbameins- sjúklinga. Þá er ekki eingöngu átt við líkamlega endurhæfingu heldur einnig andlega en það er mikið áfall fyrir fólk að fá vitneskju um að það er með krabbamein. Sumir komast ekki yfir það og aðrir bera þess aldrei bætur að hafa gengið í gegn- um þessi ósköp en flestum, sem læknast tekst að lifa eðlilegu lífí að mestu leyti. Það er greinilegt að við höfum verið mjög langt á eftir með and- lega aðhlynningu og uppbyggingu fyrir þetta fólk og þá ekki síst fé- lagslega uppbyggingu. Oft vill fara svo að þegar besti vinurinn eða ættingi fær krabbamein þá veit fólk ekki hvernig á að umgangast sjúkl- inginn og hann einangrast. Þetta er það, sem fer hvað verst með sjúklinginn hvað við erum full um- hyggjusemi um að láta þá í friði en það er ef til vill það sem við eigum alls ekki að gera. Það þurfa allir á aðstoð og handleiðslu að halda svo við vitum hvemig við eig- um að koma fram og taka á þessum um strákinn Jóakim og ferð hans gegnum ævintýralönd og huldu- heima þar sem hann hittir tröll, álfa, prinsessur og aðrar furðuver- ur. í 3. bekk Leiklistarskólans eru Bára Magnúsdóttir, Christine Carr, Elva Ósk Ólafsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Sigurþór Albert Heimisson, Steinn Ármann Magnússon og Steinunn Ólafsdóttir. málum. Þá má minna á að á áttunda hundrað einstaklingar greinast ár- lega með krabbamein en um 4000 manns eru nú á lífi sem hafa geng- ið í gegn um þessa reynslu. Haldi sama þróun áfrm er 'búist við að rúmlega 1000 manns greinist með krabbamein á ári um næstu alda- mót. Við verðum því að efla Heima- hlynningu félagsins til mikilla muna ef við eigum að geta sinnt þessu verkefni því ekki getur allt þetta fólk komist inn á sjúkrastofnanir.“ Áætlaður kostnaður við breyting- ar á húsnæði fyrir endurhæfingar- stöð, er rúmlega 2 milljónir króna. Hefur stjórn Krabbameinsfélagsins samþykkt að veita til þeirra fram- kvæmda af því fé, sem safnaðist í þjóðarátaki gegn krabbameini árið 1986. En síðan þarf rekstrarfé og hefur verið leitað til Visa-íslands um aðstoð við fjáröflun. „Herferðin til fjáröflunar er hugsuð sem leið til að fá inn ákveðnar tekjur í stað JAFNRÉTTISNEFND Reykjavíkurborgar er þessa dag- ana að fara af stað með könnun á aðstæðum kvenna sem starfa hjá Reykjavíkurborg, en 70% starfsfólks borgarinnar er kon- ur. Illa hefur gengið að halda konum í starfi hjá Reykjavíkur- borg og að ráða í hin hefðbundnu kvennastörf og því var ákveðið að í könnuninni verði lögð áhersla á atriði sem talin eru skipta megin máli fyrir almenna líðan og veru á vinnustað. Jafn- framt verður reynt að komast að því hverjir eru kostir og gall- ar vinnustaða að mati kvenna. Jafnréttisnefnd mun skoða að- stæður karla sem vinna hjá borg- inni á sama hátt við fyrsta tæki- færi. Jafnréttisnefnd Reykjavíkur- borgar hefur fengið þær Hansínu B. Einarsdóttur og Herdísi D. Bald- vinsdóttur til að framkvæma könn- unina. í samtali við Morgunblaðið sögðu þær að allar konur sem eru á launaskrá hjá Reykjavíkurborg Kindur fund- ust frosnar niður Mývatnssveit. FARIÐ var héðan úr Mývatns- sveit á þriðjudag inn í Herðu- breiðarlindir og var erindið að svipast eftir kindum. Ekið var á bíl þjóðveginn austur undir Jök- ulsá á Fjöllum með aftanívagn og fjórþjól. Farið var þaðan á hjólinu sem leið Iá suður í Lindir. Færið var frekar erfitt. Tók ferð- in frá þjóðvegi inn að Þorsteins- skála um 5 klukkutíma en það eru um 60 kílómetrar. Við skálann fundust þrjár kindur. Tvær voru dauðar og er fullvíst talið að þær muni hafa frosið niður. Eitt lamb var hinsvegar lifandi og virtist líta vel út. Það var flutt til byggða en eigandi þess var Ármann Pétursson í Reynihlíð. f vetur hefur fundist óvenju margt fé hér í afréttinni og yfirleitt verið vel á sig komið. Kristján happdrættis áður,“ sagði Snorri „Við byggjum á sníkjum og stuðn- ingi frá almenningi og þetta er leið, sem við viljum reyna og kanna; hvort korthafar Visa vilji styðja geti lent í úrtakinu, en þær eru 4.300 talsins. Auk þess verða karl- menn sem vinna hefðbundin kvennastörf, þ.e.a.s. fóstrur, hjúk- runarfræðingar og fleiri með í úr- takinu. Úrtakinu er skipt niður í 13 hópa sem valdir voru eftir stærð starf- stétta en auk þess verð hópar sem að einhveiju leyti skera sig úr. Skiptist úrtakið í eftirfarandi hópa: Ræstingarkonur í Verkakvennafé- laginu Framsókn, konur í Verka- kvennafélaginu Sókn, gæstukonur á leikvöllum, sjúkraliðar, skrifstofu- fólk, hjúkrunarfræðingar, fóstrur, uppeldisfulltrúar, konur í efstu launaflokkunum, konur í karla- störfum, karlar í kvennastörfum, konur með háskólamenntun og blandaður hópur, þ.e. þær sem ekki flokkast undir sérhópana. Alls lenda 900 konur í úrtakinu, eða 20% af öllum hópunum. Þá lenda tveir hópar í heild sinni í úr- takinu. Það eru konur í karlastörf- um og karlar í kvennastörfum. Rétt þótti að taka helming þeirra kvenna sem eru í efstu launaflokk- unum með í úrtakið, en þar er um fáa einstaklinga að ræða. Spurt verður um vinnutíma, að- búnað á vinnustað, samskipti á BÆNDUR og búfræðingar úr Reykjadal og víðar fóru um síðustu helgi á vélsleðum upp í Öskju. Veður var fagurt og fjallasýn góð og fögur. Það óhapp varð að tveir sleðar skemmdust í ferðinni en þar er um dýr tæki að ræða því að full- kominn vélsleði með lórantækj- um og slíkum útbúnaði kostar 3-400 þúsund krónur. Ég hitti nýlega bónda úr Köldu- kinn og spurði hann tíðinda. Hann sagði stormasamt í landbúnaði og mætti þar margt um segja. Lands- virkjun tekið við hlutverki kúnna en upphitun frá henni þykir dýr. Aukabúgreinar eru ekki alltaf eins auðskapandi og búist var við og Krabbameinsfélagið með lítilli upp- hæð mánaðarlega til þessara verk- efna. Þeir sem ekki eru korthafar geta lagt inn á gíró- reikning eins og nokkrir hafa þegar gert.“ vinnustað, vinnu og launakjör, hvort konur séu í stjómunarstörfum og hvort þær hafi möguleika eða áhuga á slíkum störfum, möguleika á tilfærslum eða stöðuhækkunum, hvað boðið er upp á í sambandi við félags- eða fræðslustörf og hvort konur hafi möguleika á að taka þátt í þeim. Auk þess verður spurt um ýmsa utanaðkomandi þætti, svo sem samfelldan skóladag, dagvist- unarrými, sveigjanlegan vinnutíma og fleira. Spurningalistamir verða sendir heim til þeirra kvenna sem lenda í úrtakinu einhvem næstu daga. Er gert ráð fyrir að konumar sendi svörin til baka eftir nokkra daga í umslagi sem fylgir með. Gert er ráð fyrir að niðurstöður könnunarinnar liggi fyrir í lok júlí. Þær Hansína, Herdís og Þórunn Gestsdóttir formaður Jafnréttis- nefndar Reykjavíkurborgar sögðu að miklu máli skipti að þátttaka í könnuninni yrði góð. Því fleiri svör sem bærast, því marktækari yrðu niðurstöðumar. Sögðu þær að könnun þessi væri einstök að því leyti að hún fjallar bæði um hug- læga og hlutlæga þætti í sambandi við konur á vinnumarkaði. bændur hvattir af búvélainnflytj- endum til fjárfestinga strax í vélum sem ekki koma til nota fyrr en eft- ir ijóra til fimm mánuði. Þeir era þá ekki minntir á fjármagnskostn- aðinn sem þó er mikið talað um núna. Bóndinn sagðist hafa gengið á fjöll í haust og tekið eftir því að spor fjallarefsins hefðu stækkað síðan loðdýraræktin fór að ryðja sér til rúms fyrir alvöra í íslenskum landbúnaði. Umbeðinn leyfði hann mér að heyra'síðustu vísuna sína: Ágerist nú fréttaþuður, fysnin virðist engu lík, konan mín er komin suður, klofast nú um í Reykjavík. - Fréttaritari Ævintýraleikrit sýnt í Lindarbæ Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar: Aðstæður kvenna sem starfa hjá borginni verða kannaðar Bændur úr Reykjadal á vélsleðum upp í Öskju Húsavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.